Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Qupperneq 53
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
myndahúsinu að í bíó er allt fullkomið en í
leikhúsinu getur allt gerst,“ segir Hrafn.
„Það er meira ævintýri. Svo eru áhorfendur
stundum dregnir inn í sýninguna en það væri
ekki hægt í kvikmyndahúsi.“
Aðspurðir hvort foreldrar þeirra séu ekki
dauðhræddir um að þetta þýði að þeir endi í
menningunni og verði fátækir listamenn segir
Sigurður að það sé of seint fyrir þau að hafa
áhyggjur af því. „Ég er nú þegar listamað-
ur,“ segir hann. „Hef málað málverk og hald-
ið fjórar einkasýningar og eina samsýningu
með Sigurði Þóri og Sigurði Örlygssyni í sal
hjá Saltfélaginu á síðustu menningarnótt.“
Myndlistarmaður? spyr blaðamaðurinn, og
ætlarðu að halda áfram … en þá grípur Sig-
urður fram í fyrir honum og segir: „Já, ég
ætla að verða fátækur listamaður,“ og glottir
við.
Hrafn hefur líka hallast að ýmsu menning-
arlegu í námi sínu þótt hann sé ekki ákveð-
inn í að verða listamaður, en hann er sópran
í drengjakór og er einmitt í söngnámi hjá
móður Sigurðar.
Aðspurðir hvort þeir hafi ekki lent í vand-
ræðum í leikhúsinu til að byrja með, fyrst
þeir fóru að sækja það svona ungir, segja
þeir svo ekki vera. Þegar þeir eru spurðir
hvort þeir hafi ekkert verið að reyna að stel-
ast til að kaupa rauðvín í hléi segja þeir svo
ekki vera. „Við erum bara í appelsíninu,“
segir Sigurður. „Og allt starfsfólk leikhússins
er mjög vinsamlegt við okkur.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hér eru þrír af sjö-
menningunum, þeir
Hrafn Haraldsson,
Sigurður Sævar
Magnúsarson og Páll
Nordal Eggertsson
Það var nú eða ekki – ég er að verða miðaldra!“ segir Ylfa MistHelgadóttir og hlær þegar hún er spurð út í nýjan geisladiskhennar, sem ber einfaldlega heitið Ylfa Mist og kemur út nú
um helgina. Útgáfutónleikar verða í Iðnó í kvöld, laugardag, kl.
20.30.
„Ég hef lengi verið í einhverju sem tengist tónlist, og ég hef sung-
ið inn á plötur áður, en ekki neitt af mínu eigin efni. En afi minn er
tónlistarmaður, hann Villi Valli á Ísafirði, og ég hef sungið inn á plöt-
ur hans. Ég hef líka haldið tónleika en hef ekki markaðssett mig,
enda er ég ömurleg í slíku,“ segir hún og hlær aftur.
Ylfa Mist er ekki vön að sitja með hendur í skauti. Hún býr í Bol-
ungarvík og er þar bæjarfulltrúi, áhugaleikkona og þriggja barna
móðir. „En þegar vinir og ættingjar höfðu spurt ítrekað hvenær ég
ætlaði að gera plötu, þá kom að því að ég svaraði að þeir yrðu þá að
hjálpa mér. Og það var ekkert mál, enda er eintómt hæfileikafólk í
kringum mig. Fólk settist bara niður og samdi lög og texta, eða texta
við lög sem ég valdi, og svo leika vinir og ættingjar á hljóðfærin.“
Meðal hljóðfæraleikara eru félagar í hljómsveitinni Ljótu hálfvit-
unum og leikfélaginu Hugleik.
„Ég var í Hugleik þegar ég bjó í Reykjavík og þar er fullt af fólki
sem gubbar upp úr sér textum og tónlist, og kann að spila. Félagar
mínir í Ljótu hálfvitunum eru líka áberandi á plötuni, það er sterkur
hálfvitasvipur á henni,“ segir Ylfa Mist.
YLFA MIST GEFUR ÚT SINN FYRSTA GEISLADISK
„Það var nú eða ekki“
„Þegar vinir og ættingjar höfðu spurt ítrekað hvenær ég ætlaði að
gera plötu, þá kom að því að ég svaraði að þeir yrðu þá að hjálpa
mér,“ segir bæjarfulltrúinn og áhugaleikkonan Ylfa Mist.
Morgunblaðið/Eggert
YLFA MIST HELGADÓTTIR SEGIR STERKAN
„HÁLFVITASVIP“ Á FRUMRAUN SINNI.
PLATAN KEMUR ÚT NÚ UM HELGINA.
Landslið söngvara og hljóð-
færaleikara hyllir minningu
söngkonunnar Ellyjar Vil-
hjálms á stórtónleikum í Laugardals-
höll á laugardagskvöld.
2
Á sýningunni Teikning –
Þvert á tíma og tækni í
Bogasal Þjóðminjasafnsins
eru athyglisverðar teikningar og graf-
íkverk eftir John Baine, Per Kirkeby,
Önnu Guðjónsdóttur og Þóru Sig-
urðardóttur.
4
Í i8 galleríi Tryggvagötu 16
stendur yfir sýning á verkum
Birgis Andréssonar (1955-
2007). Á laugardag kl. 15 mun Þröst-
ur Helgason bókmenntafræðingur
spjalla um verk Birgis á sýningunni.
5
Íranska Óskarsverðlauna-
myndin Skilnaður (A Sep-
aration) vekur margvíslegar
spurningar um ábyrgð okkar gagnvart
öðrum, siðferði, trú og vonir. Myndin
er sýnd í Bíó Paradís alla daga kl.
17.30 og 22.
3
Íslenski dansflokkurinn sýnir
vel lukkaða uppfærslu á It is
not a metaphor og Hel haldi
sínu í Borgarleikhúsi á sunnudags-
kvöldið.
MÆLT MEÐ
1