Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012
Menning
P
ersónur úr frægri kvik-
mynd Finnans Aki
Kaurismäki frá 1991,
birtast eftir tæpa viku á
sviði Samkomuhússins á Akureyri. Í
aðalhlutverki er „heldur mislukk-
aður embættismaður sem við end-
urröðun heimsins og einkavæðingu
er rekinn úr vinnu og uppgötvar þá
tilgangsleysi lífsins og einmana-
leika,“ eins og leikstjórinn Egill
Heiðar orðar það.
„Henri Boulanger ákveður að
svipta sig lífi en hefur ekki dug í
sér til þess. Hann ræður því leigu-
morðingja til að ganga frá sér en á
meðan hann bíður fer Henri að
skoða lífið, sem hann hefur ekki
gert áður. Fer til dæmis á bar í
fyrsta skipti, hittir þar blóma-
sölustúlku og ástin kviknar. Þá er
hann auðvitað í vondum málum;
með leigumorðingja á hælunum en
skyndilegan tilgang í lífinu.“
Kaurismäki fjallar mikið um fólk
af þessu tagi. „Hann vafraði sjálfur
um götur Helsinki á sínum tíma af
því að honum fannst lífið alltaf svo
ömurlegt!“ segir Egill Heiðar. Varð
svo hálfgerð költfígura eins og það
er kallað, eftir að myndin Maður án
fortíðar hlaut Gullpálmann í Cannes
2002 og var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna sem besta erlenda
myndin.
„Ég hef búið eitt ár í Helsinki og
hún getur verið ansi þung, eins og
fleiri borgir á norðurhveli ...“ segir
Egill Heiðar. En bætir því við að
depurðin geti oft verið býsna falleg
„og í melankólíunni býr mikill vís-
dómur. Við erum þeirrar gæfu þessi
þjóð að búa við þannig veðurað-
stæður að melankolían verður okkur
eðlislæg. Í henni er líka húmor og
greind.“
Egill segir Finnann gríðarlega
skemmtilegan sögumann í fábreyti-
leika sínum. „Fólkið í myndum hans
segir yfirleitt fátt; Finnar eru marg-
ir þannig – segja það nauðsynleg-
asta en eru ekki með neitt kjaftæði.
Myndir hans eru fyndnar, húmorinn
kolsvartur en verkin mjög heil-
steypt.“
Kvikmyndahandrit Kaurismäki
eru afar nákvæm, allar lýsingar og
þess háttar, og úr þeim verður til
texti sem lifnar við í munni leik-
aranna á Akureyri.
Handritið vann Egill Heiðar sjálf-
ur upp úr kvikmyndinni.
„Við gátum ekki hermt eftir
myndinni og höfðum aðstæður hér
heima því dálítið í huga; hér varð
ákveðið hrun og við þær aðstæður
þarf fólk að fara að pæla í einhverju
öðru en hinu og þessu dóti. Þess
vegna finnst okkur fallegt að segja
nú þessa litlu sögu um Henri Bou-
langer og baráttu hans fyrir því að
deyja.“
Hann segist skynja mikinn vel-
vilja í garð Leikfélagsins og það
skipti bæjarbúa greinilega máli að
leikhúsið sé fyrir hendi. Mikil tónlist
er í verkinu, bæði frumsamin og
eldri, og er Harmonikufélag Eyja-
fjarðar þar í aðalhlutverki. Leik-
stjórinn rómar þann hóp, sem og
aðra sem að verkinu koma.
Egill Heiðar Anton Pálsson út-
skrifaðist sem leikari hér heima
1999 og lauk framhaldsnámi í leik-
stjórn við Ríkisleiklistarskólann í
Kaupmannahöfn þremur árum síð-
ar. „Ég var svo í starfsþjálfun í leik-
húsi í Þýskalandi í eitt ár og eftir
það reyndi maður að byggja upp
karríer. Og mér hefur gengið ágæt-
lega,“ segir hann lítillátur.
Egill Heiðar virðist lítinn áhuga
hafa á að tala um eigin velgengni í
útlöndum. „Ég hef verið heppinn,“
segir hann bara og brosir.
Gott og vel. Þó er vert að geta
þess að hann hefur sviðsett um 40
verk á um það bil áratug, aðallega á
Norðurlöndunum og í Þýskalandi í
húsum á borð við Borgarleikhúsið í
Stokkhólmi, Konunglega leikhúsið í
Kaupmannahöfn, Ríkisleikhúsið í
Mannheim, Borgarleikhúsið í Gauta-
borg, Viirus leikhúsið í Helsinki,
Schaubühne leikhúsið í Berlín og
Mammut í Kaupmannahöfn.
Egill Heiðar var prófessor í leik-
túlkun við LHÍ frá 2004 til 2008 og
er nú stundakennari á leikstjórn-
arbraut við Ríkisleiklistarskólann í
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið veit
að nyrðra þykja það mikil tíðindi að
Egill Heiðar skuli koma til starfa.
Sannkallaður happafengur. En hvað
dró hann þangað?
„Ótrúlega falleg upphringing frá
mikilli vinkonu minni og samstarfs-
konu í Listaháskólanum.“ Þar á
hann við Ragnheiði Skúladóttur sem
nýlega var ráðin listrænn stjórnandi
Leikfélags Akureyrar. „Vegna
óvæntra ástæðna var ég laus og
mér fannst svo mikill hugur í fólki
hér – eins og stundum verður þegar
á móti blæs – að ég vildi koma og
gera eitthvað fallegt með þessum
góða hópi. Stundum er maður rétt-
ur maður á réttum stað á réttum
tíma. Þetta er eins og að vera boðið
í óvænt partí. Þau eru alltaf best.“
Egill hefur nóg að gera og er á
faraldsfæti. „Konan og börnin búa í
Reykjavík og ég er eins og aðrir
farandverkamenn en það er bara af
því að verkefnin eru úti. Það er frá-
bært að vera á Íslandi, en ég hef
verið svo heppinn úti að fá að gera
það sem ég vil; tækifærin hafa því
leitt mig þangað. “
Egill Heiðar: Vegna óvæntra ástæðna var ég laus og mér fannst svo mikill hugur í fólki hér – eins og stundum verður þegar á móti blæs – að ég vildi koma og vinna með þessum góða hópi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
ÁTTI LAUSA STUND OG TÓK AÐ SÉR AÐ ÚTVEGA LEIKFÉLAGI AKUREYRAR LEIGUMORÐINGJA
EGILL HEIÐAR ANTON PÁLSSON STARFAR NÆR EINGÖNGU Í ÚTLANDINU EN LEIKSTÝRIR NÚ LEIGUMORÐINGJANUM HJÁ LEIKFÉLAGI AKUREYRAR.
HANN SAMDI LEIKGERÐINA, SEM BYGGÐ ER Á I HIRED A CONTRACT KILLER, KVIKMYND FINNSKA LEIKSTJÓRANS HEIMSKUNNA, AKI KAURISMÄKI.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Æðislega gaman! Aðalbjörg Þóra Árnadóttir og Hannes Óli Ágústsson.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mikill vísdómur í depurðinni