Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 60
andstæðingum, samherjum og ekki
síst áhorfendum til undrunar og
ama. Var hann látinn hafa það
óþvegið að launum og steinhætti
þessari vitleysu. Limpar hafði leikið
með Cremonese á Ítalíu áður en
hann kom til Arsenal og bar því við
að þar hefði hann beinlínis fengið
fyrirmæli um að láta sig detta við
minnsta núning.
Ókrýndur konungur dýfinganna í
Englandi hin seinni ár er Fílabeins-
strendingurinn Didier Drogba, sem
lék með Chelsea í átta ár, frá 2004-
12. Stórkostlegur leikmaður en eng-
inn eftirbátur Gregs gamla Loug-
anis þegar kom að dýfingum. Sama
hversu oft hið mennska auga og
mynda-
vélar
stóðu
hann að
verki á
Sú var tíðin að dýfingar þekkt-ust ekki í ensku knattspyrn-unni. Leikmenn stóðu í fæt-
urna nema á þeim væri harkalega
brotið, þeir helst teknir mið-
aldatökum og keyrðir niður í gras-
svörðinn. Jafnvel þá var þeim ekki
til setunnar boðið, það var ígildi
uppgjafar að kveinka sér, hvað þá
að liggja emjandi eftir. Engum datt
í hug að láta hörkutól eins og
Norman Hunter, Graeme Souness
eða Stuart Pearce finna á sér
snöggan blett. Þá væri leik sjálf-
hætt. Gengið skyldi meðan báðir
fætur væru jafnlangir.
Á öðrum og suðlægari spark-
svæðum er aftur á móti löng hefð
fyrir dýfingum, það er að leikmenn
láti sig falla til jarðar við minnstu
snertingu, jafnvel enga, í því augna-
miði að „fiska“, eins og það er kall-
að, auka- eða vítaspyrnu. Þegar er-
lendum leikmönnum fór að fjölga að
einhverju gagni í Englandi fór fljótt
að örla á þessu. Gott dæmi er And-
ers Limpar, sænski útherjinn sem
gekk til liðs við Arsenal fyrir rúm-
um tveimur áratugum. Í fyrstu
leikjum sínum átti hann það til að
falla með tilþrifum í tíma og ótíma,
velli varð engu tauti við
Drogba komið.
Hann hélt bara
áfram að falla
eins og haustlauf
í vindi. Helmass-
aður sem hann
er. Ljótur blett-
ur á annars
glæstum ferli og
ungum sparkendum þessa heims af-
leit fyrirmynd.
Úrúgvæinn Luis Suárez hjá Liv-
erpool hefur nú tekið við keflinu af
Drogba. Svo oft hefur hann fallið af
litlu tilefni og engu að hann er
steinhættur að fá nokkurn skapaðan
hlut hjá dómurum. Þeir trúa því
einfaldlega ekki að öðrum sé um að
kenna þegar Suárez fellur til jarðar,
einkum í vítateignum. Maður hefur
á tilfinningunni að ekki verði flautað
fyrr en einhver tekur upp hagla-
byssu og skýtur aumingja manninn
á færi. Suárez er kominn í vítahring
og á dögunum hvatti Alan Hansen,
sparkskýrandi og fyrrverandi fyr-
irliði Liverpool, hann til að standa í
fæturna í heilar sex vikur. Gott ef
hann á ekki hreinlega að sofa stand-
andi. Það væri eina leiðin til að
vinda ofan af þessu.
Dýfingar hafa færst hægt og bít-
andi í vöxt í ensku knattspyrnunni
og sparksamfélagið þar í landi vill
allt til þess vinna að útrýma þeim.
Nú tók átján yfir þegar enskir leik-
menn fóru að brydda upp á þessum
óskunda líka, má þar nefna Ashley
Cole, Michael Owen og jafnvel sjálf-
an Wayne Rooney. Þar með má
segja að ónæmiskerfið sé endanlega
brostið. Hvað er til ráða?
Svo segja þeir að fall sé far-
arheill!
Anders Limpar féll í freistni.
Fall er
fararfeill
AFP
Luis Suárez steinliggur í teignum. Dómaranum var ekki skemmt fremur en endranær.
Dýfingar eru ekki eina bellibragðið sem við-
gengst í ensku knattspyrnunni, menn kunna
ýmis ráð til að koma höggi á andstæðinginn.
Eftir síðustu helgi voru þrjú atvik til umfjöll-
unar sem öll áttu það sameiginlegt að dóm-
arinn tók ekki afstöðu til þeirra meðan á leik
stóð. Þjálfarar leikmannanna sem fóru hall-
oka vöktu hins vegar athygli á þeim þegar
að leik loknum og fóru fram á að þau yrðu
skoðuð betur af aganefnd enska knatt-
spyrnusambandsins.
Fyrsta atvikið átti sér stað í leik Liverpool
og Stoke City á Anfield þegar Robert Huth,
varnarmaður gestanna, steig á títtnefndan
Luis Suárez. Af myndbandsupptökum að
dæma þarf góðan vilja til að halda því fram
að sá gjörningur hafi verið óviljaverk. Eigi
að síður verða engin eftirmál af atvikinu.
Því miður er of algengt að stigið sé á leik-
menn í knattspyrnu og enda þótt erfitt geti
verið að sanna ásetning verða dómarar og
eftirlitsaðilar að vera á varðbergi gagnvart
atvikum af þessu tagi. Augljóst má vera að
ýmsir þjálfarar ráðleggja varnarmönnum
sínum að nudda sér ótæpilega upp við Suá-
rez enda kveikiþráðurinn í honum á köflum
stuttur. Lúalegt bragð en veruleiki sem Úrú-
gvæinn og Brendan Rodgers, knatt-
spyrnustjóri Rauða hersins, verða að læra að
lifa með. Því fyrr þeim mun betra.
Hin atvikin tvö eru úr leik Newcastle
United og Manchester United á St. James’
Park. Fyrst var miðvellingur heimaliðsins,
Cheick Tioté, of seinn í tæklingu við Tom
Cleverley, kollega sinn í liði gestanna, og
síðan hné Yohan Cabaye, miðvellingur New-
castle, niður eftir viðskipti við Robin van
Persie, framherja Rauðu djöflanna. Hvor-
ugum leikmanni var refsað af dómara leiks-
ins, Howard Webb, og þar við situr.
Brot Tiotés verðskuldaði ekki brottrekstur
en var á hinn bóginn klárlega gult spjald.
Viðskipti van Persies og Cabayes litu ekki
vel út, olnbogi virtist fara á loft að óþörfu,
en Hollendingurinn fær að njóta vafans.
Fyrir kemur að honum hitni í hamsi en þeg-
ar á reynir má aldrei dæma menn út frá orð-
spori – sönnun þarf að liggja fyrir.
Robin van Persie og
Yohan Cabaye skiptast á
vel völdum orðum um
liðna helgi. Howard
Webb gengur í milli.
AFP
OLNBOGAR OG
ÁTROÐSLUR
ÝMSUM BRÖGÐUM BEITT TIL AÐ KOMA HÖGGI Á ANDSTÆÐINGINN.
Fautaskapur í einu eða öðru formi
* Setjið hann í þriggja leikja bann og hannhættir að falla um koll.Áskorun Tony Pulis, knattspyrnustjóra Stoke City, til enska knatt-
spyrnusambandsins varðandi Luis Suárez, miðherja Liverpool.
Boltinn
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
DÝFINGAR ERU VAXANDI VANDAMÁL Í ENSKU KNATT-
SPYRNUNNI. ÞÆR ERU EKKI PARTUR AF HINNI ENSKU
SPARKHEFÐ OG MÆLAST ILLA FYRIR. EIGI AÐ SÍÐUR GENG-
UR TREGLEGA AÐ ÚTRÝMA ÞEIM ENDA ÞÓTT BRÖGÐ
KOMI NÚ Í AUKNUM MÆLI Í BAKIÐ Á DÝFENDUM.
Didier Drogba.
Hvers vegna er
þessi búkur á
brauðfótum?
Greg Loug-
anis. Er hann
fyrirmyndin?
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012