Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Blaðsíða 64
Lúðrasveit Þorlákshafnar er í forgrunni á nýjustu plötu
Jónasar Sigurðssonar en ekki Ritvélar framtíðarinnar
eins og verið hefur, þó tónlistarmenn úr þeim hópi séu
með í för. Þá syngur tónlistarband eldri borgara í Þor-
lákshöfn, Tónar og Trix, eitt lag á plötunni.
„Þorlákshöfn er heimabærinn minn; hér ólst ég upp,
byrjaði einmitt tónlistarferilinn í lúðrasveitinni og hafði
gengið með það í maganum, eins og flestir á einhverjum
tímapunkti, að taka ræturnar fyrir,“ segir Jónas um
ástæðu þess að hann fór þessa leið. „Lúðrasveitin hafði
samband við mig og langaði að flytja lögin mín á tón-
leikum en ég spurði á móti hvort sveitin væri ekki til í að
gera plötu með mér, þar sem blandað yrði saman raf-
tónlist og lúðraveit. Og fólkið stökk á þá hugmynd.“
Jónas er alsæll með þessa þróun mála. „Róbert Dar-
ling, sem stjórnaði lúðrasveitinni þegar ég var þar, er
enn við stjórnvölinn; það var einmitt hann sem kenndi
mér á trommur þegar ég var 12 ára gutti. Það er líka
mjög skemmtilegt að mamma mín er í hópnum Tónar og
Trix, gamlir kennarar mínir úr grunnskóla og fleira fólk
sem ég þekki. Það er dásamlegur hópur fólks á aldrinum
70 til 89 ára.“ Tónar og Trix flytja eitt lag á plötunni;
texta móður Jónasar við eitt laga hans.
Tvennir útgáfutónleikar verða haldnir um næstu helgi
í reiðhöllinni í Þorlákshöfn og þar verður mikið um dýrð-
ir. Meðal annars hefur verið leigt stórt hljóðkerfi. „Ég er
viss um að þetta verður stór stund og mikil upplifun,“
segir Jónas.
Ljósmynd/Bernhard Kristinn
JÓNAS SIGURÐSSON OG ÞORLÁKSHAFNARBÚAR
Raftónar og lúðrablástur
Jónas Sig á sjó með
tónlistarfólkinu úr Þor-
lákshöfn sem tekur
þátt í verkefninu.
SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2012
Það er leikur að
læra á Leiguna
Þín ánægja er okkar markmið
Skannaðu QR kóðann og lærðu á Leiguna
í Vodafone Sjónvarpi á 3 mínútum.
Heill kvikmyndaheimur opnast.
Skannaðu kóðann, leggðu símann
niður og lærðu á Leiguna
Sögurnar frá Narníu, ljónið, nornin og fataskáp-
urinn er bíómynd sem gerð var eftir fyrstu bók
hinnar skemmtilegu barnabókaraðar C.S.
Lewis og ekki hægt annað en að mæla með
kvikmyndinni. Bókin kom út um miðja síð-
ustu öld en hefur síðan þá selst í yfir 100
milljónum eintaka á tæplega 50
tungumálum. Myndin er sýnd á
RÚV á laugardagskvöld kl. 20:40.
Hún er upplögð fyrir krakka og fullorðna,
smá svona augnakonfekt sem lokapunktur
góðs nammidags fjölskyldunnar.
SJÓNVARP OG ÚTVARP UM HELGINA
Litríku ævintýrin um krakkana og nornina í Narníu eru fyrir alla fjölskylduna.
Nornin í Narníu
Rás 2 kl.
15.02 sunnu-
dag Útvarps-
þátturinn Nei,
hættu nú alveg
sem Villi nagl-
bítur stjórnar
er skemmtilegur og fræðandi. Villi
er fróðleiksfús og dregur upp
furðulegustu spurningar úr hatt-
inum, auk þess að vera hnyttinn.
NEI, HÆTTU NÚ ALVEG
Stöð 2 kl.17.40 á sunnudag
Fréttaskýringaþátturinn bandaríski
60 mínútur á erindi við alla sem
hafa áhuga á alþjóðamálum og vilja
vandað sjónvarpsefni um ólíkar
hliðar mannlífs og stjórnmála frá
öllum heimshornum.
FRÉTTIR Í 60 MÍNÚTUR
Bylgjan kl.10.00 á sunnudag
Sprengisandur á Bylgjunni á sunnu-
dagsmorgnum er undir stjórn Sig-
urjóns M. Egilssonar. Sigurjón nær
jafnan í áhugaverða viðmælendur
og umræðurnar eru ávallt líflegar.
PÓLITÍK Á BYLGJUNNI
FJÓRIR LITLIR KRAKKAR MUNU Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
HJÁLPA LJÓNI AÐ BJARGA HEIMINUM FRÁ VONDRI HVÍTRI
NORN. ÞAÐ LEYNIST FLEIRA Í FATASKÁPUM EN FÖT.