Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Alls hafa níu verkefni fengið út- hlutað IPA-styrkjum frá Evrópu- sambandinu og eru styrkirnir sam- tals 2.346 milljónir króna, eins og rakið er á grafinu hér fyrir ofan. Við- takendum styrkja á eftir að fjölga en framkvæmdastjórn ESB hefur sam- þykkt að verja 30 milljónum evra, eða 4.781 milljón króna, í íslensk IPA-verkefni á árunum 2011-2013. Að sögn Urðar Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa utanríkisráðu- neytisins, segja ártölin á landsætlun IPA aðeins hvenær verkefnin fóru í gegn hjá Evrópusambandinu. Þau segja því ekki hvenær verkefnin hefjast. Verkefnin sem fóru í gegn hjá ESB í fyrra koma flest ef ekki öll til framkvæmda í ár, 2012. Á listanum er ekki tekið fram hve- nær verkefnin koma til fram- kvæmda og hversu lengi þau vara. Fæst eru ársverk. Á listanum yfir landsáætlun IPA á árinu 2012 er vís- að til verkefna sem vænst er að komi til framkvæmda á næsta ári. Náttúrufræðistofnun og Land- mælingar fá hæsta styrkinn, alls 587 milljónir króna, og kemur Matís næst með 302 milljónir í styrk, en hluti fjárins fer í kaup á tækjum. Hátt í 14 milljónir í túlkaklefa ESB-umsóknin ætlar að reynast búhnykkur fyrir þýðendur en í ár og á næsta ári verður 2,5 milljónum evra varið í þýðingar á ESB-gerðum og þjálfun túlka, eða rétt tæplega 400 milljónum króna. Jafngildir það 546 þúsund kr. á dag árin tvö, tæplega 23 þúsund kr. á klst. Verður í því skyni auglýst eft- ir tilboðum í uppsetningu túlkaklefa og búnaðar til þjálfunar í ráðstefnu- túlkun við HÍ að upphæð 86.000 evr- ur, eða um 13,7 milljónir kr. Þá fær Hagstofa Íslands rúma 131 milljón kr. til að „efla hagtölugerð á sviði þjóðhagsreikninga til að unnt sé að bæta stefnumótun á sviði efna- hags- og peningamála“. Jafnframt fær Veðurstofan um 274 milljónir kr. til að undirbúa vatna- og flóðatilskipun ESB á Ís- landi. Einnig fær Háskólafélag Suð- urlands tæplega 300 milljónir til efl- ingar atvinnu- og byggðaþróun á Eyjafjallajökulssvæðinu. Verður sérstaklega horft til þess að „nýta einstaka jarðsögu svæðisins til efl- ingar ferðaþjónustu“ allt árið. Loks má nefna að tæplega 264 milljónir renna til svonefndrar NI- PAC-skrifstofu hjá utanríkisráðu- neytinu, sem heldur utan um IPA- styrki gagnvart framkvæmdastjórn ESB. Sambandið veitir enga beina styrki til reksturs skrifstofunnar en gert er ráð fyrir að hægt verði að bjóða út ýmsa þjónustu sem tengist utanumhaldi með IPA-styrkjunum. Útdeila vel á þriðja milljarð í IPA-styrki  ESB ver hátt í 400 milljónum í þýðingar og þjálfun túlka Liður í aðlögun » Fram kemur á vef utanríkis- ráðuneytisins að ESB beini styrkjunum til umsóknarríkis. » Féð fer annars vegar í verk- efni til styrkingar stjórnsýslu og hins vegar í tilraunaverkefni vegna undirbúnings fyrir þátt- töku í uppbyggingarsjóðum Evrópusambandsins. Ísland og IPA-styrkir Viðtakandi Upphæð í Upphæð í milljónum evra m. króna Landsáætlun IPA 2011 Uppbygging á NATURA 2000 samstarfsneti á Íslandi og innleiðing vistgerða- og fuglatilskipana ESB (Náttúrufræðistofnun og Landmælingar) 3,685 587,205 Hagtölur í samræmi við reglugerðir 2223/1996 og 479/2009 um þjóðhagsreikninga (Hagstofa Íslands) 0,825 131,464 Uppbygging á rannsóknastofum og gæðakerfi vegna matvælaeftirlits (Matís) 1,9 302,765 Þýðingar á ESB-gerðum, þjálfun túlka og stuðningur við uppbyggingu á innviðum fyrir túlkanám við Háskóla Íslands (Utanríkisráðuneytið og Háskóli Íslands) 1,5 239,025 Jarðvangur – þróunaráætlun fyrir Eyjafjallajökulssvæðið (Háskólafélag Suðurlands) 0,56 89,236 Menntun fyrir fleiri og betri störf. Víðtækar aðgerðir til að efla menntunarstig og atvinnu (Fræðslumiðstöð atvinnulífsins) 1,875 298,781 Tæknilegur stuðningur við NIPAC-skrifstofuna og óráðstafað fé (Utanríkisráðuneytið) 1,655 263,724 Samtals 12 1912,2 Landsáætlun IPA 2012 Undirbúningur að innleiðingu vatna- og flóðatilskipunar ESB á Íslandi (Veðurstofan) 1,722 274,464 Þýðingar á ESB-gerðum (Utanríkisráðuneytið) 1 159,35 Samtals 2012 2,722 433,814 Samtals 2011 og 2012 14,722 2.346,014 Gengi evru er hér reiknað sem 159,35 krónur Heimild: Utanríkisráðuneytið Landsvirkjun hefur fengið nauð- synleg leyfi til að reisa tvær vind- myllur í nágrenni Búrfellsstöðvar. Áætlað er að vindmyllurnar verði reistar í desember næstkomandi. Landsvirkjun er að kanna mögu- leika á að hefja framleiðslu raf- orku með vindrafstöðvum. Fyrsta skrefið í því er uppsetning tveggja tilraunastöðva á Hafinu sem er við Bjarnalón, ofan Búrfellsstöðvar. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp- verjahrepps hefur samþykkt upp- setningu vindrafstöðvanna fyrir sitt leyti. Þá hefur Orkustofnun veitt virkjanaleyfi og forsætisráðu- neytið hefur heimilað Landsvirkj- un að ráðast í framkvæmdina sem verður á þjóðlendu. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun hefur verið samið við Enecon í Þýskalandi um kaup á tveimur 0,9 MW vindrafstöðum sem samtals geta framleitt 1,8 MW. 55 metra há möstur Vindmyllurnar verða allt að 55 metra háar en með spöðum geta þær náð upp í allt að 80 metra hæð. Þegar reynsla hefur fengist af tilraunastöðvunum hefur Lands- virkjun hug á því að ráðast í und- irbúning á stærri vindorkugarði við Búrfell. Þar yrðu þá allt að 15 vindmyllur á 80 metra háum möstrum. Uppsett afl þeirra gæti orðið 40 MW. Einnig er verið að athuga möguleika á að setja upp vindrafstöðvar við Blönduvirkjun. helgi@mbl.is Vindmyllur reistar við Búrfell í desembermánuði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Vindmylla Spaðar rafstöðvarinnar geta náð í allt að 80 metra hæð.  Orkustofnun og ráðuneyti hafa veitt leyfi til virkjunar Baldur Arnarson Egill Ólafsson „Ég held að þetta sé einföld lýsing á staðreyndum sem við höfum öll upp- lifað. Stjórnmálin megna hvorki að auka fólki tiltrú á afl þeirra til að vísa veginn áfram né að ná efnislega saman um niðurstöðu í mikilvægum málum. Það sem við virðumst geta gert er að vera ósammála um mögu- leg bjargráð, en vandinn er öllum ljós,“ segir Árni Páll Árnason, þing- maður Samfylkingar, spurður hvort ummæli hans um kyrrstöðu í stjórn- málunum feli ekki í sér gagnrýni á Samfylkinguna og forystu hennar. Árni Páll lét ummælin falla í yfir- lýsingu um framboð til formanns í Samfylkingunni. Hann er fyrsti samfylkingarmaðurinn sem ríður á vaðið en til þessa hafa þau Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Guðbjartur Hannesson og Katrín Júlíusdóttir verið orðuð við formannsframboð án þess að þau hafi afdráttarlaust kveð- ið á um hvort þau ætli að fara fram. Dagur með hugann við borgina Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra kveðst ekki ætla í for- mannsframboð en á hann er þrýst að gera það. Þá töldu samfylkingar- menn sem rætt var við að Dagur B. Eggertsson horfi ekki til framboðs. Hugur hans sé í borginni. Skúli Helgason, þingmaður Sam- fylkingar, segir dagsetningu próf- kjörs Samfylkingar í Reykjavík verða ákveðna laugardaginn 13. október næstkomandi. „Niðurstaða prófkjaranna í nóvember mun gefa ákveðnar vísbendingar um stöðuna í formannskjörinu. Það er fyrst og fremst flokksmanna, þeirra þúsunda sem eru í Sam- fylkingunni, að komast að því hverjum þeir treysta best. Það mun ráða talsvert miklu um stöðu Árna Páls og Katrínar hvernig prófkjör þeirra fer í Suðvestur- kjördæminu,“ segir Skúli en bæði stefna á fyrsta sætið þar. „Sá sem vinnur það próf- kjör er með talsvert sterka stöðu,“ segir Skúli. Óvænt nafn gæti komið fram Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, útilokar ekki að fram komi einstaklingur ut- an þingflokksins sem sækist eftir því að gegna formannsstöðu í flokknum. „Ég hef ekki heyrt neitt um það en það hefur verið rætt um hugsan- lega aðkomu einhvers úr atvinnulíf- inu en engin nöfn verið nefnd. Svo er alltaf hugsanlegt að Össur Skarp- héðinsson láti undan þrýstingi. Ég held að þetta ráðist mikið af prófkjörunum, hvernig menn kom- ast frá þeim. Það má segja að þær verði forkosningar til formanns.“ Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, útilokar ekki framboð til formanns Samfylkingar. „Ég veit ekki um neinn samfylking- armann sem hefur útilokað framboð nema Össur Skarphéðinsson. Það er enda svo langt í kjörið. Landsfund- urinn er ekki fyrr en í febrúar. Alls- herjaratkvæðagreiðsla fer ekki fram fyrr en í janúar. Framboðsfrestur rennur út um áramótin.“ Árni Páll ætlar í formannsslaginn Árni Páll Árnason  Samfylkingarmenn horfa til prófkjara  Stefnir í harðan slag í Suðvesturkjördæmi flutt í Skútuvog 11 Við erum Verslun: Skútuvogi 11 • 104 Reykjavík • 510 8888 Samfylkingarmenn eru raunsæir þegar þingkosningarnar í vor eru annars vegar. Kjörtímabilið hafi reynt mikið á og því sé ekki hægt að ætla að flokkurinn fái viðlíka út- komu og í kosningunum 2009. Þetta sagði samfylkingarmaður sem rætt var við í trausti nafn- leyndar en sá taldi engu máli mundu skipta hvort kona eða karl leiði flokkinn í næstu kosningum. Ekki náðist í þau Össur Skarp- héðinsson og Katrínu Júlíusdóttur. Guðbjartur Hannesson kvaðst hins vegar hafa fengið áskoranir um að bjóða sig fram til formanns. Hann hafi ekkert ákveðið í því efni. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir ætlar að bíða eftir prófkjörunum. „Ég mun sækjast eftir forystu- sæti í öðru hvor Reykjavíkur- kjördæminu. Það er markmið sem ég stefni að núna. Það er ekki tímabært að ræða framhaldið fyrr en eftir prófkjörin,“ sagði Sigríður Ingibjörg. Raunsætt á útkomu kosninga VONIR OG VÆNTINGAR SAMFYLKINGARFÓLKS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.