Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 og HBO-sjónvarpsstöðvarnar, er fylgst með undirbúningnum fyrir sýninguna í þessu kunnasta sam- tímalistasafni heims. Áhorfandinn kynnist glæsilegri og hrífandi lista- konunni, hugmyndum hennar og ferli, þar sem hún rifjar upp gerð sumra verka sinna. Á sama tíma er hún að þjálfa þátttakendur sem taka þátt í endurgerð þeirra á sýn- ingunni, og að móta þolgæðisgjörn- inginn sem bar sama heitir og kvik- myndin: The Artist is Present, eða Listamaðurinn er viðstaddur. Abramovic, sem er dóttir júgó- slavneskra stríðshetja, kveðst hafa alist upp við mikinn aga og lítið ást- ríki, og viðmælendur segja hana Hin serbneska MarinaAbramovic er langkunn-asti gjörninga-listamaður samtímans og líklega er óhætt að fullyrða að hún sé fyrsti samtímalistamaðurinn sem helgað hefur sig gjörningalist sem nýtur almennrar aðdáunar – þótt henni hafi oft tekist að hneyksla og ögra hressilega. Í gjörningum sínum hefur Abramovic iðulega gengið nærri sjálfri sér, með ofbeldi, ógn og svelti, og hafa þeir krafist ofurmannlegs úthalds. Á viðamikilli yfirlitssýningu í MoMA í New York fyrir rúmum tveimur árum var litið yfir feril Abramovic, á skrásetningu gjörn- inga frá fjögurra áratuga tímabili, auk þess sem leikarar endurgerðu suma þeirra. Sýningin hlaut gríð- arlega aðsókn, og ekki síst sökum þolgæðisgjörnings listakonunnar, sem komin var á sjötugsaldur og sat þar nánast hreyfingarlaus í 700 klukkustundir alls, allan sýning- artímann, og horfist í augu við hvern gestinn á fætur öðum. Hátt í 800.000 gestir fylgdust með gjörn- ingnum á sýningartímanum. Í þessari áhrifaríku kvikmynd Matthew Akers, sem hefur meðal annars unnið fyrir bandarísku PBS hafa leitað að aðdáun og ást hvar sem hún hefur komið við. Fyrst öðl- aðist hún frægð í afar líkamlegum samstarfsverkum með öðrum gjörn- ingalistamanni, Ulay, en þau áttu jafnframt í tólf ára ástarsambandi. Í myndbandsverkum frá sjöunda og áttunda áratugnum má sjá þau slá hvert annað ítrekað, hlaupa nakin á veggi og hvar hann beinir flug- beittri ör að hjarta hennar. Áhrifa- mikið er að fylgjast með endur- fundum þeirra Ulays, eftir langt hlé, meðan á gjörningunum í MoMA stendur. Vönduð kvikmyndin um Marinu Abramovic ætti að vekja áhuga allra áhugamanna um frjóa sköpun. Morgunblaðið/Einar Falur Úthald Marina Abramovic fremur gjörning sinn í MoMA. Þar sat hún nær hreyfingarlaus sex daga vikunnar, í þrjá mánuði og horfðist í augu við gesti. Reynt á þolmörkin RIFF: Háskólabíó Marina Abramovic: Listamaðurinn er við bbbbn Leikstjóri: Matthew Akers. Bandaríkin, Serbía og Svartfjallaland, 2011. 104 mínútur. Flokkur: Heimildarmyndir. EINAR FALUR INGÓLFSSON KVIKMYNDIR Kvikmyndin Am Himmelder Tag segir frá arkiekt-úrnemanum Laru semhefur ekki ýkja mikinn áhuga á arkitektúrnámi sínu. Enda hefur hún einna mestan áhuga á að taka ljósmyndir. Lara er nærri sam- vaxin bestu vinkonu sinni Noru en þær stöllur fara gjarnan út að skemmta sér og eftir eitt slíkt kvöld tekur líf Laru u-beygju. Hún verður barnshafandi eftir mann sem hún þekkir hvorki haus né sporð á en ákveður að eiga barnið. Það kemur vel fram í myndinni hve sterk móð- urástin er og verður yfirsterkari öllu þó barn hafi síður en svo verið á planinu hjá Laru. Hún er sýnd sem sjálfstæð, ung kona sem lætur fram- tíðaráform foreldra sinna um fram- tíð einkadótturinnar ekki hafa áhrif á sig og heldur ótrauð áfram við að búa sig undir komu barnsins. Á með- an hefur Nora samband við kennara þeirra vinkvennanna og verður sam- band þeirra nokkuð stirt eftir það því Lara renndi einnig til hans hýru auga. En Lara eignast á sama tíma góðan vin sem er nágranni hennar, Elvar, leikinn af Tómas Lemarquis. Þegar Lara virðist hafa sætt sig við þá breytingu sem orðið hefur á lífi hennar verður önnur og öllu verri breyting á. Barnið deyr í móðurkviði og Lara missir tökin á tilveru sinni. Sýnir seinni hluti kvikmyndarinnar það á skerandi sáran og raunsæjan hátt hvernig afneitun blindar fólk. Lara afneitar því að barnið sé dáið og heldur sínu striki. Hún fer ekki á spítala til að láta fjarlæga fóstrið og stefnir lífi sínu þar með í hættu. Hún segir engum hvað gerst hefur en veruleg breyting verður á hegðun hennar. Þá sýður upp úr hjá þeim vinkonunum þegar Lara reynir að leita huggunar hjá kærasta Noru á ofsafenginn hátt. Hér er á ferðinni áhugaverð kvikmynd sem kemur á óvart með skarpri sýn inn í raun- veruleikann og þau vandamál sem fólk þarf þar að takast á við. Raun- veruleg og vel unnin kvikmynd sem vert er að kíkja á. Sársauki Lara missir fóstur og í kjölfarið tökin á tilveru sinni. Afneitun móðurhjartans RIFF: Bíó Paradís Am Himmel der Tag bbbnn Leikstjórn og handrit: Pola Beck. Aðal- hlutverk: Tómas Lemarquis og Aylin Te- zel. Þýskaland 2012. 93 mín. Flokkur: Sjónarrönd. MARÍA ÓLAFSDÓTTIR KVIKMYNDIR Heljarinnar rokkveisla, Jack Live, hefst í kvöld á Gamla Gauknum og stendur hún þrjú kvöld, þ.e. til og með 6. október. 13 hljómsveitir koma fram og verður einnig boðið upp á happdrætti og hin ýmsu til- boð. Rokkunnendur fá heilmikið fyrir sinn snúð því eftirfarandi hljómsveitir munu koma fram og trylla lýðinn: Agent Fresco, Axeor- der, Brain Police, Celestine, I Need Pills To Sleep, In The Company Of Men, Mercy Buckets, Morning Af- ter Youth, My Brother Is Pale, Sindri Eldon & The Ways, The An- atomy Of Frank (frá Bandaríkj- unum), Trust The Lies og Why Not Jack. Húsið verður opnað kl. 21 kvöldin þrjú og hefjast tónleikarnir kl. 22. Ógnarkraftur Hljómsveitin Agent Fresco slær ekki slöku við á tónleikum. Þriggja daga rokk- veisla á Gauknum Breski leikstjórinn Lynne Ramsay mun leikstýra kvikmynd sem byggð verður á hinni sígildu skáldsögu Hermans Melville, Moby Dick. Myndin ber titilinn Mobius og mun ekki gerast á hafi úti heldur í geimnum og segja af sturluðum geimskipstjóra sem á í höggi við skæða geimveru. Ramsay verður ekki fyrst til þess að færa sögu Melvilles út í geim því það var gert í japönsku teikni- myndaþáttunum Hakugei: Legend of the Moby Dick frá árinu 1997, að því er fram kemur á vef dagblaðs- ins Guardian. Glímt við geimveru í stað hvals ÁLFABAKKA 7 L L L 12 12 EGILSHÖLL 12 12 L L L VIP VIP 16 16 16 16 16 KRINGLUNNI 16 12 AKUREYRI 16 16 16 LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D FINDING NEMO KL. 5:40 3D SAVAGES KL. 8 - 10:40 2D LAWLESS KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D DARK KNIGHT RISES SÍÐ SÝN KL. 5:30 2D THE CAMPAIGN KL. 8:30 - 10:30 2D LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D LOOPER LUXUS VIP KL. 8 - 10:30 2D FINDING NEMO ÍSL.TALI KL. 5:50 2D LAWLESS KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D LAWLESS LUXUS VIP KL. 5:30 2D THE CAMPAIGN KL. 8 - 10:10 2D FROST KL. 10:30 2D THE BOURNE LEGACY KL. 8 - 10:40 2D STEP UP REVOLUTIONKL. 5:50 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 2D BRAVE ENSKU.TALI KL. 8 2D L KEFLAVÍK 16 16 16 LOOPER KL. 8 2D SAVAGES KL. 10:30 2D FROST ÍSL.TALI KL. 10 2D BRAVE ENSKU TALI KL. 8 2D LOOPER KL. 8 2D LEITIN AF NEMO ÍSL.TALI KL. 6 3D LAWLESS KL. 10:10 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 6 2D BABYMAKERS KL. 8 2D FROST KL. 10:10 2D -S.G, FRÉTTABLAÐIÐ 16LAWLESS TOM HARDY HEFUR ALDREI VERIÐ BETRI L SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SJÁÐU NÝJUSTU TOY STORY STUTTMYNDINA Á UNDAN JOSEPH GORDON-LEVITT BRUCE WILLIS EMILY BLUNT  -BOXOFFICE MAGAZINE  -TOTALFILM -JOBLO.COM ÖRUGGLEGA BESTA SPENNUMYNDIN Í ÁR  -EMPIRE 16 „TRULY WORTHY OF BEING COMPARED TO SOMETHING LIKE THE TERMINATOR“ 12 16 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á LOKAÐ Í DAG VEGNA ENDURBÓTA NÁM Í DANMÖRKU HJÁ VIA UNIVERSITY COLLEGE Í HORSENS BJÓÐUM VIÐ UPP Á MARGVÍSLEGA MENNTUN Í BOÐI ER: Á ENSKU OG DÖNSKU Á ENSKU Á DÖNSKU - Byggingafræði - Véltæknifræði - Byggingaiðnfræði - Markaðshagfræði - Byggingatæknifræði - Tölvutæknifræði - Framleiðslutæknifræði - Útflutningstæknifræði - BS í Markaðsfræði - Véltækni - Landmælingar - Vöruþróun og tæknileg sameining - Aðgangsnámskeið Fulltrúi skólans Johan Eli Ellendersen, verður á Íslandi 5.-12. október. Áhugasamir geta haft samband í síma 8458715, eða netfang jee@viauc.dk. Leggið inn skilaboð/skrifa og við munum hringja/skrifa til baka. VIAUC.DK/HORSENS VIA UNIVERSITY COLLEGE Chr. M. Østergaards Vej 4 DK-8700 Horsens Tel. +45 8755 4000 Fax: +45 8755 4001 Mail: horsens@viauc.dk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.