Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 Smáauglýsingar Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Teg. 99504 -Vandaðir og fallegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir Stærðir: 36 - 41. Verð: 16.500. Teg. 5522 - Vandaðir og fallegir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Litir: grátt lakk og cognac-lakk - Stærðir: 36 - 42. Verð: 17.500. Teg. 5522 - Vandaðir og fallegir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 16.950. Teg. 7310 - Vandaðir og fallegir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 16.700. Teg. 73 - Vandaðir og góðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 16.950. Teg: 99405 - Vandaðir og góðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Stærðir: 36 - 42. Verð: 16.950. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán. - föst. 10 - 18. Opið laugardaga 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þægileg og háþróuð kennslubifreið. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Laga ryðbletti á þökum, hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verk- efni. Sími 847 8704, manninn@hotmail.com TILBOÐ - STAKAR STÆRÐIR. til dæmis þessi á kr. 4.500,- Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, opið á laugardögum kl. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Teg 50397 - frábærar, mjúkar og flottar mittisbuxur á kr. 3.550,- Teg 54590 - mjúkar og góðar í S,M,L,XL,XXL á kr. 3.990,- Teg. 73394 - aðhaldsbuxur upp að BH í S,M,L,XL á kr. 5.880,- Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, opið á laugardögum kl. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Elsku amma mín hún Sigríður er látin. Þegar ég sest niður rifjast upp margar skemmtilegar stundir sem við áttum saman. Amma Sigga var falleg og glæsi- leg kona, alltaf vel til fara. Það skipti ekki máli hvort amma var að fara í boð eða nýbúin að leggja sig, alltaf var hún glæsileg. Hún naut góðrar heilsu, hugsaði vel um sjálfa sig, stundaði sund á hverjum morgni og borðaði hollan mat. Amma Sigga var skemmtilega hreinskilin. Það er mér ofarlega í minni, þegar ég kom ný klippt að ná í ömmu til að fara í skírn. Ég komin með topp og voða ánægð Sigríður Þ. Bjarnar ✝ Sigríður Þ.Bjarnar fædd- ist í Reykjavík 25. apríl 1927. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 16. september síðast- liðinn. Útför Sigríðar fór fram frá Foss- vogskirkju 25. sept. 2012. með sjálfa mig. Amma tekur hlýlega á móti mér og spyr hvort ég hafi verið að breyta um klippingu, ég svara játandi og þá segir hún: „Já, þetta fer þér ekki. Geturðu ekki gert eitthvað til að laga á þér hárið?“ Ég hlust- aði auðvitað á ömmu og spennti upp á mér toppinn áður en við héldum af stað í skírnina. Hreinskilnin gerði það að verk- um að það var einstaklega gaman að fá hrós frá ömmu, enda meinti hún það einlæglega þegar hún hrósaði. Sem lítil stelpa man ég hvað það var gaman að fá að koma til ömmu og afa í Miðleitið. Amma eldaði góðan hádegis- og kvöldmat og svo spiluðum við gjarnan eftir matinn. Amma kenndi mér að leggja kapal og kenndi mér margar fal- legar bænir. Við frænkurnar fórum oft sam- an til ömmu og hún eldaði fyrir okkur eða við elduðum fyrir hana. Hún hafði mjög gaman af fé- lagsskapnum með okkur frænk- unum. Amma Sigga og afi Siggi byggðu sér bústað á Hvítársíðu og þar voru þau dugleg að eyða stundum saman með börnum sín- um og barnabörnum. Þau voru af- ar stolt af litla bústaðnum sínum og það var alltaf mikil ánægja að fá að vera þar með þeim. Amma undi sér alltaf vel í sveitinni, fór í göngutúra og fann sér síðan góða laut og sat þar og naut náttúrunn- ar. Þetta þótti henni toppurinn á tilverunni að finna sveitaloftið. Þegar heilsu ömmu fór að hraka tókum við mamma mín og systir hana með okkur í dags sveitaferð í bústaðinn á Hvítár- síðu. Við áttum mjög skemmtileg- an dag saman. Við enduðum ferð- ina á að sitja með ömmu í uppáhaldslautinni hennar og nut- um sveitaloftsins með henni. Ég á með mér margar góðar og fallegar minningar um ömmu mína og margt sem ég hef lært af henni. Amma var jákvæð, kurteis, þakklát og falleg, jafnt að innan sem utan. Elsku amma mín, takk fyrir all- ar góðu stundirnar. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Guðrún Helga Kristjánsdóttir. Með nokkrum ljóðlínum Jó- hannesar úr Kötlum kveð ég elskulega tengdamóður mína, Sigríði Þ. Bjarnar. Hún var mér og allri fjöskyld- unni einstaklega kær. Sof, ástríka auga, sof, yndisrödd þýð, hvíl, hlýjasta hjarta, hvíl höndin svo blíð! Það hverfur ei héðan, sem helgast oss var: vor brjóst eiga bústað, – þú býrð alltaf þar. Hið mjúka milda vor sín blóm á þig breiði og blessi þín spor. (Jóhannes úr Kötlum) Tengdamóðir mín var glæsi- leg, fáguð, falleg og kærleiksrík. Hún var elskuð og dáð af eigin- manni, afkomendum og tengda- fólki. Fjölskyldan var hennar líf og yndi og í faðmi hennar naut hún sín best. Nú er komið að leiðarlokum. Ég kveð þessa góðu konu með söknuði og þakka fyrir ánægju- lega samfylgd og ljúfar minning- ar í nær fjörutíu ár. Guð blessi minningu Sigríðar Þ. Bjarnar. Birgir Þórarinsson. Kaldakinn í Ljósavatnshreppi er fallegur staður. Spennan magnaðist þegar komið var í Kinn. Þegar sást í Geirbjarnar- staði tók við óumræðileg til- hlökkun því þá voru aðeins tíu Aðalheiður Run- ólfsdóttir Viðar ✝ AðalheiðurRunólfsdóttir Viðar fæddist á Öxl í Breiðavíkur- hreppi á Snæfells- nesi 10. nóvember 1929. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 3. sept- ember 2012. Aðalheiður var jarðsungin frá Þór- oddsstaðarkirkju 11. september 2012. mínútur í að sjá Óttar móðurbróður minn og Heiðu skáf- rænku, eins og hún kallaði sig og frændsystkini mín. Öll komin út á hlað að taka á móti bíln- um sem þau höfðu séð rykmökk frá tíu mínútum áður. Það urðu fagnarðar- fundir sem inni- héldu hlý faðmlög, athugað hversu mikið frændsystkini mín hefðu stækkað og stundum hafði nýtt bæst í hópinn. Hlaupið niður að Skjálfandafljóti um allt tún í frelsið og hreina loftið. Heiða kallandi á eftir okkur: „Æ, æ, ekki koma of nálægt fljótinu.“ Nú kveð ég Heiðu mína með söknuði. Það kvikna góðar minn- ingar út frá sterkum tengslum. Í gegnum lífið leitaði ég oft í þenn- an stóra faðm. Heiða hafði þann hæfileika að mæta fólki á því ald- ursskeiði sem var til staðar. Hún gerði aldrei grín að því sem hún vissi að gæti sært tilfinningar og svo oft settist hún við hlið mína og tók utan um mig, sem sýndi að hún var til staðar. Ég átti trúnað hennar og hún minn. Heimilið var alltaf opið fyrir mér og mátti ég koma og fara eins og ég vildi. Tryggðin náði til barnanna minna líka. Galsafeng- in gat Heiða verið. Við fórum oft í vatnsslag eftir erfiðan dag í heyskapnum. Heiða var yfirleitt forsprakkinn og oft þegar ég var að koma í hús fékk ég ískalda vatnsskvettu. Heiða hljóp út og ég á eftir henni og svo hún aftur á eftir mér, báðar orðnar renn- andi blautar. Krakkarnir hlæj- andi, Óttar hristi höfuðið. Það fannst Heiðu ennþá skemmti- legra. Oft bað Heiða mig að kalla á frænda minn klukkutíma fyrir mat því hann tafðist yfirleitt um þá stund. Heiða hvatti mig til að kynn- ast jafnöldrum mínum í sveitinni, hvatti mig til að fara á íþrótta- mót, böll, á hestbak og aðra bæi. Þetta fræ tókst henni að gróð- ursetja og hefur það vaxið með mér í gegnum árin. Þau eiga vís- an stað í hjarta mínu fólkið í Kinn. Þessi auðæfi gaf Heiða mér. Óttar og Heiða fluttu til Húsa- víkur eftir hörmulegt fráfall Grétars sonar þeirra. Við fórum oft inn í Kinn í heimsóknir á hestbak og ég fékk allar nýjustu fréttir. Elsku frændsystkini. Hugur minn er hjá ykkur og fjöl- skyldum ykkar. Guð blessi ykkur og alla ykkar sveitunga, þið eigið stað í huga mínum og hjarta. Ég bið Guð að varðveita Heiðu og blessa minningu hennar. Ykkar Drífa. Haustið 1978 var ég tæplega 6 ára. Það var keypt píanó á heimilið og ég var sendur í spilatíma. Konan hans Yngva ætlaði að kenna mér. Yngva þekkti ég, hann vann hjá Orku- búinu með pabba. Ég sit og fletti í gegnum stílabækurnar sem hún skrifaði í, þessi ár sem ég kom til henn- ar til að læra að spila. Á leiðinni heim úr fyrsta tím- anum borðaði ég heilnótur, hálfnótur og fjórðapartsnótur. Skoðaði svo teikningarnar sem hún hafði gert fyrir mig til út- skýringar. Sigrún skar niður epli til að sýna mér stærð hverrar nótu um leið og hún teiknaði myndir og útskýringar í stílabókina. Eftir að ég hef fullorðnast hef ég kannski áttað mig best á Sigrún Einarsdóttir ✝ Sigrún Ein-arsdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 11. desember 1927. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ísafirði 7. sept- ember 2012. Útför Sigrúnar fór fram frá Ísa- fjarðarkirkju 15. september 2012. því hversu gott lag hún hafði á því að kenna. Henni tókst að útskýra hlutina á svo einfaldan og skemmtilegan hátt, hún ýtti undir að maður hlustaði á tónlistina og fengi tilfinningu fyrir henni. Öllu þessu var ég móttækileg- ur fyrir, vegna þess að Sigrún gerði þetta allt af svo mikilli alúð og það hreif mig. Ég fann alltaf fyrir hlýju og væntumþykju þegar ég kom á Engjaveginn og það lá við að mig langaði til að vera þar áfram eftir að spilatímanum lauk. Hún vildi að ég fyndi fyrir gleðinni við að spila. „Spilaðu utanað, hlustaðu á tónlistina og notaðu eyrun þín.“ Hún sýndi mér bækur um gömlu tónskáld- in og sagði sögur af þeim á meðan ég hlustaði af athygli. Þetta var og er, ekki síst í dag, fyrir mér ómetanlegur lærdóm- ur. Oftar en ekki settumst við niður í eldhúsinu í lok tímans og Sigrún kom með smurt brauð eða tebollur sem hún hafði bakað. Stundum dýfði hún brauðsneið í egg og mjólk, hit- aði á pönnu, stráði kanilsykri yfir og við borðuðum með sultu og rjóma. Það var best. Sigrún hefur alltaf staðið hjarta mínu nær og ég hef oft hugsað til hennar í gegnum tíð- ina. Hún er ein af þeim mann- eskjum, sem ég hef kynnst, sem hafa búið yfir miklum mannlegum gæðum og þeim er ég þakklátur fyrir að hafa kynnst. Henni tókst að miðla þekkingu sinni á einstakan hátt, eiginleiki sem ekki er öll- um gefinn, en ég hef reynt að tileinka mér. „Þetta er seinasti tíminn okkar, Óli minn, og ég þakka þér fyrir veturinn. Við höfum átt margar góðar stundir sam- an og ég vona að þú megir allt- af eiga tónlistina að vini. Gleði- legt sumar.“ Þetta skrifaði hún í bókina mína eitt vorið. Ég hef sannarlega átt tónlistina að vini og notið gleðinnar við að spila og reynt eftir fremsta megni að miðla spilagleðinni til minna barna. Sigrúnu gleymi ég ekki. Börnum Sigrúnar og fjöl- skyldum þeirra, votta ég mína dýpstu samúð. Ólafur Jakobsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðs- lógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einn- ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir grein- unum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.