Morgunblaðið - 04.10.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Heimir Snær Guðmundsson
heimir@mbl.is
Milli 300 og 400 milljónir króna þarf
til að ljúka við nýtt safnahús undir
Lækningaminjasafnið á Seltjarn-
arnesi ef ljúka á framkvæmdum í
samræmi við upphaflegar teikn-
ingar.
Árið 2007 gerðu Seltjarnar-
nesbær, menntamálaráðuneytið,
Læknafélag Íslands og Þjóðminja-
safnið með sér samning um stofn-
kostnað, byggingu og rekstur hús-
næðis fyrir lækningaminjasafn og
menningartengda starfsemi. Sam-
kvæmt samningi ber Seltjarnar-
nesbær ábyrgð á öllum kostn-
aðarþáttum vegna
framkvæmdarinnar.
Heildarkostnaður við safnbygg-
inguna var áætlaður um 345 millj-
ónir króna og skiptist sá kostnaður
niður á Læknafélag Íslands, Lækna-
félag Reykjavíkur, mennta-
málaráðuneytið og Seltjarnarnesbæ.
Framlög samningsaðila hafa dugað
til að koma byggingunni í það horf
sem hún er í núna. Í samningnum
segir að safnbyggingin, samtals
1.266 fm að stærð, eigi að vera
fullfrágengin eigi síðar en 1. sept-
ember 2009.
Byggingin fokheld
Samkvæmt upplýsingum frá Frið-
riki Friðrikssyni, formanni stjórnar
Lækningaminjasafnsins, er bygg-
ingin fokheld og henni hefur verið
lokað. Ekki er hætta á skemmdum á
byggingunni.
Aðspurð um framtíð hússins segir
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, að viðræður
við menntamálaráðuneytið standi yf-
ir. Hún segir ljóst að sveitarfélagið
eitt og sér muni ekki geta klárað
framkvæmdina.
„Allir aðilar hafa lagt fram sinn
hluta. Við höfum verið í viðræðum
við ráðuneytið síðastliðin þrjú ár um
að koma inn í verkefnið til að geta
klárað það,“ segir Ásgerður og bætir
við að viðræðurnar felist einnig í að
fara yfir rekstrarsamninga.
Spurð hvort til greina komi að
breyta tilgangi hússins eða áætl-
unum um framkvæmdir til að draga
úr kostnaði segir Ásgerður að allir
þættir málsins séu skoðaðir.
„Þetta er fyrst og fremst lækn-
ingaminjasafn og þess vegna komu
læknafélögin í þetta með okkur, eng-
in ákvörðun hefur verið tekin um
annað. Ráðgjafar hafa bent á að
breyta megi upphaflegum áætlunum
og þar með minnka kostnað. Við er-
um að skoða málið með ráðuneytinu
og leita leiða,“ segir Ásgerður.
Í viðræðunum segir Ásgerður að
mismunandi kostnaðaráætlanir hafi
verið settar fram sem geri ráð fyrir
mismunandi forsendum. „Við höfum
viljað sjá ríkið taka þátt í kostnaðar-
aukningunni til jafns við okkur,“
segir Ásgerður.
Töluverðir fjármunir
„Ríkið hefur lagt töluverða fjár-
muni í þetta verkefni og hefur staðið
við sína samninga. Bæjaryfirvöld
leituðu til mín með formlegum hætti
nú í ár og viðræður standa yfir,“ seg-
ir Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra.
„Seltjarnarnesbær fer af stað með
verkefnið með læknafélögunum og
þessir aðilar eiga frumkvæðið að
framkvæmdinni. Það er ljóst að upp-
haflegar áætlanir þeirra stóðust
ekki. Við höfum sagt að í ljósi þeirra
fjármuna sem ríkið hefur lagt í verk-
efnið og hversu verðugt það er séum
við tilbúin að fara yfir málið með
bæjaryfirvöldum og skoða lausnir,“
segir Katrín.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Minjar Safnhúsið er risið en er hins vegar aðeins fokhelt. Gengið hefur verið frá húsinu og því er ekki hætta á skemmdum.
Fé skortir til að ljúka við hús
undir lækningaminjasafn
Vantar 300 til 400 milljónir króna Átti að kosta 345 milljónir kr. og vera
fullfrágengið 1. september 2009 Bæjarstjórinn óskar eftir aðstoð frá ríkinu
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt ummæli sem höfð voru eftir
þingmanninum Þór Saari og birt í
frétt DV dauð og ómerk. Þór var
ekki gerð refsing en hann þarf að
greiða Ragnari Árnasyni 300 þús-
und krónur í miskabætur, 800 þús-
und krónur í málskostnað og 76.898
krónur til að kosta birtingu dóms-
ins í DV og Morgunblaðinu.
Umrædd ummæli, „Ragnar Árna-
son hefur verið á launum hjá LÍU í
áratugi“, birtust í DV 7.-8. sept-
ember 2011. Í niðurstöðu dómsins
segir að ummælin hafi verið til-
hæfulaus, óviðurkvæmileg og æru-
meiðandi í því samhengi sem þau
voru birt. Þau hafi verið móðgandi
og meiðandi fyrir Ragnar.
Ekki náðist í Þór í gær vegna
málsins.
Þór Saari dæmdur
fyrir meiðyrði
Dæmdur Þingmaðurinn Þór Saari.
Héraðsdómur
Reykjavíkur
komst í gær að
þeirri niðurstöðu
að kjararáði
hefði borið að
skerða laun Más
Guðmundssonar,
seðlabanka-
stjóra, á árinu
2009.
Már var skipaður í embætti
seðlabankastjóra í lok júní 2009 og
hóf störf í ágústmánuði sama ár. Á
sama tíma samþykkti Alþingi lög
sem felldu ákvörðun um laun seðla-
bankastjóra undir kjararáð, og að
dagvinnukaup stjórnenda rík-
isstofnana mætti ekki vera hærra
en föst laun forsætisráðherra. Mán-
aðarlaun Más lækkuðu síðan úr 1,6
milljónum króna í 1,3 milljónir
króna eftir ákvörðun kjararáðs.
Már höfðaði mál og krafðist þess
að ákvörðun kjararáðs yrði ógilt.
Reisti hann kröfu sína á því að
skort hefði lagaheimild fyrir því að
skerða laun og starfskjör hans eftir
skipun hans í embætti.
Héraðsdómur taldi hins vegar, að
ekki væri í gildi almenn meginregla
þess efnis að óheimilt væri að
skerða laun og starfskjör embættis-
manna á skipunartíma þeirra. Í
máli seðlabankastjóra hefði kjar-
aráði borið að lækka laun hans og
breytingin tæki gildi strax.
Seðlabankinn sýkn-
aður af kröfu Más
Már Guðmundsson.
Jóhanna Sigurð-
ardóttir, for-
sætisráðherra og
formaður Sam-
fylkingarinnar, á
sjötíu ára afmæli
í dag. Samkvæmt
upplýsingum frá
forsætisráðu-
neytinu verður
hún að heiman á
afmælinu.
Jóhanna sat ríkisráðsfund á
Bessastöðum á mánudaginn og
stýrði ríkisstjórnarfundi í fyrradag.
Hún var ekki við vinnu í gær og
fengust ekki upplýsingar úr ráðu-
neytinu um hvernig hún ætlaði að
verja afmælisdeginum. Jóhanna
lýsti því yfir í síðustu viku að hún
myndi hætta í stjórnmálum í lok
þessa kjörtímabils og myndi ekki
sækjast eftir endurkjöri sem for-
maður Samfylkingarinnar. Hún
hefur verið alþingismaður í 34 ár.
Jóhanna verður að
heiman á sjötugs-
afmælinu í dag
Jóhanna
Sigurðardóttir
Við höfum sameinað starfsemi okkar á einn stað að Skemmuvegi 48