Morgunblaðið - 04.10.2012, Side 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Miklar endurbætur hafa síðustu
mánuði staðið yfir á fæðingardeild
Sjúkrahússins á Akureyri og er
þeim nú lokið. Þær voru langþráðar
að sögn starfsmanna og var ýmsum
gestum og velunnurum deildarinnar
boðið að skoða herlegheitin á
dögunum.
Alexander Smárason yfirlæknir
og Ingibjörg Jónsdóttir yfirljós-
móðir, hjúkrunardeildarstjóri eins
og það heitir í dag, greindu frá
breytingunum og sagði Alexander
að aðstaðan væri líklega besta á
Íslandi í dag.
Ingibjörg hvatti gesti til þess að
segja sem flestum frá því hve að-
staðan væri orðin góð. „Endilega
hvetjið fólk til barneigna, svo það
verði nóg að gera hjá okkur!“ sagði
hún.
Söngleikurinn Berness? Já,
takk & franskar á milli verður
frumsýndur í Sjallanum annað
kvöld. Þar er gert góðlátlegt grín að
Akureyringum á afmælisári, en
bærinn varð 150 ára í sumar, sem
kunnugt er.
Höfundar söngleiksins eru Pét-
ur Guð og Jokka, leikstjóri er Ívar
Helgason og tónlistarstjóri Heimir
Ingimarsson. Tónlistin er frá Ak-
ureyri; allt frá Ingimar Eydal til
Hvanndalsbræðra, segir í tilkynn-
ingu.
Guðbjörg Ringsted myndlistar-
maður opnar sýninguna Hugarflug
á bókasafni Háskólans á Akureyri í
dag kl. 16. Þetta er 22. einkasýning
Guðbjargar en hún hefur einnig
tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum hér heima og erlendis.
Bubbi Morthens er með tónleika
á Græna hattinum í kvöld. Hljóm-
sveitin Todmobile verður svo þar á
ferðinni bæði föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Norðurorka hf. er áfram bak-
hjarl menningarhússins Hofs.
Samningur þar að lútandi var gerð-
ur á dögunum og gildir út árið 2013.
Í samningnum felst að Norður-
orka veitir Hofi fjárstyrk og skal
honum einkum varið til þess að
styðja við opna viðburði í Hofi sem
gestir hafa aðgang að án endur-
gjalds. Má þar nefna útvarpsþáttinn
Gesti út um allt, Barnamorgna sem
haldnir verða fjórum sinnum í vet-
ur, kórahátíð þar sem yfir 500 kór-
söngvarar af öllu Norðurlandi koma
saman og heimsókn eldri borgara í
Hof.
Á dögunum var haldin vika
málm- og véltæknigreina í Verk-
menntaskólanum á Akureyri í sam-
vinnu við ýmis fyrirtæki og stéttar-
félög í greinunum. Tímabært að
mati allra sem að koma, enda brýnt
að fjölga starfsmönnum á þessum
vettvangi.
„Það er einróma álit okkar sem
að þessari viku komum að hún hafi
gengið mjög vel,“ segir á heimasíðu
VMA. Þar segir ennfremur: „Sam-
starf atvinnulífs og skóla hér á
svæðinu mun halda áfram að eflast
og nokkur samstarfsverkefni þegar
uppi á borðinu. Fagráð málm- og
véltæknigreina hefur verið stofnað
með aðilum frá skólanum og úr
fyrirtækjum á svæðinu.“
Hollvinasamtök VMA voru
stofnuð á málþinginu í nefndri viku
og við hátíðarathöfn á opnu húsi í
lokin var tilkynnt að Slippurinn ehf.
hefði ákveðið að gefa Hollvina-
samtökunum eina milljón til tækja-
kaupa. Þá gaf kælitækniþjónustu-
fyrirtækið Iðnval
Hollvinasamtökunum 50 þúsund
krónur.
Til gamans má geta þess að
haldin var suðukeppni í rafsuðu-
hermi þar sem m.a. spreyttu sig
þingmennirnir Björn Valur Gíslason
og Kristján Þór Júlíusson sem
kepptu sín á milli. Engum sögum
fer af úrslitum...
Í undirbúningi er samstarfs-
verkefni milli Menntaskólans á
Akureyri og Menntaskólans í Nuuk
á Grænlandi, að frumkvæði Ágústs
Þórs Árnasonar, aðjúnkts við Há-
skólann á Akureyri og Arngríms
Jóhannssonar flugstjóra.
Á heimasíðu MA kemur fram
að ætlað sé að fara með einn 3.
bekk til Grænlands á vorönninni og
fá síðan bekk frá Grænlandi í heim-
sókn á næsta skólaári. „Fyrirhugað
samskiptaverkefni á að auka áhuga
nemendanna, bæði hér og í Nuuk, á
nágrannalöndunum með meira sam-
starfi,“ segir á vefnum.
Dömulegir dekurdagar verða
haldnir í fimmta sinn í næstu viku,
11.-14. október. „Þetta er helgi þar
sem vinkonur, systur, mæðgur,
frænkur og vinnufélagar njóta þess
að gera eitthvað skemmtilegt sam-
an,“ segir í tilkynningu. Ýmsir við-
burðir verða í boði í bænum.
Endilega hvetjið
fólk til barneigna!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ánægðar Ingibjörg Jónsdóttir yfirljósmóðir, þriðja f.h., ásamt gestum.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Frá og með miðri næstu viku mun
áhugafólk um norðurljós geta
skipulagt athuganir sínar og
útsýnisferðir út frá nýrri norður-
ljósaspá á vef Veðurstofu Íslands.
Spáin verður unnin út frá upplýs-
ingum um sólargang og tunglið,
geimveðurspá frá Haf- og veð-
urfræðistofnun Bandaríkjanna og
nýrri skýjahuluspá, sem nær sex
daga fram í tímann.
„Við munum sem sagt birta mæli-
kvarða frá 0-9 á virkni norðurljósa,
með skýjahuluspánni og sólargangi,
og svo verða athugasemdir frá veð-
urfræðingi á vakt varðandi túlkun,
þá aðallega skýjahuluspárinnar ef
það er spurning um hvar gætu verið
glufur eða hvað er mikið að marka
hana, en þeir hafa ýmsar aðrar spár
sem þeir eru að horfa á líka,“ segir
Þórður Arason, sérfræðingur í veð-
ur- og mælitæknirannsóknum hjá
Veðurstofunni.
Nákvæmust fyrir kvöldið
Þórður segir skýjahuluna eðlilega
ráða miklu þegar kemur að norður-
ljósaskoðunum en spái léttskýjuðu
muni menn hafa þennan mæli-
kvarða að styðjast við það kvöldið.
Því lengra sem líði á spána, því
ómarktækari verði hún.
„Spáin mun, líkt og skýjahulu-
spáin, ná sex daga fram í tímann,
þetta mun hanga saman. En það er
langmest að marka spána í kvöld og
kannski á morgun, svo verða bæði
þessar geimveðurspár og skýjahulu-
spárnar miklu lélegri eftir því sem
líður á vikuna, þótt það sé gefin spá
fyrir það,“ segir hann.
Íslenskir ferðaþjónustuaðilar
hafa lengi stuðst við norður-
ljósaspár á erlendum vefsíðum, sem
einnig eru unnar útfrá bandarísku
geimveðurspánni, en þetta verður
fyrsta spáin sem tekur skýjahuluna
yfir landinu með í reikninginn.
„Það eru einhverjir að veita svona
þjónustu í útlöndum, um virkni
norðurljósanna, en við vitum ekki
um neinn annan stað þar sem menn
tengja þetta við veðurspána, þannig
að þetta sé á sama stað bæði veð-
urspáin og norðurljósaspáin,“ segir
Þórður.
Hann segir að stefnt hafi verið að
því að opna spána á vedur.is 10.
október, eða um miðja næstu viku.
Veðurstofan spáir
um norðurljósin
Norðurljósaspá í fyrsta sinn samtvinnuð veðurspánni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Norðurljósadans Áhugafólk um norðurljósin mun væntanlega gleðjast yfir nýrri norðurljósaspá Veðurstofunnar.
FISKVEIÐAR: SJÁLFBÆRAR OG ARÐBÆRAR
Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, stofu N-132
laugardaginn 6. október kl. 13–17.35
13.00–13.05 Setningarávarp, Rakel Ólsen útgerðarmaður
Fyrri fundur: Fræðileg greining
fundarstjóri: Ásta Möller, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
• 13.05–13.35 Þráinn Eggertsson. Skilvirkar stofnanir í hættu: Íslenska kvótakerfið
• 13.35–14.05 Ragnar Árnason. Hagurinn af kvótakerfi og möguleg dreifing hans
• 14.05–14.35 Rögnvaldur Hannesson. Nýting markaðsaflanna í fiskveiðum
• 14.35–14.50 Umsagnir: Ásgeir Jónsson og Birgir Þór Runólfsson
• 14.50–15.05 Fyrirspurnir og umræður
• 15.05–15.20 Kaffihlé
Seinni fundur: Hagnýt úrlausnarefni
fundarstjóri: dr. Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðideild
• 15.20–15.50 Árni Mathiesen. Hagur fámennra byggða af kvótakerfi
• 15.50–16.20 Gunnar Haraldsson. Grænn hagvöxtur
• 16.20–16.50 Michael Arbuckle. Kvótakerfi í fiskveiðum þróunarlanda
• 16.50–17.05 Umsagnir: Helgi Áss Grétarsson og Michael De Alessi
• 17.05–17.20 Fyrirspurnir og umræður
• 17.20–17.30 Viðbrögð: Brian Carney, ritstjóri Wall Street Journal Europe
• 17.30–17.35 Ráðstefnuslit: Guðrún Lárusdóttir útgerðarmaður
Ráðstefnan fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill
Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt
Alþjóðleg ráðstefna um