Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Tugir manna féllu í þrem sprengju-
tilræðum í miðborg Aleppo, stærstu
borgar Sýrlands, í gær. Stuðnings-
menn uppreisnarmanna sögðu að
hinir föllnu hefðu verið flestir verið
stjórnarhermenn. Liðlega 30 þús-
und manns hafa nú látið lífið í átök-
unum í landinu sem hófust í mars í
fyrra. Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna álítur að yfir 300 þúsund
manns hafi flúið landið og mun
fleiri hafi misst heimili sín.
Skráðir sýrlenskir flóttamenn í
Tyrklandi eru um 90 þúsund, að
sögn fréttamanna BBC en talið víst
að tugþúsundir að auki séu óskráð-
ar. Vaxandi andúð er nú meðal al-
mennings í Tyrklandi á flóttafólk-
inu ef marka má kannanir.
Ráðamenn í Tyrklandi áttu áður
vinsamleg samskipti við stjórn Bas-
hars al-Assads Sýrlandsforseta og
mikil viðskipti voru milli landanna.
Recep Tayyip Erdogan, forsætis-
ráðherra Tyrklands, er einn af
helstu stuðningsmönnum uppreisn-
arinnar í Sýrlandi.
Tyrkneskir alavítar sagðir
hlynntir Assad
Flóttafólkið hefur aðallega sest
að í búðum í suðurvesturhéruðum
Tyrklands sem liggja að Sýrlandi.
Assad er af trúflokki alavíta sem er
minnihlutahópur í Sýrlandi en álít-
ur sig vera grein af íslam. Annar
hópur úr sömu röðum er í Tyrk-
landi, helsti fulltrúi stjórnarand-
stæðinga er úr þeim hópi. Upp-
reisnarmenn í Sýrlandi eru hins
vegar nær allir súnní-múslímar.
Fjöldi alavíta býr í umræddum
héruðum Tyrklands og segja frétta-
menn að þeir hafi oft meiri samúð
með Assad en flóttafólkinu. Efnt
hefur verið til mótmæla á svæðinu
gegn flóttamannastraumnum.
AFP
Óhult Sýrlensk börn flóttafólks í Líbanon veifa fána sem notaður var áður en Baath-flokkur Assads rændi völdum.
Amast við flóttafólki
Tyrkir ósáttir við að Sýrlendingum sé hleypt inn í landið
SÞ segja sýrlenskt flóttafólk í grannlöndum um 300.000
Stórt þjóðarbrot Kúrda
» Um tvær milljónir Kúrda
búa í Sýrlandi og njóta lítilla
réttinda, mega t.d. ekki nota
eigið tungumál opinberlega.
» Assad þarf nú að nota her
sinn til að berja á uppreisn-
armönnum. Hafa Kúrdar notað
tækifærið og hrifsað mestöll
völd í sumum héruðum sínum.
Bretar flytja ekki lengur inn mest
af koníaksafbrigðinu Armagnac
frá Frakklandi, Kínverjar hafa
farið fram úr þeim, að sögn sam-
taka Armagnac-sala. Ein ástæðan
er sögð minni áhugi meðal efnaðra
neytenda í Kína á hefðbundnu
hrísgrjónavíni.
Salan til Kína jókst að sögn
AFP-fréttastofunnar úr 125 hektó-
lítrum árið 2010 í hvorki meira né
minna en 935 hektólítra í fyrra.
Búist er við að Rússar fari einnig
fram úr Bretum á næstunni.
kjon@mbl.is
ARMAGNAC
Kínverjar stærstu
viðskiptavinirnir
Teymi vísindamanna á Nýja Sjá-
landi segir að ný rannsókn þeirra
gefi til kynna að það minnki ekki
kvefsækni að taka reglulega inn
D-vítamín. Ekki var munur á
tveim jafnstórum hópum þar sem
annar tók vítamínið en hinn lyf-
leysu.
BBC hefur hins vegar eftir Ro-
nald Eccles, kvefsérfræðingi við
Cardiff-háskóla, að D skipti miklu
fyrir ónæmiskerfið. Þeir sem álíti
sig fá of lítið af því eigi að taka D,
einkum að vetrarlagi en meira sól-
arljós á sumrin eykur framleiðslu
vítamínsins í fólki. kjon@mbl.is
D-VÍTAMÍN
Engin áhrif
á kvefsæknina?
Lögregla Páfagarðs hefur fundið
um þúsund „athyglisverð skjöl“ í
fórum Paolo Gabriele, fyrrverandi
einkaþjóns Benedikts páfa 16. Um
er að ræða ljósritanir og frumgögn,
sum undirrituð af páfa, einnig bréf
frá stjórnmálamönnum og kardín-
álum.
Þjónninn er í varðhaldi, sakaður
um að leka leyniskjölum en búist er
við dómi á laugardag. Einkaþjónn
páfa tilheyrir innsta hring hans
heilagleika, ber honum m.a. mat og
klæðir hann.
Fram kom við réttarhöld í gær að
Gabriele segist álíta að hann hafi
verið liðsmaður „heilags anda“
þegar hann lak skjölum um spill-
ingu og önnur brot í blaðamenn.
Segir Gabriele að einhver innan
kirkjunnar hafi misnotað sér að-
gang að páfa. kjon@mbl.is
EINKAÞJÓNN FYRIR RÉTTI
Trúnaðarskjölum
Páfagarðs lekið í
blaðamenn
Brotlegur? Paolo Gabriele (t.v.) með
ritara páfa, Georg Gänswein.
Svalaskjól
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Dreifingaraðili
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305
hárburstinn sem leysir allar flækjur
Bylting fyrir blautt hár, frábær
fyrir hársára og fyrir börnin.
AQUA
Splash
NÝTT