Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 24
Súlurit 2:Almannatryggingjar og fræðslumál sem hlutfall af fjárlögum
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
Stjórnmálamenn
virðast óttast breyt-
ingar og eru íhalds-
menn í eðli sínu, sem
getur verið ágætt ef
það eðli snýst ekki í aft-
urhald. Það sýndi sig
einna best með laga-
frumvörpum um sölu
bjórs hversu íhalds-
samir stjórnmálamenn
eru. Það var í lagi að
fólk yrði ofurölvi af vodkadrykkju
vegna þess að ástandið var með því
móti, engin breyting. Það gilti öðru
þegar kom að sölu bjórs. Til að leyfa
sölu á bjór þurftu að koma til breyt-
ingar. Í áratugi vildu þingmenn ekki
breyta þáverandi ástandi og heimila
sölu bjórs á Íslandi. Svavar Gestsson
taldi þá breytingu að heimila sölu
bjórs ekki heillavænlega vegna þess
að þá kæmi fljótlega til önnur breyt-
ing, bjór yrði seldur í almennum
verslunum. Ein breyting var of mikið,
hvað þá tvær.
Það sama virðist eiga við um út-
gjöld ríkisins þeim er skipt með svip-
uðum hætti sama hver er við stjórn,
litlu er breytt. Nú er við völd, sam-
kvæmt einhverjum skilgreiningum,
norræn velferðarstjórn og áður var
við völd frjálshyggjustjórn. Lítið sem
ekkert breytist varðandi útgjöld rík-
isins.
Þingmenn eru ávallt að eyða tíma
sínum í þann óþarfa að rífast um
hvernig kökunni sé skipt. Kjósendur
virðast halda að henni
sé skipt misjafnlega eft-
ir því hver er við stjórn
landsins. Jafnvel er tal-
ið að sumir skipti kök-
unni betur en aðrir. Ný-
lega var viðtal við konu
sem vinnur hjá hjálp-
arstofnun og hún sagði
þá sem hefðu haft það
slæmt fyrir kreppu hafa
það enn verra nú. Þetta
kom manni á óvart. Ég
hélt að norræna velferð-
arstjórnin hefði umbylt
kerfinu frá því sem það var þegar
frjálshyggjustjórnin var við völd. Ég
taldi að eitthvað hefði breyst.
Eftir að hafa heyrt þetta viðtal við
fyrrnefnda konu ákvað ég að skoða
hvort einhver breyting hefði orðið.
Ég taldi rétt að skoða hvert hlutfall
útgjalda væri varðandi hin svokölluðu
mjúku mál. Hversu stórt hlutfall færi
af heildarkökunni í barnabætur,
vaxtabætur, almannatryggingar og
útgjöld til fræðslumála samkvæmt
fjárlögum. Með hjálp Datamarket
(gögn sem súlurit eru byggð á eru frá
Datamarket) þá var þetta ekki mjög
erfitt. Sjá súlurit 1.
Eins og sést af súluritinu er ekki
mikill munur á barnabótum milli ára,
hlutfallið virðist þó hæst þegar stjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks er við völd og einna lægst á
þessu ári. Sama á við um vaxtabætur,
hlutfallið er svipað fyrir utan árin
2011 og 2012 sem virðast vera und-
antekning en þá hlutfallið töluvert
hærra en almennt gerist en svo virð-
ist samkvæmt frumvarpi fyrir árið
2013 vera stefnt í það norm sem gilt
hefur. Súlurit 2.
Þar blasir það sama við, útgjöld
vegna almannatrygginga og fræðslu-
mála eru nánast fasti. Það sama á við
um fleiri þætti fjárlaga, þeir virðast
vera meira og minna mjög svipaðir ár
eftir ár.
Ekki virðist vera mikill ágrein-
ingur um einn stærsta lið landsmála,
þ.e. hvernig kökunni er skipt og
stjórnmálamenn virðast almennt
vera íhaldsmenn þegar kemur að því.
Er þá ekki hægt að einfalda kerfið og
ákveða fjárlög til nokkurra ára í senn
svo þingmenn þurfi ekki að rífast um
það sem þeir eru í grunninn sammála
um. Það eru fordæmi fyrir þessu í
stórum útgjaldaliðum eins og búvöru-
samningum sem eru gerðir til nokk-
urra ára. Með þessu móti væri hægt
að spara töluvert í opinberum út-
gjöldum og meðal annars fækka þing-
mönnum. Að vísu þyrfti að breyta
stjórnarskránni og færa hana til nú-
tímahorfs svo líklega verður þetta
aldrei að veruleika þar sem breyt-
ingar virðast vera hættulegar. Að lok-
um má spyrja hvort er það velferð
eða frjálshyggja að skipta kökunni
með þeim hætti sem raun ber vitni?
Norræn velferðarstjórn vs. frjálshyggjustjórn
Eftir Berg
Hauksson
»Er þá ekki hægt að
einfalda kerfið og
ákveða fjárlög til
nokkurra ára í senn
svo þingmenn þurfi
ekki að rífast um það
sem þeir eru í grunn-
inn sammála um.
Bergur Hauksson
Höfundur er lög- og viðskiptafræðingur.
Súlurit 1: Barnabætur og vaxtabætur sem hlufall af fjárlögum
4,0%
3,5%
3,0%
2,5%
2,0%
1,5%
1,0%
0,5%
0%
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
Barnabætur Vaxtabætur
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Auðlindir landsins
eru mjög margar eins
og alkunna er. Þær
mikilvægustu felast í
hafsvæðinu við landið
og hins vegar vatn til
margvíslegrar neyslu
og notkunar, vatnsorka
(fallorka) – og hitaorka
úr iðrum jarðar hvoru-
tveggja til rafmagns-
framleiðslu. Auk þess
má nefna náttúru og umhverfi lands-
ins. Á árum áður var náttúruvernd
skilgreind sem skynsmleg nýting
náttúrunnar. Á seinni tímum er
krafan um sjálfbæran rekstur of-
arlega á baugi ásamt umhverf-
isvernd.
Lög og reglur um auðlindir
Um nýtingu auðlinda hafa oftast
verið sett lög og reglur sem mæla
fyrir um fyrirkomulag og meðferð
auðlindanna. Þannig hefur verið sett
hámark á nýtingu t.d. sjávarfiska
byggt á rannsóknum Hafrannsókn-
arstofnunar. Annað dæmi má nefna
varðandi virkjunarmálefni. Alþingi
hefur sett lög um einstakar virkjanir
fallorku Landsvirkjunar á hálendi
landsins. Þá má nefna leyfisveit-
ingar um ýmsar framkvæmdir á
sviði auðlindanýtingar.
Rammaáætlunin
Um þessar mundir fjallar umræð-
an um virkjunaráætlanir á orku í
vatnsföllum og jarðvarma og deila
menn hart um þetta efni. Það er sem
fyrr að Alþingi þarf að taka ákvörð-
un um svokallaða rammaáæltun,
eins og kunnugt er. Ábyrg stefna
auðlindanýtingar hvað
varðar fallorkuvirkjun
og ýmis önnur nýting-
arform er nauðsynleg
vegna þess að hver stór
framkvæmd snertir svo
mörg önnur svið auð-
linda sem verður að
taka tillit til að ein-
hverju leyti eða alveg
að fullu við frágang
málsins.
Þjórsá öflugasta
vatnasvæði landsins
Fyrrnefnd rammaáæltun snýst
m.a. um virkjun Þjórsár í byggð sem
vilji er til að sett verði í biðstöðu.
Röskun á vatnakerfum varðar mörg
lög eins og ákvæði um eignarrétt í
stjórnarskrá, vatnalögin, lög um
náttúruvernd og lög um lax- og sil-
ungsveiði. Fróðlegt er í þessu sam-
bandi að skoða mál Þjórsár. Þjórsá
ásamt þverám sínum er öflugasta
vatnsorkusvæði landsins og talin á
sínum tíma geta skilað um 30% af
heildarorku landsins (Sigurjón Rist
1968.) Í sömu heimild sem hér um
ræðir setur Sigurjón upp tugþraut-
arkeppni með öflugustu ám landsins
og þar sigrar Þjórsá, að sjálfsögðu.
Hlífum neðri hluta Þjórsár
Segja má að orkumál Þjórsár hafi
verið á dagskrá allt frá því að Al-
þingi heimilaði með lögum Lands-
virkjun 1965 virkjun við Búrfell með
tilheyrandi framkvæmdum ofar í
vatnakerfi Þjórsár á hálendinu. Síð-
an hafa bæst við fleiri orkuver á
svæðinu. Víst eru allar horfur á að
flestir virkjunarkostir Þjórsár á há-
lendinu verði nýttir á næstu árum.
Er þá ekki nóg að gert þó ekki sé
farið niður í byggðina og ánni þar og
umhverfi hennar breytt í manngerða
ásýnd með stíflum og öðrum virkj-
unarmannvirkjum og lífríkinu stefnt
í voða, að dómi margra. Sumir
myndu því spyrja; ber nauðsyn til að
þurrausa ársvæðið hvað þetta snert-
ir? Vissulega má heimfæra takmörk-
un á fullnýtingu Þjórsár á landið í
heild.
Til viðbótar fyrirhuguðum fram-
kvæmdum í neðri hluta Þjórsár ber-
ast nú fréttir um að hið sama sé í
undirbúningi af hálfu Landsvirkj-
unar í Stóru-Laxá í Hreppum. Síðan
verður líklega haldið áfram á þessari
braut að fara í fleiri laxveiðiár nema
spyrnt verði við fæti.
Spillum ekki náttúruperlum
Ferðaþjónustan fer ört vaxandi
hér á landi og farið er að gæta ótta
um að landið sem auðlind sé komið
að þolmörkum víða. Þannig eru
helstu perlur landsins í þessu efni
komnar í sviðsljósið hvað snertir of-
nýtingu. Sé raunin þessi er um óá-
byrga auðlindastefnu að ræða og
óviðunandi ástand komið. Grípa þarf
inn í og setja í gagnið aðgerðir sem
tryggja að ekki verði spillt þessum
náttúruauðlindum.
Ábyrg auðlindanýtingarstefna
Eftir Einar
Hannesson » Flestir virkjunar-
kostir á Þjórsá á há-
lendinu nýttir á næstu
árum. Þarf að virkja ána
niðri í byggð? Þarf að
breyta ásýnd og stefna
lífríkinu í hættu?
Einar Hannesson
Höfundur starfaði við
veiðimál í áratugi.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og
birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auð-
velt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu. Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Það eru alltaf
þjálfarar þér
til aðstoðar
… Heilsurækt fyrir konur
Nýtt!
bjóðum
nú einnig
upp á tri
mform
Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði.
Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því
ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca.
3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma
hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari
núna. Curves er frábær staður með frábæru
starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að
æfa þegar það passar mér best.
Paula HolmPaula Holm, 40 ára
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur