Morgunblaðið - 04.10.2012, Síða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Ásgeir Ólafsson orkutæknifræðingur, sem í dag er 35 ára gam-all, hyggst flytja búferlum um helgina og ætlar að eyða af-mælisdeginum í málningarvinnu í nýju íbúðinni. Hann segir
þó ekki loku fyrir það skotið að fjölskyldunni verði boðið í kaffi en
þannig hafi hann að jafnaði haldið upp á afmælið undanfarin ár.
Ásgeir er með meistarapróf í fasteignastjórnun og var ráðinn
verkefnastjóri Skátasambands Reykjavíkur fyrr á árinu en hann
hefur starfað innan skátahreyfingarinnar í fjölda ára. „Þetta er
mjög umfangsmikið starf, allt frá því að hugsa um skátafélög
Reykjavíkur, þeirra eignir og eignir Skátasambandsins, upp í það
leigja hoppkastala. Þetta er mjög fjölbreytt starf og gefandi,“ segir
afmælisbarnið. Ásgeir segir mikinn kraft í skátahreyfingunni um
þessar mundir en hún fagnar hundrað ára afmæli í ár. Hann segir
kapp lagt á það þessa dagana að fá fólk á öllum aldri í skátana, bæði
til að byggja upp baklandið fyrir yngri kynslóðina, en svo sé skáta-
starfið líka fyrir fólk á öllum aldri.
Auk skátastarfsins spilar söngurinn stórt hlutverk í lífi Ásgeirs.
„Ég er í kór, Vocal Project, sem tekur mikinn tíma. Poppkór Ís-
lands, eins og hann er kallaður,“ segir Ásgeir en kórinn æfir nú af
fullum mætti fyrir fyrirhugaða jólatónleika, sem verða e.t.v. fremur
óhefðbundnir. „Þetta verða svona popp og rokk jólalög í skemmti-
legum útsetningum, ekki þessi klassísku jólalög,“ segir hann og not-
ar tækifærið til að auglýsa eftir áhugasömum bössum og tenórum.
holmfridur@mbl.is
Ásgeir Ólafsson er 35 ára í dag
Skáti Ásgeir segir mikinn kraft í hreyfingunni um þessar mundir.
Æfir fyrir popp og
rokk jólatónleika
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Ellen Día
fæddist 10. janúar kl. 1.18.
Hún vó 3.315 g og var 48,5
cm löng. Mæður hennar eru
Díana Dögg Hreinsdóttir og
Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir.
Nýr borgari
B
jarni fæddist í Vest-
mannaeyjum og ólst þar
upp. Hann var í Barna-
skóla Vestmannaeyja,
lauk vélstjóraprófi 1956,
stýrimannaprófi 1958, bóklegu flug-
prófi 1965, fiskmatsprófi 1971, at-
vinnuflugmannsprófi 1972, lauk
verslunarprófi frá öldungadeild
Framhaldsskólans í Eyjum 1975 og
öðlaðist flugkennararéttindi 1982. Þá
sótti hann námskeið í kertagerð í
Danmörku 1984.
Sextán ára kokkur á síld
Bjarni hóf störf við frystihús í Eyj-
um er hann var ellefu ára, fór kokkur
á síld sextán ára, var síðan háseti,
skipstjóri en lengst af vélstjóri á
fjölda báta frá Vestmannaeyjum.
Er Bjarni kom í land 1962 hóf hann
störf hjá Vinnslustöðinni.
Bjarni eignaðist tveggja sæta
Cessnu 150 árið 1969. Hann festi
kaup á fjögurra sæta flugvél 1973 og
starfrækti flugfélagið Eyjaflug á ár-
unum 1973-83. Þá hóf hann aftur
störf hjá Vinnslustöðinni og starfaði
síðan hjá frystihúsinu Eyjabergi.
Bjarni Jónasson, skipstjóri og flugmaður í Eyjum – 75 ára
Þriðji stúdentinn Bjarni og Jórunn Þorgerður, ásamt Jónasi, Valgerði og Bergþóri, sem þá var nýstúdent.
Útvarpsstjóri í Eyjum
Flugmaður með stæl Bjarni starfrækti flugfélagið Eyjaflug á árunum 1973-83.
„Íslendingar“ er nýr
efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu.
Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem hjónavígslum,
barnsfæðingum eða öðrum
tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Bjöllutímarnir hjà Hilmari
eru meirihàttar. Mjög
fagmannlegir, skemmtilegir
og fjölbreyttir. Bjöllurnar eru
nákvæmlega það sem ég var
að leita að til að koma mér í
frábært form.
Veggsport hefur upp á allt að
bjóða sem èg þarf.
Lárus Ómarsson
Styrkir alla vöðva líkamans
Frábært nýtt æfingarform
sem þjálfar þol, styrk og
liðleika, allt í senn.
Ketilbjöllur gætu
verið málið fyrir þig
Frír prufurtími
Ketilbjöllutímar
þri. og fim., kl 12.00 og 17.15
lau., kl. 10.00