Morgunblaðið - 04.10.2012, Side 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Mjög þægilegt
Er ekkert óþægilegt fyrir ungan
og óþekktan höfund sem enga bók
hefur gefið út að fá bæði styrk og
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Þetta er dálítill meðbyr fyrir svona
ungan og óþekktan höfund,“ segir
Dagur Hjartarson, rithöfundur og
ljóðskáld, sem hlaut í gær Bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar fyrir ljóðahandritið Þar
sem vindarnir hvílast – og fleiri ein-
læg ljóð. Dagur hlaut Nýrækt-
arstyrk Bókmenntasjóðs 19. sept-
ember sl. fyrir smásagnahandritið
Fjarlægðir og fleiri sögur sem gefið
verður út á bók á næsta ári.
Dagur fæddist árið 1986 á Fá-
skrúðsfirði, hefur alla tíð búið í
Reykjavík og er á öðru ári í tvöföldu
meistaranámi, íslenskum bók-
menntum annars vegar og ritlist
hins vegar, við Háskóla Íslands. Þar
sem vindarnir hvílast – og fleiri ein-
læg ljóð verður hans fyrsta útgefna
bók. Dagur segist hafa skrifað tölu-
vert mikið í tengslum við námið sl.
tvö ár. „Það má segja að þessi mikla
gæfa mín núna, síðustu þrjár vik-
urnar, sé afrakstur þeirrar vinnu að
mestu leyti,“ segir Dagur.
Hvers konar ljóðskáld ertu? Ég
þykist vita að þú sért einlægur.
„Jú, ég myndi segja að þetta væru
frekar einföld ljóð. Ég stefni að tær-
leika og einfaldri, skýrri hugsun. Ég
yrki um ástina og fegurðina, fyrst og
fremst,“ svarar Dagur. „Þetta eru
mest stutt ljóð sem eru ekki ort und-
ir neinum bragarhætti. Þetta er það
sem myndi kallast nútímakveð-
skapur.“
Dagur Hjartarson hlaut Bókmennta-
verðlaun Tómasar Guðmundssonar í
gær Hlaut Nýræktarstyrk Bók-
menntasjóðs fyrir þremur vikum
Ást, fegurð
og innsæi
Fim. 04. okt.‘12 » 19:30
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Sími: 528 5050 » Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar
Ralph Vaughan Williams
Fantasía um stef eftir Tallis
Claude Debussy Première Rhapsodie
Anders Hillborg Peacock Tales
César Franck Sinfónía í d-moll
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri
Martin Fröst einleikari
TÓNLEIKAKYNNING » 18:00
Martin Fröst er án efa einn fremsti klarinettleikari
heims í dag. Hann hefur einstakan persónulegan
stíl og býr yfir undraverðri tækni. Fröst er tónleika-
gestum á Íslandi að góðu kunnur og hefur notið
mikilla vinsælda fyrir túlkun og líflegan flutning.
„Það er freistandi að segja að ef Martin
Fröst léki ekki á klarinett þá væri hann
leikari eða dansari.“
ART DESK
Bakhjarlar:
Sonnet of Delirium nefnist sýning sem opnuð verður í
dag kl. 17 í ÞOKU, Laugavegi 25. Sýningin er unnin í
samstarfi við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík,
RIFF. Á henni sýnir listakonan Una Lorenzen tilrauna-
kennda hryllingsstuttmynd sína, Sonnet of Delirium,
frá árinu 2011 sem byggð er á sögu íranska listamanns-
ins Majeed Beenteha. Beenteha fékk Unu til verksins
og tók kvikunin níu mánuði. Auk stuttmyndarinnar
sýnir Una teikningar sem hún notaði við gerð hennar.
Myndin segir af baráttu konu einnar við þjáning-
arfullar minningar sem hafa valdið henni þunglyndi,
eins og segir í fréttatilkynningu. Kvöld eitt stendur
hún frammi fyrir óhugnanlegri veru sem veldur henni
ofsahræðslu. Hvort veran er raunveruleg eða hug-
arburður er ekki ljóst.
Una Lorenzen starfar sem hreyfimyndasmiður og
býr og starfar í Montréal í Kanada. Hún lauk BA-námi í
grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og
MFA-gráðu í tilraunakenndri hreyfimyndagerð frá Ca-
lifornia Institute of the Arts sex árum síðar. Hún hefur
komið að ýmsum verkefnum hér á landi sem erlendis,
m.a. unnið stuttmyndir, tónlistarmyndbönd, kvikað fyr-
ir kvikmyndir og unnið plötuumslög.
Verk Unu má kynna sér á vefsíðu hennar, this.is/
una. Sýningin í ÞOKU stendur til 25. október og er að-
gangur ókeypis.
Tilraunakennd hryllingsmynd
Hryllingsmynd Ein teikninga Unu í stuttmyndinni.
Höfundarkvöld
með Kristof
Magnusson verð-
ur á Súfistanum í
Bókabúð Máls og
menningar á
Laugavegi 18 í
kvöld kl. 20. Ný-
lega kom út bókin
Það var ekki ég
eftir Kristof í ís-
lenskri þýðingu Bjarna Jónssonar.
Kristof er einn helsti þýðandi ís-
lenskra skáldverka á þýsku og hefur
m.a. þýtt bækur Einars Kárasonar
og Auðar Jónsdóttur, en þau munu
spjalla við Kristof í kvöld. Öll munu
þau lesa upp úr nýjum verkum sín-
um, en bæði Auður og Einar eru
með nýja bók fyrir jólin. Aðgangur
er ókeypis.
Bókmenntir
Höfundarkvöld
Kristof
Magnusson
Að vera sjálfum
sér trúr nefnist
erindi sem Hann-
es Óli Ágústsson,
leikari hjá Leik-
félagi Akureyrar,
flytur í Samkomu-
húsinu á Akureyri
á morgun milli kl.
16 og 17. Erindið
er hluti af fyr-
irlestraröð Listnámsbrautar VMA
og Sjónlistamiðstöðvarinnar og öll-
um opinn.
„Hannes Óli hefur komið víða við
á frekar stuttum leikferli sínum.
Hann mun í erindi sínu fjalla um fer-
il sinn til þessa og hvernig íslenskt
leiklistarlíf kemur honum fyrir sjón-
ir með öllum þess kostum og göll-
um,“ segir m.a. í tilkynningu.
Leiklist
Sjálfum sér trúr
Hannes Óli
Ágústsson
Hljómsveitin
Skuggamyndir
eða Byzantine
Silhouette halda
tónleika á Café
Haítí í kvöld kl.
21. „Sveitin hefur
nú leikið þar einu
sinni í mánuði í
meira en ár við
góðar und-
irtektir enda virðist Balkanskotin
tónlist félaganna vera kærkomið
innlegg í íslensku menningarflór-
una,“ segir m.a. í tilkynningu.
Sveitina skipa þeir Haukur Grön-
dal á klarínett og saxófón, Ásgeir
Ásgeirsson á ýmis strengja-
hljóðfæri, Þorgrímur Jónsson á
bassa og Erik Qvick á trommur og
slagverk.
Tónlist
Skuggamyndir
Haukur
Gröndal
Eftirfarandi ljóð má finna í Þar
sem vindarnir hvílast – og fleiri
einlæg ljóð.
Líðan
stundum líður mér svo illa
að mér finnst eins og ég búi
í Breiðholtinu
eins og hjarta mitt sé bara herbergi
í risavaxinni blokk
Ástarbréf
ég hef verið að reyna
að ná í þig
þú skildir eftir
varirnar þínar
í munnþurrkunni
síðustu helgi
ég hef hringt
af augljósum ástæðum
hefur þú ekki svarað
en ég vildi bara láta þig vita
að ég er með varirnar þínar
hérna á náttborðinu
og það truflar mig ekki vitund
þótt þú talir upp úr svefni
Herbergi
í blokk
LÍÐAN OG ÁSTARBRÉF
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Harpa er ein af bestu tónleikahöllum
Evrópu í dag. Hljómburðurinn í hús-
inu er afskaplega góður,“ segir
sænski klarinettuleikarinn Martin
Fröst en hann er einleikari á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands
í kvöld. Fröst hefur tvisvar áður
komið fram með hljómsveitinni, og
hrifust bæði áheyrendur og gagn-
rýnendur af leik hans, enda hefur
ítrekað verið sagt að Fröst sé einn
fremsti klarinettuleikari samtímans.
Á efnisskrá tónleikanna eru Fant-
asía um stef eftir Tallis, eftir Ralph
Vaughan Williams, Première
Rhapsodie eftir eftir Claude De-
bussy, Peacock Tales eftir Anders
Hillborg og Sinfónía í d-moll eftir
César Franck. Hljómsveitarstjóri er
Yan Pascal Tortelier.
Dansspor fyrir einleikarann
Martin Fröst leikur einleik í verk-
unum eftir Frakkann Debussy og
Hillborg, sem er sænskt samtíma-
tónskáld. Hann segir það býsna góða
tvennu þótt verkin sé ólík, enda sam-
in á ólíkum tímum. Debussy samdi
Première Rhapsodie á árunum 1909
til 10 og er það draumkennt eins og
mörg önnur verk tónskáldsins, en í
verki Hillborgs mynda tónlist, dans
og tjáning einleikarans órofa heild.
„Já, það er býsna tjáningarríkt
verk enda fylgja því vandlega út-
færð spor fyrir einleikarann. Verkið
byggist á einskonar samtali milli
einleikara og hljómsveitar, þar sem
hljómsveitin reynir að hafa betur, og
endirinn er óvæntur,“ segir Fröst.
Hann þekkir verkið afar vel, segist
hafa leikið það 250 til 300 sinnum
alls á síðasta áratug, en hann leiki
tvö afbrigði af því, það styttra á tón-
leikunum í kvöld en það er um
stundarfjórðungur að lengd. „Stund-
um leik ég Peacock Tales allt að 25
sinnum á ári og það er alltaf áhuga-
vert að koma að því á nýjan leik,“
segir hann. „Ég er að leika svo mörg
önnur ólík verk á milli að ég kem
Hljómsveitin
reynir að
hafa betur
Sænski klarinettuleikarinn Martin
Fröst leikur með SÍ í Hörpu í kvöld