Morgunblaðið - 04.10.2012, Síða 48
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Dómari rekinn fyrir leti
2. 3,2 stiga skjálfti í Kötlu
3. Bóndi étinn af eigin svínum
4. Frekar á stofnun en til Íslands
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hvanndalsbræður hefja 10 ára af-
mælistónleikaröð sína, Hrútleiðin-
legir í 10 ár, í Miðgarði, Skagafirði,
laugardagskvöldið 6. október. Tón-
leikarnir hefjast kl. 22 og verður á
þeim farið yfir sögu hljómsveitar-
innar í máli, myndum og tónum.
Hrútleiðinlegir
Hvanndalsbræður
Trommuhátíðin
Trommarinn verð-
ur haldin í fjórða
sinn 6. október
nk. kl. 13-18, í sal
FÍH í Rauðagerði
27. Hljóðfæra-
húsið/Tónabúðin,
Rín og Tónastöðin
verða með það
nýjasta til sýnis úr slagverks- og
trommuheimum og vel valin, gömul
trommusett verða einnig sýnd. Þá
munu margir færustu trommuleik-
arar landsins leika listir sínar. Heið-
ursverðlaun verða veitt fyrir ævistarf
og falla þau að þessu sinni í hlut
Péturs Östlund. Gestgjafi og kynnir
er Jónatan Garðarsson.
Trommuhátíð haldin
í fjórða sinn í sal FÍH
Reggísveitin Ojba Rasta heldur út-
gáfutónleika í Iðnó í kvöld kl. 22
vegna nýútkominnar
breiðskífu sinnar sem
ber nafn hljómsveit-
arinnar. Platan verður
leikin í heild sem og
óútgefin lög og lag-
ið „Í ljósaskipt-
unum“ verður
frumflutt.
Ojba Rasta fagnar
Ojba Rasta í Iðnó
Á föstudag Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en
gengur í suðvestan 5-8 m/s og þykknar upp vestan til á landinu
síðdegis. Hiti 3 til 10 stig, mildast sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 5-10 m/s, skýjað að mestu og stöku
skúrir eða él norðan og austan til, en yfirleitt léttskýjað í öðrum
landshlutum. Hiti 0-7 stig norðanlands en 3-10 stig syðra.
VEÐUR
Mario Balotelli tryggði Eng-
landsmeisturum Manchest-
er City jafntefli, 1:1, gegn
Þýskalandsmeisturum
Borussia Dortmund í Meist-
aradeild Evrópu í gærkvöldi.
Dortmund var betri aðilinn
en Joe Hart fór gjörsamlega
á kostum í marki Man. City.
Arsenal vann Olympiakos á
heimavelli og Cristiano
Ronaldo skoraði 18. þrenn-
una fyrir Real Madrid í sigri
á Ajax á útivelli. »1
Man. City slapp
með skrekkinn
„Það eru flestir sammála um að
Dominos-deildin, úrvalsdeild karla,
verði jafnari í ár en í fyrra. Mann-
skapur flestra liða er áþekkur á papp-
ír og ekkert lið með áskrift að stig-
um. Á síðasta tímabili voru
andstæðir pólar; Grindavík og Valur.
Það lítur hinsvegar út fyrir að slíkar
íshellur muni ekki ná fótfestu í ár
sökum loftslagsbreytinga 3+2-
reglunnar,“ segir Kristinn Friðriksson
í annarri yfirlitsgrein sinni um liðin í
úrvalsdeild karla í körfuknattleik. »2
Ekkert lið með áskrift
að stigum í körfunni
Íslandsmótið í körfuknattleik
kvenna hófst í gærkvöldi þegar heil
umferð fór fram í Dominos-deildinni.
Snæfell og Valur, sem spáð var 2. og
3. sæti, mættust á Hlíðarenda. Þar
hafði Snæfell betur en liðið fer mjög
vel af stað í haust. Keflavík, KR og
Njarðvík unnu einnig sína leiki en
Njarðvík er ríkjandi Íslands- og
bikarmeistari. »4
Konurnar í Snæfelli
fara vel af stað í haust
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Átakinu hefur verið mjög vel tekið
sem sýnir sig best í fjölda skóla sem
eru með í verkefninu,“ segir Auður
Rán Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri
Reykjavíkur bókmenntaborgar
UNESCO, um Lestrarhátíð í
Reykjavík.
Hátíðin er nú haldin í fyrsta sinn
og verður skipulögð dagskrá út
mánuðinn. Bókin Vögguvísa eftir
Elías Mar er í brennidepli og „Orð-
ið er frjálst“ er yfirskriftin. Bókin
kom fyrst út árið 1950 en bóka-
forlagið Lesstofan hefur nú gefið
hana út á ný.
Auður Rán segir að fólk sé þegar
byrjað að senda inn slangur (lestr-
arhatid.is), fjölmargar bókmennta-
göngur í Reykjavík hafi verið skipu-
lagðar fyrir skóla og a.m.k. tvær
fyrir almenning og í næstu viku
verði fyrsta bókmenntamerkingin
afhjúpuð þar sem Langibar stóð á
milli Aðalstrætis 6 og Aðalstrætis 8,
en barinn kemur við sögu í
Vögguvísu.
Skáldabekkir
„Þetta er fyrsta merkingin af
mörgum sem bókmenntaborgin set-
ur upp úti um alla borg til þess að
minnast höfunda eða bókmennta-
verka sem voru skrifuð á ákveðnum
stöðum,“ segir Auður Rán og bætir
við að jafnframt verði hægt að
skanna qr-kóða á sérstökum skálda-
bekkjum og hlusta á upplýsingar
um höfunda og upplestur skálda.
Bókin sé til umfjöllunar í les-
hringjum og í öllu skólakerfinu frá
leikskóla upp í háskóla og meðal
annars verði lestrarmaraþon fram-
haldsskólanema í Borgarbókasafn-
inu 26. til 27. október.
„Um 400 til 500 nem-
endur í unglingadeildum
skóla í borginni lesa bók-
ina í október,“ segir
Auður Rán.
Ágústa Ragnarsdóttir,
íslenskukennari í Haga-
skóla, segir að skólinn hafi
fengið eitt bekkjarsett af
Vögguvísu og bókin verði
lesin á einni viku. „Vikuna 15. til 19.
október verður svo lestrarvika í
Vesturbænum,“ segir hún og leggur
áherslu á mikilvægi lesturs í skóla-
starfinu.
Lestrarhestar leynast víða
Lestrarhátíðin í Reykjavík fer vel
af stað og margt á döfinni út mánuðinn
Morgunblaðið/RAX
Bókalestur Íslenskutímar í Hagaskóla hefjast á frjálsum bókalestri og í gær létu nemendur í 8. bekk fara vel um sig á dýnum og púðum í skólastofunni.
Nemendur við unglinga-
deildina í Klébergsskóla
unnu verkefni tengt Vöggu-
vísu. Þeir fengu nokkrar vís-
bendingar um það hvað
bókin fjallar um, án þess að
hafa lesið hana, og spáðu
svo um söguþráðinn út frá
þeim. Hugmyndirnar voru
af ýmsu tagi. „Nóvemberkvöld
árið 1950. Faðirinn er dauða-
drukkinn á sófanum með sígar-
ettustubb í vinstri hendi og
brennivínsflösku í hinni…“
Hugmyndir
af ýmsu tagi
VÖGGUVÍSA