Morgunblaðið - 20.11.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nokkur hundruð manns voru samankomin fyrir utan
bandaríska sendiráðið við Laufásveg síðdegis í gær.
Þar stóð félagið Ísland-Palestína fyrir mótmælaathöfn
vegna árása Ísraelshers á Gaza-ströndina. Að sögn
Sveins Rúnars Haukssonar, formanns Íslands-
Palestínu, voru þetta líklega fjölmennustu mótmælin
við sendiráðið sem félagið hefur staðið fyrir undan-
farin 40 ár. Auk Sveins flutti Ögmundur Jónasson inn-
anríkisráðherra einnig ávarp. Kröfðust þeir þess að
loftárásum Ísraela yrði tafarlaust hætt. Átökin á Gaza-
ströndinni komu einnig til umræðu á Alþingi í gær.
Birgitta Jónsdóttir þingmaður boðaði tillögu frá henni
og fleiri þingmönnum um að stjórnmálasambandi Ís-
lands við Ísrael yrði slitið. Ræða á málið í ríkisstjórn-
inni í dag, að því er fram kom í máli Össurar Skarphéð-
inssonar utanríkisráðherra í fyrirspurnartíma á þingi.
Árásum Ísraelshers mótmælt
Morgunblaðið/Júlíus
Fjölmenn mótmæli fyrir framan bandaríska sendiráðið við Laufásveg í gær
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þegar upplýsingar bárust um að
það myndi dragast að svara, þá velti
ég því fyrir mér hvað seðlabanka-
stjóri sæti í mörgum stjórnum félaga
í eigu Seðlabankans. Mér þykir þetta
einkennilegt því ég hefði talið tiltölu-
lega auðvelt að svara þessu,“ segir
Eygló Harðardóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, en hún lagði
fram fyrirspurn til fjármála- og efna-
hagsráðherra um setu Más Guð-
mundssonar seðlabankastjóra í
stjórnum félaga í eigu bankans.
Starfsmenn fjármála- og efna-
hagsráðuneytis sendu Eygló bréf.
Þar kom fram að sótt yrði um lengri
frest því ekki hefði náðst að afla
nauðsynlegra upplýsinga um málið.
Eygló telur það ekki samræmast
hlutverki seðlabankastjóra að vera
einnig innheimtuaðili fyrir kröfur.
Hún segir að á fundum í efnahags-
og viðskiptanefnd sé oft og tíðum
verið að ræða mikilvæg málefni sem
varða Seðlabankann og samninga við
kröfuhafa. „Þá er mikilvægt að skýr
greinarmunur sé á því hvaða hags-
muna Seðlabankinn gætir hverju
sinni,“ segir Eygló.
Gagnrýnin ekki ný af nálinni
Hún bendir á að umræðan um tví-
þætt hlutverk seðlabankastjóra hafi
einnig komið fram í kringum söluna
á Sjóvá á sínum tíma.
„Þegar Sjóvá var selt komu fram
tilteknar athugasemdir. Þá sat Már
Guðmundsson sem stjórnarformað-
ur eignarhaldsfélags Seðlabankans
og var starfandi seðlabankastjóri.
Heiðar Már Guðjónsson, einn af
þeim sem gerðu tilboð í Sjóvá, benti
á að hann vissi ekki hvort hann væri
að tala við seðlabankastjóra eða
stjórnarformanninn.“ Jafnframt tel-
ur Eygló eðlilegt að Seðlabankinn
hefði látið taka það út, með lögfræ-
ðiáliti eða öðru slíku, hvort þetta
samræmdist lögum um bankann, áð-
ur en félög í eigu hans voru stofnuð.
Máli sínu til stuðnings vísar hún í lög
um Seðlabankann, þá einkum til 3.
og 4. greinar sem fjalla um markmið
og verkefni Seðlabankans.
Auk þess kallar Eygló eftir við-
brögðum ráðherra við afstöðu Rík-
isendurskoðunar til stjórnarsetu
seðlabankastjóra sem kemur fram í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um fyr-
irgreiðslu ríkisins til fjármálafyrir-
tækja og stofnana eftir efnahags-
hrunið.
Ekki náðist í Katrínu Júlíusdótt-
ur, fjármála- og efnahagsráðherra,
við vinnslu fréttarinnar í gær.
Gagnrýnir tvíþætt hlutverk
Þingmaður telur það ekki samræmast hlutverki seðlabankastjóra að innheimta
einnig kröfur Fjármála- og efnahagsráðherra biður um frest til að svara á þingi
Katrín
Júlíusdóttir
Eygló
Harðardóttir
Fá inflúensutilfelli hafa greinst hér á landi þetta haustið,
en engin tilfelli hafa greinst frá því í byrjun október þeg-
ar tveir einstaklingar greindust með inflúensu. Báðir
sýktust þeir að öllum líkindum erlendis og veiktust fljót-
lega eftir heimkomu.
„Lítið er um inflúensu um þessar mundir en hins vegar
hefur RS-veira greinst að undanförnu, sem leggst sér-
staklega þungt á ungbörn,“ segir Guðrún Sigmundsdótt-
ir, yfirlæknir á sóttvarnasviði landlæknisembættisins.
„Mikilvægt er að foreldrar séu meðvitaðir um að veiran
sé á kreiki og hugi sérstaklega að því ef börn þeirra fá í
magann,“ segir Guðrún. Þó nokkuð virðist vera um
magakveisur en Guðrún segir fá slík tilfelli skila sér inn á
sjúkrahús og heilsugæslu. „Talsvert er um nóróveiru en
erfitt er að hafa eftirlit með því þar sem fólk heldur sig
frekar heima við með uppköst og hita,“ segir Guðrún. Að
hennar sögn eru landsmenn síður en svo hólpnir undan
inflúensunni, en hennar er líklegast að vænta í auknum
mæli í desember og janúar.
Fyrstu RS-veirutilfella
vetrar vart hjá börnum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Smithætta Fyrstu RS-veirutilfelli vetrarins hafa nú
greinst, en hún leggst sérstaklega þungt á ungbörn.
Örfá inflúensutilfelli
Magakveisur geisa
„Þögnin um þetta
stærsta sjálf-
stæðismál Ís-
lendinga hjá
frambjóðendum
flokks sem haft
hefur andstöðu
við ESB-aðild
sem stefnumál
frá byrjun, er af-
hjúpandi og dap-
urleg staðreynd,“
segir Hjörleifur Guttormsson, fyrr-
verandi alþingismaður og ráðherra, í
grein á vefritinu Smugunni þar sem
hann fjallar um stöðu Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs, VG.
Kveikjan að greininni er kynning-
arbæklingur sem honum barst
vegna forvals VG í Reykjavík en
hann segir engan af frambjóðend-
unum hafa minnst á Evrópumálin í
umfjöllun um áherslur sínar utan
einn sem hafi ekki gert upp við sig
hvort kostir aðildar að Evrópusam-
bandinu vegi þyngra en gallarnir.
Hann segir að lokum: „Flokkurinn
sem við stofnuðum um aldamótin er
því miður að verða ósjálfbært rekald
við hliðina á Samfylkingunni.“
Afstöðu-
leysi VG
um ESB
Hjörleifur
Guttormsson
VG „ósjálfbært rek-
ald“ segir Hjörleifur
Búið er að af-
létta hættu- og
óvissustigi vegna
snjóflóðahættu á
norðanverðum
Vestfjörðum og á
Mið-Norðurlandi.
Í gær var mat
lagt á hættu
vegna snjóflóða
undir Nöfunum á
Sauðárkróki og
ákveðið í framhaldinu að aflétta
rýmingu á þeim húsum sem þar
voru rýmd um helgina vegna snjó-
flóðahættu. Íbúar húsanna hafa því
fengið að snúa heim á ný en þeim
var gert að yfirgefa hús sín í fyrra-
dag. Snjóhengja féll af Nafarbrún á
efsta húsið í Kambastíg í fyrradag
en engum varð meint af.
Spáð er snjókomu næstu daga á
Mið-Norðurlandi og Vestfjörðum.
Vægt frost, en hiti um eða yfir
frostmarki við suður- og austur-
ströndina.
Óvissustigi
aflétt nyrðra
Mikið fannfergi er
á Sauðárkróki.
Verð á bökunar-
vörum hefur
hækkað frá því á
sama tíma fyrir
ári samkvæmt
verðlagseftirliti
ASÍ. Vinsælar
vörur eins og
Ljóma-smjörlíki
hafa hækkað um
12-18% og Pills-
bury-hveiti hefur
hækkað um 8-20%. Könnunin var
gerð hjá Bónus, Krónunni, Nettó,
Fjarðarkaupum, Hagkaupi og Nóa-
túni. „Að fenginni reynslu hefði ég
haldið að samkeppni á þessum
markaði væri mikil einmitt á þessum
árstíma,“ segir Jóhannes Gunn-
arsson, formaður Neytendasamtak-
anna. „Ef samkeppnin virkar á rétt-
an máta þá ættu þessar vörur frekar
að lækka eða í það minnsta að
hækka tiltölulega lítið vegna auk-
innar samkeppni nú fyrir jólin,“ seg-
ir Jóhannes og bætir við að hann
geti ekki fyllyrt um ástæður hækk-
unarinnar. Hann hyggst hins vegar
krefjast svara hjá bæði birgjum og
smásölum á næstu dögum.
heimirs@mbl.is
Dýrara að
baka fyrir
jólin
Krefst skýringa
Jóhannes
Gunnarsson
5.
Elínbjörg
Magnúsdóttir
SÆTI
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í REYKJAVÍK 24. NÓVEMBER
Alþingi á að endurspegla samfélagið.
Hlúum að heimilunum – afnemum
skattastefnu vinstri stjórnarinnar.
Elínbjörg Magnúsdóttir