Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Side 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Side 33
Morgunblaðið/Kristinn Gestir ásamt húsráðendum. Frá vinstri: Gestgjafinn Inga Elsa Bergþórsdóttir, Halldór Baldursson teiknari, Ragnheiður Arngrímsdóttir, flugmaður og ljósmynd- ari, Þorri Hringsson myndlistarmaður, Gerður Kristný rithöfundur, Valgerður G. Halldórsdóttir, grafískur hönnuður, og að lokum Gísli Egill Hrafnsson. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Góðir Gleði Gjafar Undir 3.000,- Undir 5.000,- Undir 10.000,- Í vefversluninni okkar, kokka.is, getur þú skoðað og keypt gjafir fyrir alla – hvort sem þeir eru nýbyrjaðir að búa eða eiga allt. Gjafirnar eru flokkaðar eftir þema og verði og einnig er hægt að kaupa gjafabréf. Ef þú átt góðan sófa er upplagt að nota hann til að kaupa jólagjafirnar! www.kokka.is 2.990,- 4.950,- 7.980,- 2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 HANDA 6-8 Nokkuð mildur karríréttur sem á ættir sínar að rekja til Taílands. Hér blandast saman mörg góð krydd sem verma á köldum degi. Í staðinn fyrir nautakjöt má nota heilan kjúkling sem hefur verið hlut- aður niður. Þá er óhætt að stytta eldunartímann um eina klukkustund. 1,5 kg nautakjöt, skorið í 4 cm bita 3 msk. jurtaolía 2 laukar, fínsaxaðir 3 stór rauð chili-aldin, fín- söxuð 2 anísstjörnur 2 tsk. túrmeric 2 tsk. möluð kóríanderfræ 4 lárviðarlauf 1 tsk. kumminfræ 1 tsk. hvítur pipar 8 grænir kardimommubelgir, léttmarðir 3 stilkar sítrónugras, fínsaxaðir 1½ msk. rifin engiferrót 800 ml kókosmjólk (2 dósir) salt 2 msk. tamarindmauk eða safi og börkur af 3 límónum og 1 msk. sykur 2 msk. austurlensk fiskisósa 1 stór sæt kartafla, afhýdd og skorin í munn- stóra bita 3 tómatar, saxaðir 1 rauð paprika, þunnt sneidd 100 g ósaltaðar jarðhnetur eða kasjúhnetur, saxaðar 2 límónur, skornar í báta Hitið ofninn í 160̊C. Steikið kjötið í olíu í eldföst- um potti. Takið kjötið úr pottinum. Léttsteikið lauk og chili-aldin þar til laukurinn verður glær eða 8–10 mínútur. Bætið kryddunum saman við ásamt sítrónugrasi, engiferrót og helmingnum af kók- osmjólkinni. Saltið lítillega. Setjið kjötið aftur í pottinn. Bætið smávegis af vatni saman við svo að rétt fljóti yfir kjötið. Lokið pottinum vel og setjið hann í ofninn. Bakið í 2 klukkutíma. Takið pottinn úr ofninum og bætið tam- arindmauki eða límónusafa, berki og sykri við ásamt fiskisósu, sætu kartöflunni, afganginum af kókosmjólkinni, söxuðum tómötum og þunn- sneiddri papriku. Setjið pottinn aftur í ofninn en hafið hann opinn. Hækkið hitann í 180̊C. Bakið áfram í opnum potti í 1 klukkutíma. Sáldrið hnetunum yfir. Berið réttinn fram með límónu-bátum, soðnum basmatigrjónum og t.d. naan-brauði. Gott er að saxa smávegis af fersku kóríander yfir soðin hrísgrjónin. Nautakjötspottréttur í engifer- og kókossósu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.