Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2012, Page 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2012, Page 39
9.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 J ames Bond var örlítið hressari í myndinni The Spy Who Loved Me sem frumsýnd var 1977 en í nýjustu myndinni Skyfall. Í myndinni var hann sólbrúnn með barta og dálítið ánægður með lífið enda kunni hann að lifa því til fulls í lok áttunda áratugarins. Á milli þess sem hann slóst við illmennið með stáltennurnar fór hann í sleik við heillandi konur. Hann var líka vel klædd- ur sem gerði það að verkum að gellurnar soguðust að honum. Sú sem var mest áberandi var Barbara Bach sem fór með hlutverk stórhættulegs glæpa- kvendis. Það flotta við hana er að hún leit miklu frekar út fyrir að syngja í kirkjukór og safna dúkkulísum en að starfa sem kaldrifjaður njósn- ari. Þar að auki bar hún af í klæðaburði. Þegar ég fór að leita að myndum úr myndinni fann ég eiginlega bara baðfatamyndir af frú Bach en það er hinsvegar til endalaust af myndum af Bond-bílnum sem breyttist í bát. Á þessu tímabili var töluverð síðbuxnatíska og náðu buxurnar hátt upp í mittið og var skyrtan gyrt ofan í. Beltið var að sjálfsögðu á sínum stað í mittinu. Þessi „late seventís- áhrif“ eru einmitt að koma sterk inn í vetrar- tískunni þótt við séum ennþá pínu hræddar við að gyrða ofan í. Það er vegna þess að þá getum við ekki „falið magann“. Eftir alla mussutískuna, víðu skyrturnar við þröngu buxurnar og víða kjóla við leggings, er erfitt að rífa sig upp úr hjólfarinu og venja sig á að gyrða ofan í eins og mömmur okkar og ömmur gerðu. Til þess að það sé hægt að vera í þessum stíl skiptir máli að síðbuxurnar séu rétt sniðnar. (Og svo er ágætt að klæða sig í aðhaldsnærbuxur sem þrýsta kviðfitunni upp í heila). Á dögunum hnaut ég um svarbláar síðbuxur frá Kenzo hjá Sævari Karli og mátaði skyrtu í stíl með rauðum köflum. Þegar ég var komin í dressið var ég eins og klippt út úr mynd frá áttunda áratugnum … (bara aðeins bústnari útgáfa). Auðvitað er hægt að fá flottar síðbuxur víða en það skiptir máli að þær séu vandaðar og helst með pressuðu broti í. Buxurnar frá Hugo Boss uppfylla öll skil- yrði um góðar síðbuxur. Þær eru vel sniðnar og úr vönd- uðum efnum. Þetta eru ekta svona skrifstofubuxur sem er líka hægt að klæðast á jólunum svo ekki sé minnst á jóla- kokteilana og jólaglöggin. Það er eitthvað við þetta tímabil í kringum 1977 sem er svo spennandi. Ítalska tískuhúsið Versace leitaði í þetta tímabil í tískulínum sínum árið 2000 þegar Amber Valletta sat fyrir á ríkmannlegu heimili á Ítalíu með nettan yfirlætissvip. Þetta er ein flottasta herferð sem tískuhús hefur farið í. Svipurinn á fyrirsætunni, fötin, förðunin og hárið var bara eitthvað svo mikið æði. Af einhverjum óskiljan- legum orsökum hef ég verið með Amber Valletta og þessa Ver- sace-herferð á heilanum í nokkur ár. Og þetta á það til að skapa vandræði þegar ég fer í búðir því ef fötin sem ég máta eru ekki nógu mikið „Amber 2000“ þá kaupi ég þau ekki. Þess vegna varð ég svo glöð að sjá þessi miklu „late seventís-áhrif“ í vetrartískunni því það þýðir bara eitt: Ég er að detta í tísku. martamaria@mbl.is Amber Valletta situr fyrir fyrir tískuhúsið Versace árið 2000. Með Amber Valletta á heilanum … James Bond og Barbara Bach í mynd- inni The Spy Who Loved Me. Vetrarlínan frá Kenzo 2012. Hér er fyrir- sætan reyndar í kápu yfir sem skyggir örlítið á skyrtuna og blússuna. Vetrartískan frá Hugo Boss. VINSÆLAR JÓLAGJAFIR sólgleraugu frá 19.900 kr. O ak le y A irb ra ke O O 70 73 57 -3 99 Bretta- og skíðagleraugu Verð frá 7.900 kr. UMBOÐS- OG DREIFINGARAÐILI Á ÍSLANDI: OPTICAL STUDIO www.facebook.com/OpticalStudio tö frandi gjafir Frá Provence Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com L’Occitane en Provence - Ísland tö frandi gjafir NCE Handsápa 500 ml - 2.560 kr. • Fótakrem 30 ml - 1.150 kr. Sápa 100 g - 660 kr. • Handkrem 150 ml - 3.150 kr. FRá PROVE 5.990kr. 20 kr . GJAFAKASSI SHEA BUTTER ð áður:7.5 Ve

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.