Morgunblaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 11
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 13 -0 19 8 Kia cee’d EX 1,6 Árg. 2008, ekinn 113 þús. km, bensín, 125 hö., sjálfsk. Verð 2.090.000 kr. Tilboðsverð 1.890.000 kr. Kia Rio EX 1,4 Árg. 2012, ekinn 14 þús. km, dísil, 90 hö., 6 gírar, eyðsla: 3,8 l/100 km*. Verð 2.890.000 kr. Kia Sportage EX 4wd Árg. 2012, ekinn 28 þús. km, dísil, 136 hö., sjálfsk., eyðsla 5,7 l/100km*. Verð 5.690.000 kr. Kia Sorento EX classic 2,2 Árg. 2012, ekinn 2 þús. km, 7 manna, 18” felgur, dísil, sjálfsk., 198 hö., eyðsla: 6,7 l/100km*. Verð 7.490.000 kr. Kia cee’d ex 1,6 Árg. 2012, ekinn 2 þús. km, dísel, 116 hö., sjálfsk., eyðsla: 5,6 l/100km*. Verð 3.790.000 kr. Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Kia Sportage EX 4wd Árg. 2011, ekinn 36 þús. km, 136 hö dísil, 6 gírar, eyðsla 5,7 l/100km*. Verð 4.990.000 kr. Kia Sorento EX 4wd 3,5 Árg. 2006, ekinn 77 þús. km, bensín, 195 hö., sjálfsk. Verð 2.390.000 kr. Tilboðsverð 1.790.000 kr. Frábær fjármögnun í boði * Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda. KIA GÆÐABÍLAR Á GÓÐU VERÐI 5 ár eftir af ábyrgð 2 ár eftir af ábyrgð 6 ár eftir af ábyrgð 6 áreftir afábyrgð 6 ár eftir af ábyrgð Greiðsla á mánuði 17.777 kr. M.v. 50% innborgun og 6 ára óverðtryggt lán á 9,4% vöxtum. Árleg hlutfallstala kostnaðar: 10,85%. 6 ár eftir af ábyrgð það eina sem stendur í vegi fyrir því að stelpur taki þátt. Þær halda að þær eigi ekkert erindi í svona keppni, því þetta er vissulega rosa- legt karlaveldi. Við finnum sann- arlega fyrir þessari karlamenningu og því er þátttaka okkur meðvituð yfirlýsing og okkur finnst frábært að það sé komið í umræðuna þetta með kynjaskiptingu þar sem hallar á stelpurnar, hvort sem það er í Gettu betur eða Morfís. Það er fá- ránlegt að aðeins ein stelpa sé í átta liða úrslitum í Gettu betur núna. Við finnum mikinn stuðning og erum stoltar af þessu. Við viljum vera öðr- um stelpum fyrirmyndir.“ Stelpum eru allir vegir færir „Ég man alveg hvernig mér fannst ég ekki tilheyra þessum heimi þegar ég ætlaði að taka þátt í Morfís fyrir tveimur árum,“ segir Bergþóra og bætir við að fyrri lið Borgarholtsskóla sem voru ein- göngu skipuð strákum, hafi orðið þannig til að strákur þekkti strák sem þekkti þjálfara. „Þetta var svona lokaður klíkuheimur strák- anna, og þjálfararnir leituðu eftir sniðugum strákum. Þjálfararnir okkar, Jóhann Fjalar og Jón Bjarki, eru mjög spenntir fyrir því að vera með full- skipað kvennalið, enda eru þeir flottir femín- istar. Liðið okkar er mjög heilsteypt og það er frábært að eiga þátt í því að breyta því hugar- fari að þetta sé bara fyrir stráka. Við hvetj- um stelpur eindregið til að gefa kost á sér í keppnina. Stelpum eru allir vegir færir.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Klárar Þrjár þeirra sem skipa Morfísliðið sem einvörðungu hefur kvenkyns meðlimi. Begga, Júlíana og Agnes. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013 Ég heiti Una. Það er einfalt ogþægilegt nafn, en þó ekkieinfaldara en svo að útlend- ingar hvá yfirleitt, þar til ég kynni það á spænskan máta. Úna chica. Þótt hann hafi valið það virðist Una líka vera óþarflega einfalt nafn í huga pabba míns, því hann er iðinn við að snúa út úr og kalla mig t.d. Unfríði Unfríðardóttur frá Unfríð- arstöðum í Unfríðarstaðasveit. Hann lætur ekki staðar numið þar því mamma kallast aldrei sínu rétta nafni, Ólína, í hans meðförum heldur ýmist Geirmundína, Þrýsti- loftmunda eða Jósafat. Við systkinin heitum öll gömlum, íslenskum nöfnum en þegar betur er að gáð eru þau þó ekki sjálfsagðari en hvaða önnur samsetning af bók- stöfum sem er. Karlmannsnafnið Sturlu má t.d. rekja langt aftur en þegar Sturla bróðir minn var lítill stemmdi það illa við máltilfinningu margra jafnaldra hans, enda er það í reynd kvenkynsorð. Hann var því oft kallaður Sturli. Nafn systur minnar Brynhildar hefur mér alltaf þótt fallegt en þegar ég heyrði í fyrsta sinn nafnið Brimhild- ur fannst mér það fárán- legt, þótt það sé nánast alveg eins. Maðurinn minn heitir Önundur. Það er landnámsnafn sem heill fjörður er nefndur eftir en ótrúlega margir virðast þó vera að heyra það í fyrsta skipti. Mér er minnisstæð stelpan á Pizza Hut sem þurfti að heyra það endurtekið fjórum sinn- um áður en við fengum pitsuna okkar (Ööön....?) Flestir kalla hann Ögmund og held ég að eina lausnin fyrir Önund sé að ná því að verða frægari en Ögmund- ur Jónasson til að leikar snúist. Um leið og maður venst nöfnum hætta þau nefnilega að vera fáránleg. Ég hef heyrt af leikskólabörnum sem springa úr hlátri yfir nafninu Jón- atan en eiga þrjá vini sem heita Tristan og finnst ekkert eðlilegra. Sjálf hef ég hneykslast á innsog- inu yfir því hvað fólk sé að gera börnunum sínum með ákveðnum nafngiftum, þar til ég fattaði að það kemur mér ekki nokkurn skapaðan hlut við hvað annað fólk heitir. Nöfn eru tilbúningur okkar eins og öll önnur orð og hafa enga merkingu í sjálfu sér. Það er valkvætt að vera fordómafullur og það er vond menning sem segir okkur að það sé eðlilegt að hæðast að fólki fyrir það eitt að heita nafni sem hljómar framandi við fyrstu við- kynningu. Eða leyfist mér að hljóma eins og bandarísk unglingamynd og vitna í Shakespeare: Hvað felst í nafni? Það sem við köllum rós ilma myndi jafn vel undir öðru heiti. »Hann er iðinn við aðsnúa út úr og kalla mig t.d. Unfríði Unfríð- ardóttur frá Unfríðarstöð- um í Unfríðarstaðasveit. HeimurUnu Una Sighvatsdóttir Leikritið Grimmd verður frum- sýnt 8. febrúar og verða sam- tals átta sýningar, allar í Tjarnarbíói við Reykjavík- urtjörn. Leikstjóri er Jenný Lára Arnórs- dóttir. Leikritið byggist á upprunalegum út- gáfum á þremur sögum: Handalausa mærin, Váli vélaður og Einitréð, en þær eru allar sóttar í Grimmsævintýrin. Miða- sala fer fram á Midi.is Facebook: Grimmd: Þar verður stikla (trailer). Grimmd FRUMSÝNING EFTIR VIKU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.