Morgunblaðið - 01.02.2013, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 01.02.2013, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þetta er alltafsama fólk-ið. Sam- ferðamönnum þess fækkar stöð- ugt. En stjórn- arliðið og fylgi- hnettir þess láta það ekki á sig fá. Það spáir jafnan óför- um og óáran ef ráðum þess sé ekki fylgt. Þær spár fá sömu örlög og heimsendaspár á hausti hverju. Það er hrópað og hótað til að fá menn til þess að hlýða, gera með illu það sem ófáanlegt er að fá menn til að gera með góðu. Frægustu dæmin snúa að þremur tilraunum til að skuldsetja þjóðina í slíkum mæli að er fyrir ofan skilning- arvit flestra dauðlegra manna. Þjóðin vildi ekkert hafa að gera með þvinganir af því tagi. Ekki vegna þess að mikill meirihluti hennar vildi ekki borga það sem honum bar. Það vill hann. Það var ekki það. Þjóðin skildi að það var eitthvað mikið rangt við þetta offors allt. Og hún komst að þessari niðurstöðu þrátt fyrir hótanir, hræðslu- hrekki og skefjalausan áróður Ríkisútvarpsins og þrátt fyrir að valdir fræðimenn sem sú stofnun hampar jafnan mest gerðust forsöngvarar hverrar óbilgjarnrar kröfu útlending- anna. Sumir þeirra gengu raunar enn harðar fram í hræðslu- áróðri en hinir pólitísku lodd- arar og lýðskrumarar dirfð- ust að gera sjálfir og héldu þeim þó fá bönd. Og sama fólkið er enn að reyna að svíkja þjóðina inn í Evrópu- sambandið. Og sömu fræði- mennirnir syngja framarlega í þeim kór og Ríkisútvarpið dregur ekki af sér, rétt eins og það sé ekki annað en stoð- deild á skrifstofu stækk- unarstjórans. Og nú síðast er hver klukkustund sem Al- þingi Íslendinga hefur yfir að ráða notuð til ófyrirleitinnar árásar á stjórnarskrá lands- manna! Henni var kennt um hrunið af sama fólki sem biðst undan því að horft sé í átt til sökudólga, þegar það sjálft fer með stærstu hlutverkin. Ekki er heil brú í þeim ásök- unum. Auðvitað getur þetta lið haft það á móti stjórn- arskránni að hún var rammi sem neyðarlögin, sem Stein- grímur J. studdi ekki, höfðu stuðning í. Hún var einnig bakgrunnur þess að sl. mánu- dag vann þjóðin og VG og Samfylkingin töpuðu atlögu að Íslandi, sem búrókratar í Brussel stóðu fyr- ir. Össur var svo viss um vondan málstað sinnar eigin þjóðar, að þegar úrslitin féllu henni í hag lét hann eins og slík nið- urstaða hefði einvörðungu fengist fram með brellum lög- fræðinga! Flokkur hans, Samfylkingin, hafði blásið til fundar á uppsagnardegi dómsins, til þess að velta sér upp úr óförum þjóðarinnar. Þegar þjóðin vann óvænt varð flokknum svo mikið um að hún blés þann fund af í ofboði! Og á seinustu metrunum heldur sama liðið dauðahaldi í síðustu tilraunina til skemmdarverka. Rík- isútvarpið leggst í þann leið- angur líka, en nú ber svo við að fræðasamfélagið treystir sér ekki í þá för. En sama lið- ið er þrátt fyrir það samt við sig. Það leyfir ekki lágmarks- umræður í nefnd um sjálfa stjórnarskrána. Það tekur ekki mark á neinu sem við það er sagt. Viðurkennir í raun að málið allt sé vanbúið til þess að vönduð umræða geti farið fram. En segist þá ætla að hafa nefndarumræðu um mál- ið samhliða þingumræðunni í sal þingsins. Lítur helst út fyrir að mönnum sé ekki sjálf- rátt. Það háttalag yrði ekki einu sinni talið boðlegt þótt smámál sem litlu skipti væri til meðferðar. Meðferðin er ekki aðeins brot á reglum og starfsvenjum þingsins sjálfs. Framgangan samrýmist ekki kröfum um eðlileg og vönduð vinnubrögð og yrði ekki einu sinni viðhöfð í átta manna átt- hagafélagi. En huggunarríkt er í slík- um hremmingum heilbrigðrar skynsemi að fólkið mun fá tækifæri til að grípa í taum- ana. Stjórnarskráin, hinn góði arfur þjóðarinnar frá 17. júní 1944, tryggir sjálf þjóð- inni þann rétt. Minnihluta ríkisstjórn, sem studd er af smáflokki sem þóttist fyrir fjórum árum ætla að gera þjóðinni gott, skeytir hvorki um skömm né heiður, sam- stöðu og sátt meðal þjóð- arinnar og getur beitt ofríki, þótt hún sé í pólitískri önd- unarvél. Hún getur veitt leik- reglum lýðræðisins áverka. En það verða aldrei dauða- högg fyrir stjórnarskrána. Hún ákveður það sjálf að þingið verður að koma að mál- inu á ný eftir að þjóðin hefur fengið tækifæri til að losa sig við offorsliðið á kjördag, seint í apríl. Það er þakkarefni. Þótt hverri skemmd- artilrauninni af annarri sé hrundið skal enn reynt } Hafa enn ekki lokið sér af F æra má gild rök fyrir því að við Ís- lendingar höfum ekki unnið við- líka sigur á alþjóðavettvangi og í Icesave-málinu síðastliðinn mánu- dag frá því að þorskastríðunum lauk fyrir að verða fjórum áratugum. Sigurinn nú er ekki langt frá þeim sigrum ef ekki á sömu slóðum þó baráttan sem leiddi til hans hafi verið háð með öðrum hætti, með öðrum vopnum og um annað mál. Þær baráttur eru þó í grunninn náskyldar enda snerust þær ekki aðeins um að standa vörð um gríðarlega mikilvæga hagsmuni þjóðarinnar gagnvart öðrum ríkjum heldur eiga þær það einnig sameiginlegt að hafa verið mögulegar í krafti þess að Ísland er fullvalda ríki. Sá meginmunur er að vísu á þessum tveim- ur baráttum að í þorskastríðunum stóðu íslenzk stjórnvöld með þjóðinni en ekki á hinn veginn. En hvað sem því líður þá verða að teljast vægast sagt litlar líkur á því að fiskveiðilögsaga Ísland hefði verið færð út ef við Íslendingar hefðum ekki ráðið okkar málum sjálf í þeim efnum og haft valdið innanlands til þess að taka slík- ar ákvarðanir á grundvelli okkar eigin hagsmuna. Þrátt fyrir andstöðu flestra eða allra nágrannaþjóða okkar. Það sama á við um Icesave-málið. Í krafti stöðu Íslands sem fullvalda ríkis gátu íslenzkir ráðamenn tekið á málum í kjölfar bankahrunsins í samræmi við hagsmuni þjóð- arinnar. Til að mynda með setningu neyðarlaganna. Slíkt hefði án efa ekki verið leyft hefði Ísland verið hluti Evr- ópusambandsins þegar hrunið skall á. Eins og kunnugt er hafa ríki sem eru þar innanborðs og hafa lent í miklum efnahagslegum hremmingum, eins og Írland og Grikkland, þurft að axla ábyrgð á sínum bönkum hvort sem þeim hefur líkað bet- ur eða verr. Hér á landi hafa vissulega líka ver- ið teknar ákvarðanir um að nota skattfé til þess að reyna að bjarga bönkum af stjórnvöldum, því miður, en það hefur þó ekki verið sam- kvæmt fyrirmælum frá yfirþjóðlegum stofn- unum eða öðrum ríkjum. Stjórnvöld hafa einu sinni ekki alltaf farið vel með fullveldi þjóð- arinnar eins og slík meðferð á skattfé og Ice- save-samningarnir eru dæmi um. Það þarf þannig ekki að efast um að Icesave- málið hefði þróast með gjörólíkum hætti ef Ís- land hefði verið innan Evrópusambandsins. Engar líkur eru á að við Íslendingar hefðum við þær aðstæður getað neitað að borga fyrir Icesave-reikningana og taka á okkur ábyrgðina á málinu. Okkur hefði einfaldlega verið gert að gera það. Það nægir sennilega í því sambandi að benda á að ekki aðeins tók Evrópusambandið ítrekað afstöðu gegn okkur Íslend- ingum á öllum stigum Icesave-málsins heldur hefur sam- bandið nú lýst því yfir í kjölfar niðurstöðu EFTA- dómstólsins að ríki þess séu eftir sem áður ábyrg fyrir tryggingum innistæðna í bönkum innan þeirra. En sem betur fer gátum við í krafti fullveldisins tekið eigin ákvarð- anir í þeim efnum rétt eins og til að mynda í makríldeilunni og þorskastríðunum. hjorturj@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Kraftur fullveldisins STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Það sem hefur verið að ger-ast í löndunum í kringumokkur er að skólar eru íauknum mæli að bjóða upp á lengda viðveru yngstu barna í grunnskólunum. Hlutverk skólanna virðist vera að víkka út í ákveðnum skilningi. Hinsvegar eru skiptar skoðanir um hvaða hlutverki frí- stundaheimilin eigi að gegna,“ segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir, lektor í tóm- stunda- og félagsmálafræði við Há- skóla Íslands. Í dag stendur skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar ásamt menntavísindasviði Háskóla Íslands fyrir málþingi um hug- myndafræði og þróun frístunda- starfs. Kolbrún verður meðal fyrirles- ara á málþinginu en hún hefur ný- lega lokið doktorsverkefni sínu sem fólst í rannsókn á hlutverki og stöðu reykvískra frístundaheimila. Þar beindi Kolbrún sjónum sínum m.a. að tilgangi frístundaheimila, áliti barna á starfinu og upplifun starfs- manna. Hún segist draga þá ályktun út frá rannsókninni að börnin meti félagslega þáttinn í starfi frístunda- heimilanna mikils. Börnin njóti þess að geta verið með vinum sínum og frelsisins sem felist í því að velja á milli fjölbreyttra verkefna. Á undanförnum árum hefur skóla- og frístundasvið Reykjavík- urborgar verið að þróa hugmyndir um samþættingu skólastarfs og frí- stundastarfs. Markmiðin eru að gefa börnum færi á fjölbreyttum við- fangsefnum sem eru sambland leiks og náms, starf frístundaheimila og skóla verði samþættari og myndi ákveðna heild. Kolbrún segir að ef færa eigi frístundaheimilin í auknum mæli undir skólakerfið þurfi að var- ast að formfesta og skipuleggja rammann um of. Þannig sé hætta á að sveigjanleiki og þátttaka barna minnki. „Markmið þessara tveggja stofnana eru að vissu leyti ólík en að sumu leyti sameiginleg. Ég held að við munum rýna í þennan sameig- inlega flöt í framtíðinni, þ.e. að innan skólans sé horft til þess að þar eigi sér stað bæði formlegt og óformlegt nám. Við eigum að horfa til þess að efla þátttöku barnanna sjálfra í gegnum leik og val í skólastarfi,“ segir Kolbrún. Að hennar sögn hafa frístunda- heimilin breyst frá því þau komu fyrst til sögunnar. Þá hafi áherslan fyrst og fremst verið á umhyggju en í dag sé komin til aukin áhersla á samspil náms og frístunda. Frístundastarf í þróun Frístundastarf í Reykjavík hef- ur verið í mikilli þróun undanfarin ár og ánægja foreldra og barna mikil að sögn Oddnýjar Sturludóttur, for- manns skóla- og frístundaráðs borg- arinnar. Áhersla er lögð á innihalds- ríkan dag barnsins með samþættingu skóla og frístunda- starfs á nokkrum stöðum. Oddný segist trúa á sameiginlega stefnu- mótun skóla- og frístundamála, enda sé þannig hægt að skapa heildstæða þjónustu við börn þó svo að skólinn hafi sína sérstöðu og frístundin sína. „Hugmyndafræðin er að frístunda- starfið verði sífellt ríkari þáttur í lærdómsumhverfi ungra barna. Frí- stundaheimili er ekki skóli en þar er samt heilmikið og mikilvægt nám, mótun félagsþroska, skap- andi starf og leikur,“ segir Oddný. Hún bindur vonir við málþingið og tekur fram að borgin sé þegar í samvinnu við menntavísindasvið HÍ sem hafi sýnt mikinn áhuga á hugmyndum um óformlegt nám og samspil skóla og frí- stundastarfs í því samhengi. Samspil frístunda og skóla til skoðunar Morgunblaðið/Ómar Uppeldi Fjöldi barna fer á frístundaheimili að skóla loknum. Þar fer fram fjölbreytt starf þar sem börn takast á við hin ýmsu verkefni í bland við leik. „Að mínu viti er mikilvægt að settur verði lágmarksrammi, þar séu settar fram kröfur um að frí- stundaheimili séu með skil- greind markmið. Einnig komi þar fram kröfur til þeirra sem reka slíkt starf. Ég myndi segja að skoða þyrfti hvort ætti að festa slíkan ramma í lög,“ segir Kol- brún. Þá tekur hún fram að fram- kvæmd sveitarfélaga á þjónust- unni sé æði misjöfn. „Reynslan sýnir að stundum fer starfið fram í húsnæði sem ekki er hent- ugt og kröfur til starfsmanna eru ekki skilgreindar að því er varðar menntun og reynslu. Efla þarf gæða- kröfur og opinbert eft- irlit, til að mynda er hvergi hægt að nálgast tölur yfir umfang þjónustunnar á landsvísu,“ segir Kolbrún. Efla kröfur og eftirlit STARF FRÍSTUNDAHEIMILA Kolbrún Þ. Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.