Morgunblaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013 Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum! Vönduð gæðateppi á heimilið og skrifstofuna Dermicore® - einstakar lífrænar brokkolí serum-húðvörur Bylting í vörn gegn öldrun húðarinnar! Sulforaphane, sérvirka efnið úr brokkolí, kann að vera lykillinn að heimsins áhrifaríkustu vörn gegn hrörnun húðfruma og ótímabærri öldrun húðarinnar! Virkjar eigin andoxunarframleiðslu húðfrumanna! Dermicore inniheldur sulforaphane úr lífrænt rækt- uðum brokkolí-spírum sem virkjar húðfrumurnar til að auka framleiðslu eigin andoxunarefna - það er ein áhrifamesta og langvirkasta leiðin til að verjast ótímabærri öldrun húðarinnar og stuðla að endurnýjun hennar. Heiðar Jónsson snyrtir „Brokkolí áhrifin virka eins og náttúruleg fegrunaraðgerð á húðina“ Heiðar verður á staðnum og veitir viðskiptavinum sérfræðiráðgjöf: Laugardaginn 2. febrúar kl. 10-14 Mánudaginn 4. febrúar kl. 15-18 Kynningar- tilboð 25% afsláttur Dermicore® - brokkolí húðvörudagar 1.-9. febrúar í Heilsuveri og Lyfjaveri, Suðurlandsbraut 22 www.brokkoli.is Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Veðurskeytastöð 815 á Stórhöfða í Vestmannaeyjum verður lögð nið- ur í vor og hinn 1. maí tekur sjálf- virkur tæknibúnaður alfarið við. Þetta er gert í hagræðingarskyni en er einnig í takt við tímann því veðurathugunarmönnum fer smátt og smátt fækkandi – þótt starfs- stéttin sé ekki alveg útdauð enn. Yfir 250 sjálfvirkar veð- urstöðvar fylgjast stöðugt með veðrinu hér á landi en auk þess safna rúmlega 90 mannaðar stöðv- ar mismiklum upplýsingum, flestar þeirra úrkomustöðvar sem senda upplýsingu um úrkomu, snjódýpt og snjóalög einu sinni á dag, að morgni. Mannaðar skeytastöðvar eru innan við 30 og fækkar þeim um eina með Stórhöfða í vor, en þaðan hefur Pálmi Freyr Óskarsson veð- urathugunarmaður sent átta skeyti á dag, á þriggja tíma fresti allan sólarhringinn. Pálmi er son- ur Óskars Jakobs Sigurðssonar, sem lengi sinnti veðurathugun á Stórhöfða. Mikil skuldbinding „Við höfum verið að byggja upp kerfi sjálfvirkra stöðva til þess að taka yfir á undanförnum árum og það kemur til með að halda áfram að þróast í þá átt,“ segir Óðinn Þórarinsson, framkvæmdastjóri at- hugana- og tæknisviðs Veðurstofu Íslands. „Við notum oft tækifærið þegar menn komast á aldur, en svo er það líka að það getur verið erfitt að fá fólk til að binda sig yf- ir þessu starfi því þótt það taki kannski ekki langan tíma hverju sinni er það mikil binding að þurfa að senda 5-8 skeyti á sólarhring.“ Þegar veðurskeytastöðin í Stór- höfða verður lögð niður 30. apríl tekur við sjálfvirkur búnaður bæði á höfðanum sjálfum en einnig er sjálfvirk stöð í Vestmannaeyjabæ auk þess sem veðurathuganir eru gerðar á Vestmannaeyjaflugvelli. Skeytastöðin á Stórhöfða er því m.a. lögð niður á grundvelli hag- ræðingar. Samskonar þróun hefur verið annars staðar á Norðurlöndum síð- ustu ár þar sem fáar sem engar mannaðar veðurstöðvar eru eftir. Mönnuð stöð á Stórhöfða aflögð Morgunblaðið/Sigurgeir Stórhöfði Óskar Jakob Sigurðsson var lengi veðurathugunarmaður.  Sjálfvirk veður- athugun verður frá 1. maí í vor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.