Morgunblaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Krónan styrktist töluvert í gær, eða
um 1,5%. Svo mikil hreyfing á einum
viðskiptadegi hefur ekki verið í þessa
átt síðan seint í ágúst árið 2009. Þetta
kom fram í Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka í gær.
Þar segir að styrkinguna megi líklega
rekja til inngrips af hálfu Seðlabanka Ís-
lands í gærmorgun en bankinn hafi selt
að minnsta kosti níu milljónir evra á
millibankamarkaði í þrennum við-
skiptum.
Svo virðist sem veiking krónu í jan-
úar sé að fullu gengin til baka.
Töluverð styrking krónu
Viðurkenningu Félags kvenna í at-
vinnulífinu í ár hlaut Margrét Guð-
mundsdóttir, forstjóri Icepharma.
Þetta var tilkynnt við athöfn í Ráð-
húsi Reykjavíkur í fyrradag. Mar-
grét hefur komið víða við í atvinnu-
lífinu, bæði hér heima og erlendis.
Auk þess að stýra Icepharma er
hún stjórnarformaður N1 og for-
maður Félags atvinnurekenda. Þá
er hún í stjórn evrópskra samtaka
fyrirtækja í heilbrigðisgeiranum,
ESTA. Áður var Margrét forstjóri
Austurbakka, framkvæmdastjóri
hjá bæði Skeljungi og olíufélagsins
Q8 í Danmörku, 9 ár á hvorum stað.
Hún segir í samtali við mbl.is að
miklar breytingar hafi orðið hér á
landi á síðustu árum og tækifæri
kvenna séu mun meiri en áður.
„Mér finnst á þessum ferli mínum,
sem spannar yfir 30 ár, í atvinnulíf-
inu hafa orðið gríðarlega mikil
breyting hér heima á síðustu fjór-
um til fimm árum. Konur eru að
koma miklu sterkari inn og fá
miklu fleiri tækifæri. Ég held að
þessi löggjöf sem kemur núna í
september um konur í stjórn, hún
hafi ýtt við mörgum að horfa út fyr-
ir þægindahringinn við að leita að
aðilum til að taka þátt í stjórn-
arstörfum.“
Þá telur hún að viss gildi sem al-
mennt standi konum nær hafi náð
meiri fótfestu í atvinnulífinu og að
það sé jákvætt. „Eftir hrunið hefur
verið leitað að öðrum gildum varð-
andi stjórnun. Konur hafa verið
áhættufælnari en karlar og það er
eitt af því sem fólk vildi á þeim
tíma, ekki hámarksáhætta. Fólk
vildi heldur meira öryggi, traust og
virðingu, sem er kannski það sem
konur hafa oft staðið meira fyrir.
„Mér finnst grundvallaratriðið
vera að bera virðingu gagnvart því
fólki sem maður vinnur með og er í
samskiptum við.“
Þá segir hún nauðsynlegt að Ís-
lendingar fari í auknum mæli að
horfa til samkeppnishæfni þjóð-
arinnar. „Við erum svolítið búin að
gleyma okkur í innri hnappaskoðun
undanfarin 4 ár og nú þurfum við
að leggja það á bakvið okkur og
taka þátt í alþjóðasamfélaginu.“
Hvatningarviðurkenningu FKA
hlutu þær Signý Kolbeinsdóttir og
Helga Árnadóttir – eigendur Tuli-
pop, þakkarviðurkenningu FKA
hlaut Guðrún Lárusdóttir í Stál-
skipum og Gæfusporið 2012 hlutu
SVÞ; Samtök verslunar og þjónustu
og veitti Margrét Kristmannsdóttir,
formaður SVÞ, viðurkenningunni
viðtöku. Nánar á mbl.is.
thorsteinn@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Viðurkenning Hafdís Jónsdóttir, formaður FKA, Margrét Guðmundsdóttir,
forstjóri Icepharma og Katrín Júlíusdóttir, efnahags- og fjármálaráðherra.
FKA veitti fjórar
viðurkenningar
Margrét Guðmundsdóttir verðlaunuð
Guðrún Hálfdánardóttir
Helgi Vífill Júlíusson
Verði hagvöxtur að jafnaði 2,5% á
ári mun full atvinna í landinu ekki
nást í fyrirsjáanlegri framtíð. Verði
hagvöxtur að jafnaði 3,5% á ári má
gera ráð fyrir að full atvinna komist
á eftir tæpan áratug. Flestar hags-
pár gera ráð fyrir að hagvöxtur
verði 2,5-3,0% næstu árin ef ekki
kemur til veruleg aukning atvinnu-
vegafjárfestinga. Þetta kemur fram
í riti Samtaka atvinnulífsins, Fleiri
störf - Betri störf.
Af þessu má ráða að þörf er á enn
meiri hagvexti en 3,5% næstu árin
til að mæta stækkandi vinnumark-
aði, vinna bug á núverandi atvinnu-
leysi og loks að bjóða þeim Íslend-
ingum störf sem fluttu af landi brott
í kjölfar efnahagskreppunnar, segir
í ritinu.
Á næstu fimm árum mun fólki á
vinnualdri (16-70 ára) fjölga um
1.900 árlega, segir í ritinu, og miðað
við 80% atvinnuþátttöku bætast
1.500 manns árlega við vinnuaflið.
Samtök atvinnulífsins héldu fund
um atvinnumál í gær. Kolbeinn Kol-
beinsson, forstjóri Ístaks, sagði að
starfsemi fyrirtækisins byggðist á
sérþekkingu. „Ef við ætlum að bæta
og fjölga góðum störfum þá þurfum
við að auka sérþekkingu okkar. Til
þess þurfum við að bæta okkar
menntun til að fá fleira tæknimennt-
að fólk til vinnu,“ sagði hann og
gagnrýndi að verið væri að skera
niður framlög til tæknimenntunar,
og nefndi að Ísland hefði þar ekki
verið í fremstu röð.
Halldór Árnason, hagfræðingur
Samtaka atvinnulífsins, sagði að góð
menntun væri lykillinn að uppbygg-
ingu íslensks atvinnulífs og að mik-
ilvægt væri að Samtök atvinnulífsins
og fyrirtækin í landinu yrðu virkir
þátttakendur í mótun menntastefnu
á komandi árum.
Hann segir að bæta megi mennta-
kerfið. „Nýlegar rannsóknir benda
til þess að mikið sé um endurtekn-
ingu námsefnis í undirstöðugreinum
eins og íslensku og stærðfræði í
framhaldsskóla. Ísland ver mest
allra þjóða til fræðslumála í hlutfalli
við landsframleiðslu, en uppsker
miðlungsárangur skv. alþjóðlegum
könnunum,“ sagði Halldór.
Þörf á 3,5% hagvexti til
að ná fullu atvinnustigi
Mikilvægt er að atvinnulífið taki þátt í að móta menntastefnuna
Atvinnumál Góð mæting var á fundi SA í gær þar sem samtökin kynntu nýtt
rit, Fleiri störf - Betri störf. Fram kom nauðsyn þess að ná 3,5% hagvexti.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Helgi Júlíusson
hefur verið ráð-
inn sjóðsstjóri
hjá Lands-
bréfum hf. og
mun hefja störf
í dag, 1. febr-
úar. Helgi verð-
ur sjóðsstjóri á
sviði sérhæfðra
fjárfestinga.
Á árunum
2008-2011 starfaði Helgi sem fjár-
málastjóri og síðar sem forstjóri
Pennans, en árin 2007-2008 sem
fjármálastjóri Eimskips á Íslandi.
Helgi er með MBA gráðu frá
Cranfield School of Management
og með M.Sc. gráðu í rekstr-
arverkfræði frá DTU í Kaup-
mannahöfn.
Ráðinn
sjóðsstjóri
Helgi
Júlíusson
Stýrir sérhæfðum
fjárfestingum
Seðlabanki Íslands sendi frá sér
tilkynningu í gær, í tilefni fréttar
á forsíðu Viðskiptablaðs Morg-
unblaðsins í gær, sem var undir
fyrirsögninni „Þrengt að fjárfest-
ingakostum aflandskrónueigenda“.
Í fréttinni kom fram að Seðla-
bankinn undirbyggi nú að gera af-
landskrónueigendum óheimilt að
fjárfesta í styttri skuldabréfa-
flokkum.
Tilkynning Seðlabankans er svo-
hljóðandi:
„Í Seðlabankanum hafa um all-
langt skeið verið til skoðunar ýms-
ar hugmyndir um framkvæmd
áætlunar um losun fjármagns-
hafta, m.a. frá ýmsum aðilum utan
bankans. Engin afstaða hefur ver-
ið tekin til þessara hugmynda og á
þessu stigi er ótímabært að full-
yrða um hvaða leiðir verða farnar.
Breytingar á fjárfestingarheim-
ildum eru háðar breytingum á lög-
um um gjaldeyrismál nr. 87/
1992.“
Skoðar ýmsar
hugmyndir
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Svalaskjól
-sælureitur innan seilingar
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu