Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Golli Hólpið Fólkið kom á Landspítalann með þyrlunni um kl. 20 í gærkvöldi. Fjórir erlendir ferðamenn og einn Íslendingur sluppu heilu og höldnu eftir að breyttur jeppi sem þau voru á festist í á í Landamannalaugum síðdegis í gær. Miklir vatnavextir voru í ánni eins og víðar á Suður-, Suðaustur- og Vesturlandi og þurfti fólkið að bjarga sér upp á þak bifreiðarinnar þar sem vatn var farið að flæða inn í hana. Yfirleitt er áin ekki vatnsmikil en ekki er vitað nákvæmlega hvað varð til þess að jeppinn stöðvaðist í henni. Björgunarsveitir og þyrla Land- helgisgæslunnar var kölluð á staðinn en hægt gekk að komast þangað enda aðstæður og skyggni erfitt og úrkoma mikil. Þyrlan lenti við Land- spítalann í Fossvogi um áttaleytið og fékk einn fimmmenninga aðhlynn- ingu á slysadeild en hann var orðinn nokkuð kaldur þegar þyrluna bar að garði. Ekkert amaði að hinum fjór- um og voru þeir útskrifaðir fljótt. Veðurstofan varaði í gær við hættu á flóðum í ám á Suður- og Suðausturlandi og ráðlagði bændum með búfénað nærri Hvítá og Ölfusá að færa skepnurnar frá ánum. »2 Þyrlan sótti fólk sem beið hjálpar á bílþaki úti í á - Jeppi festist í á í Landmannalaugum Jeppinn festist í á Landmannalaugar F 224 Námskvísl Ferðafólk lenti í sjálfheldu í á við Landmannalaugar Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. F E B R Ú A R 2 0 1 3 . Stofnað 1913 . 47. tölublað . 101. árgangur . SVIFIÐ UM LOFTIN BLÁ Á BRETTI ROSSI MEÐ 10. TITILINN Í SIGTINU SUNGIÐ, LEIKIÐ OG DANSAÐ MEÐ GLÆSIBRAG ÖKUÞÓRINN BÍLAR MARY POPPINS 40MINTAN 2013 10 _ Stjórnarflokkarnir íhuga að óska eftir því að aukaþingdagur verði á föstudaginn kemur en þá er ekki gert ráð fyrir starfsemi í þinginu. Yrði þetta gert til að skapa tíma fyrir umræðu um stjórnarskrár- frumvarpið en þingfrestun er áformuð 15. mars næstkomandi. Fyrirhugaður fundur í stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd í dag var felldur niður og fundar nefndin á morgun samkvæmt áætlun. Á að nota daginn í dag til að vinna greinargerðir og annan texta þann- ig að hægt verði að vísa frumvarp- inu með breytingartillögum aftur inn í þingið. Formenn stjórn- málaflokkanna munu funda um framhald málsins fyrir helgi. »16 Til skoðunar að hafa aukadag á þinginu _ „Málkenndin er í tómu tjóni, það er alveg ljóst. Að hluta til má rekja það til þess að þetta [samsetning orða] hefur aldrei verið kennt,“ segir Baldur Sigurðsson, dósent í íslensku á Menntavísindasviði Há- skóla Íslands. Kennarar á öllum skólastigum hafa greint mikið óöryggi í notkun errs í samsettum orðum, líkt og í Landeyjarhöfn eða Landeyjahöfn. Síðarnefnda orðið er vitaskuld rétt. „Það er greinilega einhver mál- breyting í gangi að menn túlki þetta ekki lengur eins og eign- arfallsendingu,“ segir Höskuldur Þráinsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild HÍ. »4 Morgunblaðið/Styrmir Kári Upplestur Efla þarf málkenndina. „Málkenndin er í tómu tjóni“ Í kvæðinu „Þóra“ eftir Megas segir að selurinn hafi mannsaugu. Sú lýsing kemur upp í hugann þegar þessi gæfi kampselur er annars vegar. Selurinn lá mak- indalega í fjörunni í Vesturnesi við Borgarnes en kampselir eru sagðir geta verið mjög gæfir. Svo gæfur var selurinn að hann leyfði ljósmyndara að klappa sér í rólegheitum áður en hann fékk nóg og tók stefnuna aft- ur út í sjó. Virðulegur kampselur í makindum Morgunblaðið/María Erla/Theodór Óvæntur gestur í fjöruborðinu Svo gott sem all- ar beiðnir um símahleranir sem lagðar hafa verið fyrir héraðsdóm- stóla landsins frá ársbyrjun 2008 til loka síðasta árs hafa verið sam- þykktar. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jón- assonar innanríkisráðherra við fyr- irspurn Bjarna Benediktssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Alls hefur verið óskað 875 sinnum um eftir heimild til að hlera síma á grundvelli laga um meðferð saka- mála á þessu tímabili. Aðeins sex af þeim var hafnað af dómstólum. Meira en helmingur beiðnanna um síma- hleranir var lagður fram hjá Héraðs- dómi Reykjaness eða 462. Fallist var á þær allar, utan eina sem var aft- urkölluð í febrúar 2010. Næstflestar voru í Reykjavík, eða 301. Þar var engum beiðnum hafnað. Heimilt að hlera lögmenn Í svarinu kemur fram að ríkis- saksóknari hafi talið að ekki væri hægt að svara sumum liðum fyr- irspurnar Bjarna. Hann hafði meðal annars spurt hversu oft samskipti grunaðs manns og lögmanns hans hefðu verið hleruð og hversu oft sam- skipti lögmanns sakbornings við aðra en sakborning hefðu verið hleruð. Ríkissaksóknari sagði að gögn varð- andi símahlustanir væru ekki greind niður þannig að hægt væri að svara því. Tók hann fram að heimilt væri að hlera lögmenn eins og aðra og að ekki yrði séð hvaða tilgangi það þjónaði að upplýsa sérstaklega um hlustanir sem beindust að þeirri starfsstétt. 875 beiðn- ir til síma- hlerunar - Fáum hlerunar- beiðnum hafnað Breytingar » Þorskeldi er smám saman að dragast saman. » Þá eru lúða og sandhverfa að hverfa úr íslenska eldinu. » Í staðinn koma beitarfiskur og senegalflúra á næstu árum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslenska fiskeldið gaf af sér 7.400 tonn af afurðum á síðasta ári. Er það 50% aukning frá árinu á und- an. Bleikjueldi hefur verið uppistað- an í framleiðslu fiskeldis frá því síðasta laxeldisævintýri lauk, árið 2006. Laxinn hefur verið að sækja í sig veðrið síðustu ár, sérstaklega vegna uppbyggingar Fjarðalax á Vestfjörðum, en bleikjueldið hefur vaxið hægt. Þrefaldaðist laxafram- leiðslan á milli ára og er laxinn því búinn að ná bleikjunni á nýjan leik. Laxeldisfyrirtækin eiga meira inni og mun framleiðslan vaxa næstu ár og einnig framleiðsla á regnbogasilungi sem einnig er í stórsókn. Þá eru að bætast við ný eldisfyrirtæki, meðal annars á Vestfjörðum, Austfjörðum og Reykjanesi. Reiknað er með að framleiðslan nærri því tvöfaldist á næstu tveimur árum og verði 18-20 þúsund tonn á árinu 2020. Reynslan sýnir að miklar sveifl- ur eru í fiskeldi. Í lok síðustu upp- sveiflu, árið 2006, komst fram- leiðslan upp undir 10 þúsund tonna markið. Reiknað er með að fram- leiðslan nái því marki á þessu ári. Fiskeldi jókst um 50% - Fiskeldið skilaði 7.400 tonnum á síðasta ári - Framleiðsla á laxi þrefaldaðist - Regnbogasilungur í stórsókn M Fiskeldi í hröðum upptakti | »14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.