Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Fyrstu tölur í þingkosningunum á Ítalíu á sunnudag og mánudag bentu til þess að lítil munur yrði á fylk- ingum mið-hægrimanna og mið- vinstrimanna. En útgönguspár bentu þó til þess að hinir síðarnefndu undir forystu Pier Luigi Bersanis hefðu unnið. Gangi það eftir fær bandalagið öruggan meirihluta í full- trúadeildinni vegna kosningalaga er hygla mjög stærsta flokknum. Mót- mælaflokkur grínistans Beppe Grillo, Fimmstjörnuflokkurinn (M5S), var samkvæmt útgönguspám með um 20% atkvæða. En líklegt þótti að mið-hægri- menn, þ.e. Frelsisflokkur Silvios Berlusconis, fyrrverandi forsætis- ráðherra, og Norðurbandalagið fengju ívið meira fylgi í kosningun- um til öldungadeildarinnar. Fari svo er ljóst að Bersani getur ekki mynd- að sterka stjórn í reynd þar sem þingdeildirnar hafa álíka mikil völd. Um 4% verðhækkun varð á fjár- málamörkuðum í Mílanó þegar út- gönguspár birtust og Bersani virtist ætla að fá nógan stuðning til að mynda öfluga stjórn. En hækkunin gufaði strax upp þegar tölur gáfu til kynna að svo færi ekki. Þótti mönn- um nú litlar horfur á að næsta rík- isstjórn yrði nægilega öflug til að takast á við samdrátt í efnahagslíf- inu og spáðu sumir að ekki liði á löngu áður en aftur yrði kosið. Dapurlegar horfur Ljóst er að hver sem sigurvegar- inn verður munu landsmenn berjast við erfiðleika um langt skeið. Laun miðað við framleiðni hafa hækkað mun meira á síðari árum en reyndin var í Frakklandi og öðrum stórum iðnríkjum álfunnar. Jafnframt hefur skuldabyrði ríkisins aukist úr 102% af landsframleiðslu árið 1992 í 127% í fyrra. Framleiðsluvörur Ítala eru ekki samkeppnishæfar í verði, skrif- finnska og skattpíning þjaka fyrir- tækin meira en nokkru sinni fyrr. Og einstaklingar þurfa nú að borga ákaflega óvinsælan eignaskatt, laun hafa verið fryst og eftirlaunaaldur hækkaður úr 65 árum í 68. Bandaríska blaðið Wall Street Jo- urnal segir að Ítalir á aldrinum 40-50 ára horfi nú fram á aukið aðhald það sem eftir sé lífsins. Spá óstöðug- leika á Ítalíu - Bersani myndar vart sterka stjórn Æðsti yfirmaður kaþólsku kirkj- unnar í Skot- landi, Keith O’Brien kardin- áli, sagði af sér í gær. Hann hefur verið sakaður um óviðeigandi fram- komu við tvo presta kirkj- unnar og einn fyrrverandi prest. Mennirnir segja hann hafa áreitt þá kynferðislega. O’Brien mun ekki taka þátt í kjöri nýs páfa. Hann var skipaður kardináli árið 2003 og er einnig erkibiskup í St Andrews og Edinborg. Elstu málin eru meira en 30 ára gömul. Kardinálinn segir í yfirlýs- ingu að hann biðjist afsökunar á öllum mistökum sem hann kunni að hafa gert meðan hann hafi þjónað kirkjunni, en hann vilji ekki að at- hyglin beinist að sér þegar nýr páfi verði kosinn á næstu vikum. Benedikt páfi 16. mun láta af embætti á fimmtudag. Hann hefur gefið út sérstaka tilskipun um að kardinálasamkundan, sem kýs nýj- an páfa, geti komið saman fyrr en ætlað var. kjon@mbl.is Kardináli í Skotlandi segir af sér Keith O’Brien - Sakaður um kynferðislega áreitni Frá næstu mánaðamótum verða er- lendir læknar í Bretlandi að geta bjargað sér sæmilega á ensku eigi þeir að fá að starfa í landinu, að sögn yfirmanna heilbrigðismála. Kveikjan að þessari breytingu er að nýlega gaf þýskur læknir, Daniel Ubani, á sinni fyrstu vakt sjúklingi of stóran lyfjaskammt og sjúklingurinn dó. Að sögn BBC hafði heilbrigðis- stofnun í Leeds hafnað Ubani vegna lélegrar enskukunnáttu en hann var þá ráðinn til starfa á sjúkrahúsi í Cambridgeshire. Verður nú haft eftirlit með því að allir læknar kunni ensku. kjon@mbl.is Læknarnir kunni ensku Málgagn kínverska kommúnista- flokksins, Dagblað alþýðunnar, harmaði í gær að í landinu væri nú heil kynslóð sem aldrei hefði sjálf kynnst „erfiðri vinnu“. Í liðinni viku var ungur sonur hershöfðingjans Li Shuangjiangs handtekinn, grunaður um aðild að hópnauðgun. Li hers- höfðingi er landsþekktur og mjög vinsæll söngvari sem aðallega syng- ur um afrek hersins. Mál unglingsins hefur vakið mikla athygli á vefmiðlum, glæpir sem börn yfirstéttarinnar fremja valda ávallt mikilli bræði. „Þau eru vön að fá allt á silfurfati, öll vandamál leyst fyrir þau og nota nafn föðurins sem afsökun og skjöld, líta á það sem sjálfsagðan hlut að hampa auðæfum sínum og álíta það hreystiverk að brjóta lögin,“ segir blaðið. kjon@mbl.is AFP Nýir tímar Íhaldssamir ráðamenn Kína takast nú á við nýjar mannréttinda- kröfur. Lesbíurnar Elsie Liao og Mayu Yu eru hér við skrifstofu í Peking í gær þar sem þær báðu um leyfi til að giftast. Því var hafnað. Börn yfirstéttarinnar í Kína sögð gjörspillt Konur í CAFT, óformlegum, alþjóðlegum samtökum sem starfa í nokkrum löndum og berjast gegn framleiðslu og notkun loðfelda í fatnað og fleiri hluti, efndu til mótmæla um helgina í Nice í Frakklandi. Á spjöldunum stendur meðal annars: „Andmælið steingerðri tísku“ og „Það eru bara hellisbúar sem klæðast loðfeldum“. CAFT voru stofnuð í Bandaríkjunum á tíunda áratugnum. Dýraverndarsinnar mótmæla í Frakklandi AFP Finnst ljótt að nota loðfeldi Haldi fólk sig við mataræði sem oft er kennt við Miðjarðarhafið, þ.e. borði mikið af ólífum, hnetum, baunum, fiski, ávöxtum og græn- meti, fái sér jafnvel öðru hverju vínglas með matnum, getur það dregið stórlega úr tíðni hjarta- sjúkdóma, að sögn New York Tim- es. Blaðið vitnar í nýja, vandaða rannsókn sem skýrt er frá á vef New England Journal of Medicine og gerð var á nær 7.500 Spánverj- um yfir fimm ára tímabil. Um sé að ræða fyrstu rannsókn sem sýni með ótvíræðum hætti að umrætt matar- æði hafi áhrif á tíðni hjartaáfalla. Flest var þetta fólk þegar farið að taka lyf gegn háþrýstingi og sykur- sýki. Í ljós kom að rétt mataræði gat komið í veg fyrir um 30% hjarta- áfalla, heilablóðfalla og dauðsfalla vegna hjartasjúkdóma. Mataræðið hafi hjálpað til jafnvel þótt fólk hafi ekki lést. kjon@mbl.is Miðjarðarhafsfæði meinhollt fyrir hjartað veggskreytingar sandblástursfilmur prentun Smiðjuvegur 42 Rauð gata 200 Kópavogur Sími:544 4545 www.signa.is signa@signa.is skilti Bolir sem slá í gegn signa.is vs. Með hvaða liði heldur þú báðar útgáfur í svörtu og hvítu S-XXL 2300-2300- Opið 8-17 alla virka daga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.