Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 12
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Doktor í arkítektúr segir að reikna megi með því að um 10% af árlegri veltu á byggingamarkaði megi rekja til byggingar- galla. Þeir séu til- komnir þar sem ekki sé gætt nægilega að því að hanna hús með tilliti til veður- aðstæðna. Þetta segir Ævar Harðarson sem útskrifaðist nýlega sem dokt- or í arkítektúr frá NTNU sem er tækniháskóli í Þrándheimi í Noregi. Hallar á flötu þökin Í doktorsverkefni sínu fjallar hann um samhengi hönnunar- tengdra byggingargalla á húsum sem hönnuð eru að hætti nútíma- byggingarlistar. Langflest hús á Ís- landi, byggð eftir seinna stríð, eru hönnuð í slíkum stíl. Í verkefninu skoðaði hann fjölmargar byggingar víða um heim. „Þar mátti sjá að tölu- vert er um hönnunartengda galla sem rekja má til útlitseinkenna nú- tímabyggingarlistar,“ segir Ævar. Eitt einkenna þeirra eru flöt þök. „Það er vel hægt að byggja flöt þök sem ekki leka en það eru ýmsar lausnir í kringum það sem geta vald- ið erfiðleikum og því brýnt að líta til aðstæðna á hverjum stað fyrir sig, og nýta rétta þekkingu,“ segir Æv- ar. Hús eru nytjahlutir Hann segir að borið hafi á því að litið hafi verið á hús sem listaverk í stað þess að huga að veðurfari. „Hús eru nytjahlutir og við byggingu þeirra þarf að miða við veðurfar og ég tel að menn hafi vanrækt það,“ segir Ævar. Hann segir að þegar nútímabyggingarlist hafi komið til sögunnar hafi hönnuðir viljað byrja frá grunni. Ekki hafi verið hugað nægilega vel að þeirri þekkingu sem þegar var búið að afla um það hvernig takast mætti á við veðrið. „Forkólfar nútímabyggingarlistar á Íslandi urðu fyrir áhrifum af hvítum kassaarkítektúr sem varð til í Evr- ópu um 1930. Sá byggingarstíll varð svo aftur til fyrir áhrif m.a. frá alda- gömlum byggingarstíl sem þróast hafði á þurrum stöðum við Miðjarð- arhafið. Nema hvað á Íslandi eru veðurfarslegar aðstæður allt aðrar en þar,“ segir Ævar. Meðal ályktana sem Ævars dró af niðurtöðum sínum var sú að hönnuði skortir skilning á þeim kröftum sem verka á veðurhjúp húsa. „Auðvitað eru ekki gallar í öllum þessum hús- um en hægt er að miða við að um 10% af veltu á byggingamarkaði séu tilkomin vegna þessara galla. Það er meðaltalið. Svo getur verið miklu dýrara að gera við sumar nútíma- byggingar.“ Í niðurstöðum doktorsverkefnis- ins kemur fram að um 60% gallanna megi rekja til vanhönnunar og rangrar hönnunar. Gallarnir komi fram í lekum húsum sem leiða til frekari vandamála. „Hönnunar- tengda byggingargalla má kalla fæðingargalla því húsið verður til með þeim. Þá hefði mátt fyrirbyggja með betri hönnun,“ segir Ævar. 10% af veltu á bygginga- markaði rakin til galla - Ekki tekið nægilegt tillit til veðurfars við hönnun húsa Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Askja Hönnunargalli er á veðurhjúp einnar byggingar HÍ að sögn Ævars. Ævar Harðarson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 Dagana 25. til 28. febrúar nk. verður Síle- búinn Tomy Hirsch staddur hér á landi. Hann bauð sig fram í forseta- kosningunum í Síle 1999 og 2005. Hirsch mun halda fyrirlestur í stofu 201 í Árna- garði miðvikudaginn 27. febrúar kl. 12. Fyrirlesturinn ber yfir- skriftina Suður-Ameríka suðu- pottur breytinga – og barátta án ofbeldis. Tomy Hirsch er á fyrir- lestraferð um Evrópu um þessar mundir. Fyrirlestur um stöð- una í Suður-Ameríku Tomy Hirsch Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hóf í gær heimsókn til Parísar í boði franskra stjórn- valda. Hann mun í dag eiga fund í Elysée-höll með François Hol- lande, forseta Frakklands, þar sem m.a. verður rætt um glímuna við fjármálakreppuna, þróun norð- urslóða og nýtingu hreinnar orku, að því er fram kemur í frétt frá for- setaembættinu. Forseti Íslands mun einnig heim- sækja franska þingið, Assemblée nationale, meðan á dvöl hans í París stendur og eiga fund með Íslands- deild franskra þingmanna sem Lionel Tardy veitir forstöðu. Þá mun forseti jafnframt eiga fundi með frú Laurence Dumont, varafor- seta neðri deildar þingsins, og Jean- Pierre Bel, forseta efri deildar þingsins, Sénat. Þá mun Ólafur Ragnar Grímsson flytja fyrirlestur um norðurslóðir og loftslagsbreytingar við háskólann Université Pierre et Marie Curie í París og svara fyrirspurnum í kjöl- farið. Við lok málþingsins verður forseti viðstaddur opnun sýningar á ljós- myndum Ragnars Axelssonar sem ber heitið „Veiðimenn norðursins“. Ólafur Ragnar Grímsson Á fund með forseta Frakklands í dag STUTT Ráðgjafahópur um lagningu sæ- strengs boðar til málþings í dag, þriðjudaginn 26. febrúar. Mál- þingið verður haldið í Hörpu, Silfurbergi B, og stendur frá kl. 12.00-15.30. Fjórir erlendir fyrirlesarar og þrír íslenskir flytja erindi á mál- þinginu og í lokin verða pall- borðsumræður. Aðgangur er ókeypis. Ráðgjafahópurinn var stofn- aður árið 2012 og í honum eru fulltrúar alla þingflokka og marga félagasamtaka. Rætt um sæstrengi Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Nýleg breyting á tollalögum hefur vakið áhuga erlendra fyrirtækja á að bjóða upp á tollfrjálsar skemmtisigl- ingar innanlands. „Vafalítið munu ís- lenskir farþegar kunna vel að meta lægra verð á veitingum og gistingu um borð sökum þess að enga skatta eða tolla þarf að borga eftir breyt- ingar Alþingis á tollalöggjöfinni,“ segir Þórir Garðarsson, markaðs- stjóri Iceland Excursions, en fyrir- tækið hefur verið í viðræðum við er- lendar útgerðir um að bjóða upp á slíkar ferðir fyrir Íslendinga og er- lenda ferðamenn sem koma til lands- ins með flugi. Þá hefur einnig komið til tals að nýta skipin sem gistirými yfir sum- artímann. „Lagabreytingin opnar fyrir þann möguleika enda greiða er- lendar útgerðir ekki 14% virðis- aukaskattinn sem nýlega var lagður á alla gistingu innanlands, né gisti- náttagjaldið og þau geta gert út hér tollfrjálst í fjóra mánuði á ári.“ Misnotkun á lagarammanum Ingólfur Haraldsson, stjórnar- maður í Samtökum ferðaþjónust- unnar og hótelstjóri Hilton Reykjavík hótelsins, segir hættu á því að nýleg lagabreyting verði misnotuð með þeim hætti sem Þórir lýsir. „Það eiga allir að sitja við sama borð og það er ekki eðlilegt að hótel í landi þurfi að keppa við aðila sem greiða hvorki virðisaukaskatt né gistináttagjald.“ Til viðbótar munu skemmti- ferðaskipin einnig geta boðið upp á margs konar afþreyingu sem ekki verður hægt að bjóða upp á í landi svo sem spilavíti og sérstaka nætur- klúbba. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, segir að ef leggja eigi skipunum við bryggju og bjóða upp á aðra þjónustu en gert er í dag verði að gæta jafnræðis við aðra aðila. Fjármálaráðuneytið skipaði starfs- hóp í ágúst í fyrra sem skilaði leiðum til úrbóta í október. Í framhaldinu hefur ráðuneytið haft til skoðunar hvort rétt sé að leggja til að skilyrði undanþágunnar verði skilgreind með skýrari hætti. Morgunblaðið/Kristinn Skattur Afnám tolla á skemmtiferðaskip gæti fjölgað erlendum ferðamönn- um sem kæmu til landsins til að upplifa siglingu í kringum Ísland. Hótelrekstur og spilavíti í höfninni Tollfrelsi » Nýir möguleikar í ferðaþjón- ustu með afnámi tolla á skemmtiferðaskip. » Spilavíti og hótelrekstur mögulegur við og í höfnum landsins. » Íslendingum sem og erlend- um ferðamönnum verður boðið upp á siglingar í kringum landið. Doktorsverkefni Ævars hefur vakið nokkra athygli. Hefur hann haldið fyrirlestra í Listaháskóla Íslands og á ráðstefnu um veð- urhjúp bygginga. Skiptar skoð- anir eru á ályktunum Ævars. „Ég set spurningarmerki við skil- greiningu hans á nútímabygg- ingarlist. Það er ekkert í hönnun þessara bygginga sem ekki má leysa,“ segir Steinþór Kárason, arkitekt og prófessor við hönn- unar- og arkitektúrdeild LHÍ. „Mjög erfitt er að bera saman byggingu sem byggð er um miðja síðustu öld og aðra sem byggð er í dag. Þekking og kröfur hafa vaxið mikið á þessum tíma. Það er ekki rétt er að taka út einn „stíl“ og gagnrýna hann. Bygg- ingar geta haldið vatni og vindi hvort sem það er módernismi eða eitthvað annað,“ segir Stein- þór. Þekkingin er til staðar GAGNRÝNIR ÁLYKTANIR Vantar þig heimasíðu? Snjallvefir sem aðlaga sig að öllum skjástærðum. Verð frá 14.900 kr. + vsk Fyrirtæki með yfir 20 ára reynslu Sími 553 0401 www.tonaflod.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.