Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 gaman af boltaleikjunum, hvort sem það var vatnssápuboltinn, eða nýju risastóru grasboltarnir sem börnin gátu farið inn í og keppt í boltahlaupi á grasvell- inum í Stykkishólmi. Hann var góður liðsmaður og hafði góða nærveru. Hann hafði sérstaka og skemmtilega kímnigáfu og það var aldrei logn í kringum hann. Hjálpsemin og orkan, meðan hún var enn til staðar, gerði allt samstarf svo frábært. Hópurinn okkar sér nú á eftir góðum vini og við biðjum góðan Guð að styrkja og blessa Jónu og börnin þeirra. Hafliði Kristinsson og samfélagshópurinn. Kæri vinur, það er erfitt að skilja þann kalda veruleika að komið sé að kveðjustund. Ég var svo heppinn að leiðir okkar lágu saman í Knattspyrnudeild Fjölnis. Það var þegar þú tókst að þér þjálfun 3. flokks karla árið 2001. Þar sameinuðust í þjálfun og getu leikmanna slíkir eiginleikar, kraftur og sigurvilji að seint verður náð að jafna. Þér tókst sem þjálfara drengj- anna í árgangi 1985 og 1986 að stýra þeim til sigurs í öllum mótum sem flokkurinn tók þátt í á því ári. Í kjölfar þess leiddir þú meistaraflokk félagsins úr þriðju deild upp í fyrstu deild, með þínum mikla sannfæring- arkrafti og sigurvilja. Þú varst miðdepillinn í öllu því starfi sem þurfti að vinna á þessum árum og var með ólíkindum atorkan og árangurinn sem þú náðir fram. Þú varst einnig alltaf fyrstur til að rétta hjálparhönd ef svo bar undir. Alltaf var stutt í glensið og skemmtilegheitin og þegar maður hugsar til baka til þess- ara ára í upphafi aldarinnar hlýnar manni um hjartarætur. Sú minning á eftir að fylgja mér og gleðja um ókomin ár. Ég veit ég tala fyrir hönd allra strákanna sem þú kenndir svo mikið, um mikilvægi markmiðs- setningar, mataræðis og þess að vinna ötullega að því að ná ár- angri. Takk Steinar fyrir það sem þú gaftst okkur. Kæra Jóna og fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Hvíl í friði kæri vinur. Guðmundur Stefán. Það voru þungbærar fréttir sem bárust okkur Fjölnismönn- um fyrir viku þess efnis að kær vinur okkar og Fjölnismaður ársins 2012 Steinar Ingimund- arson væri fallinn frá langt um aldur fram eftir baráttu við erf- ið veikindi. Steinar hóf knatt- spyrnuferil sinn hjá Leikni í Reykjavík og lék síðan með KR, Leiftri, Fjölni, Þrótti og Víði alls staðar var orðspor hans frá- bært. Steinar átti mörg frábær ár bæði sem leikmaður og þjálf- ari hjá okkur í Fjölni. Steinar lék með meistaraflokki á ár- unum 1999-2002 ásamt því að þjálfa þriðja og annan flokk karla. Sem þjálfari átti Steinar stóran þátt í að byggja upp yngri fokka starfið og gerði meðal annars þriðja flokk Fjölnis að Íslands- og bikar- meisturum árið 2001. Steinar steig mikilvæg skref í að inn- leiða þá stefnu sem unnið hefur verið eftir hjá knattspyrnu- deildinni að byggja lið meist- araflokks að mestu leyti upp á uppöldum Fjölnismönnum. Steinar lauk þjálfarastörfum sínum hjá Fjölni þegar hann þjálfaði meistaraflokk karla á árunum 2002-2005 þar vann hann virkilega gott starf og kom liðinu úr þriðju deild í þá fyrstu á aðeins þremur árum. Þó að Steinar hafi formlega hætt störfum hjá Fjölni 2005 hafði hann alltaf miklar taugar til okkar Fjölnismanna og kom að starfinu hjá félaginu með margvíslegum hætti allt fram á síðustu stundu. Þrátt fyrir að standa í harðri baráttu við ill- vígan sjúkdóm hélt Steinar áfram að gefa sér tíma til að leggja okkur lið bæði með að- stoð í fjáröflunarverkefnum og koma fram með góðar hug- myndir um hvernig halda mætti áfram að bæta starfið. Æðru- leysi Steinars í þessari baráttu var með ólíkindum og ég mun seint gleyma fundinum sem ég átti með honum í desember þar sem við ræddum að hans frum- kvæði ýmislegt varðandi Fjölni yfir kaffibolla. Þar fór maður sem þótti vænt um félagið og ætlaði sér að leggja sitt af mörkum svo lengi sem hann gæti. Þrátt fyrir allan baráttu- viljann og jákvæðnina reyndist sá tími svo miklu miklu skemmri en maður vonaði að Guð gæfi. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum góðan dreng og frábæran félaga. Fjölskyldu og vinum Steinars sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð gefa ykkur styrk til að takast á við sorgina og söknuðinn. F.h. allra hjá knattspyrnu- deild Fjölnis, Kristján Einarsson formaður. Ég held að ég sé að verða Keflvíkingur, sagði Steinar stundum við mig á þeim tíma sem hann var að þjálfa hjá okk- ur Keflvíkingum. Hann hafði tekið að sér þjálfun meistara- flokks kvenna og það var mikill hugur í honum. Hann small inn í umgjörð okkar eins og inn- fæddur og ég veit það að honum líkaði vel í Keflavík. Ég átti mjög gott samstarf við hann og þekkti hann frá gamalli tíð eða þegar hann var í bílasölubrans- anum og við vorum alla tíð mikl- ir mátar. Það er mér minnis- stætt þegar hann kom í heimsókn til mín sumarið 2011 og tilkynnti mér það að hann væri kominn með illvígan sjúk- dóm, hann bar sig vel eins og alltaf og var staðráðinn í að sigra hann. Þó Steinar hafi hætt þjálfun í Keflavík vorum við alltaf í sam- bandi og þótti mér vænt um það og þá sérstaklega hve vel hann talaði um okkur hér suður með sjó, hann talaði af einlægni og þar fór maður sem mikill missir er að. Ég vil fyrir hönd knatt- spyrnudeildar Keflavíkur votta öllum aðstandendum og vinum okkar dýpstu samúð. Minningin um góðan dreng lifir með okkur. Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnu- deildar Keflavíkur. Elsku frændi, það er svo rosalega sárt að þurfa að kveðja þig svona snemma, svo ungan og í blóma lífsins. Þegar við hugsum um minninguna um þig er hún alltaf svo björt, það var alltaf gleði í kringum því og maður komst ekki hjá því að brosa þegar þú varst nálægt því alltaf sástu til þess að öllum væri skemmt. Þú varst alltaf svo glaður og kátur og vildir öll- um vel. Minnist þess líka þegar við heimsóttum þig um jólin þegar þú varst orðinn mikið veikur en samt var húmorinn til staðar og þú gast brosað og fengið okkur öll til að brosa því alltaf varstu svo jákvæður og sterkur. Þú sýndir svo mikinn styrk í öllum veikindum þínum og þessum erfiðu lyfjagjöfum, það var ekki þér líkt að gefast upp. Elsku frændi það líður ekki dagur án þess að við hugsum til þín. Minning þín er ljós í lífi okkar. Hvíldu í friði. Halldóra og Hákon. Andlátsfregn barst í gær, lát- inn flugumferðarstjóri Kristinn Sigurðsson og minningar hrann- ast upp. Strákurinn úr Keflavík sem ég hitti fyrir langalöngu þegar fjölskylda mín dvaldi í Keflavík tvö sumur, ég þá 10 og 11 ára. Þannig var að Guðrún, mamma Kidda eins og hann var kallaður, var hörkudugleg kona, ekkja, sem vann hjá pabba mín- um við fiskverkun og söltunar- störf. Hún var duglegasta konan í þeim hópi. Synir Guðrúnar Kristinn og Jóhann menntuðust báðir. Kristinn varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri áð- ur en hann hóf nám í flugum- ferðarstjórn sem varð hans ævi- starf. En kynni okkar Kristins voru algjör tilviljun. Þannig var mál með vexti að ég hafði innritað mig í nám í dönsku við Háskóla Íslands og átti að hefja námið í Árnagarði. Ég fór þangað en fann bara alls ekki rétt stofu- númer. Skrifstofa Háskólans var lokuð og engan hægt að spyrja svo ég var bara að guggna á þessu og á leið út en mætti þá al- veg óvænt Kristni sem kvaðst líka vera að fara í nám í dönsku og þar með var það tryggt. Stof- an sem um var að ræða var inn af kaffistofu á jarðhæð svo ekki var von að ég fyndi hana. Við átt- um að mæta í tíma hjá Grethe Benediktsson og þar hófust kynni okkar Kristins. Í hópnum voru líka Guðbjörg, Halla, Þór- gunnur og strákarnir Valdemar, Einar og Karl auk Kristins. Þarna hófst alveg frábær tími. Kennslan fór mest fram í skrif- stofu lektors í dönsku í Norræna húsinu og þar varð samastaður okkar dönskunema næstu þrjú árin. Pétur Rasmussen og Pia Andreasen voru frábærir kenn- arar hvort á sinn hátt. Ég held að Kristinn og persónuleiki hans hafi átt drjúgan þátt í hvað sam- kenndin var sterk hjá okkur. Það var töluvert átak að hefja háskólanám eftir alllangt hlé eft- ir stúdentspróf. En þessir ágætu kennarar sáu vel um námið og auk þess stuðluðu þau bæði að félagslega þættinum. Sannar- lega minnisstæð eru fyrstu jólin. Þá skipulagði Pia mikla jóla- veislu og skipti niður verkefn- um. Strákarnir voru sendir nið- ur að höfn til að ná í grenigreinar því jólatrén voru að koma til landsins. Svo var sest við að teikna og klippa jóla- poka og músastiga, allt á góðan danskan máta og skreyta kaffi- stofu Norræna hússins sem best. Kristinn fékk alveg sér- stakt verkefni. Kona hans var af dönskum ættum og átti rétta pönnu og hann kunni sko að baka æbleskiver. Það tókst ald- eilis vel og var lengi í minnum haft. En allir góðir dagar taka enda. Eftir BA-próf í dönsku dreifðumst við í námi en sérstak- lega Guðbjörg, Halla og ég höf- um haldið tryggu sambandi til þessa dags. Mínar bestu þakkir fyrir sam- verustundir í dönskunáminu. Ég sendi sonum Kristins og fjöl- skyldunni allri innilegustu sam- úðarkveðjur. Sigrún Magnúsdóttir. Kristinn Sigurðsson ✝ Kristinn Jó-hann Sigurðs- son fæddist í Keflavík 22. júlí 1928. Hann and- aðist 9. febrúar 2013 á Hrafnistu, Boðaþingi. Kristinn var jarðsunginn frá Hafnarfjarð- arkirkju 25. febr- úar 2013. Bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu heiður er þinn vorhiminn hljóðar eru nætur þínar létt falla öldurnar að innskerjum – hvít eru tröf þeirra. (Hannes Pétursson.) Þessar fallegu ljóðlínur komu ein- hvern veginn upp í hugann þeg- ar fregnin um að enn einn úr kærleikshópnum okkar „Sprot- anum“, hann Kiddi hefði kvatt jarðlífið eftir langvarandi veik- indi. Langri ævi er lokið, og hljóðlega ævisólin hnigin til við- ar. Við kynntumst fyrir hálfum öðrum áratug, hjónahópur sem, í kjölfar samveru á lúterskri hjónahelgi til þess að efla okkur og styrkja í dagsins önn, mynd- aði kærleikshópinn okkar „Sprotann“. Hópurinn okkar hefur gefið okkur svo óendan- lega mikið og skapað innilega vináttu en jafnframt verið mjög krefjandi og tekið ríkulega sinn toll. Strax í upphafi mynduðust sterk vinabönd og við áttum ótalmargar gleði- og samveru- stundir sem auðgað hafa lífið og gefið því nýjan blæ. Það varð þó fljótt ljóst að okkar beið annað hlutverk. Áföllin dundu yfir og mikilvægi sannrar vináttu og kærleika varð okkar vörn. Á þeim stundum komu eiginleikar Kidda í mannlegum samskiptum vel í ljós. Tryggur, einlægur og glaðvær, alltaf tilbúinn að leggja gott til og miðla af sinni miklu reynslu og alltaf gefandi með fasi sínu og framgöngu. Sem barn að aldri varð hann fyrir þungbærri lífsreynslu sem mótaði hug hans og lífsskoðun alla tíð og margt þurfti að reyna og yfirstíga erfiðleika sem flest- um hefðu reynst þungbærir. Hann var alla tíð virkur þátttak- andi í samfélagi sínu bæði á fag- legum og félagslegum vettvangi og mætti verkefnum sínum af raunsæi og æðruleysi í hvívetna. Hann var og gæfumaður og við hlið hans stóð lífsförunautur í blíðu og stríðu. Í hópnum okkar var það einnig raunin og þau Kiddi og Edda gátu af eigin hamingju glætt samveru okkar lífi og gleði þó að stundum væru þungbærar stundir. Þó að aldur færðist yfir var ekkert sem benti til breytinga en á því varð skyndileg breyting. Í fagnaði með vinum og samferðamönnum fyrir um þrem árum kom ný áskorun, áfall sem síðar reyndist þungt að lifa með. Skyndilega er allt með öðrum hætti og löng og erfið ganga tók við. Nú er lífsljós hans slokknað og bjarmar af nýjum degi hins eilífa lífs. Merl- ar í huga og sinni minningin um yndislegan félaga og traustan vin. Á kveðjustund minnumst við gengins vinar og biðjum algóðan Guð að veita fjölskyldu hans og sérstaklega henni Eddu styrk og huggun á sorgarstund. Blessuð sé minning Kristins Sigurðsson- ar. Magnús og Steinunn, Jóhann og Ragnhildur, Eyjólfur og Ingveldur. Merki Hafnarfjarðarkirkju sýnir hring í rauðbrúnum lit sem keltneskur göngukross er innan í. Hringurinn minnir á oblátu, helgað brauð, sem neytt er við kærleiksmáltíð þegar því hefur verið dýft í blóðrautt messuvín. Merkiskrossinn er eftirmynd af göngukrossi kirkjunnar er smíð- aður var áður en bygging Strandbergs, safnaðarheimilis hennar, hófst. Kristinn Sigurðs- son var lengi aðalsafnaðar- fulltrúi og ritari Hafnarfjarðar- kirkju og líka kross- og merkisberi hennar frá því að heimilið var að fullu tekið í notk- un með blessun Hásala þess haustið 1998. Hann tók þátt í byggingaráformum og fylgdist vel með framvindunni og hafði áhrif á hana. Er biskup Íslands vísiteraði söfnuð kirkjunnar var ánægjulegt að sýna honum upp- slátt og útlínur heimilisins. Kristinn var í móttökunefnd kirkjunnar, hafði auga með því sem fram fór og tók ljósmyndir. Hann gerði það líka á stefnumóti trúar og listar er haldið var á héraðsfundi í sókninni og fagn- aði skömmu síðar vígslu Stafns, kapellu heimilisins, og fyrri áfanga þess. Þau Kristinn og Edda, eigin- kona hans góða, sóttu kirkjuna sína og nærðust af helgu orði og sakramentum. Samstiga og glæst að sjá voru þau í farar- broddi í safnaðarferðum, út í Viðey, á Suðurnes, Akranes og til Reykholts og líka í Svíþjóð. Þau létu sig einnig varða Krýsu- víkurkirkju og sóttu þar vor- og haustmessur er helgihald hófst þar á ný fyrir árþúsundamótin. Þau hryggðust er hún varð eldi að bráð en fögnuðu því að unnið var að endurreist hennar. Kristinn var lífsreyndur og víðsýnn og hafði miklu að miðla. Hann lét ekki missi og raunir yf- irbuga sig en horfði fram í von og trú. Barnungur komst hann úr mannskæðum bruna á jóla- trésskemmtun í samkunduhús- inu Skildi í Keflavík. Guðstrú hans hefur þá glæðst og varð leiðarljós hans í blíðu og stríðu. Hildarleikur heimsstríðs setti mark sitt á Keflavík með flug- vellinum á Miðnesheiði. Kristinn hefur fylgst með orrustu- og far- þegavélum sem lentu þar og tóku á loft og vísuðu til þess að Ísland var tengdara heimsvið- burðum og umheimi en verið hafði. Það kann að hafa vakið áhuga hans fyrir flugi og leitt til þess að hann varð farsæll og mikilsvirtur flugumferðarstjóri. Kristinn var framsýnn, árvökull og umhyggjusamur. Þess naut Hafnarfjarðarkirkja er hann gerðist einn máttarstólpa henn- ar. Við Þórhildur þökkum vináttu hans og stuðning og dýrmætt framlag til kirkjunnar. Þótt Kristinn missti heilsu og mál síð- ustu æviárin var svipur hans fagur sem fyrr og lýsti trú hans og innri styrk. Hann gladdist mjög yfir heimsóknum og það uppörvaði hann að heyra góð tíð- indi af kirkjunum sínum. „Jafn- vel þótt vor ytri maður hrörni, þá endurnýjast dag frá degi vor innri maður“ (2 Kor. 4.16) játar trúin í nafni hins krossfesta og upprisna frelsara. Kross hans er sigurmerki lífsins, sem dýrmætt er að halda á lofti því að hann op- inberar þá fórnandi elsku er endurskapar líf og heim. Guð blessi minningu Kristins og full- komni líf hans í upprisu- og páskaljóma og lýsi eiginkonu, börnum og ástvinum hans veg- inn fram í Jesú nafni. Gunnþór Ingason. … En handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur Inn í frið hans og draum er ferðinni heitið. (Snorri Hjartarson) Fallinn er frá Kristinn Jó- hann Sigurðsson flugumferðar- stjóri, bekkjarbróðir okkar úr Menntaskólanum á Akureyri. Lífshlaupi hans er lokið, land tekið handan við áttirnar og nóttina. Hann hafði átt við erfið veikindi að stríða í nokkur ár. Þótt við vitum að lífsganga okk- ar tekur alltaf enda verður sú stund högg sem snertir okkur og vekur söknuð og eftirsjá. Eftir standa minningarnar sem ylja okkur áfram og þær sem tengj- ast Kidda, eins og hann var allt- af kallaður, eru einstaklega ljúf- ar. Hann var prúður, drenglyndur og traustur, glett- inn og glaðvær og sá hið skop- lega við tilveruna. Við bekkjarsystkinin kynnt- umst Kidda fyrir rúmum 60 ár- um er leiðir okkar lágu saman í MA þar sem við áttum góðar stundir í námi og leik og útskrif- uðumst 1951. Gleði og eftirvænt- ing æskunnar bundu okkur sterkum vináttuböndum sem hafa varað öll þessi ár og þar í átti Kiddi ríkan þátt. Hann varð strax sterkur hlekkur í bekkj- arkeðjunni og hefur hlúð að samkenndinni meðal okkar. Við minnumst Kidda sem glæsilegs ungs manns sem vakti athygli. Bar merki lífsreynslu og einnig umhverfisins á Suður- nesjum. Dökkur á brún og brá og bar sig vel, með áberandi ör á höndum og höfði. Hann var einn þeirra sem barn að aldri lentu í eldsvoðanum í samkomuhúsinu í Keflavík árið 1934 og bar þess merki alla tíð. Þrátt fyrir þessar takmarkanir reyndist hann mjög liðtækur í markinu í hand- knattleik. Hann auðgaði sönglíf- ið, söng m.a. í kvartett með þremur bekkjarfélögum okkar. Hann tók talsvert af ljósmynd- um og stuðlaði þannig að varð- veislu heimilda og minninga um skólalífið. Enskumaður var hann ágætur. Þegar góður vinur kveður verður manni ætíð þungt fyrir brjósti en hvað Kidda varðar kom dauðinn nánast í réttu sam- hengi við lasleika hans síðastlið- in þrjú ár. Í veikindum hans var Edda, konan hans, vakin og sof- in yfir honum, gerði allt sem í hennar valdi stóð til að létta hon- um lífið. Við minnumst góðs fé- laga og sendum Eddu og fjöl- skyldunni samúðarkveðjur. F.h. MA-stúdenta 1951, Hólmfríður, Ingólfur og Ólöf. Kveðja frá flugleiðsögusviði Isavia Kristinn hóf grunnnám í flug- umferðarstjórn árið 1954. Á ferli sínum öðlaðist hann réttindi til starfa í flugturni og aðflugs- stjórn á Keflavíkurflugvelli, þar sem hann starfaði fyrst sem flugumferðarstjóri til ársins 1958 og síðan sem vaktstjóri til ársins 1991 er hann lét af störf- um af heilsufarsástæðum. Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd starfsmanna flugleiðsögu- sviðs Isavia þakka Kristni sam- fylgdina. Fjölskyldu og vinum vottum við okkar dýpstu samúð. Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri. Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.