Morgunblaðið - 26.02.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTASKÝRING
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Landsfundum Sjálfstæðisflokksins
og Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs lauk um helgina en fyrr í
mánuðinum héldu Samfylkingin og
Framsóknarflokkurinn sína lands-
fundi og lögðu línurnar fyrir þing-
kosningarnar sem fara fram í lok
apríl. Í ályktunum sem samþykktar
voru á fundunum kennir ýmissa
grasa og ljóst að mismunandi sjón-
armið togast á þegar kemur að
stórum málum eins og skuldamálum
heimilanna og afstöðu til ESB-um-
sóknar.
En miðað við skoðanakannanir er
ljóst að fleiri flokkar gætu komist til
áhrifa eftir kosningar. Svo virðist
sem Björt framtíð sé líklegust hinna
nýju framboða til að geta haft áhrif á
landsmálin á næsta kjörtímabili.
Þegar kemur að skuldamálum
heimilanna taka flokkarnir misdjúpt
í árinni. Í stjórnmálaályktun lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins segir að
besta leiðin til að styrkja stöðu heim-
ilanna sé að tryggja fólki möguleika
á arðbærri atvinnu og þar með tæki-
færi til að vinna sig út úr vandanum.
Þá er boðuð ný leið með því að veita
skattaafslátt vegna afborgana af
húsnæðislánum auk þess sem stefnt
er að því að nýta skattkerfið til að
lækka húsnæðislán heimilanna. Í
forgangi á fyrsta starfsári nýrrar
ríkisstjórnar skal vera markviss
áætlun um að verðtryggð lán verði
ekki almenn regla líkt og segir í
stjórnmálaályktun landsfundar.
Í stjórnmálaályktun Samfylking-
arinnar segir að flokkurinn sé tilbú-
inn til samræðu um raunhæfar
lausnir er kemur að skuldavanda
heimilanna. Samfylkingin vill að
landsmönnum bjóðist sambærilegir
valkostir og öryggi í húsnæðismálum
og þekkist á Norðurlöndunum. Þá
segir að fjölga þurfi valkostum við
fjármögnun húsnæðis, þannig að í
boði séu óverðtryggð og veðtryggð
lán auk millileiða s.s. verðtryggð lán
með verðbótaþaki. Þá segir að með
upptöku evru lækki vextir og verð-
trygging hverfi.
Á landsfundi VG kom fram að
mikilvægt væri að skoða verðtrygg-
ingu og hugmyndir um 2% vaxtaþak
á hana, tryggja þyrfti að óverð-
tryggð lán yrðu í boði hjá Íbúðalána-
sjóði og styrkja þyrfti leigumarkað-
inn til muna með aðkomu
stjórnvalda í byrjun, með það að
markmiði að leigukosturinn væri
raunverulegur valkostur fyrir fjöl-
skyldufólk. Er litið til húsnæðissam-
vinnufélaga í því sambandi.
Framsókn gengur lengst
Svo virðist sem Framsóknarflokk-
urinn vilji ganga lengst í aðgerðum
er varða skuldavanda heimilanna. Í
ályktun sem samþykkt var á lands-
fundi þeirra segir að flokkurinn vilji
leiðrétta stökkbreytt verðtryggð
húsnæðislán auk þess að afnema
verðtryggingu á neytendalánum.
Eftir yfirferð yfir tillögur flokk-
anna eftir landsfundina virðist ljóst
að Framsóknarflokkurinn gengur
lengst varðandi hugmyndir um af-
nám verðtryggingar. Hinir flokkarn-
ir stíga varlegar til jarðar og vilja
skoða leiðir til að draga úr áhrifum
verðtryggingar. Samfylking og VG
aðhyllast norrænar lausnir í hús-
næðismálum en Sjálfstæðisflokkur-
inn vill m.a. beita skattkerfinu til að
lækka húsnæðislán einstaklinga.
Skýrir kostir varðandi ESB
Flokkarnir fjórir hafa einnig mót-
að afstöðu til Evrópusambandsins og
um framhald aðildarviðræðna. Sam-
fylkingin, einn flokka, stefnir að inn-
göngu í ESB. Af þeirra hálfu er það
forgangsverkefni að ljúka aðildar-
viðræðum og leggja samninginn í
þjóðaratkvæði.
Á landsfundi um helgina skerpti
Sjálfstæðisflokkurinn á afstöðu sinni
til ESB og nú er stefna flokksins að
hætta viðræðunum og hefja þær
ekki að nýju nema meirihluti þjóð-
arinnar samþykki það. Þá taldi
landsfundurinn að hagsmunum Ís-
lands væri betur borgið utan ESB.
Landsfundur VG taldi hagsmun-
um Íslands sömuleiðis betur borgið
utan ESB en vill ljúka aðildarvið-
ræðum innan ákveðinna tímamarka.
Á flokksþingi Framsóknarflokks-
ins var samþykkt ályktun þess efnis
að flokkurinn teldi hagsmunum Ís-
lands betur borgið utan ESB og að
ekki yrði haldið lengra í aðildarvið-
ræðum nema eftir þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Með stefnu flokkanna í huga má
gera ráð fyrir að aðildarviðræðunum
verði hætt ef Framsóknarflokkur
og Sjálfstæðisflokkur standa sam-
an að næstu ríkisstjórn. Ef núver-
andi ríkisstjórn heldur velli er
nokkuð ljóst að ekki verður gripið
til þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr en
samningur liggur fyrir.
Flokkarnir brýna sverðin
- Stjórnmálaflokkar undirbúa kosningastefnuskrá - Framsóknarflokkurinn með róttækustu stefnuna
í skuldamálum heimilanna - Aðrir stíga varlegar til jarðar - Breyta nýju framboðin valdajafnvæginu?
Morgunblaðið/Jim Smart
Samkeppni Nú styttist í alþingiskosningar og flokkarnir að leggja lokahönd á mótun stefnu sem þeir leggja í dóm
þjóðarinnar hinn 27. apríl næstkomandi. Skuldamál heimilanna og Evrópumál verða þar ofarlega á baugi.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
Stólpar & MP banki
Viðskipti í stöðugri
uppbyggingu
Stólpar hafa skýra sýn á það hvernig á að byggja
til framtíðar. Þeir vita að það kostar þekkingu,
fé og fyrirhöfn að reisa hús. Skýr framtíðarsýn
skiptir öllu máli í rekstri fyrirtækja.
Þess vegna eru Stólpar í viðskiptum hjá okkur.
Ármúli13a / Borgartún26 / 540 3200 / www.mp.is banki atvinnulífsins
B
ra
nd
en
b
ur
g
Á nýafstöðnum landsfundum skiptu ríkisstjórnar-
flokkarnir um formann og varaformann. Sjálfstæðis-
menn og framsóknarmenn skiptu einnig um varafor-
mann. „Árni Páll hefur slegið nýjan tón, annan en
Jóhanna, tón sáttapólitíkur og samræðustjórnmála. En
er þó mjög ákveðinn í Evrópumálum,“ segir Grétar
Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði, um
nýkjörinn formann Samfylkingarinnar.
Hann segir Katrínu Jakobsdóttur, nýkjörinn
formann VG, sömuleiðis virðast vera boðberi
samræðustjórnmála þó stefna hennar og
flokksins virðist afdráttarlaus.
Talsmenn samræðustjórnmála
MIKLAR BREYTINGAR Í FORYSTU FJÓRFLOKKSINS
Grétar Þór
Eyþórsson