Morgunblaðið - 26.02.2013, Page 21
Park Geun-Hye
Dóttir Park Chung-Hee, sem var
hershöfðingi og einræðisherra og
mjög gagnrýndur fyrir hörku gegn
andstæðingum sínum.
Gegndi opinberu hlutverki forseta-
frúar eftir að móðirin var myrt 1974.
Faðirinn var myrtur 1979 og yfirgaf
dóttirin þá forsetahöllina.
Sigraði í forsetakosningunum í
desember 2012.
61 árs gömul
Hún sór í gær eið
sem forseti S-Kóreu, fyrst kvenna.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Söguleg tíðindi urðu í Suður-Kóreu í
gær þegar Park Geun-Hye varð
fyrst kvenna til að sverja eið sem for-
seti landsins. Hún hefur hvatt til
þess að reynt verði að auka gagn-
kvæmt traust milli Kóreuríkjanna
beggja, þrátt fyrir kjarnorkutilraun-
ir og aðrar ögranir norðanmanna.
Slík stefna yrði afar ólík þeirri harð-
línustefnu sem forveri Park og annar
hægrimaður, Lee Myung-Bak, hefur
fylgt. Í ræðu sinni sagðist Park vilja
að hleypt yrði nýju lífi í efnahag Suð-
ur-Kóreu og hvatti norðanmenn til
að hætta smíði kjarnorkuvopna.
„Síðustu kjarnorkutilraunir Norð-
ur-Kóreumanna ógna lífi og framtíð
kóresku þjóðarinnar og enginn
skyldi velkjast í vafa um að helsta
fórnarlambið verður Norður-Kórea
sjálf,“ sagði Park þegar hún ávarp-
aði mikinn mannfjölda á grasflöt við
þinghúsið í Seoul. Hún minnti á að
Norður-Kórea, þar sem mikil neyð
ríkir og skortur er á brýnustu nauð-
synjum, verði nú geysimiklu fé í
kjarnorku- og eldflaugaáætlun og
héldi áfram að „snúa baki við heim-
inum í sjálfvalinni einangrun“.
Psy lífgaði upp á athöfnina
Rapparinn Psy, sem gerði Gang-
nam-dansinn heimsfrægan, skemmti
viðstöddum við athöfnina. Efnahag-
ur landsmanna hefur tekið stakka-
skiptum síðustu áratugina og Suður-
Kórea er nú komin í hóp mestu iðn-
velda heims, lífskjörin á margan hátt
jafn góð og í vestrænum löndum. At-
hygli vakti að Park notaði hugtök
sem föður hennar, einræðisherran-
um Park Chung-Hee, voru hugleikin
þegar hann í valdatíð sinni eftir Kór-
eustríðið 1950-1953 stýrði endur-
reisninni sem á nokkrum áratugum
breytti þróunarlandi í iðnveldi. Hún
ræddi þannig mikið um „endurnýj-
un“ og „annað efnahagsundur við
Han-fljótið“. En sagði einnig að
þessi endurnýjun yrði að byggjast á
„efnahagslegu lýðræði“.
Yfirgangur stórfyrirtækja
Kreppan á Vesturlöndum hefur
valdið vanda í landinu, þrátt fyrir
mikinn útflutning og margir kjós-
endur kvarta einnig undan vaxandi
ójöfnuði og yfirgangi risastórra iðn-
fyrirtækja eins og Hyundai og Sam-
sung sem valti yfir smáfyrirtæki, að
sögn The New York Times. Ungir
gagnrýnendur Park segja að í tíð
föður hins nýja forseta hafi verið
lagður grunnurinn að ofurveldi um-
ræddra risafyrirtækja og tökum
nokkurra fjölskyldna á fjármálalíf-
inu.
Park vill „nýtt efnahagsundur“
- Nýr forseti Suður-Kóreu og dóttir fyrrverandi einræðisherra hvetur norðan-
menn til að hætta smíði kjarnorkuvopna og einangra sig ekki frá umheiminum
Slúðrað um forseta
» Park er hægrisinni, eins og
faðirinn. En hún hefur ekki
sömu völd og hann hafði,
menn fara nú sínu fram á sam-
skiptavefjum.
» Nýlega var þó 76 ára prestur
handtekinn fyrir að fullyrða að
Park hefði átt kynmök við þá-
verandi leiðtoga norðan-
manna, Kim Jong-il, í Pjongj-
ang árið 2002.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
Róma-barn í þorpinu Svatovac í
Bosníu-Hersegóvínu krafsar í jörð-
ina til að reyna að finna brotajárn
til að selja. Svatovac er einangrað
smáþorp með um 200 íbúa, það er
skammt frá borginni Tuzla í norð-
anverðu landinu. En einn íbúanna,
Nazif Mujic, er nú orðinn frægur
eftir að hann hreppti Silfurbjörninn
í Berlín fyrir bestan leik í kvik-
myndinni Atburður í lífi brotajárns-
manns. Leikstjóri hennar er
Bosníumaðurinn Danis Tanovic.
Róma-fólkið, sígaunar, er víða þjóð-
arbrot í löndum Suðaustur-Evrópu.
Yfirleitt eru Róma-menn bláfátæk-
ir, margir hafa horn í síðu þeirra og
saka þá um betl og þjófnað.
AFP
Leitað að brotajárni
Slöngur og þar á
meðal eitur-
slöngur eru
orðnar slík plága
á eynni Guam að
Bandaríkja-
menn, sem ráða
þar ríkjum, ætla
nú að grípa til
nýrra ráða, að
sögn Dagens
Nyheter. Ætlunin er að varpa úr
flugvélum aragrúa dauðra músa
sem dælt hefur verið í eitri sem
sagt er vera skaðlaust mönnum en
drepa slöngur.
Um 160 þúsund manns búa á
Guam og er ferðaþjónusta mikil
tekjulind, greinin er í hættu vegna
ótta gesta við skriðdýrin. Slöng-
urnar, sumar allt að þriggja metra
langar, bárust fyrst með bandarísk-
um skipum til Guam fyrir um 60 ár-
um. Slöngufárið veldur því að fugl-
um hefur snarfækkað. kjon@mbl.is
EYJAN GUAM
Eitraðar mýs gegn
eiturslöngunum
Ógnvekjandi.