Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 23

Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 Kynjamyndir Ýmis furðuleg fyrirbæri eiga það til að birtast og hverfa á glerhjúpnum utan um Hörpu sem endurspeglar borgarlífið og mismunandi birtu sem breytist eftir sólargangi og veðri. Ómar Gríðarlegar framfarir hafa orð- ið í meðferð hjartasjúkdóma á undanförnum tveimur áratugum. Þessar framfarir hafa ekki síst átt sér stað í inngripum sem unnt er að gera á kransæðum og svo leiðslukerfi hjartans með þræð- ingatækni. Þar ber kannski hæst möguleika á víkkun krans- æðaþrengsla og svo ísetningu á stoðneti á þrengslasvæðinu. Í fyrstu var aðallega ráðist til at- lögu við einfaldari þrengsli en með betri tækni hefur orðið mögulegt að gera við útbreiddari og flóknari þrengsli með góð- um árangri. Kransæðavíkkun með ísetningu stoðnets er nú beitt til jafns hjá innkölluðum sjúklingum af biðlista og þeim sem koma inn með bráðan kransæðasjúkdóm. Brennsluað- gerðir vegna hjartsláttartruflana eru sömu- leiðis framkvæmdar með hjartaþræð- ingatækni og hafa gjörbreytt meðferðinni þegar um er að ræða aukaleiðslubönd í hjarta. Brennsluaðgerðum er nú beitt í vaxandi mæli við flóknari takttruflanir. Hjartaþræðingar hérlendis eru eingöngu gerðar á Landspítala. Við bráða krans- æðastíflu er kransæðaþræðingu með víkkun á lokuðu æðinni nú beitt sem fyrstu meðferð. Kransæðavíkkun undir þessum kring- umstæðum skilar betri árangri en meðferð með segaleysandi lyfjum, sem var áður notuð. Sú nálgun að beita bráðri kransæðavíkkun undir þessum kringumstæðum var fest í sessi seinni hluta árs 2003 þegar sólarhringsvakt var tekin upp á hjartaþræðingastofu. Nú er haldið úti vakt á hjarta- þræðingastofu alla daga, allan ársins hring. Samhliða þessum breytingum var ráðist í endur- skoðun ýmissa annarra þátta í verklagi við móttöku ein- staklinga með bráðan krans- æðasjúkdóm. Þetta hefur meðal annars leitt til lækkunar á 30 daga dánartíðni eftir krans- æðastíflu úr rúmlega 11% um aldamótin í 4-5% á síðustu 2-3 árum. Þessi 30 daga dánartíðni er nú með því lægsta sem þekkist á heimsvísu. Starfsemin á hjartaþræðingastofu Land- spítala er mjög umfangsmikil. Alla jafna er unnið samtímis á þremur stofum. Hjartaþræð- ingar á kransæðum fara fram á tveimur stof- um en aðgerðir vegna hjartsláttartruflana á þeirri þriðju. Á síðasta ári voru framkvæmdar 1.765 hjartaþræðingar á Landspítala og þar af voru gerðar 630 kransæðavíkkanir. Þar að auki eru gerðar rúmlega 300 gangráðsaðgerðir og rúmlega hundrað brennsluaðgerðir vegna hjartsláttartruflana árlega á þræðingastof- unni. Á síðastliðnu ári var tekin upp merkileg nýjung, sem er ísetning á ósæðarloku með þræðingatækni. Alls 15 slíkar aðgerðir hafa verið framkvæmdar til þessa með góðum ár- angri. Nú er einnig farið að gera brennsluaðgerðir vegna flóknari takttruflana en áður, meðal annars vegna gáttatifs. Slíkar aðgerðir krefj- ast mjög sérhæfðs tölvubúnaðar til kortlagn- ingar á upptökum takttruflunarinnar og að- stoðar við ákvörðun um brennslustaði í vinstri gáttinni. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að reyna að fylgja þróuninni í tækni- framförum hvað þetta varðar en fjöldi tilfella gáttatifs fer vaxandi og getur verið mjög erfitt á köflum að meðhöndla það vandamál með lyfjameðferð eingöngu. Aðstaðan á hjartaþræðingastofunum er að mörgu leyti góð en þræðingatækin eru orðin gömul og mjög brýnt að endurnýja að minnsta kosti eitt tækjanna. Elsta tækið er orðið 16 ára gamalt og komið langt fram yfir það sem getur talist eðlilegur endingartími. Því hefur reynd- ar verið mjög vel við haldið en það er orðið gríðarlega aðkallandi að fá nýtt tæki. Annað tæki er orðið 12 ára gamalt og þarf að end- urnýja það á allra næstu árum. Nýjasta tækið var tekið í notkun fyrir fjórum árum og er í mjög góðu standi en af ofansögðu má þó vera ljóst að mikið álag er á hjartaþræðingatækj- unum. Það er nauðsynlegt fyrir starfsemi hjartalækninga á sjúkrahúsinu að öll tækin séu hæf til notkunar. Því eldri sem tækin eru því lakari verða myndgæði og viðhaldsdagar fleiri. Það er eitt af allra brýnustu verkefnum Landspítala í tækjakaupamálum að fá nýtt hjartaþræðingatæki. Slíkt tæki er þó frekar dýrt og kostar um 150 milljónir króna. Eins og flestum er kunnugt hefur fé til tækjakaupa á sjúkrahúsinu verið af mjög skornum skammti og oftar en ekki höfum við þurft að reiða okkur á gjafafé þegar kaupa á ný eða endurnýja þarf mikilvæg tæki. Stuðningur einkasjóða, eins og sjóðs Jónínu heitinnar Gísladóttur, og sjúk- lingasamtaka, eins og Hjartaheilla, hefur verið okkur ómetanlegur í þessu tilliti. Inngrip með þræðingatækni eru hornsteinn í meðferð bæði kransæðasjúkdóma og hjart- sláttartruflana. Undanfarin ár hafa verið mjög örar tækniframfarir í bæði kransæðaþræð- ingum og brennsluaðgerðum. Þessar framfarir auðvelda framkvæmd aðgerðanna, bæta ár- angur og auka öryggi þeirra. Mikill nið- urskurður í heilbrigðiskerfinu hérlendis hefur gert okkur mjög erfitt fyrir með að fylgja þessum framförum. Það er hins vegar mik- ilvægt fyrir okkur að dragast ekki aftur úr hvað þetta varðar. Íslendingar gera kröfur um að hér sé heilbrigðisþjónusta í fremstu röð. Til að svo megi vera þarf aðstaðan að vera í sam- ræmi við þær væntingar. Meðferð hjartasjúkdóma með þræðingatækni Eftir Davíð O. Arnar Davíð O. Arnar » Aðstaðan á hjartaþræð- ingastofunum er að mörgu leyti góð en þræð- ingatækin eru orðin gömul og mjög brýnt að end- urnýja að minnsta kosti eitt tækjanna. Höfundur er yfirlæknir hjartaþræðinga á Landspítala. Landsfundir Sjálfstæðisflokksins hafa í áratugi verið í senn magn- þrungnar og spennandi en umfram allt hvetjandi samkomur. Þeir hafa ekki einungis verið hvetjandi fyrir þátttakendur landsfundanna, heldur einnig fyrir þá tugi þúsunda lands- manna sem tilheyra Sjálfstæð- isflokknum úti um allt land. Nú um helgina lauk 41. landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem líklega er einn mikilvægasti landsfundur flokksins í áraraðir. Nýafstaðinn landsfundur er ekki bara mikil- vægur vegna þeirra mikilvægu kosninga sem framundan eru, heldur vegna þeirra málefna sem um var fjallað og þeirrar stefnu sem flokk- urinn mótaði með svo skýrum hætti. Landsfundurinn samþykkti að ráðast þegar í stað að vanda íslenskra heimila með skulda- og skattalækkunum til hagsbóta fyrir heimilin í landinu. Ekkert er mikilvægara um þessar mundir. Samhliða þessu liggur fyrir skýr stefna flokksins um að auka verðmætasköpun í at- vinnulífinu, sem um leið bætir hag heimilanna og almennings í landinu. Allt helst þetta í hend- ur við ábyrgð í ríkisfjármálum og markvisst, og um leið öflugt, velferðarkerfi fyrir alla þá sem á því þurfa að halda. Öflug fjöldahreyfing Nýleg prófkjör Sjálfstæðisflokksins og nýaf- staðinn landsfundur bera það með sér að Sjálf- stæðisflokkurinn er ekki bara stærsti og öfl- ugasti flokkur landsins, heldur um leið helsti lýðræðisflokkur landsins. Um 20 þúsund manns tóku þátt í prófkjörum flokksins um allt land, hátt í tvö þúsund manns sóttu nýafstaðinn lands- fund en auk þess koma þúsundir landsmanna að starfi flokksins vítt og breitt um landið. Lands- fundur Sjálfstæðisflokksins er ein stærsta og umfangsmesta ráðstefna sem fram fer hér á landi en í ár teygði starfsemi landsfundarins anga sína til 15 ólíkra staða í Reykjavík. Í þessu liggur styrkur flokksins. Þúsundir ólíkra einstaklinga, karla og kvenna með ólík sjónarmið og ólíkar áherslur starfa saman undir merkjum flokksins og sameinast um gildi sjálf- stæðisstefnunnar með frelsi einstaklingsins, lægri skatta, velferð á heilbrigðum forsendum, takmörkuð ríkisafskipti og öflugt atvinnulíf að leiðarljósi. Flokkurinn og flokksstarfið er opið öllum einstaklingum. Styrkur í umræðunni Það er ekkert launungarmál að oft er hart tekist á þegar rætt er um einstök málefni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, hvort sem er í málefnanefndum eða í aðalsal fundarins. Hið sama gildir um málefnastarf flokksins sem fram fer um allt land allt árið um kring. Það er einmitt það sem gerir flokkinn jafn öflugan sem raun ber vitni. Öllum er hollt að ræða ólík sjónarmið á opinn og mál- efnalegan hátt og ná niðurstöðu. Það göfgar hugann, styrkir um- ræðuna, eykur hugmyndaflugið og skilar að lokum betri árangri og niðurstöðu en ella. Engin stjórnmálastefna er sterkari en sú sem raungerist eftir málefna- legar og innihaldsríkar umræð- ur um markmið og áherslur þar sem ólíkum sjónarmiðum er varpað fram, þau skilgreind og rædd. Ekkert eflir stjórn- málaflokk meira en það þegar stór hópur, konur og karlmenn, sameinast um ákveðna niðurstöðu í vissu um að sú stefna sé þjóðinni til hagsbóta. Í því kristallast enn og aftur styrkur Sjálfstæð- isflokksins umfram aðra flokka þar sem ákvarð- anir og stefnur eru oftar en ekki mótaðar í þröngum og lokuðum hópum og allt tal um auk- ið lýðræði og opnara samfélag felst aðeins í orði en ekki á borði. Konur hljóta sterkt umboð Forysta Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Bene- diktsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Krist- ján þór Júlíusson, hlutu öll afgerandi kosningu í forystusveit flokksins. Landsfundurinn sýndi ekki síður hversu mikils Sjálfstæðisflokkurinn metur hlut kvenna í stjórnmálum. Þannig voru konur kjörnar formenn í sjö af átta mál- efnanefndum flokksins og í fimm af nefndunum voru konur í meirihluta. Alls voru 23 konur og 17 karlar kjörin í málefnanefndir flokksins um helgina. Það verður því ekki annað sagt en að landsfundargestir hafi haldið konudaginn hátíð- legan. Staðreyndin er sú að fylgi Sjálfstæðis- flokksins fer vaxandi á meðal kvenna, enda hef- ur hlutur þeirra í þátttöku og starfi flokksins aukist dag frá degi allt þetta kjörtímabil. Það hefur verið og verður enn til þess að auka styrk- leika flokksins á öllum sviðum og auka enn á sigurlíkur hans í komandi kosningum. Landsfundur – upphaf nýrra tíma Eftir Jónmund Guðmarsson Jónmundur Guðmarsson » Landsfundurinn samþykkti með afgerandi hætti að ráðast að vanda íslenskra heimila með skulda- og skatta- lækkunum til hagsbóta fyrir heimilin í landinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.