Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Hjólbarðar
Ný heilsársdekk
185/70 R 14 kr. 14.900
195/70 R 14 kr. 15.900
205/65 R 16 kr. 22.900
215/55 R 16 kr. 19.700
215/55 R 17 kr. 23.500
235/55 R 17 kr. 26.700
225/65 R 17 kr. 26.900
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 5444 333.
Vandaðir þýskir herraskór úr
leðri, skinnfóðraðir. Gott verð
Teg: 206201 Stærðir: 40 - 48
Verð: 16.985.-
Teg: 206204 Stærðir: 40 - 48
Verð: 16.985.-
Teg: 455201 Stærðir: 41 - 47
Verð: 17.975.-
Teg: 305302 Stærðir: 40 - 47
Verð: 15.880.-
Teg: 416407 Stærðir: 39 - 48
Verð: 21.600.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Opið laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Ýmislegt
Kristall, hreinsisprey
Hreinsisprey fyrir kristalsjósakrónur
og kristal.
Slóvak Kristall
Dalvegur 16 b , Kópavogur
S. 544 4331
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
ÚTSALA - ÚTSALA
ÚLPUR –50% AFSLÁTTUR
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar
verslun í Hagkaup Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.
Blekhylki.is, sími 517-0150.
Vetrardekk
rýmingarsala á 13 tommu
155 R 13 kr. 6.900
165 R 13 kr. 6.900
165/70 R 13 kr. 6.900
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 5444 333.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu.
Mikið úrval og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Fjarlægi veggjakrot
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
✝ ÞorgrímurSkjaldarson
fæddist í Reykja-
vík 1. ágúst 1952.
Hann lést af slys-
förum 12. febrúar
2013.
Foreldrar hans
voru Vigdís
Tryggvadóttir, f.
22. október 1932,
og Skjöldur Þor-
grímsson, f. 8. júní
1928, d. 20. desember 2012. Vigdís
og Skjöldur skildu. Systkini Þor-
gríms eru: Una Svava, f. 4. maí
1950, Tryggvi Lúðvík, f. 12. jan-
úar 1954. Systkini sammæðra eru:
Kristján R. Walsh, f. 6. ágúst 1956,
Kristín Anný Jónsdóttir, f. 9. júní
1958, Soffía Bryndís Jónsdóttir, f.
25. febrúar 1960. Systkini sam-
feðra eru: Ásthildur, f. 9. júní
1955, Guðbjörg, f. 13. júlí 1957,
Matthías, f. 1. febrúar 1959, d. 19.
september 1990, Guðrún Viktoría,
f. 28. desember 1963. Uppeld-
1962, er Jóhann Lúðvík, f. 4. sept-
ember 1995, dóttir hans er Andrea
Dís, f. 30. ágúst 2012, fósturdóttir
Þorgríms, dóttir Kristínar Ingu, er
Bryndís Árný Antonsdóttir, f. 25.
ágúst 1987, dætur hennar eru:
Anika Hrund, f. 31. mars 2007, og
Hrefna Kristín, f. 7. janúar 2009.
Þorgrímur ólst upp hjá móður
sinni og fóstra, Jóni Guðmunds-
syni, f. 27. maí 1925, og stórum
hópi systkina. Þau bjuggu lengst
af í Stigahlíð 34 í Reykjavík. Þor-
grímur lauk prófi frá Hótel- og
veitingaskólanum árið 1973 sem
matsveinn, hann var með sveins-
próf og meistararéttindi í þeirri
grein.
Hann vann lengst af við sitt fag
á ýmsum hótelum og veit-
ingastöðum, s.s. Hótel Borg, í
mötuneytum, m.a. á Sólheimum í
Grímsnesi, og til sjós bæði á flutn-
ingaskipum og fiskveiðiskipum.
Útför Þorgríms fer fram frá Ás-
kirkju í dag, þriðjudaginn 26. febr-
úar 2013, kl. 13.
issystir: Sigríður
Nanna Jónsdóttir Ro-
berts, f. 13. júní 1947.
Þorgrímur kvæntist
Hafdísi Þóreyju
Pálmadóttur, f. 26.
desember 1952, þau
skildu. Dætur þeirra
eru Linda Björg, f. 7.
ágúst 1970, maki Rík-
harður Hj. Sig-
ursteinsson, börn: Haf-
dís Birta Johansson, f.
11. júlí 1995, og Hinrik Hjörtur, f.
28. júlí 2005, Hrafnhildur Heiða, f.
19. júní 1973, hennar sonur er
Garðar Elís Arason, f. 2. janúar
1994. Dóttir Þorgríms og sam-
býliskonu hans, Helenu Kojic, f.
27. maí 1957, er Persida Guðný, f.
11. mars 1986, sambýlismaður
hennar er Björn Sævar Ólafsson,
þeirra sonur er Sævar Alexander
Björnsson, f. 28. ágúst 2006. Son-
ur Þorgríms og seinni sambýlis-
konu hans, Kristínar Ingu Ár-
mannsdóttur, f. 29. september
Elsku pabbi, nú ertu farinn.
Eftir sit ég með alls konar tilfinn-
ingar sem brjótast um, sorg og
söknuð.
Ég hélt að við hefðum meiri
tíma, þó að innst inni hefði ég
áhyggjur af þér og heilsu þinni.
Það var mikið áfall að heyra af láti
þínu, elsku pabbi, og ég á ennþá
erfitt með að trúa því að þú sért í
raun farinn. Ég hélt alltaf að við
myndum ná að eiga meiri tíma
saman. Nú er sú von úti.
Ég minnist þess með söknuði
þegar þú komst heim til mín og við
gátum spjallað og notið samver-
unnar. Þú varst með svo stórt
hjarta og alltaf að hugsa um þá
sem minna áttu en þú.
Þú áttir svo marga góða kosti
elsku pabbi; stórt hjarta, dæmdir
ekki náungann, hjálpsamur, frá-
bær kokkur og svo hin óbilandi já-
kvæðni þín sem þú kenndir mér að
nota í mótbyr lífsins.
Ég vona að þér líði vel þar sem
þú ert núna, elsku pabbi minn
Hvíl í friði.
Þín minning öllu skærar skín
þó skilji leið um sinn.
Þó okkur byrgi sorgin sýn
mun sólin brjótast inn.
Við biðjum Guð að gæta þín
og greiða veginn þinn.
(G.Ö.)
Þín elskandi dóttir,
Linda Björg Þorgrímsdóttir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Örlög manna eru misjöfn. Sum-
um auðnast að komast að mestu
leyti áfallalaust í gegnum lífið á
meðan aðrir verða að hafa fyrir
því. Toggi var einn af þeim sem
þurftu að hafa fyrir lífinu og gerði
það af sinni jákvæðni sem alltaf
var hans helsti styrkur. Toggi var
góður maður, vinur vina sinna og
alltaf tilbúinn að hjálpa.
Mín fyrstu kynni af Togga voru
þegar mamma og hann voru að
kynnast á Króknum ’92, seinna
flytja þau suður og ég flyt til þeirra
þegar amma deyr ’96. Ég ólst upp
hjá Togga í 12 ár í Vallarásnum og
svo á Írabakkanum og það eru
margar minningar sem ég á sem fá
okkur til að brosa á þessum tím-
um, hvort sem þær voru yfir
stærðfræðinni eða fótboltanum, og
ég kveð hann með söknuði og
hlýju. Síðustu árin eftir að mamma
og Toggi skilja voru samskiptin
minni en Toggi hringdi alltaf
reglulega til að spyrja um stelp-
urnar mínar eða bara til að láta
vita að honum þætti vænt um okk-
ur.
Toggi var besti kokkur sem ég
veit um og þegar ég fékk vinnu
fyrir vestan á Bjarmanum sem
kokkur og hafði enga reynslu af
eldamennsku var alltaf hægt að
hringja í Togga og fá ráð og ég var
með hann í símanum allt sumarið.
Toggi hafði mikið jafnaðargeð og
var óbilandi jákvæður og þótt
hann ætti erfitt peppaði hann okk-
ur alltaf upp í öllu sem við systk-
inin tókum okkur fyrir hendur.
Toggi fór fljótt frá okkur en ég
veit að hann er frjáls frá sínum
sjúkdómi og kominn á betri stað.
Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig og takk fyrir allar okkar sam-
verustundir.
Elsku Linda, Heiða, Persida og
Jói. Guð gefi ykkur styrk í sorginni
og megi minning hans lifa með
okkur.
Bryndís Árný.
Við sem höfum verið svo lánsöm
að eiga ævi sem Bakkus er hvergi
nálægur eða jafnvel vitum ekki
einu sinn hvað það er, gerum okk-
ur stundum ekki grein fyrir afleið-
ingum sem of mikil drykkja getur
haft og hefur haft fyrir of marga,
sérstaklega góða menn með við-
kvæmt hjarta eins og Toggi var.
Þó það séu mörg ár liðin, og
margt hafi breyst á löngum tíma
síðan ég var með Togga þá er eins
og tíminn hafi stoppað hjá honum
því aldrei breyttist neitt hjá hon-
um, hann var alltaf eins bæði í út-
liti og alltaf í góðu skapi, átti sinn
lífsstíl. Hafði þetta góða eðli eins
og mamma mín sagði oft um hann.
Einhvern veginn gerði Toggi
aldrei neitt veður út af sinni
drykkju, truflaði engan, pirraði
aldrei neinn, gerði aldrei neinum
neitt slæmt. Hann var bara þessi
góða sál sem fór illa með sjálfan
sig.
Toggi hafði hlýlegt bros og góð-
an mann að geyma, og er það það
eina sem ég mun eiga í minningu
um hann og geri mér grein fyrir
því hve dýrmætt það er að hafa
þekkt mann með þessa léttu lund
og gott eðli eins og Toggi hafði til
að bera.
Guð geymi þig.
Helena Dóra.
Þorgrímur Skjaldarson
✝ Sigurjón Sig-ursveinsson
(Bósi), Tjaldanesi 3 í
Garðabæ, fæddist í
Reykjavík 11. ágúst
1930. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
á Vífilsstöðum 5.
febrúar 2013.
Foreldrar hans
voru (Sigur)Sveinn
Egilsson, f. 12. maí
1890, d. 3. nóvember
1949, og Sigurbjörg
Margrét Kristófersdóttir, f. 16.
október 1907, d. 8. júlí 1996.
Systkini hans voru: Jón Kr.
Sveinsson, f. 22. janúar 1929, og
eiginkona hans Sigurlaug Krist-
jánsdóttir, f. 28. september 1930,
d. 8. júní 2006. Börn þeirra Krist-
ján Þorbergur, f. 29. maí 1948,
Inga Sveinbjörg, f.15. ágúst 1953,
Jóna Fríður, f. 4. ágúst 1955, Sig-
urður Magnús, f. 18. mars 1957, d.
1. nóvember 2010, og Svala Rún,
f. 22. apríl 1959. Rannveig Sveins-
dóttir Diener, f. 24. október 1931,
búsett í Bandaríkj-
unum, eiginmaður
hennar var Fredrick
M. Diener, f. 7. des-
ember 1923, d. 13.
október 2006. Barn
þeirra er Kristina
Diener Clendenin, f.
31. júlí 1963. Sveinn
Sveinsson, f. 12.
febrúar 1940, bú-
settur í Bandaríkj-
unum. Eiginkona
hans er Elly Sveins-
son, f. 11. september 1939, og son-
ur þeirra er Karl Sveinsson, f. 5.
maí 1976.
Sigujón ólst upp á Fjölnisvegi 3
og Laugavegi 105 þar til hann
fluttist í Garðabæ 1978. Hann
vann hjá föður sínum í For-
dumboði Sveins Egilssonar við
lagerstörf eftir skólagöngu, en
síðustu árin vann hann hjá Rarik
við ýmis störf.
Útför hans fór fram í kyrrþey
hinn 14. febrúar 2013 frá Garða-
kirkju.
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Á meðan hjörtun mild og góð
minning örmum vefur
þá fær að hljóma lífsins ljóð
og lag sem tilgang hefur.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(KH)
Elsku Bósi frændi. Alltaf var
gaman að heimsækja þig og þeg-
ar við stóðum við stólinn þinn
leistu upp og brostir. Þannig
brostir þú alla tíð, enda varstu
mikið góðmenni. Hlýja og vin-
semd einkenndu þig alla tíð og
það voru forréttindi að fá að alast
upp með þér hinum megin á
ganginum hjá ömmu.
Að skreppa yfir til ömmu og
spila við þig ólsen-ólsen voru
notalegar stundir, en þrátt fyrir
veikindi þín gafstu þér alltaf tíma
og varst góður við okkur systk-
inin. Þú hafðir gaman af því að
fara í bíó og uppáhaldið var ópal
eða tópas og síríuslengja með
lakkrís, enda reyndum við að
koma með það til þín eftir að þú
fórst í Holtsbúð. Ef amma skrapp
frá og eftir að amma lést reyndist
mamma (mágkona þín) þér alltaf
góður stuðningur, bauð þér í mat,
þvoði þvottinn þinn og fleira, og
þú launaðir henni alltaf með setn-
ingunni: „Þetta er glimrandi
Lauga mín, alveg glimrandi.“
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum)
Kvíði og einmanaleiki hrjáðu
þig og áttir þú fáa vini vegna
veikinda þinna og eineltis í lífinu,
en við systkinin reyndum alltaf
að líta inn hjá þér, færa þér góð-
gæti og stytta þér stundir. Við
kveðjum þig og þökkum af alhug
fyrir góðar stundir og minningar.
Kveðja,
Inga, Jóna og Svala.
Sigurjón
Sigursveinsson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horn-
inu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skila-
frests.
Lengd | Hámarkslengd minning-
argreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar
og hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og hvenær út-
förin fer fram. Þar mega einnig
koma fram upplýsingar um for-
eldra, systkini, maka og börn, svo
og æviferil. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín undir greinunum.
Minningargreinar