Morgunblaðið - 26.02.2013, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
Yfirleitt ef ég fagna afmælinu mínu þá eru það vinir mínirsem plana eitthvað,“ segir Sigurður Þór Gunnlaugsson vín-fræðingur, en hann fagnar 32 ára afmæli sínu í dag. Að-
spurður hvort hann ætli að gera eitthvað sérstakt í tilefni dagsins
segist Sigurður Þór einungis vona að hann verði ekki áfram rúm-
liggjandi með flensu á afmælisdaginn. Að sögn Sigurðar Þórs er
hann ekki mikið fyrir það að halda upp á afmælið sitt, nefnir
hann sem dæmi um þetta að á þrítugsafmælinu sínu hafi hann
lokað sig af, sest niður með góða bók og lesið sér til um frjáls-
hyggju.
Aðspurður hvort einhver einn afmælisdagur sé eftirminnilegri
en annar segir Sigurður Þór að líklegast hafi það verið þegar
hann hélt upp á tvítugsafmælið sitt. „Þá hélt ég matarboð með
lambalæri, kökum og ég veit ekki hvað. Ég var búinn að hafa fyr-
ir því að fara með mömmu nokkrum dögum áður til að kaupa í
bar. Það voru þarna í boði kokteilar og vín með matnum og gott
fyllirí á eftir,“ segir Sigurður Þór og bætir við: „Annars er ég
mjög lítið fyrir afmælisdaga, ég veit ekki af hverju.“ skulih@mbl.is
Sigurður Þór Gunnlaugsson er 32 ára í dag
Sigurður Þór Gunnlaugsson, vínfræðingur hjá ÁTVR, fagnar 32 ára
afmæli sínu í dag. Hann segir tvítugsafmælið vera eftirminnilegast.
Matarboð, kokteil-
ar og frjálshyggja
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Ísabella Sól Ingvarsdóttir, Sig-
urbjörg Brynja Ingvarsdóttir,
Ronja Elmarsdóttir og Ísabella
Júlía Óskarsdóttir héldu tom-
bólu við verslun Samkaupa í
Hrísalundi á Akureyri. Þær
söfnuðu 6.759 krónum sem
þær styrktu Rauða krossinn
með. Á myndinni er Ísabella
Sól sem afhenti gjöfina.
Hlutvelta
Borgarnes Sólveig Birna fæddist 15.
október kl. 11.35. Hún vó 3.010 g og
var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru
Jóhanna María Þorvaldsdóttir og Ing-
ólfur Hólmar Valgeirsson.
Nýir borgarar
P
áll Ágúst Ólafsson fædd-
ist 26.2. 1983 í Reykja-
vík og ólst þar upp.
Hann gekk í Ísaksskóla,
Miðbæjarskólann,
Hlíðaskóla og Hagaskóla, lauk stúd-
entsprófi frá MH 2002, lauk ensk-
unámi í Georgetown University í
Washington DC 2003, BA-prófi í
lögfræði frá HR 2006 og meist-
araprófi 2008, BA-prófi í guðfræði
frá HÍ 2011 og meistaraprófi fyrir
þremur dögum. Þá lærði Páll Ágúst
á píanó í einkatímum hjá Önnu Þor-
grímsdóttur og síðan hjá Ingu Ástu
Hafstein, lauk 6. stigi í píanónámi og
kenndi sér sjálfur á gítar.
Í kristilegu starfi frá æsku
Páll Ágúst var í æskulýðs- og
unglingastarfi við Hallgrímskirkju,
sá sjálfur um slíkt starf þar frá 15
ára aldri og til tvítugs, starfaði við
sumarbúðirnar í Vatnaskógi í fimm
sumur frá 15 ára aldri og starfaði
við að malbika götur í Reykjavík
sumrin 2003 og 2004: „Fyrra sum-
arið í bikinu var ég á skóflunni og
svartur í framan en hið síðara tók ég
próf á valtara og ók einum slíkum
það sumarið. Á hverju sumri síðan
þegar angan leggur af nýlögðu mal-
biki hugsa ég hlýlega til minna
gömlu félaga sem margir eru enn
að.“
Páll Ágúst starfaði hjá Straumi
fjárfestingarbanka með námi frá
2004-2008. Hann starfaði um skeið á
lögmannsstofu en samhliða lög-
fræðistörfum rak hann eigið fast-
eignafélag. Páll Ágúst er fram-
kvæmdastjóri Háteigskirkju frá
Páll Ágúst Ólafsson, framkvæmdastjóri Háteigskirkju – 30 ára
Nýgift Páll Ágúst og Karen Lind á brúðkaupsdaginn sinn í fyrra, ásamt foreldrum Páls, Ólafi og Dögg.
Með embættispróf í
lögfræði og guðfræði
Dæturnar Systurnar Þórhildur Katr-
ín og Dögg bíða eftir Óla Lokbrá.
Garði Karel Már fæddist 30. maí kl.
18.33. Hann vó 2.345 g og var 47 cm
langur. Foreldrar hans eru Eva Rut
Guðmundsdóttir og Pétur Wiencke
Barðason.
Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Laus við augnþurrk og pirring
eftir að ég kynntist BELLAVISTA
BELLAVISTA er eitt öflugasta fæðubótarefnið
á markaðnum fyrir sjónina. Mjög hátt lútein
innihald ásamt vítamínum og steinefnum sem
gegna mikilvægu hlutverki í að viðhalda góðri
og skarpri sjón.
Í BELLAVISTA er hátt hlutfall af
bláberjaþykkni og lúteini. www.gengurvel.is
"Ég heyrði í útvarpsþætti um fæðubótarefni
sem ætti að vera gott fyrir augun en ég hef
lengi þjáðst af augnþurrki, kláða og sviða.
Ég hef verið háð augndropum í 8-10 ár og
hugsaði með mér að ekki sakaði að prófa
þessar pillur sem byggjast upp á bláberjum
og mörgu góðu úr náttúrinni.
Ég nota nú BELLAVISTA að staðaldri 2 töflur
á dag og finn gífurlegan mun og þarf ekki
augndropa lengur! Þetta gerir mér mjög
gott og er mun ódýrara en að kaupa
dropana".
Edda Snorradóttir
79 ára heldriborgari
BELLAVISTA
- gott við augnþurrki og náttblindu
P
R
E
N
T
U
N
.IS