Morgunblaðið - 26.02.2013, Page 35
2011: „Kirkjan hefur glímt við erf-
iðar rekstraraðstæður undanfarin
misseri. Við þessari áskorun hefur
verið brugðist með nýjum aðferðum
og fundnar leiðir til að auka hag-
ræðingu og skilvirkni en á þann hátt
er hægt að viðhalda öflugu safn-
aðarstarfi.“
Páll Ágúst hefur setið í stjórn
KFUM og KFUK frá 2010, er vara-
formaður félagsins frá 2012, var
varamaður í sóknarnefnd Hall-
grímskirkju 2006-2008, sat í stjórn
ABC barnahjálpar 2009-2012, var
gjaldkeri Fisksins, félags guðfræði-
og trúarbragðafræðinema við HÍ, og
sat í stjórn Stúdentasjóðs. Hann var
einn forvígismanna Jóla í skókassa
frá stofnun 2004, hóps ungs fólks
sem safnar saman og sendir mun-
aðarlausum börnum í Úkraínu gjafir
um jól. Árin 2008-2010 var Páll
Ágúst dagskrárgerðarmaður á
Lindinni, kristilegri útvarpsstöð FM
102,9.
Ferðalög, tónlist og matur
„Ég er nú ekkert sérlega frum-
legur í áhugamálum en á móti kem-
ur að ég hef yfirleitt mikinn áhuga á
því sem ég ákveð að taka mér fyrir
hendur. Við hjónin erum bæði mikið
fyrir ferðalög og höfum ferðast mik-
ið, innan lands og utan. Ég hef ekki
síst gaman af fjallgöngum og lengri
göngum um óbyggðir en fyrir tveim-
ur árum gekk ég á Hvannadals-
hnjúk. Það er sérstök tilfinning að
leggja land undir fót með bakpoka
og tjald með víðáttuna fram undan.
Síðan hlusta ég á ýmiss konar tón-
list, spila á gítar og píanó, hef gam-
an af að elda og fá góða vini í mat.“
Fjölskylda
Eiginkona Páls Ágústs er Karen
Lind Ólafsdóttir, f. 26.11. 1983,
meistaranemi í guðfræði. Hún
stundaði nám í hjúkrun í Bretlandi
2003-2005 og lauk BA-prófi í guð-
fræði 2012. Með námi starfar Karen
Lind á Hrafnistu auk þess að sinna
safnaðarstarfi í Langholtskirkju og
Áskirkju. Hún er dóttir Ólafs Krist-
jánssonar, sölu- og markaðsstjóra í
Svíþjóð, og Katrínar Snæhólm Bald-
ursdóttur, listakonu og vþm.
Dætur Páls Ágústs og Karenar
Lindar eru Þórhildur Katrín Páls-
dóttir, f. 5.1. 2007, og Dögg Páls-
dóttir, f. 28.4. 2012.
Foreldrar Páls Ágústs eru Ólafur
Ísleifsson, f. 10.2. 1955, lektor í hag-
fræði við HR, og Dögg Pálsdóttir, f.
2.8. 1956, lögfræðingur hjá Lækna-
félagi Íslands og fyrrv. vþm.
Úr frændgarði Páls Ágústs Ólafssonar
Páll Ágúst
Ólafsson
Sigurður Jónsson
b. í Melbæ í Rvík, af Víkingslækjarætt
Ingibjörg Pálsdóttir
húsfr. í Rvík
Páll Sigurðsson
læknir og fyrrv. ráðuneytisstjóri í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
geðlæknir
Dögg Pálsdóttir
lögfr. og fyrrv. vþm.
Jón Júníusson
stýrim. í Rvík, bróðursonur Ísólfs
tónskálds, föður Páls tónskálds, föður
Þuríðar óperusöngkonu, af Bergsætt
Magnea Dagmar Þórðardóttir
húsfr. í Rvík, af Víkingslækjarætt
Jóhann Þ. Jósefsson
alþm. og ráðherra
Ágústa Jóhannsdóttir
húsfr. á Seltjarnarnesi.
Ísleifur A. Pálsson
skrifstofustj. og framkvæmdastj. í Rvík.
Ólafur Ísleifsson
lektor í hagfræði við HR
Matthildur Ísleifsdóttir
húsfr. í Eyjum, af ættum Síðupresta
Jóhann Ísleifsson
fyrrv. bankam.
Örn Ísleifsson
flugmaður
Bergljót Pálsdóttir
húsfr. á Akureyri
Anna Regína Pálsdóttir
húsfr. í Kópavogi
Páll Tryggvason
geðlæknir á Akureyri
Björn Hermannsson
kosningastj. Sjálfstæðisflokksins
Páll
kaupm. í Eyjum, sonur sr. Oddgeirs, á Ofanleiti í Eyjum, af
Knudsenætt, tvímenningur við Árna Pálsson prófessor, en langafi
Páls var Einar Jónsson, borgari í Rvík, föðurbróðir Jóns forseta
Þórður Oddgeirsson
pr. í Sauðanesi
Hanna A. Þórðardóttir
saumakona í Rvík
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir
myndlistarm.
Hanna G. Sigurðardóttir
dagskrárgerðarm.
Jónína Jónsdóttir
frá Mundakoti
Ragnar í Smára
útgefandi
Jón Óttar Ragnarsson
fyrrv. sjónvarpsstj.
Sigurður Páll Pálsson
geðlæknir
Jón Rúnar Pálsson
hrl.
Ingibjörg Pálsdóttir
lyfjafr.
Jónína Pálsdóttir
tannlæknir
Jón Sigurðsson
fyrrv. ráðuneytisstjóri
Sigrún Sigurðardóttir
í Rvík
Sigurður Ingi
athafnamaður
Sigurður Guðmundsson
skrifstofustj. í fjárm.m.r.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
Björn Kristjánsson, banka-stjóri og kaupmaður, fædd-ist á Hreiðurborg í Flóa 26.2.
1858. Foreldrar hans voru Kristján
Vernharðsson, bóndi þar, og k.h.,
Þórunn Halldórsdóttir húsfreyja.
Björn ólst upp við þröngan kost,
fór til ömmu sinnar sex ára og í
vinnumennsku fjórtán ára, lærði
skósmíði í Reykjavík en starfrækti
eigin skósmíðastofu 1876-82.
Björn lærði tónfræði og orgelleik í
Kaupmannahöfn um skamma hríð
um 1880 en lagði þar þó grunn að yf-
irgripsmiklu sjálfsnámi í tónlist og
varð með söngfróðustu mönnum.
hér á landi, söngstjóri, organisti og
opinber hljóðfæraleikari.
Björn stofnaði í Reykjavík Versl-
un Björns Kristjánssonar, VBK, ár-
ið 1888 og var sú verslun starfrækt í
Reykjavík í 120 ár eða þar til hún
rann inn í Hvítlist, í júlí 2008. Þar
var lengst af verslað með vefn-
aðarvörur, leðurvörur og ritföng, á
horni Vesturgötu og Grófarinnar.
Björn var fær endurskoðandi og
snjall og ábyrgur fjármálamaður.
Hann var bókhaldari í Reykjavík,
bæjargjaldkeri þar, bankastjóri
Landsbankans 1909-1918, sat í bæj-
arstjórn í fimm ár, var alþm. fyrir
borgaralega flokka á árunum 1900-
1931, síðast fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og var fjármálaráðherra 1917.
Björn var feikilega vel sjálfmennt-
aður, skrifaði vandaðar greinar um
bankamál, verslunarmál og stjórn-
mál, fékk síðan mikinn áhuga á
steina- og efnafræði og er hann var
kominn á sextugsaldur lærði hann
efnafræði og efnagreiningu í Þýska-
landi og sinnti síðan rannsóknum á
steinafræði landsins.
Björn lést 13.8. 1939. Um hann
genginn, segir Valtýr Stefánsson rit-
stjóri: „Ævisaga hans var lærdóms-
rík, því hún var ævintýri úr íslenzku
þjóðlífi. Hann var maður, sem reis
upp úr mestu fátækt, sem átti ekk-
ert veganesti nema eldheita fram-
faraþrá, þjóðarhollustu og trú á mátt
sinn og megin.“ En í lokin segir Val-
týr: „Listhneigð til hljómlistarinnar
var það í fari hans, sem mótaði hann
mest.“
Merkir Íslendingar
Björn
Kristjánsson
85 ára
Ingibjörg Jónsdóttir
Pálína M. Sigurðardóttir
75 ára
Atli Örvar
Bergljót Baldvinsdóttir
Guðbjörg Einarsdóttir
Haukur Þorsteinsson
Jórunn Jónsdóttir
70 ára
Bjarni Sigurmundsson
Kristján Þorkelsson
Svandís Jónsdóttir
Sveinn Gunnarsson
Sæmundur Ágústsson
60 ára
Gunnar Ingi Hjartarson
Jósefína Ragnarsdóttir
Soffía Kristín Kwaszenko
Stefán Páll Georgsson
Þorsteinn I. Guðmundsson
50 ára
Anna Storonowicz
Elva Arndís Hallgríms-
dóttir
Eysteinn Gunnarsson
Guðjón Bjarnason
Guðrún Fríður
Heiðarsdóttir
Guðrún Ingibjörg
Stefánsdóttir
Hafdís Cecilia Jakobsdóttir
Ólafur Jónsson
Ragnar Jónsson
Sigurður Flygenring
Slawomir Niescier
40 ára
Artur Mariusz Wegenka
Ásgrímur Harðarson
Eygló Jósephsdóttir
Grétar Þórarinn
Gunnarsson
Halldóra Þórunn
Ástþórsdóttir
Hannes Ástráður
Auðunarson
Laufey Jóhanna
Jóhannesdóttir
Margarita Vaiman
Margrét Ýrr
Sigurgeirsdóttir
Neil Labla Ordiz
Ólöf Dögg Sigvaldadóttir
Paul Michael Mason
Sigrún Sigurðardóttir
Sverrir Guðmundsson
Vildís Ósk Harðardóttir
30 ára
Anja Björg Kristinsdóttir
Arnar Óli Bjarnason
Erla Þórhallsdóttir
Halldóra Ósk Reynisdóttir
Jónas Guðmannsson
Kinga Maria Kotwica
Stefán Örn Steinþórsson
Til hamingju með daginn
40 ára Bjarni er við-
skiptafræðingur og fram-
kvæmdastjóri hjá Flutn-
ingum og þjónustu.
Maki: Elísabet Jónsdóttir,
f. 1982, deildarstjóri.
Börn: Snæþór Helgi, f.
1994, Jóhann Emil, f.
1997, Dagbjört Una, f.
2000, og Hanna Sjöfn, f.
2008.
Foreldrar: Jón S. Guð-
laugsson, f. 1949, kenn-
ari, og Jóhanna Bjarna-
dóttir, f. 1950, d. 1995.
Bjarni Þór
Lúðvíksson
50 ára Ósk Jórunn er
Svarfdælingur en er
sjúkraþjálfari á Akureyri.
Maki: Guðmundur H.
Jónsson, f. 1962, sjúkra-
þjálfari.
Börn: Bergþóra Björk, f.
1989, Arnrún Eik, f. 1999,
og Brimar Jörvi, f. 2001.
Foreldrar: Árni Jónsson,
f. 1920, d. 1969, bóndi á
Hæringsstöðum, og Berg-
þóra Stefánsdóttir, f.
1920, d. 2007, bóndi og
verkakona.
Ósk Jórunn
Árnadóttir
50 ára Kristín ólst upp í
Reykjavík og er aðalbók-
ari hjá Grundarfjarðarbæ.
Maki: Þorsteinn B.
Sveinsson, f. 1963, raf-
eindavirki í Grundarfirði.
Börn: Berglind, f, 1986,
Anna, f. 1989, Guðbjörg, f.
1993, og Sveinn Pétur, f.
1995.
Foreldrar: Pétur Pét-
ursson, f. 1917, d. 2004,
vagnstj. og sjómaður, og
Sigríður Skarphéðins-
dóttir, f. 1923, verkakona.
Kristín
Pétursdóttir
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Heimsins öflugasta Hersluvél
1057Nm 20Volt
Iðnaðarvélar
fyrir fagmenn
Síðumúla 11, 108 Reykjavík,
sími 568 6899, vfs@vfs.is
www.vfs.is
W7150 ½ Rafhlöður
2* 3,0 Ah Li-Ion
Létt og þægileg
aðeins 3,1 kg