Morgunblaðið - 26.02.2013, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.02.2013, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 Langtímaleiga www.avis.is 52.100 kr. á mánuði og allt innifalið nema bensín!* Hafðu endilega samband við okkur í síma 591 4000 eða kíktu á avis.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. *Hyundai l10, árgerð 2011, í 36 mánaða leigu. Komdu í langtímaleigu Avisog láttu dæmið ganga upp! Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Láttu þér ekki leiðast þótt einhver þér nákominn virðist fjarlægur þessa dag- ana. Sinntu því sem sinna þarf. Nú er komið að því að þú hrindir hlutunum í framkvæmd og fylgir þeim í höfn. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú átt auðvelt með að ná til annarra og það hjálpar þér til að koma þínum málum fram. Þú heldur áfram að mennta sjálfan þig. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Nýjar hliðar á vandasömu verkefni krefjast allrar þinnar athygli þinnar. Innst inni þráirðu tilbreytingu, ævintýri og jafnvel upp- reisn. Trúnaðarsamtal við nána vinkonu mun gleðja þig í dag. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Láttu ekki undan minnstu löngun til lausungar í fjármálum því allt slíkt hefnir sín grimmilega. Það sem þú leggur á þig í nafni skemmtunarinnar er virkilega hvetjandi. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Kauptu eitthvað sem mun hjálpa þér til að vera skipulagaðri, hvort sem er á vinnu- stað eða heima. Gakktu skipulega til verks. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú velur vandlega fólkið sem þú um- gengst. Láttu ekki undan freistingunni að láta kæruleysisleg orð falla því þau gætu reitt einhvern til reiði. 23. sept. - 22. okt. k Vog Vogin er mikilvægur partur af hópi og hefur vald til þess að hafa umtalsverð áhrif á aðstæður. Brjóttu málin til mergjar og leystu þau svo eitt af öðru. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ekki er úr vegi að nýta sér með- byrinn og ná þeim markmiðum sem þú hefur sett þér. Einhleypir eru í þann mund að kynn- ast nýjum ástvini. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ef þú heldur rétt á spöðunum ætti þér að takast flest það sem þú vilt leggja áherslu á. Varastu að láta telja þig á eitthvað sem þú veist að er ekki rétt fyrir þig. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Ekki gera mistök, neistinn sem logar með þér gefur þér orku. Álitlegt við- skiptatækifæri skýtur upp kollinum. Ræddu við aðra til að fá fram skoðun þeirra á mál- inu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú ert með frábært minni og rök- hugsunin er meiriháttar. Þó þér hafi gengið vel að fullkomna venjur þínar þá er enn hluti af þér sem þú ert ekki sáttur við. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Láttu það eiga sig að reyna að stjórna öðru fólki því þú átt í fullu fangi með að hafa stjórn á sjálfum þér. Jafnvel þeir sem sleikja þig vanalega ekki upp, gera það nú. Ármann Þorgrímsson dró þannlærdóm af Vikudegi að sam- kvæmt aldursgreiningu blaðsins væru 30% líkur á að hann dræp- ist á næstu fjórum árum: Feigðar að ósi nú flýt ég fagna þeim áfanga hlýt ég örsjaldan unaðar nýt ég einna helst þegar að hrýt ég. Ármann hefur farið mikinn á Leirnum, póstlista hagyrðinga, og Björn Ingólfsson stóðst ekki mátið. Hann hrósaði Ármanni fyrir kveðskapinn, bæði magn og gæði, og orti í framhaldi af því: Hjá Ármanni stefnir allt í skort ár og daga – völvur spá – og því sem hann hefur ekki ort hann ólmast nú við að koma frá. Þórir Jónsson skrifaði eftir að hafa verið við fjölmenna útför Óttars Einarssonar: „Það tekur sinn tíma að átta sig á því að símtölin við Óttar verða ekki fleiri. Læðist yfir lífsins torg ljásins feigðarhvinur. Harmur sest í hugarborg; horfinn gamall vinur.“ Nokkur umræða spannst um það á landsfundi Sjálfstæð- isflokksins um helgina hvort lagasetning ætti að taka mið af kristnum gildum „þegar það ætti við“. Hjálmar Freysteinsson orti: Að sjálfstæðismanna sið setti ég þau háleitu mið: Að keppast ég skyldi við kristin gildi, þar sem það á við. En þessi setning var felld út af landsfundarfulltrúum og varð það til þess að Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum orti: Sjallar bæta sumra hag saman glaðir núna þinga. En undir teppi ætla í dag aftur kristnum gildum stinga. Hjálmar bætti við: Freistni teymir oss villur vega „víst er það svona enn.“ Allir haga sér ókristilega, einnig sjálfstæðismenn. Magnús tók hann á orðinu: Breyskur maður bærilega birtist Hjálmar enn. Ætlar að haga sé ókristilega eins og sjálfsstæðismenn. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af feigðarósi, hrotum og kristnum gildum Í klípu „Í efstu skrifborðsskúffunni minni er rafbyssa. ef ég fer að haga mér eins og vinur þinn, en ekki eins og foreldri, þá hefur þú leyfi til að nota hana.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „þetta litla gráa er teflon- húð af steikarpönnu.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa heiminn í örmum sér. „yfir brúna og Í gegnum göngin ...“ ansans! mér tekst aldrei að reima skóna mÍna! þetta er allt of flókið, gerðu bara eins og ég. sem er? að vera berfættur. Jón, þú ert algJör klaufi. stattu nú upp af gólfinu. þú hrintir mér úr stólnum! af hverJu ertu svona fastur Í þvÍ sem er liðið?Hver á hina látnu? Menn veltaþessu nú fyrir sér í Bretlandi eftir að leikkonan og þokkadísin Audrey Hepburn birtist á dögunum í sjónvarpsauglýsingu fyrir Galaxy- súkkulaði. Hún sálaðist sem kunn- ugt er fyrir tuttugu árum. Ýmsum þykir auglýsingin ósmekkleg en synir Hepburn, sem höndla með dánarbú hennar, gáfu samþykki sitt fyrir henni. Höfðu á orði að móðir þeirra hefði orðið stolt af þessu nýja hlutverki sínu enda hafi hún löngum verið sólgin í súkkulaði og orðið tíðrætt um já- kvæð áhrif þess á sálarlíf sitt. Varla þarf að taka fram að bræð- urnir fá nú greitt fyrir ómak móður sinnar – eflaust enga skiptimynt. x x x Þetta er ekki í fyrsta skipti ogörugglega ekki síðasta sem mál af þessu tagi kemur upp. Árið 1997 fékk Fred Astaire, sem þá hafði leg- ið í gröf sinni í áratug, sér snúning með ryksugu einni í auglýsingu. Ekkja leikarans dansandi gaf leyfi sitt fyrir þeim gjörningi en dóttir hans var miður sín. „Það hryggir mig að eftir stórbrotinn feril sé hann nú seldur djöflinum,“ sagði hún. Af þessu tilefni mælti hin djúp- spaka sjónvarpspersóna Homer Simpson: „Þið verðið að átta ykkur á því, fræga fólkið, að almenningur á ykkur fyrir lífstíð. Og þegar þið eruð látin munuð þið dansa við ryksugur í auglýsingum.“ x x x Í þessum tveimur tilvikum fékkauglýsandinn samþykki aðstand- enda hins látna en svo er ekki alltaf. Í fyrra höfðaði dánarbú Alberts Ein- steins mál á hendur bílaframleiðand- anum General Motors vegna notk- unar ásjónu vísindamannsins í auglýsingum. Búið tapaði málinu með þeim rökum að tjáningarfrelsið væri réttindum dánarbúsins til að stýra notkun ímyndar Einsteins æðri enda væri meira en hálf öld lið- in frá dauða hans. Sem kunnugt er „þéna“ látnir milljarða króna á ári hverju í Banda- ríkjunum. Nægir þar að nefna Eliza- beth Taylor, Elvis Presley og Mari- lyn Monroe. víkverji@mbl.is Víkverji Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi Jesú til góðra verka sem hann hefur áður fyrirbúið til þess að við skyldum leggja stund á þau. (Efesusbréfið 2:10)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.