Morgunblaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.03.2013, Blaðsíða 13
Fáskrúðsfjörður | Undangengin ár hafa Fáskrúðsfirðingar haft fyrir augunum bátinn Rex NS 3 í skrúð- garði bæjarins. Bátinn gaf Árni Jón Sigurðsson á Seyðisfirði eftir að hann var úrelt- ur sem fiskibátur. Var Rex settur upp á 90 ára afmælisári Búða- hrepps 1997. Hugsunin með því var að varðveita hann til minningar um Einar Sigurðsson, bátasmið frá Odda. Einar rak trésmíðaverkstæði í áratugi, byggði marga báta og íburðarhús á staðnum og var auk þess virtur skipasmiður um allt land. Um nokkurt skeið hefur verið umræða um að viðhald bátsins væri ekki sem skyldi og var farið í við- ræður við bæjaryfirvöld í Fjarða- byggð hvort ekki væri kominn tími til gera bragarbót á því máli. Niðurstaðan varð sú að tveir eldriborgar buðust til að gera and- litslyftingu á bátnum í sjálfboða- vinnu. Hefur sú vinna staðið frá áramótum. Auk þessara tveggja komu ýmsir fleiri að verkinu en starfsmenn áhaldahúss sáu um að koma bátnum í hús með aðstoð nokkurra einstaklinga. Á þessum tveimur mánuðum hafa verið skráðar 306 klukkustundir við vinnu. Bátaviðgerð Finnbogi Jónsson og Albert Kemp við Rex NS að verki loknu. Nutu þeir aðstoðar margra góðra manna við endurgerð bátsins. Rex gerður upp í sjálfboðavinnu Morgunblaðið/Albert Kemp FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013 Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús og allar innréttingar sem hugurinn girnist. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði alla leið inn á þitt heimili. Dreymir þig nýtt eldhús! Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsfólk og eigendur Hótels Kefla- víkur komu saman á föstudag til að fagna því að Hæstiréttur staðfesti að Icelandair hótelum er ekki heimilt að nota heitið Hótel Keflavík í heiti sínu. „Það er bara eitt Hótel Keflavík“ stóð á tertunni. Hótel Keflavík hefur verið rekið frá árinu 1986 og Flughótelið sem svo hét er tveimur árum yngra. Nokkur hundruð metrar eru á milli húsanna. Icelandair eignaðist Flug- hótel og þegar hótelkeðjan var að samræma heiti hótela sinna breytti hún nafni hótelsins í Icelandair hótel Keflavík. Stjórnendur Hótels Keflavíkur töldu hagsmunum sínum ógnað vegna þess að hætta væri á að fólk ruglaði gististöðunum saman og reyndu árangurslaust að fá þessu breytt. Eftir að þeir fengu sett lögbann á notkun nafnsins var starfsemin kynnt undir heitinu „Icelandair hótel í Keflavík“. Hótel Keflavík vann stað- festingarmál fyrir héraðsdómi og Hæstiréttur hefur nú staðfest bann- ið. Það gerði rétturinn með vísan til óréttmætra viðskiptahátta, að meiri hætta væri á að neytendur villtust á hótelum eftir að staðarheitið Kefla- vík var tekið inn í það. Icelandair hót- elum var gert að greiða málskostnað. Fögnuðu sigri í nafna- deilu hótela í Keflavík Fögnuður Starfsmenn Hótels Keflavíkur fögnuðu sigri fyrir Hæstarétti og gæddu sér m.a. á gómsætri og áletraðri tertu í tilefni dagsins.  „Það er bara eitt Hótel Keflavík“ „Við erum enn í sigurvímu, fjöl- skyldan og starfsfólk, og fögnum niðurstöðu Hæstaréttar gríðar- lega,“ segir Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík. Hann telur að breyting á nafni Flughót- els hafi verið atlaga að fyrirtæk- inu. Steinþór telur að Icelandair hljóti að breyta nafni hótelsins aftur í Flughótel, eins og enn er merkt á göflum hússins, eða koma með enn eitt nafnið á hótelið. Skýrt komi fram í dómi Hæsta- réttar að ekki sé nægjanlegt til að- greiningar að bæta staðarnafni aftan við Icelandair-heitið og það eigi einnig við um þá útfærslu sem notuð hafi verið frá því lögbanns- úrskurðurinn var kveðinn upp. Hljóta að breyta nafninu til fyrra horfs eða finna nýtt STEINÞÓR HÓTELSTJÓRI Í SKÝJUNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.