Morgunblaðið - 04.03.2013, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2013
Lilja Sesselja Steindórsdóttir textílmenntakennari er fertug ídag. Afmælisbarnið var önnum kafið við kökubakstur þegarblaðamaður sló á þráðinn til hennar. „Ég er að baka köku
sem nefnist Syndug sæla fyrir veislu næstu helgi. Hátíðahöld verða
lítil á sjálfan afmælisdaginn, bara rólegheit með fjölskyldunni,“ seg-
ir Lilja Sesselja sem hyggst fagna áfanganum helgina á eftir. „Þá
verður haldið partí með 120 gestum,“ segir Lilja Sesselja en hún hef-
ur ekki haldið upp á afmæli með jafnveglegum hætti síðan hún varð
tvítug. „Þá hélt ég afmæli á Glaumbar og bauð öllum sem ég hitti í
tvær vikur fyrir veisluna, auk vina og fjölskyldu,“ segir hún og hlær.
Talsvert umstang er að vonum í kringum veisluna næstu helgi en
Lilja Sesselja nýtur liðsinnis dætra sinna, þeirra Önnu Lilju og Mar-
grétar Birnu, við undirbúning veislunnar, ásamt öðrum fjölskyldu-
meðlimum. Hún starfar sem textílmenntakennari í Smáraskóla.
„Það er skemmtilegt og fjölbreytt starf. Ég finn að krakkarnir hafa
gaman af list- og verkgreinum þar sem þau vinna með höndunum,
það er kærkomin tilbreyting frá skólabókunum.“ Hún segir hann-
yrðaáhuga síst fara minnkandi hjá yngri kynslóðunum. „Hann eykst
jafnt og þétt í takt við áhuga á hönnun og textílverki í dag. Þannig
hefur aukist að nemendur kunni grunnhandtök í prjóni og sauma-
skap og hafi mikinn áhuga,“ segir Lilja. gudrunsoley@mbl.is
Lilja Sesselja Steindórsdóttir 40 ára
Fjör „Tvítugsafmælið var haldið á Glaumbar. Þangað bauð ég öllum sem
ég hitti í tvær vikur fyrir partíið auk vina og fjölskyldu,“ segir Lilja.
Bakar synduga
sælu fyrir afmælið
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Grindavík Gissur Ari fæddist 22. febr-
úar kl. 19.45. Hann vó 4.125 og var 55
cm langur. Foreldrar hans eru Anna
Dröfn Clausen og Sigurður Óli Þór-
leifsson.
Nýir borgarar
Stöðvarfjörður Erna Björk fæddist
21. apríl kl. 6.49. Hún vó 3.340 g og
var 49 cm löng. Foreldrar þeirra eru
Anna Kristín Jóhannsdóttir ogKjart-
an Freyr Stefánsson.
S
igurbjörg fæddist á Siglu-
firði og ólst þar upp til tíu
ára aldurs en síðan í
Reykjavík, fyrst í Sig-
túninu en síðan í Ljós-
heimunum. Hún var í Laugarnes-
skóla, lauk síðan landsprófi og
útskrifaðist frá Kvennaskólanum.
Síðar lauk hún prófum frá Fisk-
vinnsluskólanum í Hafnarfirði, lauk
stúdentsprófum frá FB og er ferða-
málafræðingur frá Ferðamálaskól-
anum í Kópavogi.
Að loknu námi við Kvennaskólann
stundaði Sigurbjörg skrifstofustörf í
Reykjavík, m.a. hjá Loftleiðum. Hún
flutti til Egilsstaða 1976 og stundaði
þar skrifstofustörf hjá Kaupfélagi
Héraðsbúa. Þau hjónin fluttu síðan
að Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá
þar sem Sigurbjörg var kúabóndi,
kirkjuvörður og meðhjálpari á ár-
unum 1981-89. Þá fluttu þau til
Hornafjarðar en á þeim árum lauk
hún prófum frá Fiskvinnsluskól-
anum og vann við fiskvinnslu þar
Sigurbjörg Inga Flosadóttir, hótelstjóri á Eyvindará II - 60 ára
Öll saman komin Börn Sigurbjargar og Ófeigs. Frá vinstri: Guðný Inga, Aðalsteinn, Flosi Jón og Benedikt Gunnar.
Á fullu í ferðaþjónustu
Barnadætur Sigurbjörg og Ófeigur með Öldu Lísu og Selmu Ingu.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
FÍB AÐILD SPARNAÐUR OG ÖRYGGI
FÍB AÐILD MARGBORGAR SIG
Lögfræðiráðgjöf
FÍB Aðstoð
Þétt afsláttarnet
Allt þetta innfalið og meira til!
Ársaðild FÍB er aðeins kr. 6.600
Kynntu þér málið á fib.is
eða í síma 414-9999
Tækniráðgjöf
Eldsneytisafsláttur
Félag íslenskra bifreiðaeigenda Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími. 414 9999 fib@fib.is www.fib.is