Morgunblaðið - 13.04.2013, Side 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Í dag er Songkran, nýársdagur Taílendinga, sem
þeir fagna víðsvegar um landið með allt að sex
daga hátíðahöldum. Hinir ýmsu siðir fylgja
Songkran-fögnuðinum, meðal annars sá að fólk
skvettir vatni hvað á annað. Sumir ganga um
göturnar með vatnsbyssur eða fötur fullar af
vatni en aðrir standa með garðslönguna í hendi
og bíða eftir að nágranni gangi fram hjá, og
rennbleyta hann svo í tilefni nýja ársins.
Vatnsbyssur og fílsranar
AFP
Marka nýja árið með því að sulla vatni
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
John Kerry, sagði í gær að ekki yrði
unað við Norður-Kóreu sem kjarn-
orkuveldi og að orðagjálfur stjórn-
valda í Pyongyang væri óásættan-
legt hvernig sem á það væri litið.
Ráðherrann er í heimsókn í Suður-
Kóreu og átti fundi með kollega sín-
um Yun Byung-Se í gær.
CNN sagði frá því í gær að leyni-
þjónustuarmur Pentagon væri „hóf-
lega öruggur“ um að stjórnvöld í
Norður-Kóreu byggju yfir tækni til
að flytja kjarnorkuvopn á skotflaug
en að áreiðanleiki
slíkrar flaugar
væri lítill.
Talið er að
Norður-Kórea
hyggist skjóta
flugskeyti á loft í
tilraunaskyni á
næstunni en
Kerry fór fram á
að látið yrði af
slíkum fyrirætlunum. Hann sagði
Bandaríkin tilbúin til þess að vinna
af sannfæringu um að samskiptin
milli Norður- og Suður-Kóreu geti
batnað á skömmum tíma.
Ríkisfréttastofa Norður-Kóreu,
KCNA, hótaði því í gær að Japan
myndi brenna upp í kjarnorkulogum
ef þarlend stjórnvöld skiptu sér af
þróun mála á Kóreuskaganum. Fyrr
í vikunni höfðu japönsk yfirvöld
komið fyrir Patriot flugskeytum fyr-
ir utan Tókýó og fyrirskipað hernum
að skjóta niður hvers konar flug-
skeyti frá Norður-Kóreu sem ógnaði
landinu.
Kerry, sem heldur til Peking í dag,
sagði að það væri tími til kominn að
stjórnvöld í Kína gripu inn í ef þau
vildu varðveita stöðugleika á svæð-
inu.
Þá sagði Sergei Lavrov, utanrík-
isráðherra Rússlands, í gær að hann
styddi hugmyndir þess efnis að Sviss
yrði gestgjafi viðræðna milli Norð-
ur- og Suður-Kóreu, Kína, Rúss-
lands, Bandaríkjanna og Japan en
fulltrúar landanna hafa ekki fundað
saman síðan Norður-Kórea sagði sig
frá viðræðum 2009.
holmfridur@mbl.is
Mögulegt að bæta samskiptin
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir orðagjálfur Norður-Kóreumanna
óásættanlegt Hóta Japönum kjarnorkubáli Lavrov styður viðræður í Sviss
John Kerry
Læknar á hersjúkrahúsinu Kobri el-
Qoba í Kaíró gerðu aðgerðir á mót-
mælendum í maí 2012 án þess að not-
ast við deyfilyf eða sótthreinsa sár
þeirra. Þetta kemur fram í skýrslu
nefndar sem forseti Egyptalands,
Mohamed Morsi, skipaði til að rann-
saka störf lögreglunnar og hersins
frá árinu 2011, þegar uppreisnin
gegn fyrrverandi forseta, Hosni
Mubarak, hófst.
Það var breski fjölmiðillinn
Guardian sem sagði frá þessu á
fimmtudag en þrátt fyrir að skýrsl-
an, sem telur þúsund blaðsíður, hafi
verið afhent forsetanum í janúar síð-
astliðnum, hefur hún enn ekki verið
gerð opinber.
Fyrrnefndar niðurstöður nefndar-
innar snúa að átökum sem brutust út
í Abbassiya, þar sem fólk safnaðist
saman til þess að mótmæla herfor-
ingjastjórninni sem tók við völdum
eftir að Mubarak sagði af sér, en þar
er varnarmálaráðuneyti landsins
staðsett.
Tveir létust og nærri 400 særðust í
átökunum milli mótmælenda og her-
manna en í skýrslunni segir m.a. að
yfirlæknir á hersjúkrahúsinu hafi
skipað undirmönnum sínum að fram-
kvæma aðgerðir á mótmælendum án
deyfilyfja eða sótthreinsunar. Þá er
því einnig haldið fram að læknar,
hjúkrunarfræðingar og yfirmenn í
hernum hafi beitt mótmælendur of-
beldi á sjúkrahúsinu og jafnvel læst
þá í kjallara hússins.
Aðgerðasinnar segja skýrsluna af-
ar mikilvæga en hún marki tímamót
þar sem opinberir aðilar hafi aldrei
viðurkennt að herinn hafi misbeitt
valdi sínu gegn mótmælendum. Þá
benda þeir á að ef um stríðsfanga
hefði verið að ræða, myndu aðfarir
hersins jafngilda stríðsglæpum. Þeir
kalla eftir því að skýrslan verði gerð
opinber. holmfridur@mbl.is
Mótmælendur
pyntaðir af læknum
AFP
Átök Alda mótmæla hefur riðið yfir
Egyptaland frá ársbyrjun 2011.
Aðgerðir fram-
kvæmdar án deyfilyfja
Vladimír Pútín,
forseti Rúss-
lands, tilkynnti í
gær að Rússar
myndu fjárfesta
fyrir tæplega 52
milljarða dollara
í geimferða-
áætlun sinni árin
2013-2020.
Pútín heim-
sótti nýjan eldflaugaskotpall sem er
í byggingu í Amur-héraði og sagði
áætlanir gera ráð fyrir að þaðan
yrði hægt að skjóta fyrstu eldflaug-
inni árið 2015 og fyrstu mönnuðu
flauginni 2018.
Forsetinn sagði Rússa hafa helst
úr lestinni nema hvað varðaði
mannaðar geimferðir og útilokaði
ekki að stofnað yrði sérstakt geim-
ráðuneyti.
Þá sagði yfirmaður rússensku
geimvísindstofnunarinnar, Vladim-
ir Popovkin, að stjórnvöld í Moskvu
stefndu að því að hefja byggingu
geimstöðvar á tunglinu árið 2030,
þaðan sem flogið yrði til Mars.
„Tunglið er frábær skotpallur,
það er í grundvallaratriðum stórt
fyrirbæri í geimnum þar sem hægt
væri að koma fyrir hellingi af hlut-
um. Það væri synd að nota það
ekki,“ sagði hann.
52 milljarðar dollara
í geimáætlun Rússa
Vladimír Pútín
RÚSSLAND
Yfirkjörstjórn Palestínu tilkynnti í
gær að átak til að fá fleiri kjós-
endur á Gaza og Vesturbakkanum
til að skrá sig á kjörskrá hefði borið
árangur. Unnið hefur verið að end-
urnýjum kjörskrárinnar sem hefur
verið óbreytt frá 2006 vegna
ágreinings Hamas- og Fatah-
samtakanna.
Skráðir kjósendur á svæðunum
eru nú um 1,8 milljónir, þar af býr
tæplega 1,1 milljón kjósenda á
Vesturbakkanum en 770 þúsund
kjósendur á Gaza.
Formaður kjörstjórnarinnar,
Hanna Nasser, sagði hana nú til-
búna til að framkvæma kosningar
ef forsetinn gæfi fyrirskipun um að
dagsetning skyldi ákveðin.
Yfirkjörstjórn tilbú-
in fyrir kosningar
PALESTÍNA
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Í spinning öðlast ég
aukið úthald og styrk,
frábær undirstaða fyrir
útivistina, hvort sem það
eru hjólreiðar, skíði eða
fjallganga.
Þórður Magnússon
Fjörugir tímar þar sem hjólað er undir leiðsögn
þjálfara í takt við skemmtilega tónlist.
Mjög mikil brennsla og góð þjálfun.
Tímarnir eru fjölbreyttir þar sem hjólað
er allan tímann eða tímanum skipt
í spinning og styrktaræfingar.
Hjólaðu þig í form
Frír prufutími
Spinningtímar
mán. mið. og fös. kl 12.00 og 17.15