Morgunblaðið - 07.05.2013, Page 8

Morgunblaðið - 07.05.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013 Fallegir toppar peysur og bolir fyrir konur á öllum aldri Stærðir S-XXXL Einnig eigum við alltaf vinsælu velúrgallana Stærðir S-XXXL Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Ný sending Hinn öflugi lögmaður, SigurðurG. Guðjónsson, sagði frá því í umræðuþætti Ríkissjónvarpsins að hann hefði verið félagi í Samfylk- ingunni frá stofnun flokksins.    Í framhaldi af þvísagðist hann hafa kosið Samfylk- inguna í síðustu kosningum.    Tók Sigurðursérstaklega fram, án þess að hafa verið um það spurður, að hann skammaðist sín ekkert fyrir það að hafa varið atkvæði sínu með þessum hætti.    Sú yfirlýsing varð skiljanlegriþegar frá leið. Því hinn ágæti lögmaður var ekkert að skafa utan af því þegar hann fjallaði um fram- göngu flokksins síns á síðasta kjör- tímabili.    Nefndi hann, auk margs annars,sérstaklega meinlokuna um að stjórnarskrá lýðveldisins hefði haft eitthvað með „hrunið“ að gera. Enda hefði sú stjórnskipun sem skráin sú segir fyrir um haldið algjörlega í þeim hamförum sem urðu, sem var ekki sjálfgefið.    Hann furðaði sig einnig á sí-felldum árásum á sjávar- útveginn sem reynst hefði ein styrkasta stoðin á meðan þjóðin var að ná vopnum sínum á ný.    En myndin sem lögmaðurinndró upp af fráfarandi for- sætisráðherra var minnisstæðust. Jóhanna hafi verið með öllu ófær um að tala að gagni við nokkurn mann nær sem fjær og vissi sjaldn- ast mikið um hvað væri að gerast í kringum hana. Þessi lýsing hljóm- aði næstum því óþægilega trú- verðug. Sigurður G. Guðjónsson Lögmaður lýsir ástandi STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.5., kl. 18.00 Reykjavík 8 léttskýjað Bolungarvík 1 skýjað Akureyri 4 alskýjað Kirkjubæjarkl. -5 léttskýjað Vestmannaeyjar -15 skýstrókar Nuuk -3 snjóél Þórshöfn 9 léttskýjað Ósló 17 léttskýjað Kaupmannahöfn 13 heiðskírt Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 10 heiðskírt Lúxemborg 21 heiðskírt Brussel 20 heiðskírt Dublin 16 skýjað Glasgow 12 skýjað London 20 heiðskírt París 17 heiðskírt Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 21 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 20 skýjað Moskva 12 skýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 23 heiðskírt Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 20 léttskýjað Róm 16 léttskýjað Aþena 23 heiðskírt Winnipeg 20 skýjað Montreal 22 léttskýjað New York 14 alskýjað Chicago 17 alskýjað Orlando 20 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:38 22:12 ÍSAFJÖRÐUR 4:24 22:36 SIGLUFJÖRÐUR 4:06 22:19 DJÚPIVOGUR 4:03 21:46 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það er verið að skoða þessi mál inn- an Orkuveitu Reykjavíkur. Vonandi verða málin farin að skýrast á næsta stjórnarfundi Orkuveitunnar 17. maí næstkomandi,“ segir Kjartan Magn- ússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, um hugmyndir fyrir- tækisins Carbon Recycling International um að vinna verðmæti úr koldíoxíðs- og brennisteins- vetnismengun frá Hellisheiði. Eins og Morgunblaðið greindi frá sl. föstudag hafa forsvarsmenn Car- bon Recycling hugmyndir um að reisa verksmiðju sem ynni metanól úr koldíoxíði og brennisteinssýru úr brennissteinsvetni frá útblæstri virkjunarinnar á Hellisheiði. Hljóðar kostnaðaráætlun upp á 6-7 milljarða. Afgreiðslu tillögunnar frestað Kjartan er stjórnarmaður í OR og flutti á þeim vettvangi tillögu 15. febrúar síðastliðinn um að kannað yrði hvort flötur væri á samstarfi milli Carbon Recycling og OR um förgun mengunar á Hellisheiði með því að endurvinna úr henni afurðir. Að sögn Kjart- ans var afgreiðslu tillögunnar frest- að að ósk meiri- hlutans, en dregið hafi til tíðinda á stjórnarfundi 5. apríl þegar sam- þykkt var að skoða málið ræki- lega. Felur sú skoðun í sér að kostn- aður við hugmyndir CRI verður bor- inn saman við kostnað við aðrar leiðir, þ.m.t. niðurdælingu koldíoxíðs og brennisteinsvetnis í jarðlög til förgunar. Verkefni sem þurfi að leysa Brennisteinsvetnismengun frá Hellisheiðarvirkjun hefur verið nokkuð til umræðu en hert ákvæði um styrk efnisins í andrúmslofti taka að óbreyttu gildi 1. júlí 2014. Kallar það á auknar mengunarvarnir. Kjartan segir brýnt að draga úr menguninni. „Það segir sig sjálft að þetta er verkefni sem við þurfum að takast á við og leysa.“ OR kanni fýsileika verksmiðju á Hellisheiði Kjartan Magnússon Hæstu greiðslur ríkisins til stjórn- málasamtaka á nýliðnu kjörtímabili runnu til Samfylkingarinnar, alls 375 milljónir kr. Ríkið greiddi alls 1.224 milljónir kr. til stjórnmála- samtaka á árunum 2010 til 2013, samkvæmt samantekt fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Ríkið greiðir styrki til stjórn- málasamtaka, samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni. Á þessu kjör- tímabili hefur verið varið 290 til 334 milljónum til þess á ári. Fjár- framlagið skiptist á milli flokka sem fengið hafa kosna menn á þing eða náð 2,5% atkvæða og skiptingin er hlutfallsleg eftir atkvæðamagni. Sjálfstæðisflokkur fékk næst- hæstu greiðslurnar, alls 298 millj- ónir á fjórum árum, Vinstrihreyf- ingin - grænt framboð 273 milljónir, Framsóknarflokkur 186 millj. og Borgarahreyfingin 91 milljón. Til viðbótar þessum greiðslum kemur árlegt framlag til þing- flokka. Þá er stjórnmálasamtökum sem bjóða fram í öllum kjördæmum nú heimilt að sækja um fjárstyrk úr ríkissjóði til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu. Morgunblaðið/Ómar Samfylkingin fékk 375 milljónir kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.