Morgunblaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 16
VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við erum enn að tapa. Á því leikur enginn vafi. Olíuiðnaðurinn er rík- asti og valdamesti iðnaður sögunnar og hann hefur haft nægan auð og völd til að hindra alvöru breytingar. Nú erum við loksins – og það kann að vera um seinan – að byggja upp hreyfingu í þeirri trú að auðurinn láti undan krafti fjöldans,“ segir Bill McKibben, stofnandi hreyfingarinn- ar 350.org, um baráttu sína fyrir aðgerðum í loftslagsmálum. „Fyrir bandarísku þingkosning- arnar í fyrra gaf olíurisinn Chevron stærsta kosningaframlag sögunnar. Því var ætlað að tryggja að fulltrúa- deildin myndi vera í stjórn fólks sem myndi ekki gera neitt í loftslagsmál- um. Það tókst. Ekkert mun því ger- ast næstu tvö árin. Áður en ég byrj- aði að starfa í sjálfboðavinnu fyrir þennan málstað gerði ég mér ekki grein fyrir því hversu mikil áhrif hagsmunaverðir hafa í Washington. Stjórn Baracks Obama forseta hefur sýnt að hún er betri en ríkis- stjórn George W. Bush. En það er ekki mikið afrek. Stjórn Obamas er ekki að veita þá forystu sem við þurf- um og það er ein af ástæðunum fyrir því að við leggjum hart að okkur í Bandaríkjunum,“ segir McKibben sem hélt meðal annars fyrirlestur í Háskólabíói í stuttri heimsókn sinni til landsins um síðustu helgi. Mótmæli um heim allan McKibben stofnaði hreyfinguna 350.org árið 2007 og skipulagði sama ár mótmæli á um 2.000 stöðum vítt og breitt um Bandaríkin. Dregur hreyfingin nafn af því markmiði að magn koldíoxíðs í andrúmsloftinu verði ekki meira en 350 milljónustu hlutar en það er nú 400 millj. hlutar. Tveim árum síðar, 24. október 2009, varð hreyfingin alþjóðleg með mót- mælum á 5.200 stöðum í 181 þjóðríki. Var tilefnið að reyna að hafa áhrif á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Kaupmannahöfn sama ár. McKibben segir ráðstefnuna í Kaupmannahöfn hafa brugðist. „Ráðstefnan var misheppnuð og hún var fíaskó. Næsta prófið verður í París árið 2015. Þá munum við sjá hvort ríkisstjórnir heims hafa náð árangri síðan í Kaupmannahöfn. Út- litið nú er dökkt, einkum vegna þess að svo lítill árangur hefur náðst í Bandaríkjunum,“ segir McKibben og vísar til þess að næsta loftslags- ráðstefna SÞ fer fram í frönsku höfuðborginni haustið 2015. Þrátt fyrir að þessi lykilvettvang- ur fyrir aðgerðir í loftslagsmálum hafi ekki staðið undir væntingum segir McKibben að hreyfingin 350.org hafi unnið ýmsa sigra. „Við höfum unnið nokkra smáa sigra. Við komum í veg fyrir upp- setningu stórrar olíuleiðslu frá tjörusöndunum í Kanada. Okkur hefur einnig orðið ágengt í Ástralíu með því að koma í veg fyrir að nýjar kolanámur séu opnaðar. Heilt yfir erum við þó að tapa. Á því leikur enginn vafi. Hitastig jarðar er að hækka mjög hratt af mannavöldum. Ég held að fyrr en síðar muni móðir náttúra hafa sannfært okkur öll um nauðsyn þess að grípa til aðgerða.“ – Fyrir sjö árum var loftslags- myndin Óþægilegur sannleikur sýnd víða um heim. Varaði Al Gore, fyrr- verandi varaforseti Bandaríkjanna, þar við því að framundan væri vendi- punktur mikilla breytinga á veður- farinu, ef ekki yrði gripið í taumana. Þú getur þess að baráttan sé að tap- ast. Er ekki hætt við því að það verði annars konar vendipunktur með því að almenningur fari að sætta sig við ósigur, að baráttan sé töpuð? Annar vendipunktur að nálgast „Nei. Ég held að það sem virki- lega er ástæða til að hafa áhyggjur af – og við kunnum að vera að nálg- ast þann vendipunkt – sé að eðlis- fræðin á bak við þróunina verði óvið- ráðanleg. Ísinn á Norðurskautinu bráðnaði mikið í fyrrasumar. Ný gögn úr gervihnöttum benda til þess að við höfum misst 80% af ísnum sem var þar fyrir 40 árum. Það er mikill vendipunktur. Þessi þróun hefur í för með sér breytt veðurfar á norðurhveli. Freð- mýrar þiðna og við það losnar metan út í andrúmsloftið [innsk. metan er talin skæð gróðurhúsalofttegund]. Það veldur mér áhyggjum. Ég held að við getum byggt upp hreyfingu sem hefur áhrif. Ég veit að mörgum er mjög umhugað um loftslagsmál. Ég veit hins vegar ekki hvort við getum byggt hana upp tímanlega.“ Kreppan í forgrunni – Loftslagsmálin voru ofarlega á blaði í stjórnmálunum fyrir fjár- málakreppuna. Nú eru þau ekki áberandi í umræðunni og hafa til dæmis fallið í skuggann af evru- kreppunni í Evrópu. Eru vísbend- ingar um að þetta muni snúast við? „Ég efast um að á næstu árum muni Grikkland og Spánn verða mjög mikilvægir þátttakendur í mót- un orkustefnu í stjórnmálunum. Grikkir og Spánverjar hafa um aðra hluti að hugsa líkt og Ísland hafði um aðra hluti að hugsa fyrir nokkrum árum. Það er hins vegar athyglisvert að þessi lönd hafa byggt upp mikla innviði fyrir endurnýjanlega orku. Þýskaland, stærsta hagkerfi Evr- ópu, er að byggja upp slíka innviði mjög hratt. Þjóðverjar hafa sýnt fram á að það er hægt að nota þessa tækni á umfangsmikinn hátt í nú- tímahagkerfi. Það er hvorki auðvelt né ódýrt en það er gerlegt. Það er rétt hjá þér að efnahagsmálin eru núna í forgrunni.“ – Er raunhæft að snúa þróuninni við eða þarf að aðlagast hlýnuninni? „Það er áhugaverð spurning. Við þurfum augljóslega að aðlagast viss- um breytingum. Við höfum þegar hækkað hitann um eina gráðu og bráðum munum við hafa hækkað hit- ann um tvær gráður. Það mun út- heimta mikla aðlögun. Við verðum líklega komin þangað innan 20 ára ef losun koldíoxíðs held- ur áfram í sama mæli. Vandinn er sá að þótt við getum aðlagast slíkri hlýnun getum við ekki aðlagast enn frekari hlýnun. Sú hlýnun mun verða nema við hættum að nota olíu og gas. Við erum að tala um 4-5 gráðu hlýn- un fyrir lok aldarinnar. Öll gögn benda til að það sé engin leið til að bregðast við því. Landbúnaður mun til dæmis eiga erfitt um vik. Við þurfum að aðlagast því sem er ekki lengur hægt að koma í veg fyrir og koma í veg fyrir það sem er ekki hægt að aðlagast.“ Loftslagshreyfingin að tapa  Einn þekktasti baráttumaður Bandaríkjanna í loftslagsmálum segir stjórn Obama valda vonbrigðum  Segir baráttuhópa vera að falla á tíma  Ýmsir sigrar hafi þó unnist í baráttunni á síðustu árum Morgunblaðið/Árni Sæberg Baráttumaður McKibben hefur lengi beitt sér í loftslagsmálum. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013 McKibben segir aðspurður að það hafi spurst út að Íslend- ingar hafi unnið að því að draga úr losun gróð- urhúsaloftteg- unda. „Það er mikilvægt og fólk kann að meta það. Það olli því mörgum vonbrigðum sem eru að leita að forystu í þessum málaflokki að sjá að Ísland vilji leita að ol- íu í samstarfi við Norðmenn. Við þurfum að sjá ríki ákveða að láta kolefnið kyrrt liggja í jörðinni. Það felur auðvitað í sér að láta verðmæti ósnert í jörðinni og þess vegna er það erfitt.“ Spurður hvort innleiðing endurnýjanlegrar orku sé nógu hröð til skipta máli í stóru myndinni segir McKibben að svarið sé nei. Ódýrt jarðgas úr leirsteini (e. shale gas) hafi grafið undan innleiðingu vind- orku og annarra orkugjafa. McKibben segir að breyting hafi orðið á baráttu samtaka hans fyrir átján mánuðum. „Á síðustu 18 mánuðum höf- um við staðið fyrir umfangs- mikilli borgaralegri óhlýðni í Bandaríkjunum. Hún er raunar sú umfangsmesta síðan í mannréttindabaráttunni á sjötta og sjöunda áratugnum. Þá höfum við hrundið af stað umfangsmikilli herferð í Bandaríkjunum, herferð sem er að breiðast út til annarra landa, en hún felur í sér að reyna að fá hina ýmsu aðila til að selja hlutabréf sín í olíu- fyrirtækjum og rjúfa öll tengsl við olíu- og gasiðnaðinn,“ segir McKibben sem er hvað þekkt- astur fyrir bók sína The End of Nature, sem út kom 1989. Það var vegna dræmra við- bragða við varnaðarorðum bókarinnar um loftslagsbreyt- ingar sem hann ákvað að láta til sín taka með aðgerðum. Ísland láti olíuna kyrra OLÍUSTEFNAN GAGNRÝND „Finnst ykkur þetta ekki svo- lítið harkalegt?“ spurði Jóna Benediktsdóttir, bæjarfulltrúi Ísafjarðarlist- ans, við umræð- ur í bæjarstjórn um reglur um kattahald í Ísafjarðarbæ. Hún vís- aði til ákvæðis sem lesa mátti sem svo að heimilt væri að fjarlægja kattaeiganda af heimili sínu ef hann vanrækti skyldur sínar eða bryti ítrekað gegn reglum. Svar annarra bæjarfulltrúa var játandi og því var orðalaginu breytt. Umræður urðu um fleiri grein- ar og nauðsyn þess að setja slíkar reglur yfirleitt. Einn bæj- arfulltrúi auglýsti eftir reglum fyrir önnur dýr, svo sem hænur, grísi og páfagauka. Annar sagði ekki til neins að setja svona regl- ur ef ekki væri mannafli hjá bæn- um að framfylgja þeim. Regl- urnar voru að lokum samþykktar. Fullharkalegar regl- ur um kattahald? Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga Úrval burðarpoka og ferðarúma ÞAR SEM BARN ER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.