Morgunblaðið - 07.05.2013, Page 18

Morgunblaðið - 07.05.2013, Page 18
BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Íslensk fjárfesting kom með 465 milljónir í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans í mánuðinum. Í febr- úar 2012 kom fyrirtækið með 381 milljón, samkvæmt skuldabréfum sem gefin voru út við það tilefni. Fyr- irtækið er í jafnri eigu Arnars Þór- issonar og Þóris Kjartanssonar. Arn- ar segir í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið sé að byggja upp hót- elstarfsemi hér á landi. Fjármunirn- ir hafi runnið í þá uppbyggingu. Ís- lensk fjárfesting á Domus Guesthouse og Reykjavík Residence Hótel sem eru í miðbænum. Fjárfestingarleið Seðlabankans gengur út á að fjárfestar komi með gjaldeyri til Íslands og skipti honum fyrir krónur og fjárfesti hér á landi til lengri tíma. Gulrótin fyrir fjár- magnseigendur er að þeir fá um 20% afslátt af krónunum miðað við skráð gengi Seðlabankans. Kilroy-fé til Íslands Aðspurður hvaðan hið erlenda fé sem þeir flytja til landsins komi, seg- ir hann að Íslensk fjárfesting eigi meirihlutann í ferðaskrifstofukeðj- unni Kilroy International, sem er með starfsemi á Norðurlöndum og í Hollandi. Nýjasta hótelið á vegum fyrirtæk- isins var opnað 1. mars að Hverfis- götu 21, en húsið var áður í eigu Fé- lags bókagerðarmanna. Fram hefur komið í fjölmiðlum að innrétta átti þar tíu íbúðir á fjórum hæðum. Fé- lagið rekur einnig hótel að Hverfis- götu 45 sem áður hýsti m.a. sendiráð Noregs og Söngskólann í Reykjavík, og var breytt í 15 íbúða hótel. Þar á bak við eru tvö hús á Veghúsastíg í hótelrekstri á vegum félagsins. Arnar segir að þurft hafi að end- urbyggja fasteignirnar til að reka þar hótelin. „Þessi uppbygging hefur fyrst og fremst átt sér stað á undan- förnum þremur árum,“ segir hann. Stjórnarformaður CAOZ Arnar og Þórir stofnuðu Íslenska fjárfestingu árið 1999. Arnar er auk þess framleiðandi og stjórnarfor- maður CAOZ, sem framleiddi ís- lensku teiknimyndina Hetjur Val- hallar - Þór. Íslensk fjárfesting fjárfestir fyrst og fremst á þremur sviðum: Ferða- þjónustu, heilbrigðisþjónustu og í fasteignum. Árið 2007 keypti félagið meirihluta í ferðaskrifstofukeðjunni Kilroy International og er með rúm- lega 350 starfsmenn. Fjárfestingar fyrirtækisins á heil- brigðissviði eru þrjár: Það á hlut í sprotafyrirtækinu ValaMed sem gerir rannsóknir á krabbameini til að sannreyna einstaklingsbundna með- ferð til að útiloka þau lyf sem ekki eru líkleg til að vinna á krabbameins- frumunum. Fyrir fjórum árum fjár- festi það í rekstri hjúkrunarheimilis- ins Sóltúns en frá árinu 2002 hefur það haft þjónustusamning við ríkið. Arnar segir það hafi reynst vel að ríkið úthýsi þjónustu sem þessari. Jafnframt er það hluthafi í Sól- stöðum, sem sérhæfa sig í að útvega heilbrigðisstarfsfólki afleysingastörf til lengri eða skemmri tíma hér á landi og erlendis. Fyrirtækið er einnig í fasteigna- rekstri og fasteignaþróun, og stóð til að mynda fyrir umfangsmiklum breytingum á Grandagarði 8, þar sem nú er t.d. til húsa tölvuleikja- framleiðandinn CCP og Sjóminja- safnið Víkin. 465 milljónir króna renna í uppbyggingu ferðaþjónustu  Meirihlutaeigendur ferðaskrifstofunnar Kilroy í umfangsmikilli uppbyggingu Hótel Hverfisgötu 45, sem áður hýsti m.a. sendiráð Noregs og Söngskólann í Reykjavík, var breytt í 15 íbúða hótel. Morgunblaðið/Kristinn Kilroy er í sex löndum » Íslensk fjárfesting hefur á undanförnum þremur árum staðið fyrir uppbyggingu á hótelrekstri í miðborginni. » Það á Domus Guesthouse og Reykjavík Residence Hótel. » Jafnframt á ÍF meirihlut- ann í ferðaskrifstofunni Kilroy sem er með starfsemi í sex löndum. » Íslensk fjárfesting er í jafnri eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar. Arnar er jafnframt stjórnarformaður CAOZ sem framleiddi teikni- myndina Hetjur Valhallar - Þór. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Stefnir hf., fyrir hönd sjóða í rekstri félagsins, á orðið tæplega 15,8% hlut í Icelandair. Þetta kemur fram í flöggun í Kauphöllinni. Þar kom fram í gær að Stefnir hf. hefði fest kaup á 50 milljónum hluta í Icelandair í gærmorgun en Stefnir átti fyrir tæplega 739 milljónir hluta. Við kaupin fór eignarhlutur Stefnis í 15,77% og var því flaggað að eignarhluturinn fór yfir 15%. Miðað við verð á hlutum í Icelandair í gærmorgun er líklegt að þessi kaup Stefnis nemi um 675 milljónum króna. Stefnir hf., sem er dótturfélag Arion banka, er þannig orðinn stærsti eigandi Icelandair eftir þessi kaup. Stefnir orðinn stærstur ● Tölvuárásir á notendur Twitter sýna að tölvuþrjótar beita sífellt þróaðri og flóknari aðferðum, ekki síst gegn fyr- irtækjum. Um slíkt verður m.a. fjallað á morgunverðarráðstefnu Nýherja á morgun, samkvæmt tilkynningu frá Ný- herja. Þar kemur fram að öryggis- sérfræðingar frá IBM og SecureDevice muni fjalla um öryggismál upplýs- ingakerfa og lausnir, hvort heldur þær birtast í snjalltækjum, fartölvum eða tölvukerfum fyrirtækja. Aðferðir tölvuþrjóta verða sífellt þróaðri Það hefur heldur fækkað í bið- röðum við vinnumálaskrifstofur á Spáni undanfarinn mánuð og eru nú tæpar 5 milljónir á atvinnuleys- isskrá. Fækkaði um rúmlega 46 þúsund á milli mars og apríl á atvinnuleysiskrá. 27,16% atvinnuleysi á fyrsta ársfjórðungi Í apríl í fyrra voru hins vegar mun færri á atvinnuleysisskrá en þeim hefur fjölgað um 244.958 á milli ára. Ríkisstjórn Mariano Rajoy fagnaði þessum tölum vinnumálaráðuneytis Spánar í gær og sagði atvinnumálaráð- herrann, Engracia Hidalgo, að stjórnvöld á Spáni myndu áfram vinna að því að draga úr atvinnu- leysi í landinu. Á fyrsta ársfjórðungi nam atvinnuleysið 27,16% á Spáni og hefur ekki verið jafn mikið eftir að lýðræði var komið á eftir frá- fall Francos einræðisherra. AFP Spánn Mótmælendur í Barcelona við höfuðstöðvar spænska bankans Bankia krefjast þess að útburði Spánverja úr húsnæði sínu verði hætt. Tæplega 5 millj- ónir án vinnu  Atvinnulausum fækkaði á Spáni                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +01-2+ ++3-., 21-43. +/-0.. +.-.+, +24-, +-+550 +.3-5, +,+-. ++5-1. +01-5, ++,-1/ 21-31. +/-/45 +.-.5. +24-0, +-+.12 +.,-+. +,2-+2 215-0,13 ++5-4, +0+-1/ ++,-34 21-35. +/-//, +.-0+/ +23-2 +-+.45 +.,-5/ +,2-,3 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.