Morgunblaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Hádegisseðill • Mánudag til föstudags kl. 11.30-14.00
Njóttu þess að borða
góðan mat í hádeginu
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur
hæðum í miðbæ Reykjavíkur
- Súpa dagsins með heimabökuðu brauði .......................... kr. 790
- Kjúklingasúpa með grænmeti, chilly og núðlum ........... kr. 1.290
- Sjávarréttasúpa Caruso................................................ kr. 1.350
- Kjúklingasalat m. hunangsgljáðum kjúklingastrimlum .. kr. 1.390
- Tómatsalat m. mozzarella og ruccolasalati í jurtaolíu .... kr. 1.250
- Salat Templada m. hvítlauksristuðum nautastrimlum .... kr. 1.650
- Caruso chef´s salat ...................................................... kr. 1.290
- Caruso kjötlasagna...................................................... kr. 1.390
- Spaghetti carbonara .................................................... kr. 1.390
- Hvítlauksristaðar risarækjur Risotto ............................. kr. 1.450
- Ferskasta sjávarfang dagsins ....................................... kr. 1.670
- Pítsa með tveimur áleggstegundum að eigin vali .......... kr. 1.390
- Pítsasamloka með kjúkling, pepperoni og salati ........... kr. 1.390
- Ristað lambafille með villisveppum og parmesan.......... kr. 2.890
- Blandaður ítalskur krapís með ávöxtum.......................... kr. 950
- Panna Cotta með ávöxtum og jarðarberjasósu................. kr. 950
Hjá okkur
er alltaf
notalegt
bæði í
hádeginu
og á kvöldin
www.gilbert.is
Kínverskur slátrari verkar kjöt á markaði í Peking í
Kína í gær og undirbýr að gera afurð sína söluhæfa, í
kjötverslun sem sérhæfir sig í sölu á nauta- og kinda-
kjöti.
Kínversk stjórnvöld gáfu það út síðastliðinn föstudag,
að um 900 manns hefðu verið handteknir vegna gruns
um aðild að stórfelldu kjötsölusvindli, sem fólst í því að
selja rottu- og refakjöt sem væri um nauta- og kindakjöt
að ræða.
Kínversk lögregluyfirvöld hafa frá því í janúar hand-
tekið yfir 900 meðlimi glæpagengis sem taldir eru hafa
haft jafnvirði rúmra 116 milljóna króna upp úr krafsinu.
AFP
Vandræði Kínverja vegna kjötsvindlsins
Framtakssjóður Íslands hefur á síð-
ustu tæplega þremur árum innleyst
um 170% hagnað á kaupum sínum á
bréfum í Icelandair, en auk þess á
sjóðurinn enn eftir 7% af þeim hluta-
bréfum sem keypt voru í félaginu ár-
ið 2010. Sjóðurinn seldi í dag um 5% í
félaginu á genginu 13,39, en það
nemur um 3,3 milljörðum. Ef öll bréf
sjóðsins hefðu verið seld á gengi
dagsins í dag væri heildarhagnaður
sjóðsins á síðustu þremur árum
247%.
Í júní 2010 keypti Framtakssjóð-
urinn 1,45 milljarða hluti í Icelandair
á genginu 2,5, eða fyrir alls 3,6 millj-
arða króna. Heildareign sjóðsins
nam þá 30%, en meðal seljenda voru
Íslandsbanki, auk þess sem kröfu-
hafar breyttu skuldum sínum í hluta-
bréf sem Framtakssjóðurinn keypti.
Síðan þá hefur hann selt um 23%, í
lok árs 2011 og 2012 og svo í gær 5%.
Í byrjun nóvember árið 2011 seldi
sjóðurinn 10% hlut í Icelandair á
meðalgenginu 5,423 fyrir um 2,7
milljarða. Ári seinna var aftur komið
að sölu og þá seldi sjóðurinn 7% hlut
á 1,8 milljarða. Í gær var svo tilkynnt
um sölu á 5% hlut fyrir 3,3 milljarða.
Heildarhagnaður sem sjóðurinn
hefur innleyst á þessu tímabili nem-
ur því um 170%, eða 4,2 milljörðum
króna. Ef tekið er tillit til markaðs-
virðis bréfanna sem sjóðurinn á
áfram er ávöxtunin 247% á þremur
árum, eða 8,9 milljarðar.
Nánar á mbl.is thorsteinn@mbl.is
Ávöxtunin á bréfum Ice-
landair 247% á þremur árum
Framtakssjóður hefur hagnast um 4,2 milljarða króna
Morgunblaðið/Ernir
Ávöxtun Eign Framtakssjóðs í Ice-
landair hefur skilað góðri ávöxtun.
Valitor birtir mánaðarlega sam-
anburð á veltutölum milli ára sem
sýna breytingar á tilteknu tímabili
á notkun íslenskra Visa kred-
itkorta, samkvæmt því sem kemur
fram í tilkynningu frá Valitor.
„Í apríl varð heildarveltuaukning
á Visa kreditkortaviðskiptum um
4,8% ef miðað er við sama tímabil í
fyrra. Notkun innanlands jókst um
5,6% en erlendis var veltuaukn-
ingin 0,8%.
Tímabilið sem miðað er við, er
frá 22. mars til 21. apríl, annars
vegar 2012 og hins vegar 2013,“
segir orðrétt í fréttatilkynningu frá
Valitor.
Heildarveltuaukning í
aprílmánuði var um 4,8%
Morgunblaðið/ÞÖK
Kreditkort Veltuaukning var mun
meiri innanlands en utan í apríl.
Góður gangur er í ríkisbréfaút-
gáfu það sem af er ári, sam-
kvæmt því sem fram kemur í
Morgunkorni greiningar Íslands-
banka í gær. „Útgáfan frá ára-
mótum er komin talsvert umfram
helming af áætlaðri 90 ma.kr.
heildarútgáfu ársins. Þá hefur
niðurstöðukrafa útboðanna al-
mennt farið lækkandi og rík-
issjóður því fjármagnað sig á
hagstæðari kjörum eftir því sem
árið hefur liðið,“ segir orðrétt í
Morgunkorni. Í útboði Lánamála
sl. föstudag hafi eftirspurn verið
umtalsverð eins og greint var frá
hér í Morg-
unblaðinu sl.
laugardag. Ekki
liggi fyrir hverj-
ir voru helstu
kaupendur í út-
boðinu, en
greining Ís-
landsbanka tel-
ur líklegt að er-
lendir aðilar hafi verið
atkvæðamiklir. Erlendir aðilar
hafi í lok mars átt 73% af úti-
standandi bréfum í RIKB13, og
hafi verið að bæta við sig
RIKB22-bréfum það sem af er ári.
Ríkisbréfaútgáfu miðar vel