Morgunblaðið - 07.05.2013, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Harðstjórnarríki kommúnistans
Kim Jong-uns í N-Kóreu er líklega
einangraðra en nokkurt annað land
heims og neyðin er mikil. En þar
þrífst öflugur svartamarkaður eins
og reyndin var líka í Austur-Evrópu
fyrir hrun kommúnismans. A-
Evrópumenn notuðu þekktar, vest-
rænar sígarettur sem eins konar
neðanjarðar-gjaldmiðil í vöruskipt-
um. Var mikið braskað með þær.
Aftenposten í Noregi vitnar í s-
kóreska blaðið Chosun sem segir að
súkkulaðikexið Choco Pie, sem
framleitt er í S-Kóreu, gegni nú
þessu hlutverki hjá norðanmönnum.
Það sé geysilega vinsælt en sé
stundum notað sem gjaldmiðill.
Stykkið sé selt á 9,5 dollara eða um
þúsund íslenskar krónur. Í hverjum
mánuði skipti nær tvær og hálf millj-
ón af þessum kexkökum um eig-
endur hjá grönnunum fyrir norðan
landamærin. Til séu hópar með allt
að 30 þátttakendum sem eingöngu
stundi smygl og brask með kexið.
Nú gætu kexviðskiptin verið í
hættu. N-Kórea setur hörð skilyrði
fyrir því að á ný verði hafin starf-
semi á sameiginlegu iðnaðarsvæði
Kóreuríkjanna tveggja í Kaesong.
Þar hefur selst geysimikið af Choco
Pie sem fyrirtæki sunnanmanna
hafa notað til að hygla blásnauðum,
n-kóreskum starfsmönnum sínum.
Brask með vinsælt súkkulaðikex
léttir líf Norður-Kóreumanna
Stykkið af suður-kóresku Choco Pie selst á um þúsund krónur í ríki Kims
Vonin Kexið er orðið tákn um góð
kjör sunnanmanna og drauma
granna þeirra.
Frost í Kaesong
» Engin starfsemi hefur verið
á Kaesong-svæðinu undan-
farnar vikur eftir að N-Kórea
lokaði nýlega landamærunum.
» S-Kórea útvegaði tækni og
þekkingu í Kaesong en frá N-
Kóreu kom ódýrt vinnuafl.
» Lokunin er skýrð með
óánægju norðanmanna vegna
sameiginlegra heræfinga S-
Kóreu og Bandaríkjanna.
Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi
hafa ef til vill beitt efnavopnum í
hernaði sínum, að sögn fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna en ekki eru fyrir
hendi ótvíræðar sannanir. Um er að
ræða taugagasið sarín. Rannsókn
málsins er ekki lokið og ekki er úti-
lokað að stjórnarher Bashars al-As-
sads forseta hafi einnig gerst sekur
um beitingu efnavopna.
Utanríkisráðherra Frakklands,
Laurent Fabius, sagði í gær að leita
bæri friðsamlegrar lausnar á deilun-
um í Sýrlandi en margir óttast að
þær breiðist nú út eftir flugskeyta-
árásir Ísraela á birgðastöð Sýrlands-
hers í Damaskus um helgina.
„Samkvæmt þeim vitnisburðum
sem okkur hafa borist hafa uppreisn-
armenn beitt efnavopnum, hafa beitt
sarín-gasi,“ sagði Carla del Ponte,
sem rannsakar mannréttindabrot á
vegum Sameinuðu þjóðanna, á
sunnudag.
Sarín-gas er eitur sem var þróað
af vísindamönnum nasista. Það hefur
verið notað í árásarskyni í a.m.k. þrí-
gang, þar af tvisvar af japönskum
sértrúarsöfnuði. Gasið, upphaflega
notað sem skordýraeitur, dregur
fólk til dauða með því að lama tauga-
kerfið og afar lítinn skammt þarf til
þess að valda fólki heilsutjóni.
Tyrkir gera nú blóðprufur á Sýr-
lendingum sem hafa flúið yfir landa-
mærin. Ætlunin er að kanna hvort
efnavopnum hafi verið beitt gegn
þeim, niðurstöðurnar liggja ekki fyr-
ir. Rússar hvöttu í gær til þess að
Vesturveldin notuðu ekki deiluna um
notkun efnavopna í áróðri gegn
Assad. kjon@mbl.is
Gætu hafa
notað efnavopn
Óvinir Assads beita hugsanlega saríni
Barn í héraðinu Waziristan í norð-
austanverðu Pakistan hefur greinst
með lömunarveiki, að sögn AFP.
Ættflokkahöfðingjar á svæðinu
fóru að ráðum talíbana í júní í fyrra
og bönnuðu bólusetningu barna á
þeirri forsendu að aðgerðir stjórn-
valda gegn veikinni væru skálka-
skjól fyrir njósnara.
Lömunarveiki er bráðsmitandi
en hefur að mestu verið útrýmt í
heiminum með bólusetningu. Pak-
istan, Afganistan og Nígería eru
einu ríkin þar sem tilfellum hefur
fjölgað verulega frá 2005.
Talíbanar og aðrir íslamistahóp-
ar með tengsl við al-Qaeda eru
mjög öflugir í norðanverðu Waz-
iristan en einnig handan landamær-
anna í Afganistan. Margir íbúanna,
sem flestir eru bláfátækir, óttast að
með bólusetningunni sé verið að
gera múslíma ófrjóa. kjon@mbl.is
Lömunarveiki grein-
ist eftir að talíbanar
banna bólusetningu
PAKISTAN
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Forseti Frakklands, François Hol-
lande, hefur nú verið við völd í ár en
hann er óvinsælasti maðurinn sem
hefur setið á þeim stóli í manna
minnum. Atvinnuleysi hefur ekki
mælst jafn mikið í sextán ár, hag-
vöxtur er sáralítill og 76% aðspurðra
í nýrri könnun segjast hafa orðið
fyrir vonbrigðum með Hollande.
Þjóðverjar hafa þvingað fram
stefnu á evrusvæðinu sem kennd er
við aðhald: ríkin eiga að minnka út-
gjöldin til að lækka skuldir og íbú-
arnir sætta sig við lægri tekjur. Það
hafi þeir sjálfir gert fyrir 10 árum og
standi nú betur en öll hin evruríkin.
En efasemdamenn segja að aðstæð-
ur hafi verið allt aðrar 2003. Þýska-
land hafi getað sótt fram á mörkuð-
um annars staðar í álfunni en nú ríki
þar samdráttur, kaupgeta sé lítil og
almennt vonleysi ríkjandi.
Portúgalar eru hlýðnir og ætla nú
að fækka ríkisstörfum um 30 þús-
und. Það merkir vafalaust að allt
þetta fólk mun kaupa minna en áður
og enn dregur úr hagvextinum,
a.m.k. í bili. Aðhaldið er farið að
breytast í eins konar eilífðarvél sem
viðheldur kreppunni á evrusvæðinu,
segja gagnrýnendur Angelu Merkel
Þýskalandskanslara. Einn þeirra er
áðurnefndur Hollande.
Þá mætast stálin stinn
Nú bendir margt til þess að Hol-
lande reyni að bæta stöðuna heima
fyrir með því að leggja til atlögu við
stefnu Merkel. Pierre Moscovici,
fjármálaráðherra Frakklands, sagði
í gær að „kredda aðhaldsins“ væri úr
sögunni. „Við höfum verið að biðja
menn að ýta undir hagvöxt í heilt ár.
Aðhald eitt út af fyrir sig tefur fyrir
vexti,“ var haft eftir Moscovici á vef
Bloomberg-fréttastofunnar.
Áður hafði fjármálaráðherra
Þýskalands boðið meiri sveigj-
anleika gagnvart kröfum
Frakka um að fá meiri tíma
til að rétta af fjárlagahallann
sem er meiri en kröfur
eru gerðar um á evru-
svæðinu. En spurningin er
hvort þýskir ráðamenn eru að
mati Frakka reiðubúnir að
ganga nógu langt í sveigjanleika.
Frakkar segja „að-
haldskreddu“ fyrir bí
Vilja slaka á kröfum um aðgerðir gegn fjárlagahalla
Japanir eru miklir blómavinir, lítil stúlka vappaði í gær
um akur í Showa-garðinum í Tókýó þar sem valmúi, er
ber á ensku heitið Iceland poppy (Íslandsvalmúi), var í
fullum blóma. Þrátt fyrir heitið vex umrætt blóm ekki
hér á landi en samt víða á norðlægum slóðum og í fjöll-
um Mið-Asíu.
AFP
Akur í fullum blóma í Tókýó
Ný skoðanakönnun í Svíþjóð
sýnir að einungis 9% Svía vilja
skipta evrunni út fyrir sænsku
krónuna. 76% eru því andvíg.
Nú styðja 42% aðildina að ESB
en 25% vilja ganga út, 2010 var
stuðningur við aðild 53%. 40%
telja að aðildin hafi haft frekar
eða mjög neikvæð áhrif á sjálf-
stæði Svía en 9% frekar eða
mjög jákvæð áhrif. Þá
vilja einungis 11%
Svía að ESB verði
að einu sam-
bandsríki.
Aðeins 9%
vilja evruna
SVÍAR EFAST UM ESB
Evran Ekkert vin-
sæl hjá Svíum.
Suðvesturland | Vestur
land | Vestfirðir | Norðu
rland | Austurland | Suð
urlandFerðasumar 2012
Ferðasumar 2013
ferðablað innanlands
SÉRBLAÐ
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 13. maí.
Í blaðinu verður
viðburðadagatal sem
ferðalangar geta flett
upp í á ferðalögum
um landið og séð
hvað um er að vera á
því svæði sem verið
er að ferðast um í. –– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið
gefur út sérblað
Ferðasumar 2013
ferðablað
innanlands
föstudaginn
17. maí.