Morgunblaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 27
aðdáunarvert hvað hún stóð keik allt fram undir það síð- asta. Alltaf flott og falleg. Hennar verður sárt saknað af báðum þessum vinkvennahóp- um. Ég votta Eyjólfi, dætrunum og öllum öðrum ástvinum Sjafnar mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Anna Kristjánsdóttir. Hún kom ekki á óvart fréttin af andláti Sjafnar Ólafsdóttur. Við erum mörg sem fylgst höf- um með stríði hennar við hinn mikla vágest sem að lokum sigraði. Víst er að hún tók á móti af alefli og hugrekki enda ekki þekkt fyrir annað en dugnað í hverju sem hún tók sér fyrir hendur. Kiwanisfjöl- skyldan, ekki bara á Íslandi heldur á alþjóðavísu, þekkti hana sem konu sem lætur um sig muna. Ásamt Eyjólfi lagði hún sig fram um að gera veg hreyfingarinnar sem mestan og starfaði alla tíð við hlið hans hvort heldur var hér heima eða í þeim störfum sem Eyjólfi voru falin af alþjóðahreyfing- unni. Í nær 30 ár starfaði Eyj- ólfur á alþjóðavettvangi fyrir Kiwanis, fyrst í Evrópustjórn, síðan í heimsstjórn og var for- seti Kiwanis International 1995-96. Á þeim árum, sem hann sat í heimsstjórn, ferð- uðust þau hjón vítt og breitt um heiminn og voru glæsilegir fulltrúar okkar. Sjöfn vakti at- hygli fyrir framkomu og gjörvi- leik. Eftir að stjórnarstörfum lauk var Eyjólfur ráðinn til að veita forstöðu Evrópuskrifstofu KI, sem þá var verið að setja á laggirnar í Gent í Belgíu. Þar bjuggu þau hjón um nokkurra ára skeið eða þar til Eyjófur var kallaður til að gegna starfi framkvæmdastjóra Kiwanis International í Indianapolis. Á báðum þessum stöðum lagði Sjöfn sig fram um að taka vel á móti Íslendingum sem voru í erindagjörðum á vegum hreyf- ingarinnar og naut ég oft gest- risni þeirra meðan ég var í slík- um erindum. Um hríð starfaði Sjöfn á skrifstofunni í Gent við þýðingar og fleira og var þar sem annars staðar góður liðs- auki. Fyrrverandi umdæmis- stjórar Kiwanis á Íslandi og Færeyjum og eiginkonur þakka samstarf og samverustundir og Kiwanisfjölskyldan þakkar all- an stuðning við málefni Kiw- anis. Samúðarkveðjur færum við Eyjólfi og dætrum þeirra Sjafnar, tengdabörnum og af- komendum þeirra öllum og biðjum þeim blessunar Guðs. Ástbjörn Egilsson, fv. Evrópuforseti Kiwanis. Við Sinawikkonur kveðjum í dag Sjöfn Ólafsdóttur, félaga okkar í Sinawik í Reykjavík. Ég minnist hennar fyrir vand- virkni og nákvæmni í störfum sínum fyrir Sinawik, en tvisvar gegndi hún starfi formanns fé- lagsins með stakri prýði. Það var gott að fá hana Sjöfn aftur til okkar í félagið eftir margra ára fjarveru, vegna starfa er- lendis fyrir Kiwanis með Eyj- ólfi eiginmanni sínum. Ég lít til baka yfir margar góðar sam- verustundir og er mér þá efst í huga þegar hún var síðast með okkur svo glöð og glæsileg á árlegum óvissuferðarfundi 12. mars sl., og einnig geymi ég í minningunni ljúfa stund sem við tvær Sinawikkonur áttum með henni á fallegu heimili þeirra hjóna, er við færðum henni kort með kveðjum allra félagskvenna sem mættar voru á febrúarfund okkar. Við send- um eiginmanni, dætrum og ættingjum öllum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Sinawik í Reykjavík, Anna Sigríður Jensen formaður. UMRÆÐAN 27 Afmælisminning MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013 ✝ Karl KetillArason fæddist á Akureyri 11. febrúar 1939. Hann lést á Landspítal- anum við Hring- braut 26. apríl 2013. Foreldrar hans voru Ásgerður Ein- arsdóttir húsmóðir og Ari Lyngdal Jó- hannesson verk- stjóri. Systkini Karls eru Arn- fríður, maki Haukur Mattíasson, látinn, Einar Þór, látinn, maki Kolbrún Gunnlaugsdóttir, og Jóhannes, maki Anna Kristín Hansdóttir. Karl kvæntist Kristínu Herberts- dóttur og eignuðust þau tvö börn, Þor- stein, maki Emebet Dibiwak, og Ás- gerði Hrönn, maki Matthew Doe. Þau skildu. Fyrir átti Karl soninn Hlöð- ver Rey, maki Sandra Sveins- dóttir, móðir hans er Hanna Hlöðversdóttir. Útför Karls fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag, 7. maí 2013, kl. 13. Kalli, bróðir minn, er látinn 74 ára. Hann bjó við heilsubrest síð- ustu fjögur árin og var sá tími honum mjög erfiður. Við vorum fjögur systkinin, elst Arnfríður, Einar Þór, Karl og Jóhannes. Kalli fæddist á Akureyri og var „Eyrarpúki“ og stoltur af því. Hann var hrókur alls fagnaðar strax frá barnæsku. Þegar fjöl- skyldan flutti suður og við sett- umst að í Kópavoginum var hann mjög fljótur að aðlaga sig því að búa þar, eins og alltaf áður hrók- ur alls fagnaðar. Snemma hóf hann störf hjá Flugfélagi Íslands, í hlaðdeild, sem faðir okkar Ari L. Jóhannesson (Ari flug) veitti for- stöðu. Þarna var vagga flugsins á Íslandi, innanlands- og milli- landaflug var þarna í gömlu Vatnsmýrinni. Hugur hans beindist að flugmannsstarfinu horfandi á hetjur háloftanna Jó- hannes R. Snorrason, Hörð Sig- urjónsson og marga fleiri, gera hið ómögulega við erfiðar að- stæður. Kalli fór strax og hann hafði aldur til að læra að fljúga í Flugskólanum Þyt á Piper Cub, minnist ég þess að ég sat við flug- brautina þegar Kalli tók sólópróf- ið og lenti að því loknu, mikið hitauppstreymi var frá flug- brautinni og ætlaði Piperinn aldrei að vilja niður, heldur flaut léttur í hitauppstreyminu. Kalli tók síðan einkaflugmannspróf og allt stefndi í flugmann. Næst í lífi Kalla var að vinna fyrir Þunga- vinnuvéladeild hersins á Kefla- víkurflugvelli, var hann þar nokkur ár við stjórn stórvirkra vinnuvéla. Á þessum tíma kom upp sú hugmynd að fá verktaka- leyfi á Keflavíkurflugvelli og eitt sumarið gekk það eftir, hann fékk lítinn jarðvinnslusamning við þökulagnir og fleira á Vell- inum, þetta varð til þess að Kalli stofnaði verktakafyrirtæki á Keflavíkurflugvelli; Íslenska þjónustuverktaka, fékk það fyr- irtæki síðan aukin verkefni, sem fólust í hreinsun skóla og annarra opinberra bygginga á Vellinum og voru þessi umsvif mikil og margt fólk í vinnu þau 35 ár sem hann þjónaði bandaríska hern- um. Einar Þór, eldri bróðir okk- ar, kom að fyrirtækinu seinna og ráku þeir það saman upp frá því. Viðskilnaður hersins við þá bræður eftir öll þessi ár (35) var ekki til sóma og tapaðist allur ávinningurinn og heilsa þeirra beggja í réttlátri baráttu, að ná rétti sínum, sem aldrei fékkst. Flugmaðurinn var geymdur en ekki gleymdur, því Kalli keypti sér snemma Cessna Sky Hawk 172 flugvél. Ég held að bestu stundir Kalla hafi verið að fljúga um loftin blá á þessari frábæru vél sinni. Ég fór margar yndis- legar ferðir með Kalla og er það vel geymt í minningunni. Margir ungir menn, sem voru að læra að fljúga, fengu þessa vél lánaða til að safna flugtímum, til þess að geta orðið atvinnuflugmenn og er mér kunnugt um að ekki þurftu þeir að borga Kalla fyrir aðgang að vélinni, enda skildi Kalli vel unga menn, sem þráðu það heit- ast að gerast flugmenn. Snemma fór Kalli að fara á veturna til Kanaríeyja og varð það að al- gjörri ástríðu, kynntist Kalli ótrúlegum fjölda „Kanarífugla“ og hélt þetta fólk mjög vel hóp- inn. Þetta varð einnig eitt af því sem hann vildi alltaf hafa í lífi sínu. Kalli var framsóknarmaður með stórum staf. Síðustu árin í öllum þessum veikindum hefur Ásgerður Hrönn, dóttir hans, verið hans stoð og stytta og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka henni fyrir mjög óeigingjarna umönnun, dag og nótt. Ég votta þeim öllum samúð mína, í sorg- inni hjálpar minningin um góðan dreng. Jóhannes Arason. Með eftirfarandi ljóðlínum langar okkur að kveðja hinstu kveðju kæran vin og höfðingja Kanarílandsliðshópsins. Dökkur skuggi á daginn fellur, dimmir yfir landsbyggðina. Köldum hljómi klukkan gellur, kveðjustund er milli vina. Fallinn dómur æðri anda, aðstandendur setur hljóða. Kunningjarnir klökkir standa, komið skarð í hópinn góða. Gangan með þér æviárin okkur líður seint úr minni. Við sem fellum tregatárin trúum varla brottför þinni. Þína leið til ljóssins bjarta lýsi drottins verndarkraftur. Með kærleiksorð í klökku hjarta kveðjumst núna, sjáumst aftur. (Hákon Aðalsteinsson) Innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Fyrir hönd landsliðsins, Sigurbjörg og Árni. Karl Ketill Arason ✝ Davíð GeorgKristjánsson fæddist í Hafnar- firði 20. júní 1948. Hann lést á Land- spítalanum 23. apr- íl 2013. Foreldrar hans voru Anna Sigurrós Levoríusdóttir, húsmóðir, f. 29. ágúst 1915, d. 2. janúar 1967, á Skál- um á Langanesi, og Kristján Sól- berg Sólbjartsson, verkamaður, f. 28. júní 1899, d. 30. júní 1964, í Bjarneyjum á Breiðafirði. Systkini Davíðs eru Sólbjört Kristjánsdóttir, f. 9. desember 1940, Bryndís Guð- rún Kristjánsdóttir, f. 22. október 1942, Helga M. Kristjáns- dóttir, f. 4. sept- ember 1945, d. 8. október 2010, og Magnús Magn- ússon, f. 29. júlí 1954. Davíð veiktist ungur að aldri og var lengstan hluta ævi sinnar búsettur á Kleppsspítala en bjó seinni- hluta ævinnar á sambýli við Skagasel í Reykjavík. Útför Davíðs fer fram frá Seljakirkju í dag, 7. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Að lokum, eftir langan, þungan dag, Er leið þín öll. Þú sest á stein við veginn, og horfir skyggnum augum yfir sviðið eitt andartak. Og þú munt minnast þess, að eitt sinn, eitt sinn, endur fyrir löngu lagðir þú upp frá þessum sama stað. (Steinn Steinarr) Engar tvær manneskjur eru eins og þess vegna er ekki hægt að skilja aðra manneskju nema út frá hennar eigin forsendum. Á unglingsaldri eftir erfið áföll æsku sinnar og veikindi í kjöl- farið var Daddi frændi minn skilgreindur á forsendum sam- félagsins eins og það leit út á sjötta áratugnum. Ég man fyrst eftir heimsóknum til frænda míns á Klepp þegar ég var á aldrinum 10-12 ára. Hann var aldrei margmáll en með stríðn- isglampa í augum kallaði hann mig Ástríði þótt hann vissi vel hver ég væri. Við tókum saman á þeim árum eina og eina skák enda hentaði það okkur vel því við vissum aldrei almennilega hvernig við ættum að vera í ná- vist hvort annars. Frá því að ég man fyrst eftir fórum við mamma í heimsókn á aðfanga- dag með pakka til hans og oftar en ekki var hann búinn að bíða frá því um morguninn eftir heimsókninni. Þrátt fyrir að hann sýndi sjaldan tilfinningar sínar mátti sjá það langar leiðir að á milli þeirra tveggja var órjúfanlegur strengur, svo óskaplega þótti þeim vænt hvoru um annað. Á þessum ár- um voru miklir fordómar í sam- félaginu gagnvart einstakling- um með geðræna sjúkdóma og fjölskylda okkar eins og allar aðrar í sömu stöðu reyndi eftir fremsta megni að leyna eða tala ekki um skyldmenni sitt til að verða ekki fyrir aðkasti en móð- ir mín tók ekki þátt í því. Hún elskaði bróður sinn og þegar kom til þess að honum bauðst að flytja á sambýlið í Skagaseli þá deildi hún hamingju hans loksins þegar hann öðlaðist heimili og fjölskyldu. Síðustu árin voru bestu árin í hans lífi. Dagleg þátttaka í lífinu og til- verunni, ferðalag til Kanar- íeyja, ferðir í sumarbústað, harmonikkudansleikir, frábær- ar afmælisveislur með „brauð- tertum“ og svo mætti lengi telja. Starfsfólkinu í Skagaseli, englunum hennar mömmu, sönnum vinum og hinni raun- verulegu fjölskyldu Dadda frænda, þakka ég með fátæk- legum orðum. Ég samhryggist ykkur og veit að við erum öll svo sannarlega ríkari og vitrari af því að við nutum þeirra for- réttinda að vera um stund sam- ferða einum af englum alheims- ins. Svanfríður Anna Lárusdóttir. Davíð G. Kristjánsson Elsku pabbi og tengdapabbi, í dag hefðir þú orðið 90 ára. Ó, hvað ég sakna þín mikið. Mér finnst að það vanti svo mikið í Ingvald Olaf Andersen ✝ Ingvald OlafAndersen fæddist á Siglufirði 7. maí 1923. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Vest- mannaeyja 30. júní 2012. Útför Ingvalds Olafs fór fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 14. júlí 2012. líf mitt. Ég man þagar ég hringdi í þig haustið 2004 og bauð þér að búa hjá okkur Óla Ágústi, við vorum búin að kaupa okk- ur parhús á Sel- fossi. Svarið kom ekki alveg strax, þú þurftir að hugsa málið, hvort þú ættir að yfirgefa eyjuna fögru. Það var eitt sem þú settir fyrir þig og það var hún Depla, kisan þín, þér þótti svo undurvænt um hana. Svo kom svarið; annaðhvort kæmuð þið bæði eða hvorugt. Úr varð að þið fluttuð bæði í júlí 2005. Þetta voru góðir tímar, húm- orinn hjá þér var stundum svo- lítill gálgahúmor en hvað, það var oft gaman hjá okkur. Svo kom að því að við vildum flytja til Eyja. Þér leist bara vel á það. Þá var Depla orðin veik svo hún fór til himna, og við fluttum. Fyrsta árið bjóstu hjá okkur en svo fluttir þú á Dval- arheimilið Hraunbúðir, þar leið þér vel elsku pabbi minn, því þar þekktir þú þig svo vel, varst svo mikið þar þegar mamma dvaldi þar. Jæja, elsku pabbi minn, nú líður þér vel og ert búinn að hitta mömmu, Inga minn og alla aðra ættingja sem eru farnir. Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Þín dóttir og tengdasonur, Sigurveig og Óli Ágúst. ✝ ÞorsteinnSveinsson fæddist í Reykjavík 28. maí 1923. Hann lést á Landspítal- anum við Hring- braut 25. apríl 2013. Foreldrar hans voru hjónin Hall- bera Þorsteins- dóttir, f. 1898, d. 1985, frá Meið- arstöðum í Garði og Sveinn Stefánsson, f. 1894, hann drukknaði í Halaveðrinu í febr- úar 1925. Sveinn var frá Krók- velli í Garði en ættaður frá Skálabrekku í Þingvallasveit. Þorsteinn kvæntist árið 1951Steinunni Andersen, f. 1926, d. 1999. Foreldrar hennar voru Ásta Vilhjálmsdóttur og Frans Andersen. Börn þeirra eru 1) Hadda Sigríður, f. 1952, maki Anton Galan, f. 1947, d. 2009. Dóttir þeirra er Sigrún, f. 1986, henn- ar maki er Guðmundur Stein- þór Jakobsson, f. 1981. 2) Sveinn Óskar, f. 1962, maki Sig- urjóna Bára Hauksdóttir, f. 1966. Þeirra synir eru Þor- steinn, f. 1991, sem á dótturina Elínu f. 2012 og Andri f. 2001. 3) Ásta Kristín, f. 1965, maki Frank Sandvik, f. 1965. Þeirra börn eru Iða Kristín, f. 1991, Þór Martin f. 1993 og Óðínn f. 1996. Fóstursonur Þor- steins og sonur Steinunnar er Þor- leifur Barði f. 1950, maki Eva Öveled. Þeirra börn eru Fríða f. 1978 og Þor- steinn Snorri f. 1980. Hans maki er Marianne og eiga þau dæturnar Sophie f. 2007 og Selmu f. 2010. Þorsteinn nam rafvirkjun við Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi árið 1945. Hann lauk prófi frá Rafmagns- deild Vélskólans árið 1951. Þor- steinn starfaði fyrir Rafmagns- veitur Reykjavíkur, síðar um nokkurra ára skeið hjá Vita- og hafnarmálastjórn en frá árinu 1966 var hann forstöðumaður rafmagnsverkstæðis Rafmagns- veitna ríkisins, RARIK. Útför Þorsteins fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 7. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Afi hefði orðið 90 ára eftir rúman mánuð, á afmælisdeg- inum okkar, 28. maí. Hann var launfyndinn og lumaði á áhuga- verðum sögum frá þeim tíma er hann var sendill á stríðsárunum í Reykjavík eða þegar hann ferðaðist um Ísland til að „skipta um peru“ í öllum vitum landsins. Oftast voru þetta ýkjukenndar frásagnir af mikl- um svaðilförum og áhugaverð- um vitavörðum. En lengst af vann hann sem rafvirki hjá RA- RIK. Ég held ég muni alltaf sjá afa og ömmu fyrir mér í sólbaði við gullregnstréð eða í kart- öflugarðinum bak við húsið þeirra á Básenda 12 sem afi byggði. Hans helsta áhugamál var að spila brids og það var líka hann sem kenndi mér að spila ólsen ólsen. Hann kenndi mér einnig Nallann sem við sungum saman á 1. maí. Hann hafði líka áhuga á að horfa á fótbolta, fór oft í sund en inn á milli fékk hann mig til að klára matinn minn (soðnar kartöflur og ýsu) með því að fara í kappát við köttinn Bússa. Ég er honum eilíflega þakklát fyrir að hafa tekið mig með sér í silungsveiði á fjólubláum sum- arnóttum, upp í fjallavötn þar sem himbrimi dansaði og lómur hljóðaði. Afi minn, þakka þér fyrir samfylgdina. Sigrún. Þorsteinn Sveinsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.