Morgunblaðið - 07.05.2013, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013
Okkur langar að
minnast bróður okkar, Árna, sem
lést á sumardaginn fyrsta á Eir.
Hann ólst upp á Látrum í Aðalvík
til 17 ára aldurs. Haustið 1947 fór
hann alfarið úr foreldrahúsum.
Þetta haust fóru tvö af systkinun-
um alfarin frá Látrum. Það var
vonskuveður og farkosturinn var
lítill vélbátur, þannig að það tók
þau á annan sólhring að komast til
Ísafjarðar.
Foreldrar okkar bjuggu í Að-
alvík á meðan þau elstu voru að
komast á fermingaraldur. Það var
harðbýlt á þessu landsvæði á upp-
vaxtarárum okkar. Pabbi var sjó-
maður og reri hjá öðrum. Vinnan
var hörð, allt unnið á höndum,
engin hjálpartæki þekktust.
Mamma sá um heimilishaldið og
hélt utan um barnahópinn. Árni
föðurafi bjó á heimilinu á meðan
honum entist aldur. Hann var
hjálplegur og góður við okkur
börnin.
Á Látrum var barnaskóli sem
tók til starfa 1899. Þarna voru
ágætir kennarar sem bæði sáu um
kennslu og annað félagslíf. Í þess-
um skóla var lagður grunnur að
því litla sem við lærðum. Góð sam-
heldni var með skólabörnum og
mikið farið í skemmtilega leiki. Á
vetrum voru stundaðar vetrar-
íþróttir, en á öðrum tíma var
sandurinn og brekkan notuð.
Eftir fermingu fór Árni að
stunda sjó með föður okkar og
frændum. Haustið sem hann fór
úr Aðalvík lá leiðin til Keflavíkur í
atvinnuleit. Þar kynntist hann
konuefninu. Þau byrjuðu búskap
1948 á Akureyri. Þá búin að eign-
ast sitt fyrsta barn. Árni vann
bæði til sjós og lands fyrstu árin.
Upp úr 1950 réðst hann á sam-
bandsskipið Arnarfell. Um borð í
því skipi var hann í um það bil 5-6
ár. Í góðra vina hópi átti bróðir
okkur til að minnast veru sinnar
þar. 1956 flytjast þau hjón með
fjölskyldu sína suður yfir heiðar
til Þorlákshafnar. Þar byggðu þau
sér hús á Oddabraut 17. Þar
bjuggu þau í u.þ.b. 30 ár. Þar
komu þau börnunum á legg. Með-
an á byggingu stóð var fjölskyld-
an hjá góðu fólki á Hrauni í Ölfusi.
Eftir veru sína í Þorlákshöfn fóru
þau hjón til Reykjavíkur og
bjuggu þar eftir það.
Árið 1947 kom Anna Ólafsdótt-
ir til Aðalvíkur. Hún dvaldi á
heimilinu í nokkra daga, okkur
fannst hún skemmtileg. Hún hafði
frá mörgu að segja, var söngelsk
og ágætis félagi.
Bróðir okkar var harðduglegur
til allra verka. Vann til margra
ára hjá Meitlinum í Þorlákshöfn.
Á þeim vinnustað var vinnudagur
oft langur. Eftir að komið var til
Reykjavíkur vann Árni við versl-
unarstörf hjá, Ellingsen.
Eftir lát Önnu bjó Árni áfram í
Reykjavík. Í kringum 1995 kynnt-
Árni Stefán Helgi
Hermannsson
✝ Árni StefánHelgi Her-
mannsson fæddist
28. júlí 1929. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Eir 25.
apríl 2013.
Árni var jarð-
sunginn frá Þor-
lákskirkju 4. maí
2013.
ist hann Ingibjörgu
Kristjánsdóttur sem
síðar varð sambýlis-
kona hans. Þeirra
tímabil var gott og
farsælt.
Síðustu ár dvaldi
Árni á hjúkrunar-
heimilinu Eir, þar
sem vel var hugsað
um hann og viljum
við þakka öllu því
góða fólki sem veitti
honum umhyggju og hlýju. Sam-
heldni var með þessum stóra
systkinahóp. Árni var elstur og
fór fyrstur.
Við þökkum bróður okkar með
hlýhug og virðingu liðnar sam-
verustundir.
Fyrir hönd systkinanna,
Friðrik Hermannsson.
Mínir vinir fara fjöld,
feigðin þessa heimtar köld.
Ég kem á eftir, kanske í kvöld,
með klofinn hjálm og rofinn skjöld,
brynju slitna, sundrað sverð og synda-
gjöld.
(Bólu-Hjálmar)
Elskulegur bróðir minn, Árni,
kvaddi þessa jarðvist eftir erfið
veikindi á Eir á sumardaginn
fyrsta. Hann var elstur af okkur
systkinum sem eru 12. Ég var í
miðjum hópnum og er 14 árum
yngri. Hann fór að heiman ungur
og kvæntist Önnu Ólafsdóttur úr
Öxnadal svo við kynntumst ekki
mikið á yngri árum og man ég
bara eftir tveim heimsóknum
hans til okkar á æskuheimili mitt.
Sú fyrri var með Önnu til Aðalvík-
ur þegar ég var fjögurra ára. Þau
voru okkur framandi og við yngri
systkinin heyrðum alltaf af þess-
um fjarlæga stóra bróður, konu
hans og börnum sem áttu heima á
Akureyri. Við Guðný lékum þessa
fjölskyldu í rólunum og í útileikj-
um okkar í Hnífsdal. Svo vissum
við ekkert hvernig við ættum að
vera er við hittumst. Þá var nú
meira mál að taka frí og fara á
milli landshluta en nú er. Það var
sko ekki gert á hverju ári. Ég man
að einu sinn kom hann til okkar í
Ystahúsið í Hnífsdal. Þá var ég
u.þ.b. átta ára gamall. Þá man ég
að yngri bróðir minn var svo feim-
inn við hann að hann faldi sig und-
ir dívan. Árni var þarna á milli-
landaskipi sem stoppaði á Ísafirði
einhverja klukkutíma.
Síðar fór ég suður og Árni og
Anna fluttu frá Akureyri að
Hrauni í Ölfusi og kom ég til
þeirra þar. Ég man að mikið
fannst mér tilkomumikið og allt
öðruvísi þar, svo fínt og framandi
fyrir mig sveitapollann að vestan.
Þau byggðu svo framtíðarheimili
sitt á Oddagötu 17 í Þorlákshöfn.
Þá varð meira samband við hans
stóru fjölskyldu, en þau Anna áttu
átta börn. Síðan hafa liðið mörg
ár. Lífið hefur haldið áfram, gefið
og tekið. Kynni okkar hafa aukist
með ári hverju og samverustund-
um fjölgað og fækkað eftir því
sem við átti. Ég var 1974 á Jóni
Vídalín, togara frá Meitlinum í
Þorlákshöfn. Þá var Árni útgerð-
arstjóri hjá Meitlinum og náðum
við bræður vel saman og alltaf síð-
an.
Árni missti Önnu konu sína
1993 eftir stutt veikindi. Síðan
kynntist hann seinni konu sinni,
Ingibjörgu Kristjánsdóttur, in-
dælis konu. Þau áttu saman 15
góð ár þar til heilsan fór að gefa
sig. Árni var alltaf hress og það
var alltaf gott og gaman að vera
nálægt honum og hans góða fólki.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Að lokum vil ég votta Ingi-
björgu og fjölskyldu Árna og Ingi-
bjargar mína innilegustu samúð.
Óli Th. Hermannsson.
Kynni mín af Árna hófust fyrir
margt löngu og ég man að mér
varð starsýnt á handlegg hans,
sem skartaði flottu tattúi, en á
þeim tíma voru bara sigldir menn
sem skörtuðu slíku. Árni var ætt-
aður úr Aðalvík og sjálfsagt hefur
það ýtt undir útþrá hans, en korn-
ungur var hann kominn í far-
mennsku og sigldi í mörg ár á
skipum Sambandsins, fyrst sem
háseti en síðan sem bátsmaður.
Er leiðir hans og Önnu lágu
saman ákveður Árni að fara í land
og ræður sig til Meitilsins í Þo-
lákshöfn. Árni og Anna voru í hópi
þess fólks er fyrst settist að í Þor-
lákshöfn og byggðu sér myndar-
hús við B-götu 17 og stóð þar
heimili þeirra allan þann tíma er
þau bjuggu í Höfninni. Anna og
Árni voru samhent og farsæl og
komu upp stórum hópi barna.
Árni var lunkinn í samskiptum
og reddari af Guðs náð, þessir eðl-
iskostir leiddu til þess að Árna
voru fljótt falin ýmis stjórnunar-
störf og lungann af starfstíma sín-
um hjá Meitlinum, sem spannaði
hátt í fjóra áratugi, var hann út-
gerðarstjóri. Í starfi útgerðar-
stjóra Meitilsins var í mörg horn
að líta, bátaflotinn var stór og
kappsfullir skipstjórar gerðu
miklar kröfur um að allt væri
klárt fyrir næsta róður. Reynsla
bátsmannsins, samskipta- og
reddarafærnin gerði Árna það
kleift að koma öllu heim og sam-
an, bátarnir voru alltaf klárir í
næsta róður. Árni gat líka verið
fylginn sér ef hlutir féllu ekki eins
og ætlað var, ein stutt saga sýnir
það vel. Það var komið haust,
humarvertíð var lokið og að venju
átti að taka bátana í slipp hjá
Bátanaust, en dagarnir liðu. Við
hittumst á skrifstofunni hjá Árna
og enn berast þær fréttir að ekki
verði hægt að taka bátana upp.
Við þær fréttir er mínum manni
nóg boðið, hann þrífur símann og
hringir í Konna og segir við hann
„að ef þeir geti ekki tekið bátana
upp strax þá komum við suður og
tökum völdin“.
En Árni lét ekki aðeins sitja við
það að vera útgerðarstjóri, hann
stofnaði einnig útgerðarfélagið
Auðbjörgu hf. ásamt Pétri Frið-
rikssyni, skipstjóra, og gerðu þeir
út báta allt þar til er þeir seldu
hlut sinn í félaginu.
Árni var myndarmaður á velli,
bar sig vel og hafði létta lund. Það
var gott að eiga Árna að og í ófá
skiptin reddaði hann róðrum er
maður kom blankur heim úr skóla
í jóla- eða páskafríum.
Eftir að þau Anna fluttust suð-
ur starfaði Árni lengi hjá Ellings-
en við sölu á útgerðarvörum og
naut sín vel þar. Síðustu ár voru
erfið hjá Árna og trúi ég að hann
hafi verið hvíldinni fenginn. Ég
sendi þeim Hönnu, Möggu, Óla,
Diddu, Hemma, Jónsa og Dódí og
fjölskyldum þeirra mínar dýpstu
samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Árna St. Hermannsson-
ar.
Þorsteinn Garðarsson.
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VIGDÍS DANÍELSDÓTTIR,
Ásbraut 19,
Kópavogi,
lést á krabbameinslækningadeild Land-
spítalans laugardaginn 4. maí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 10. maí
kl. 13.00.
Guðlaug B. Olsen, Árni Hilmar Jónsson,
Jónína B. Olsen, Guðmundur Kristjánsson,
Daníel Olsen, Hrafnhildur Svendsen,
Sveinborg Steinunn Olsen, Unnar Geir Holman,
Klara Björg Olsen, Bjarni Bentsson,
Jóhanna Þórunn Olsen, Magnús Helgi Sigurðsson,
Bárður Olsen, Kristín Vilhjálmsdóttir,
Bryndís Olsen, Kristinn Bragi Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÁSTBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR,
lést föstudaginn 3. maí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 10. maí kl. 15.00.
Teitur Jónasson,
Halldóra Teitsdóttir, Jónas Haraldsson,
Ingveldur Teitsdóttir, Gunnar Torfason,
Harald Þór Teitsson, Ylfa Edith Jakobsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HELGA SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Espigrund 8,
Akranesi,
andaðist fimmtudaginn 2. maí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
10. maí kl. 14.00.
Guðjón Finnbogason,
Margrét Guðjónsdóttir, Björn Þverdal Kristjánsson,
Sigurður Guðjónsson, Ása Jóhannsdóttir,
Snorri Guðjónsson, Brynja Leosdóttir
og ömmubörn.
✝
ÞÓR VIGFÚSSON
fyrrverandi skólameistari,
Straumum,
Ölfusi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 5. maí.
Jarðarför verður frá Selfosskirkju laugar-
daginn 18. maí kl. 13.30.
Auður Hildur Hákonardóttir,
Nína Þórsdóttir, Jón Björnsson,
Margrét Snæfríður Jónsdóttir,
Ragnar Alexander Þórsson,
Guðmundur Andri Ragnarsson,
Helga María Ragnarsdóttir, Kolbeinn Tumi Baldursson,
Júlía Sif Ragnarsdóttir,
Kolbrún Oddsdóttir,
Þórhildur Kristjánsdóttir, Gunnlaugur Dan Hafsteinsson,
Katrín Kristjánsdóttir,
Hákon Már Oddsson,
Urður Hákonardóttir, Jón Atli Jónasson,
Kría Ragnarsdóttir,
Arnór Hákonarson,
Hildur Laila Hákonardóttir,
Eggert Vigfússon,
Örn Vigfússon,
Guðmunda Vigfúsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar og fósturmóðir,
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR BJARKLIND,
áður til heimilis í Hvassaleiti 56,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir, Grafarvogi
föstudaginn 3. maí.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Fyrir hönd bræðra hennar, barnabarna, langömmubarna og
annarra ástvina,
Björn Bjarklind, Ása Sæmundsdóttir,
Sigurður Bjarklind, Margrét Skúladóttir,
Jón Bjarklind, Steinunn Anna Óskarsdóttir,
Sveinn Aron Bjarklind, Gerður G. Bjarklind.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
PÉTUR JÚLÍUSSON,
áður til heimilis að Skallagrímsgötu 7,
andaðist í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalar-
heimili, Borgarnesi, föstudaginn 3. maí.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 15. maí kl. 14.00.
Pétur Helgi Pétursson,
Sveinn Haukur Pétursson, Anna Kristín Stefánsdóttir,
Anna Kristín Pétursdóttir, Ragnar G. Guðmundsson,
Hjörtur Dagur Pétursson,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN PÁLMADÓTTIR,
áður til heimilis á Hlíðarvegi 15,
Bolungarvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða föstu-
daginn 3. maí.
Útförin fer fram frá Hólskirkju laugardaginn
11. maí kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á orgelsjóð Hólskirkju.
Pálmi Árni Guðmundsson, Lene Birck Vestergård,
Kristján Jón Guðmundsson, Drífa Gústafsdóttir,
Jónína Elva Guðmundsdóttir,
Bergur Ingi Guðmundsson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
EYGLÓ JÓNASDÓTTIR,
Hraunbæ 66,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 3. maí.
Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 13. maí kl. 13.00.
Kristján Gunnarsson,
Gunnar Kristjánsson, Oddný Bára Ólafsdóttir,
Unnur Kristjánsdóttir, Þórir Björgvinsson,
Sigríður Kristjánsdóttir, Guðmundur Hilmarsson,
Páll Kristjánsson, Sinéad McCarron,
barnabörn og barnabarnabörn.