Morgunblaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013
Kvintett danska kontrabassaleik-
arans Richards G. Anderssons og
íslenska saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar kem-
ur fram á djass-
kvöldi á Kex hos-
teli á Skúlagötu
28 í kvöld kl.
20.30.
Aðrir hljóð-
færaleikarar eru
Kjartan Valde-
marsson á píanó
og Einar Schev-
ing á trommur.
Flutt verður frumsamin tónlist í
bland við djassstandarda. Sam-
kvæmt upplýsingum skipuleggj-
enda er Richard G. Anderson einn
af fremstu bassaleikurum Dana af
yngri kynslóðinni. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30 og standa í u.þ.b.
tvo tíma með hléi. Frítt inn.
Danskur kvintett á
djasskvöldi Kex
Sigurður Flosason
Kammerhópurinn Stilla heldur tón-
leika á Cafe Rósenberg í kvöld kl.
21. Á efnisskránni eru íslensk ein-
söngslög og sígræn dægurlög sem
fá að hljóma í nýjum búningi eða
með svolitlu djassívafi.
Í kammerhópnum Stillu eru Þor-
grímur Jónsson á kontrabassa,
Kjartan Guðnason á trommur, Lilja
Eggertsdóttir á píanó, Sólrún
Gunnarsdóttir á fiðlu, Diljá Sigur-
sveinsdóttir á fiðlu, Anna Huga-
dóttir á víólu og Gréta Rún Snorra-
dóttir á selló.
Stilla djassar á Cafe Rósenberg
Sinfóníuhljómsveit Íslandsnaut farsællar forystu heið-ursstjórnanda síns Vladim-irs Ashkenazys í þéttings-
setnu tónkvikuhólfi Eldborgar á
fimmtudag. Viðfangsefnin voru flest
af þjóðlegum eða náttúrumótuðum
toga með alkunnri Sveitasinfóníu
Beethovens í lokin, og stemningin
eftir því notaleg. Þó að einhverjir
hlustenda, að mér meðtöldum, hefðu
e.t.v. farið á mis við (að sögn) löngu
áður tilkynntar breytingar á upp-
haflegri vetrardagskrá, þegar
Prómeþeifsforleikur Beethovens og
2. fiðlukonsert Sjostakovitsj féllu nið-
ur og Nielsen-verkin komu í staðinn
ásamt þættinum úr Kólumbínu,
versnaði tónseðillinn ekkert við það.
Hins vegar fannst ekkert gefið upp
um ástæður breytinganna á heima-
síðu SÍ, og kom það svolítið kyndugt
fyrir sjónir við fyrstu sýn.
Rapsódískur forleikur Nielsens frá
1927, En Fantasirejse til Færøerne,
rann ljúflega niður í góðum með-
förum þar sem m.a. fúgatókafli um
þarlendan sagnadans neistaði af
snerpu, þó að burðarásinn væri
„Góða veizlu gjöra skal“ er sr. Bjarni
vildi telja íslenzkt þjóðlag. E.t.v.
mundu einhverjir eftir verkinu sem
spurningu úr Kontrapunkts-
sjónvarpskeppninni á 10. áratug lið-
innar aldar; andrúmsríkri tónsmíð er
staðizt hefur tímans tönn ef marka
má hvað hún er enn mikið flutt.
Sama öndvegistónskáld Dana
(1865-1931) stóð einnig að baki kons-
ertinum frá 1926 fyrir samtíma-
flautusnilling sinn og landa Gilbert
Jespersen, er Stefán Ragnar Hösk-
uldsson, aðalflautuleikari Metropolit-
anóperunnar í New York, blés af
meistaralegri innlifun við hnitmið-
aðan hljómsveitarsamleik. Þetta
heiðríka verk spannar furðuvítt til-
finningasvið, allt frá „mælskum
trúði“ í íhugula angurværð, og sættu
lipurð sólistans og litríki hreinustu
undrum. Ekki sízt hvað töfra mátti
fram dúnmjúkt pianissimo á m.a.s.
hæsta tónsviði – er þökk sé óvæntum
innherjaupplýsingum var e.t.v. sum-
part að þakka nýju Emanuel-
hljóðfæri spilarans.
Ég segi nú bara, upp úr Jóla-
óratóríu Bachs: „Emanuel! O Lieb-
eswort!“ – fyrir það sem virtist ann-
ars á mörkum hins mögulega.
Vitanlega að heillandi ferskri túlkun
ólastaðri.
Stefán sá líka um einleik í II. þætti
einhvers þokkafyllsta íslenzka hljóm-
sveitarverks fyrr og síðar, Kólúmb-
ínu (1982), er Þorkell heitinn Sigur-
björnsson vann upp úr leikhúsmúsík
sinni fyrir sýningu á Kaupmanninum
í Feneyjum í 18. aldar stíl. Fátt ef
nokkuð úr hérlendri geymd kemur
fyrr upp í huga sem rakið tónefni í
klassískan ballett, og hrekkur marg-
jöskuð lýsing á við blæðandi fegurð
þar skammt um jafnfrábæra tján-
ingu.
„Pastoral“ sinfónía Beethovens
(1808) gæti hæglega verið meðal tíu
þekktustu hljómkviða allra tíma og
því ekki heiglum hent að sýna í nýju
ljósi. Enda varð það varla heyrt af
meðferð Ashkenazys í háklassísku
hraðavali er engum varð meint af.
Því síður verkinu sjálfu, er naut sín
vel í yfirvegaðri mótun stjórnandans.
En þótt glitti á stöku stað í persónu-
leg tilþrif – eins og þegar inn-
skotsáherzlur voru dregnar skýrar
fram en algengast er, sem vel á við
um hrynskarpasta tónskáld síns tíma
– þá hefði samt mátt gera eitthvað
meira fyrir einkum I. og síðasta þátt
(V.), ekki sízt til mótvægis við þá
langdrægni sem annars getur vottað
fyrir. T.a.m. með ögn frjálslegri og
örlátari „aukaöndun“; svona endrum
og eins.
Á mörkum hins mögulega
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbbn
Carl Nielsen: Færeyjaforleikur og
Flautukonsert. Þorkell Sigurbjörnsson:
Kólúmbína (II. þáttur). Beethoven: Sin-
fónía nr. 6. Stefán Ragnar Höskuldsson
flauta; Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Stjórnandi: Vladimir Ashkenazy.
Fimmtudaginn 2. maí kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heiðríkja Stefán Ragnar Höskuldsson, aðalflautuleikari Metropolitanóperunnar í New York, „blés af meistaralegri
innlifun við hnitmiðaðan hljómsveitarsamleik“. Hér eru þeir Ashkenazy á æfingu fyrir tónleikana.
Sigurgeir Agnarsson sellóleik-
ari og Nína Margrét Gríms-
dóttir píanóleikari koma fram
á tónleikum
í tónleika-
röðinni
Þriðjudags-
klassík í
Garðabæ í
kvöld kl. 20 í
sal Tónlist-
arskóla
Garðabæjar.
Á efnis-
skránni eru
verk eftir Schumann, Mend-
elssohn og Massenet. Í tveim-
ur verkum slæst í hópinn
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sóp-
ransöngkona og listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar.
Miðaverð er 1.000 krónur, en
miðasala er við innganginn.
Þriðjudagsklassík í
Garðabæ í kvöld
Sigurgeir
Agnarsson
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
PLACE BEYOND THE PINES KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 33D KL. 5:10 - 8 - 10:40
IRON MAN 32D KL. 5:10 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 5:30 - 8 - 10:30
BURT WONDERSTONE KL. 8 - 10:10
SIDEEFFECTS KL.5:50
KRINGLUNNI
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 5:10 - 8 - 10:50
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 8 - 10:30
ÓFEIGUR GENGUR AFTUR KL. 5:50
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 7 - 9:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 6 - 9
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 8
OBLIVION KL. 5:30 - 10:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
PLACE BEYOND THE PINES KL. 8 - 10:50
IRON MAN 3 3D KL. 8 - 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 5:20
THE CROODS ÍSLTAL KL. 5:50
AKUREYRI
PLACE BEYOND THE PINES KL. 8
IRON MAN 3 3D KL. 8 - 10:40
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 10:40
H.S. - MBL
STÓRMYNDIN SEM TEKIN
VAR UPP Á ÍSLANDI
T.K., KVIKMYNDIR.IS
H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
STEVE CARELL JIM CARREY
GRJÓTHÖRÐ SPENNUMYND
Í ANDA DIE HARD
NEW YORK OBSERVER
THE PLAYLIST
EMPIRE
USA TODAY
MÖGNUÐ GRÍNMYND
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð