Morgunblaðið - 03.09.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 03.09.2013, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Það viðraði vel til heyskapar á Aust- urlandi í sumar en heyfengur er lítill á sumum bæjum vegna kals og þurrka. Guðfinna Harpa Árnadóttir, ráðu- nautur hjá Ráðgjafamiðstöð Land- búnaðarins á Egilsstöðum, segir að á ákveðnum svæðum hafi verið þurrt og spretta þar af leiðandi ekki sér- staklega mikil. Þá hafi verið mikið kal mjög víða í vor. „Á þeim svæðum sem var bæði kal og þurrkar eru bændur ekki að ná miklum heyfeng og reikna með að þurfa að fækka skepnum eitt- hvað til að mæta því,“ segir Guðfinna. „Annars staðar tala menn um að þetta sleppi ef veturinn byrjar ekki í september og verður búinn fyrir 17. júní. Undanfarin ár hefur gjafatíminn verið langur og þá hefur maí ann- aðhvort verið svo þurr eða kaldur að ekkert hefur sprottið.“ Heybirgðir í fjórðungnum eru því af skornum skammti. „Í vor var hver einasta rúlla búin. Það voru þurrkar sumarið á undan og kal þar á undan svo bændur voru búnir að gefa allt upp,“ segir Guðfinna. Telst ekki með betri árum Seinni sláttur er langt kominn víða á Austurlandi en enginn byrjaður að slá korn. „Það var lítið sett niður af korni en það sem var sett niður lítur vel út, enda verið sólríkt. Ég gæti trú- að að menn fari í kornþreskingu næstu daga.“ Guðfinna segir að þetta teljist ekki með betri árum ef meðaltalið af svæð- inu sé tekið en sumstaðar hafi sum- arið verið mjög gott, til dæmis inni í Fljótsdal þar sem rigndi meira. „Þar eru bændur ágætlega heyjaðir og geta kannski miðlað áfram annað. Ef bændur eru með hey til sölu eða vant- ar hey hvet ég þá til að hafa samband við Ráðgjafamiðstöð landbúnaðar- ins,“ segir Guðfinna. Beðið eftir þurrki Heyskapur gekk þokkalega sunn- anlands í sumar og er hvergi nærri lokið því víða er háarsláttur eftir. Sveinn Sigurmundsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, segir marga langt komna með seinni slátt en bíði eftir þurrki til að ljúka honum. Þá séu aðrir ekki byrjaðir. „Nú hefur ekki viðrað til heyskap- ar nema mjög stutt í einu. Menn eru að bíða eftir smá þurrkatíð til að ná hánni,“ segir Sveinn. Heyfengur er í meðallagi að sögn Sveins, almennt hafi hann þó á tilfinningunni að hann sé ívið minni en fyrri ár. Lítið hafi verið á túnunum hjá þeim sem slógu allra fyrst en þar sem landið er sendið og aurar hafi komið ágætis uppskera í ár. Sveinn veit ekki til þess að byrjað sé að slá korn á Suðurlandi enda ekki verið mikil sprettutíð fyrir kornið, sólina vanti. „Ef það myndi gera góða sólardaga núna myndi bæta mikið í kornið.“ Akrarnir líta ágætlega út Eiríkur Loftsson ráðunautur á Sauðárkróki segir að almennt séð hafi verið góð sprettutíð á Norður- landi og heyskapur gengið alveg með ágætum. „Það var víða kal og tún gis- in út af kali og það þurfti að end- urrækta talsvert á ákveðnum svæð- um en túnin voru samt að skila ágætu,“ segir Eiríkur. Víða á eftir að slá grænfóður í Skagafirðinum og seinni sláttur hefur dregist. „Sumir eru búnir en margir eru að bíða eftir þurrki til að klára há og grænfóður.“ Margir bændur voru búnir með heyforðann í vor eða gengnir lang- leiðina á hann. Eiríkur segir heyfeng líkast til góðan en þorir ekki að segja til um hvort hann muni duga út vet- urinn. Kornið er líka seint á ferðinni í Skagafirði. „Það er mjög algengt að kornsláttur sé byrjaður um þetta leyti en það má gera ráð fyrir að hann hefjist upp úr miðjum mánuði núna. Akrarnir líta ágætlega út og ef það kemur sól og það næst þroski getur uppskeran orðið alveg ágæt.“ Heyfengur þykir í meðallagi  Lítill heyfengur á Austurlandi vegna kals og þurrka og bændur reikna með að þurfa að fækka skepnum fyrir veturinn  Beðið eftir þurrki á Suðurlandi fyrir seinni slátt  Korn seint á ferðinni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Uppskera Heyskapur hefur gengið þokkalega á landinu í sumar en vætutíð á Suðurlandi og þurrkar og kal á Austurlandi hafa sett strik í reikninginn. Menn eru sammála um að heyfengur sé í meðallagi á landinu. Kristján Gestsson, kartöflubóndi í Forsæti IV í Flóa- hreppi, segir kartöfluuppskeruna frekar seint á ferðinni í ár og það vanti svolítið upp á sprettu ennþá. „Grösin standa enn fanngræn og fín og eru að spretta en það er spurning hvað þau fá að standa lengi. Það gæti komið næturfrost.“ Fyrstu kartöflurnar frá Forsæti komu í verslanir í lok júlí, um þremur vikum seinna en vanalega. „Við byrj- uðum á því sem var plast yfir og það var gott en það sem er ræktað á venjulegan hátt er lakara. Ef þær fá að standa næsta hálfan mánuðinn og við fáum sólardaga þá gæti nú gerst heilmikið. Í fyrra var búið að slá grösin og kartöflurnar fullsprottnar í ágúst,“ segir Kristján. Kartöflugrösin standa enn KARTÖFLUUPPSKERAN UM MÁNUÐI SEINNA Á FERÐINNI Kartöflur Seinna á ferðinni í ár. Lirfa fiðrildsins brandyglu eyðilagði fimm hektara gulrótaakur hjá bændunum á Fljótshólum í Flóa- hreppi á Suðurlandi í sumar. Sturla Þormóðsson bóndi segir að þetta hafi ekki gerst áður hjá þeim. Þau rækta gulrætur á um tuttugu hekturum og það tók brandyglulirf- una aðeins um fimm daga að eyði- leggja fimm hektara. „Þetta gerist í miðjum júní þegar gulræturnar eru pínulitlar, þegar hin eiginlegu blöð eru aðeins komin upp. Í flestum tilfellum klippa lirf- urnar blöðin af og þá hætta gulræt- urnar að vaxa,“ segir Sturla. „Það sem var komið lengst á leið var étið fyrst og seinkar þetta gulrótaupp- skerunni hjá okkur um tvær til þrjár vikur. Veðráttan spilar líka inn í.“ Sturla segir þau ekki farin að taka upp gulrætur en ef allt hefði verið eðlilegt væru þau farin að kíkja und- ir grösin núna. „Þetta hefur verið mjög slæmt sprettuár, en það þyrfti ekki marga góða daga núna til að heilmikið gerð- ist,“ segir Sturla. Hann býst við því að grænmetisuppskera verði víða lé- leg í ár og grænmetið smátt. Ástæðan fyrir árás lirfunnar er ekki kunn en talið er að veðráttan spili inn í. „Síðasta sumar var sér- staklega þurrt, þá verpir brandygl- an frekar í sandgarða eins og hjá okkur. Núna var kalt vor og þá seinkar því að lirfan klekist úr eggj- um og hún klekst út á lengra tíma- bili. Þá rekst hún á tímabilið þar sem okkar plöntur eru að vaxa en væri í venjulegu árferði fyrr á ferðinni.“ Lirfa eyði- lagði fimm hektara Uppskera Fjölskyldan á Fljóts- hólum í gulrótagarðinum í fyrra. Nýliðinn ágústmánuður í Reykjavík var sá kaldasti í 20 ár, samkvæmt yf- irliti Veðurstofunnar. Meðalhiti í höfuðborginni mældist 10,1 stig í ágúst, sem er 0,2 stigum neðan með- altals áranna 1961 til 1990 en 1,6 stig- um undir meðaltali síðustu tíu ára. Fara þarf aftur til ágústmánaðar 1993 til að finna lægri meðalhita. Í yfirliti Veðurstofunnar segir m.a. að tíð hafi verið lengst af óhag- stæð um landið sunnan- og vestan- vert í ágústmánuði, með þrálátri úr- komu og þungbúnu veðri. Úrkoman í Reykjavík mældist 86,3 mm og er það tæplega 40% umfram meðal- úrkomu og það mesta í ágúst síðan 2007, eða í sex ár. Mun hagstæðara tíðarfar ríkti um landið norðan- og austanvert. Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 135,3 og er það 19 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en aftur á móti 54 stundum undir meðallagi síðustu 10 ágústmánaða. Svo fáar sólskinsstundir hafa ekki mælst í Reykjavík í ágúst síðan árið 2000, eða í 13 ár, en þá voru þær tals- vert færri en nú. Meðalhitinn á Akureyri var 10,6 stig og er 0,6 stigum ofan meðaltals- ins 1961 til 1990 en 0,5 undir með- altali síðustu 10 ára. Einnig var sól- arlítið á Akureyri. Þar mældust sólskinsstundirnar 99,9 eða 36 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Enn færri stundir mældust á Akureyri í ágúst 2009. Hlýjast autanlands Langhlýjast að tiltölu var um landið austanvert. Hiti var 1,5 stig- um ofan meðaltals áranna 1961 til 1990 á Dalatanga og 1,4 yfir því á Teigarhorni. Á báðum stöðunum var hiti nú 0,4 stigum ofan við meðaltal ágústmánaða síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var úrkoman óvenjumikil eða 111,4 mm. Þetta er meira en tvöföld meðalúrkoma og sú mesta í ágúst síðan 1976. Mest mun- aði um úrkomuna sem mæld var hinn 30., 55,2 mm. Þetta er mesta sólar- hringsúrkoma sem mælst hefur í ágúst í Stykkishólmi frá upphafi úr- komumælinga þar 1856. Úrkoman á Akureyri mældist 18,8 mm og er það ríflega helmingur með- alúrkomu. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 84,8 mm. Ágúst blautur og kaldur  Þrálát úrkoma og þungbúið í ágúst, segir Veðurstofan  Mesta úrkoma í Reykjavík í sex ár og minnsta sól í 13 ár Veðrið Ágúst var blautur og kaldur. Morgunblaðið/Ómar Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Wisa innbyggðir WC kassar Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum 10 ár á Íslandi – veldu gæði XS kassi 23.990 Argos Hnappur hvítur 3.190 Excellent kassi Front & Top 83cm 25.990 Ýmsar gerðir fáanlegar af hnöppum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.