Morgunblaðið - 03.09.2013, Side 6

Morgunblaðið - 03.09.2013, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 „Tíminn í sjúkraflugi og í sjúkrabíl flokkast sem óvirk- ur tími til hjálpar sjúklingnum. Því er mikilvægt að stytta þann tíma eins mikið og mögulegt er til að þeir komist sem fyrst undir læknishendur,“ segir Stefán Þórarinsson, læknir og framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Austurlands. Hann segir að síðustu mínúturnar í sjúkraflugi vegi mun meira en þær fyrstu þar sem áhættan vex með margfeldishætti því lengur sem dregst að koma við varanlegri hjálp. Þá segir hann að öryggi sjúklinga yrði stefnt í mikla hættu ef sjúkraflugið þyrfti að fara í gegnum Keflavík- urflugvöll í stað Reykjavíkurflugvallar eins og það er nú. Sjúkraflugi er skipt upp í fjóra flokka, F-1 til F-4 út frá forgangi. Viðbragðstími F-1 er hámark 35 mínútur, þá er um að ræða lífsógn/bráðatilvik sjúklings. Í F-2 er einnig hámarksviðbragðstími 35 mínútur, þá er um að ræða mögulega lífsógn sjúklings en ekki eins alvarlegt og F-1. Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Ís- lands voru farnar 264 sjúkraflugsferðir árið 2012 sem stofnunin greiddi fyrir. Þar af voru 119 flokkaðar F-1 eða 45% og 80 flokkaðar F-2 eða 30%. Svipað hlutfall var á árunum 2009-2011. Alls voru sjúkraflugsferðir á síðasta ári 452 talsins þegar talið er með annað flug, sem Sjúkratryggingar greiða ekki fyrir. Hlutfallið í flokki F-1 og F-2 er sam- tals rúmlega 54%. Yfirleitt er læknir með í för í flugi sem flokkað er F-1 og F-2. Í skýrslu sem Ríkisendurskoðun sendi frá sér um sjúkraflug í gær segir m.a.: „Mikilvægt er að hafa í huga að þótt mínútur geti skipt sköpum í sjúkraflutn- ingum hefur aðbúnaður sjúklinga og aðstaða lækna, sjúkraflutningamanna og aðstandenda veruleg áhrif. Mýflug sinnir sjúkraflugi á norðursvæði, þ.m.t. á Vest- fjörðum, og í Vestmannaeyjum nær eingöngu með sér- útbúinni sjúkraflugvél, menntuðum sjúkraflutninga- mönnum og læknum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta stuðlar að auknu öryggi sjúklinga, heilbrigðis- starfsfólks og aðstandenda meðan á flutningi stendur sem og landsmanna allra. Í umsögn sinni í júní 2013 um drög að þessari skýrslu tók velferðarráðuneyti fram að það teldi ekki að lengri heildartími ógnaði öryggi sjúklinga þar sem sjúkrahús með skurðstofuvakt væri stutt frá flugvelli sem gæti sinnt sjúklingi fram að flugi.“ Tæplega helmingur sjúkra- flugs er forgangsflug  Mínútur skipta sköpum og einnig aðbúnaður sjúklinga Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Öryggi Mínútur geti skipt sköpum í sjúkraflutningum. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Bæjarráð Norðurþings samþykkti nýverið að fara í viðræður við félagið Sjóböð ehf. um að útvega lóð undir fyrirhugaðan rekstur sjóbaðsstaðar á Húsavíkurhöfða, eða Höfðanum eins og heimamenn tala gjarnan um. Stærð baðsvæðis er áætluð nærri 1.000 fermetrar en stærð húsnæðis um 500 fermetrar. Félagið er einnig með áform um að byggja 70 til 100 herbergja heilsuhótel í tengslum við sjóböðin og þá í tveimur áföngum. Sjóböð ehf. er í eigu Orkuveitu Húsavíkur, Norðursiglingar, fjár- festingafélagsins Tækifæris á Akur- eyri og fleiri aðila. Stjórnarformaður Norðursiglingar, Pétur J. Eiríksson, sendi erindið inn til bæjarráð fyrir hönd félagsins. „Verkefnið hefur verið í þróun í nokkur ár og núna liggur fyrir frum- hönnun sem og rekstraráætlanir og rannsóknir á vatninu,“ segir Pétur en sjóböðin eiga að rísa í grennd við borholur orkuveitunnar þar sem upp kemur heitur sjór. Ekki langt frá Bakka Sjóböðin yrðu það skammt frá Húsavík að til stendur að leggja einnig göngustíg inn í bæinn. Nokkru norðar frá Höfðanum er iðnaðarlóðin á Bakka, þar sem álver og kísilver hafa verið fyrirhuguð. Pétur segir sjóbaðsstaðinn vera í hvarfi frá Bakka. Staðsetningin mið- ast við nálægð við borholurnar og einstakt útsýnið yfir Skjálfandaflóa, segir Pétur, auk þess sem stutt er í heita uppsprettu í fjörunni. „Þarna skapast einstakar aðstæð- ur til að sjá miðnætursólina og norð- urljósin,“ segir Pétur en áform Sjó- baða ehf. miðast við þá þróun í ferðaþjónustu sem orðið hefur á seinni árum á Húsavík. „Húsavík er orðin ferðamannastaður sem fólk vill dvelja á,“ segir hann og vísar þar til hvalaskoðunarferða, hvalasafnsins og uppbyggingar almennt í ferða- þjónustu á svæðinu. Nýtt hótel hafi verið opnað sl. vor, áform séu um að stækka Hótel Húsavík og fleiri aðilar vilja reisa þarna hótel. „Öll þessi þróun styrkir mjög stað eins og Húsavík. Við reiknum með því seinna meir að reisa hótel við sjóböðin,“ segir hann. Lækningamáttur Í kynningarbæklingi um verkefnið kemur m.a. fram að í seinni áföngum þurfi að gera ráð fyrir stækkun sjó- baðanna; hugsanlegri meðferð tengdri heita sjónum og stækkun á hóteli í allt að 70-100 herbergi. Einnig segir að möguleikar til lengri þjónustutíma á ársgrundvelli gætu skapast með samstarfi við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík. Heit sjóböð eru hvergi ann- ars staðar hér á landi en þau eru m.a. talin hafa mikinn lækningamátt, sér í lagi fyrir fólk með húðsjúkdóma. Sjóböð og hótel á Húsavík  Viðræður fyrirhugaðar milli Norðurþings og Sjóbaða ehf. um lóð á Höfða  Sjóböð sem gætu tekið á móti 200 manns í einu  Heilsuhótel í síðari áföngum Teikning/Basalt arkitektar Sjóböð Tölvugerð mynd af fyrirhuguðum sjóbaðstað á Húsavíkurhöfða, sem gæti tekið á móti um 200 manns. Sjóböð við Húsavík Grunnkort/Loftmyndir ehf. Sjóböð Borhola Iðnaðarlóð við Bakka Húsavík Fyrirhuguð staðsetning sjóbaða við Húsavík N „Ég tel að Steingrímur J. Sigfússon viðurkenni í samtali við Morgun- blaðið að greining mín á makríldeil- unni var rétt. ESB reynir að deila og drottna og við megum ekki gangast undir það. Við verðum að standa með Færeyingum,“ segir Jón Bjarna- son, fv. sjávar- útvegsráðherra, og vísar til viðtals við Steingrím J. í Morgunblaðinu í gær, þar sem sá síðarnefndi segir að síðasta ríkis- stjórn hafi komið þeim sjónar- miðum á framfæri að ekki væri heppilegt að Færeyingar lönduðu makrílafla hér. Menn hafi enda metið stöðuna sem svo að ágætt væri ef ekki reyndi á að Íslendingar þyrftu að taka afstöðu til þess hvort Fær- eyingum yrði leyft að landa makríl eða síld á Íslandi. „Þá voru menn að huga að hinni taktísku stöðu. Að verja sig fyrir ásökunum frá Norðmönnum og ESB um að þessar þjóðir stunduðu ein- hvers konar stjórnlausar veiðar,“ sagði Steingrímur m.a. í viðtalinu. Vildi nánara samstarf Jón segir Steingrím aðeins lýsa sinni eigin ráðherratíð og afstöðu til samskipta við Færeyinga og ESB í makríldeilunni. Jón hafi sem ráð- herra heimilað löndun færeyskra skipa í íslenskri höfn. „Ég tók upp sem ráðherra mun nánara samband við Færeyinga í samskiptum við ESB. Eftir að mér var vikið úr stjórn var henni hins vegar mikið í mun að ná samkomulagi milli Íslands og ESB um makrílinn og gefa þar eftir vegna þess að ESB-viðræðurnar voru í raun strand meðan makríldeilan stóð yfir,“ segir Jón sem tekur undir orð fær- eyska sjávarútvegsráðherrans um tengsl málsins við ESB-umsókn Ís- lendinga. baldura@mbl.is ESB vó þyngra en Færeyjar  Makríldeilan tafði ESB-umsóknina Jón Bjarnason Í tilefni af úgáfu bókarinnar Í spor Jóns lærða verður haldin málstofa í bókasal Þjóðmenningarhússins, fimmtudaginn 5. september kl. 16:00. Nokkrir af höfundum bókarinnar flytja stutt erindi um viðfangsefnið og flutt verða tónlistaratriði. Jón lærði Guðmundsson var einn sérstæðasti Íslendingur á siðskiptaöld: listamaður, skáld, náttúrufræðingur og þjóðfræðingur, ofsóttur og útlægur gerður vegna afstöðu sinnar gegn Spánverjavígunum. Öllu þessu eru gerð skil í bókinni, sem Jónas Kristjánsson telur „merkasta rit ársins“ (jonas.is, 12. ág.). Allir eru velkomnir. MÁLSTOFA UM JÓN LÆRÐA „Hér er komið hið veglegasta verk og afar fróðlegt“ (Mbl. 4. ág.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.