Morgunblaðið - 03.09.2013, Síða 12

Morgunblaðið - 03.09.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Ríki heims líta til Norðurlandanna eftir innblæstri og bera virðingu fyrir því hvernig norrænar þjóðir hafa tekist á við efnahagskreppur á ólíkum tímum með því að leggja áherslu á stöðugleika og öryggi en jafnframt umbætur og skilvirkni. Þetta segir Dagfinn Høybråten, sem tók við starfi framkvæmda- stjóra Norrænu ráðherranefnd- arinnar í mars sl. Høybråten hefur mikla reynslu af stjórnmálum og opinberri stjórn- sýslu, var m.a. þingmaður og ráð- herra fyrir Kristilega þjóðarflokkinn í Noregi til fjölda ára og fram- kvæmdastjóri norsku trygginga- stofnunarinnar. Hann hefur ætíð verið mikill áhugamaður um nor- ræna samvinnu en spurður um mik- ilvægi hennar í ljósi samvinnu ríkjanna á alþjóðavettvangi segir hann þörfina fyrir svæðisbundið samstarf hafa farið vaxandi. „Ef þú hefðir spurt mig að þessu snemma á níunda áratugnum, þeg- ar Svíþjóð og Finnland gengu í Evrópusambandið og Danmörk var þar fyrir auðvitað, hefði ég verið ef- ins um hvað yrði um norræna sam- vinnu gegnum þær breytingar. Það sem við höfum hins vegar séð á síð- ustu tíu árum er að norrænt sam- starf spilar stærra hlutverk en áð- ur, þrátt fyrir ólík tengsl ríkjanna við Evrópusambandið og NATO,“ segir hann. Samræming reglugerða Høybråten segir að samfara stækkun Evrópusambandsins og auknum fjölbreytileika, sem og breyttum áherslum í öryggis- og ut- anríkismálum, hafi áhugi Norður- landanna á samvinnu við nágranna sína aukist. Þrátt fyrir að þjóðirnar fimm; Ísland, Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Finnland, séu allar í minni kantinum sé samtakamáttur þeirra mikill. „Ég sé mikla möguleika í sam- hæfðri stefnumótun, til dæmis er varðar alþjóðlegar samninga- viðræður um loftslagsmál. Þar hafa Norðurlöndin samið á sameigin- legum grundvelli og samhæft af- stöðu sína og þannig haft áhrif en ekki bara verið þátttakendur. Í öðru lagi eru öll þessi ríki, ekki bara Ísland, hlutfallslega lítil en saman mynda þau tíunda stærsta hagkerfi í heimi, sem þýðir að við getum gert meira, betur og á skil- virkari hátt en við getum hvert í sínu lagi. Í þriðja lagi eru ákveðnir hlutir sem hefðu aldrei gerst nema í sam- vinnu. Ég get t.d. nefnt þær að- gerðir sem ráðist var í til að varð- veita líffræðilegan fjölbreytileika norðurslóða með byggingu sameig- inlegs fræbanka á Svalbarða, sem er fordæmi fyrir allan heiminn og nokkuð sem ég held að löndin hefðu ekki ráðist í hvert fyrir sig.“ Íslendingar taka við forsætinu í ráðherranefndinni á næsta ári en Høybråten segir að meðal þess sem nefndin hafi lagt áherslu á undan- farið sé „grænn vöxtur“, þ.e. at- vinnusköpun í sjálfbærum greinum, og heilbrigðis- og velferðarmál, þar sem einnig þurfi að miða að sjálf- bærni. Þá segir hann samræmingu ýmissa regluverka ofarlega á for- gangslistanum, s.s. þegar kemur að flutningi fólks og vöru og þjónustu þvert á landamæri. „Ef reglur og viðmið eru ólík og það liggur engin góð ástæða því til grundvallar ætti að breyta þeim, því annars skapar það vandamál fyrir bæði almenna borgara og fyr- irtækin,“ segir hann. Markvisst sé unnið að því að fjarlægja það sem hann kallar „landamærahindranir“ til að auðvelda alla flutninga innan Norðurlandanna. Samtakamátturinn mikill  Ríki heims líta til Norðurlandanna eftir innblæstri, segir framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar  Norræn samvinna sífellt mikilvægari Morgunblaðið/Rósa Braga Framkvæmdastjóri Høybråten tók við starfi framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar af Halldóri Ás- grímssyni en Íslendingar taka við forsætinu af Svíum á næsta ári og er undirbúningur í fullum gangi. Til að mæta niðurskurði í fjárframlögum var sú ákvörðun tekin innan ráð- herranefndarinnar fyrr á árinu að hætta stuðningi við Norrænu blaða- mannamiðstöðina í Árósum. Blaðamannafélag Íslands var meðal þeirra sem gagnrýndu ákvörðunina og hefur hvatt íslensk stjórnvöld til að leggja sitt af mörkum til að halda rekstri miðstöðvarinnar gangandi. Høybråten segir að sér sé kunnugt um að ákvörðunin hafi verið hita- mál en endanleg niðurstaða í málinu muni liggja fyrir í lok október. Umdeild ákvörðun NIÐURSKURÐUR Umsóknarfrestur um embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna rann út 26. ágúst sl. Mennta- og menningar- málaráðuneytinu bárust 29 um- sóknir um stöðuna, þar af 18 frá konum og 11 frá körlum. Umsækjendur eru: Anna Sig- urðardóttir, Brynja Þorbjörns- dóttir, Elín Sigrún Jónsdóttir, Gerður Ríkharðsdóttir, Herdís Gunnarsdóttir, Hildur Friðleifs- dóttir, Hrafnhildur Ásta Þorvalds- dóttir, Inga Ósk Jónsdóttir, Ingi- björg Guðmundsdóttir, Jóhann Kristjánsson, Karítas Skarphéð- insdóttir, Kjartan Örn Kjart- ansson, Kristín Egilsdóttir, Krist- ján Eiríksson, Ólafur Örn Ingólfsson, Margrét Hermanns Auðardóttir, Páll Haraldsson, Páll Ólafsson, Petrína Ásgeirsdóttir, Ragnar Þorgeirsson, Rakel Lind Hauksdóttir, Regína Fanný Guð- mundsdóttir, Rut Reykjalín Parr- ish, Sigríður Hrund Guðmunds- dóttir, Sigrún Kjartansdóttir, Sigurður Nordal, Stefán Að- alsteinsson, Steinar Almarsson og Þorvaldur Ingi Jónsson. Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að miðað sé við að mennta- og menningarmálaráð- herra skipi í stöðuna til fimm ára, frá 1. október nk., að fenginni um- sögn stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna. LÍN Lánasjóður íslenskra náms- manna er til húsa við Borgartún. 29 vilja stýra lánasjóði  Umsóknir bárust frá 18 konum og 11 körlum Heimild hefur verið gefin til að fjölga um einn starfsmann á næturvöktum á meðferðarstöðinni Stuðlum, í kjöl- far rannsóknar á meintum kyn- ferðisbrotum meðal barna sem þar voru vistuð. Barnaverndarstofa, sem rekur Stuðla, óskaði eftir því við velferðar- ráðuneytið að úttekt yrði gerð á starfsemi meðferðarstöðvarinnar í ljósi málsins sem kom upp fyrir rúmri viku og er nú til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um kyn- ferðisbrot. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segist ekki vita hvenær úttektinni ljúki en telur að hún muni ganga fljótt fyrir sig. Í millitíðinni sinnir Barnaverndar- stofa innra eftirliti. „Það eru athuganir í gangi á okkar vegum sem lúta að öryggi barnanna og eftirliti með þeim inni á deild- inni,“ segir Bragi. Aðspurður hvort verklagi hafi að einhverju leyti verið breytt síðan málið kom upp segir hann að m.a. hafi verið ákveðið að bæta einum starfsmanni við á nætur- vakt. „Við höfum gert ýmislegt sem miðar að því að auka eftirlit og bæta, með því meðal annars að fá betri úr- lausn í tæknibúnaði með hreyfi- skynjurum og öryggismyndavélum,“ segir Bragi. Þessar aðgerðir verði svo endurskoðaðar þegar niðurstaða ráðuneytisins liggi fyrir. Það er einsdæmi í sögu Stuðla að mál af þessu tagi komi upp. Enn er óljóst hvað nákvæmlega átti sér stað í samskiptum unglinganna. Piltarnir þrír sem málið varðar eru ekki leng- ur á Stuðlum. una@mbl.is Morgunblaðið/Golli Meðferðarstöð Unnið er að úttekt á starfseminni á Stuðlum. Heimilt að bæta við starfsmanni á Stuðlum  Unnið að úttekt á starfseminni Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri Full búð af nýjum vörum á frábærum verðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.