Morgunblaðið - 03.09.2013, Page 13

Morgunblaðið - 03.09.2013, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 „Þetta er áhugaverð rannsókn. Í fyrsta lagi gefur hún mikla mögu- leika á rannsóknum í framhaldinu og vonandi á hún eftir að gagnast sjúk- lingum líka,“ segir Jórunn Erla Ey- fjörð, prófessor á rannsóknastofu í krabbameinsfræðum við læknadeild Háskóla Íslands, um niðurstöðu rannsóknar á krabbameini sem hún tók þátt í. Jórunn er eini Íslendingurinn í al- þjóðlegum hópi vísindamanna sem vann fyrstu ítarlegu greininguna á stökkbreytingum sem valda æxlis- myndun í 30 algengustu tegundum krabbameins í mönnum. Niðurstöðurnar eru birtar í nýj- asta hefti vísindatímaritsins Natur. Rannsókninni er lýst sem tímamót- um í krabbameinsrannsóknum. Stökkbreytingar tengjast við- brögðum við veirusýkingum Í sumum tilfellum má rekja stökk- breytingarnar til þekktra skaðvalda eins og efna í tóbaksreyk eða út- fjólublárrar (UV) geislunar. Reyk- ingatengt stökkbreytingamynstur sést t.d. skýrt í krabbameini í munni og lungum og mynstur tengt út- fjólublárri geislun í húðkrabbameini. Í flestum öðrum tilfellum er minna vitað um orsakir, en þessi rannsókn er mikilvægt innlegg í að finna skýr- ingar á þeim, að sögn Jórunnar. „Áhugaverðast í rannsókninni er að sjá nýjar tengingar stökkbreyt- inga við galla í viðgerð erfðaefnis og einnig er merkilegt hvað stökk- breytingar í genum sem tengjast viðbrögðum við veirusýkingum, svo- kölluðum APOBEC-genum, koma víða við sögu,“ segir Jórunn. Rannsóknin byggist á alþjóðlega samstarfsverkefninu „The human cancer genome project“ sem miðar að því að skilgreina allar tegundir krabbameins í mönnum, hvers vegna það myndast, hvað valdi því og hvernig megi þróa sértækar aðferðir til að meðhöndla eða koma í veg fyrir ýmsar tegundir krabbameins. Verk- efnið er unnið undir forystu Sanger- stofnunarinnar í Bretlandi og að því kemur fjöldi vísindamanna víðs veg- ar að úr heiminum. thorunn@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Rannsókn „Áhugaverðast í rannsókninni er að sjá nýjar tengingar stökk- breytinga við galla í viðgerð erfðaefnis,“ segir Jórunn Erla Eyfjörð. Tók þátt í tíma- mótarannsókn á krabbameini  Fyrsta ítarlega greiningin á stökk- breytingum sem valda æxlismyndun Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Jóhann Haukur Hafstein og Björg- vin Björgvinsson, fyrrverandi lands- liðsmenn í skíðaíþróttum, hafa stofn- að fyrirtækið Viking Heliskiing og stefna að því að bjóða upp á þyrluskíðaferðir frá Siglufirði. Byrjað verður í mars. Á Trölla- skaga er fyrir fyrirtækið Berg- menn sem hefur boðið upp á þyrluskíðaferðir í nokkur ár og hef- ur gert samninga um einkaleyfi á tilteknum fjöllum, m.a. samning til tólf ára við Dalvíkurbyggð og Grýtubakka- hrepp, en þeir Jóhann og Björgvin segja nægt svigrúm fyrir tvö fyrir- tæki á svæðinu. Í liðinni viku fór Jóhann á fund bæjarráðs Fjallabyggðar og óskaði eftir samningi um afnotarétt á jörð- um og landsvæði í eigu sveitar- félagsins á tímabilinu 1. mars til 20. júní ár hvert, að því er segir í fund- argerð bæjarráðs. Jóhann segir að þeir hafi talið rétt að óska eftir samningi um afnotarétt enda von á þyrluumferð í grennd við bæinn og eðlilegt að fyrirtækið láti vita af áhuga sínum á því að starfa þar. Hann vill að svo stöddu ekki segja til um hvort félagið sækist eft- ir einkarétti í Fjallabyggð eða hvort samningur um afnotarétt sé nauð- synlegur til að fyrirtækið geti starf- að á svæðinu. Þá vill hann ekkert ræða um hvaða áhrif samningar Bergmanna við Dalvík og Grýtu- bakkahepp muni hafa á starfsemi Viking Heliskiing. Bergmenn gerðu í fyrravetur samning til tólf ára við Dalvík og Grenivík og leituðu eftir sambæri- legum samningi við Fjallabyggð. Fjallabyggð treysti sér hins vegar ekki til að semja til svo langs tíma. Unnið að samningum Þeir Jóhann og Björgvin hafa sjálfir stundað fjallaskíðamennsku af miklum móð frá því þeir hættu keppni og stundað þyrluskíða- mennsku víða erlendis. Þeir eiga nú í samningaviðræðum um gistingu fyrir viðskiptavini fyr- irtækisins og eru að semja við Reykjavík Helicopters um þyrlu- ferðirnar. Þá er verið að ganga frá samningum við leiðsögumenn. Jó- hann tekur fram að leiðsögumenn- irnir séu þaulreyndir fjallaskíða- menn og þyrluflugmennirnir vanir að fljúga yfir Tröllaskaga. Viking Heliskiing mun bæði bjóða upp á stakar ferðir og dagsferðir upp á fjöll, sem Jóhann telur að muni höfða til Íslendinga, og nokk- urra daga pakkaferðir sem höfði lík- lega frekar til útlendinga. Það auki á möguleika þyrluskíða- mennsku á Íslandi að besta tímabilið fyrir hana sé á öðrum árstíma en víðast annars staðar. Hér sé best að fara í þyrluskíðaferðir frá mars og fram í júní en víðast erlendis standi tímabilið frá janúar og fram í mars. Jóhann bendir á að á Siglufirði og nágrenni sé mikið um ferðaþjón- ustufyrirtæki og því sé hægt að bjóða upp á fjölbreyttar ferðir, sem sé mikill styrkur. Ekki sé nóg með að hægt sé að skíða í geysifögru landslagi og renna sér í kvöldsólinni frá fjallstoppum niður í fjöru, heldur sé einnig hægt að fara í hvalaskoðun, sjóstangveiði, hestaferðir og ým- islegt fleira. „Þetta er ekki hægt að gera í Ölpunum,“ segir hann. Samkeppni í þyrluskíðaferðum  Nýtt fyrirtæki, Viking Heliskiing, ætlar að bjóða upp á þyrluskíðaferðir á Norðurlandi næsta vetur  Telja nægt svigrúm fyrir tvö fyrirtæki  Hafa óskað eftir afnotarétti af landi Fjallabyggðar Jóhann Haukur Hafstein Paradís Aðstæður til skíðamennsku á Tröllaskaga eru frábærar. Við færum þér nýtt heyrnartæki ALTAerþróaðastaheyrnartækið fráOticonframtil þessa. Öflugörflaga íALTAsérumaðþúheyrir ávallt semskýrast, í hvaðaaðstæðumsemer. ALTAerhannaðtil aðuppfylla þínarþarfir ogeralgjörlegasjálfvirkt. MeðALTAheyrirþúbetur.Alltaf.Alls staðar. Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu og fáðu Alta til prufu í vikutíma Sími 568 6880 Upplifðu það besta - prófaðuALTA Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880 | www.heyrnartækni.is |

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.