Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 ✝ Elín SóleyKristinsdóttir fæddist á bænum Hjalla (fyrir ofan) á Dalvík 6. október 1931. Hún andaðist á Hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 23. ágúst 2013. Hún var yngsta barn hjónanna Gunnlaugs Kristins Gunnlaugssonar, trésmiðs og bónda á Hjalla við Dalvík og Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur. Systkini Elínar voru: 1) Friðjón Kristinsson, maki Friðrika Margrét Guð- jónsdóttir, bæði látin. Börn þeirra eru Elsa Björg og Svein- björn. Dóttir Friðriku og stjúp- dóttir Friðjóns er Anna Jóna. 2) Gunnar Reynir, maki Ingibjörg Arngrímsdóttir. Börn þeirra eru Gígja og Úlfar. Hálfsystkini Elínar af fyrra hjónabandi föð- ur hennar voru: Gunnlaugur Tryggvi, Þorleifur Kristján og Rósa Guðný, öll látin. Elín eignaðist með Ólafi Magnússyni, sem lést í júlí síð- astliðnum, einn son, Kristin Jó- hún var mjög virk í FEB (Félag eldri borgara) í seinni tíð. Elín var alla tíð útivinnandi. Hún var meðal annars ráðskona, vann við afgreiðslustörf, barna- gæslu, ræstingar og hjá Póst- inum, einnig annaðist hún kaffisölu. Hún hafði ætíð gam- an af börnum og var mjög stolt af barnabörnunum sínum. Elín var mjög söngelsk og söng í nokkrum kórum, nú síðast í kirkjukór Háteigskirkju. Hún hafði gaman af dansi og fór á marga dansleiki um ævina. Hún þótti góður penni þó að hún hafi ekki látið birta nein skrif sín fyrir utan mjög fallegar minningargreinar um vini og ættingja, og eitt erindi í dag- bók Íslendinga. Hún var oft hnyttin í tilsvörum en gætti þess ætíð að særa engan. Hún talaði aldrei illa um nokkurn mann, hafði sterka réttlæt- iskennd og tók upp hanskann fyrir þá sem henni fannst órétti beittir. Árið 1995 greindist hún með krabbamein sem varð hennar banamein. Hún tók veikindum sínum af einstöku æðruleysi og talaði lítið sem aldrei um þau, en leitaði sér stuðnings hjá Styrk, samtökum krabbameinssjúklinga og að- standenda þeirra. Útför Elínar fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 3. september 2013, og hefst athöfnin kl. 13. hann Ólafsson, f. 19. apríl 1969, kerfisfræðingur, kvæntur Steinþóru Þórisdóttur, f. 21. nóvember 1972, líf- eindafræðingi, þau eiga þrjú börn; Margrét Sóley, f. 23. febrúar 1997, Benedikt Ólafur, f. 6. apríl 2000, og Guðbrandur Helgi, f. 28. júní 2008. Elín ólst upp á Dalvík og gekk þar í barnaskóla. Hún flutti með móður sinni til Ak- ureyrar og síðar til Reykjavík- ur. Hún var mjög náin móður sinni og hélt heimili með henni allt þar til hún lést 1967. Elín útskrifaðist frá Húsmæðraskól- anum á Laugalandi og má kannski rekja þangað áhuga hennar á eldamennsku enda fannst henni gaman að bjóða vinum og vandamönnum í mat og kaffi. Hún var mjög fé- lagslynd þótt feimni hefði háð henni á yngri árum og starfaði hún bæði í kvenfélagi Nes- og Háteigskirkju auk þess sem Þegar komið er að kveðju- stund er margs að minnast og þá kann maður betur að meta þann tíma sem samvistanna naut. Mamma var fædd á Dalvík og hafði ætíð sterkar taugar til heimabyggðarinnar. Hún missti föður sinn á barnsaldri og ég skynjaði að það hefur haft djúp- stæð áhrif á hana. Mamma og amma fluttu saman til Reykjavíkur og það bar svo við að mamma leigði hjá eldri manni í Eskihlíð 16a (síðar 22), fyrir- komulag sem breyttist í ævilang- an vinskap og þar áskotnaðist mér nýr afi. Í Eskihlíðinni var ýmislegt brallað, oftar en ekki gripið í spil, tafl, púsl eða límd saman fínustu flugvélalíkön. Mamma vann ætíð fyrir sér við ýmis störf og þó að vinnudagur- inn væri oft langur var alltaf tími fyrir mig, auk þess sem hún stillti vinnutímanum upp þannig að hún gæti verið heima þegar ég kom heim úr skólanum lítill snáði. Þegar ég hóf skólagöngu mína var ekki mikið um að vera á sumr- in fyrir skólakrakka í fríi, því réði mamma sig sem ráðskonu úti í sveit og fékk ég að taka þátt í sveitastörfunum, njóta náttúru landsins og eignuðumst við marga góða vini á þessum árum. Aldrei mátti hafa neitt fyrir mömmu, oft þurfti ég að heimta að fá að sækja hana ef hún ætlaði að koma í heimsókn, því ekki vildi hún ómaka mig. Hún var með ein- dæmum nægjusöm og þakklát fyrir allt það sem aðrir gerðu fyr- ir hana. Þó að hún hafi verið frek- ar hlédræg gat hún líka verið þrjósk og ákveðin, sérstaklega ef réttlætiskennd hennar var mis- boðið. Hún var með eindæmum trygglynd og bast eilífum vina- böndum þeim sem voru hreinir og beinir, því ekki þoldi hún fals eða undirferli. Hún var mikil barna- gæla og naut þess að gæta barna og ljómaði þegar barnabörnin voru nálægt. Hún var mjög trúuð og sótti styrk þangað á erfiðum stundum. Hún var fjölskyldu sinni náin alla tíð. Alltaf stóð hún með mér á sinn ljúfa hátt og helg- aði líf sitt uppeldi mínu. Árið 1995 greindist mamma með krabbamein sem varð henni svo að aldurtila. Aldrei heyrði ég hana kvarta yfir þessu hlutskipti og sem betur fer átti hún mörg góð ár með sjúkdómnum. Sum- arið 2012 fór að halla undan fæti og fór svo að hún fékk pláss á hjúkrunarheimilinu Skjóli í des. sl. Þar fékk hún frábæra umönn- un og þökkum við starfsfólki 3. hæðar kærlega fyrir. Hún var nú ekki sátt til að byrja með enda stefndi hugur hennar heim í Eskihlíðina og það sem fyrst. Hún aðlagaðist þó fljótt og átti góðan tíma í félagsskap annarra vistmanna, enda mjög félagslynd. Þrátt fyrir að veikindin sæktu hart að henni síðustu mánuði, ljómaði hún alltaf þegar maður kom í heimsókn og þannig minn- ist ég hennar. Einnig viljum við þakka Jóni Hrafnkels krabbameinslækni fyrir samfylgdina sem og starfs- fólki á deild 11B og E. Mamma skrifaði oft niður góð- ar vísur og vísdómsorð sem henni þótti falleg, ég fann þessi orð á blaði frá henni, ekki þekki ég höf- undinn, en mér finnst þau eiga vel við hennar minningu. Geymd er minning konu, sem lítils krafðist af öðrum, en þess meira af sjálfri sér. Elsku mamma, takk fyrir allt og guð blessi þig og varðveiti. Þinn sonur, Kristinn Jóhann. Í dag kveð ég tengdamóður mína. Ég kallaði hana alltaf Elínu því í mínu uppeldi lærði ég að kalla fólk því nafni sem það heitir þar til það gaf manni leyfi til ann- ars. Eftir að hafa þekkt hana í mörg ár spurði hún mig einn dag- inn af hverju ég kallaði hana ekki Ellu. „Nú, af því þú baðst mig aldrei um það,“ sagði ég. En á þeirri stundu var ég orðin svo vön því að kalla hana Elínu að ég átti erfitt með að breyta því. Það var ekki fyrr en eftir að hún veiktist að ég fór að kalla hana Ellu, henni þótti mjög vænt um það. Maðurinn minn var einkason- ur Ellu. Hún kallaði hann alltaf „Kristin minn“ þegar hún talaði um hann við mig. Þetta þótti mér afskaplega fallegt enda var hann hennar ljós og yndi. Hún elskaði að sýna mér gamlar myndir af honum og segja mér sögur af honum. Við Ella áttum ekki alltaf skap saman, en við hlógum mikið og grínuðumst með það. Við höfðum báðar mjög ákveðnar skoðanir á uppeldi barnanna og vissum báð- ar að það væri best að vera sam- mála um að vera ósammála. Ella var mjög hnyttin, með skemmti- legan húmor og átti það til að skjóta mjög skemmtilega á mig og hafði ég mjög gaman af því þegar þannig lá á henni. Ella hefur verið stór partur af lífi mínu síðan ég kynntist honum Kristni hennar og hún elskaði að vera nálægt barnabörnunum sín- um. Ef hún komst ekki í heim- sókn eða ef það leið meira en vika milli heimsókna átti hún það til að hringja í mig þrisvar sinnum á dag eða oftar, bara til að tékka á þeim, spyrja hvernig við hefðum það eða bara til að segja mér að hún væri að skreppa út úr húsi. Þótt símtölin væru mörg og stundum erfitt að svara vegna álags í vinnu þá saknaði ég þeirra ef hún hringdi ekki, fór strax að hafa áhyggjur og ávallt hringdi ég til hennar. Þegar ég var ólétt og stutt í fæðingu eða jafnvel komin fram yfir settan dag voru símtölin orðin sex eða fleiri. Ég hló mikið að þessu eftir að börnin voru fædd og skaut á hana en hafði fullan skilning á því að hún var auðvitað jafnspennt og við Kristinn. Ella var hörkudugleg kona, hún var alltaf dugleg að hjálpa öðrum, fór allra sinna ferða gang- andi eða í strætó, alltaf var nóg að gera hjá henni, hún kvartaði aldr- ei og fannst afskaplega gaman að syngja og dansa. Ella var mikil félagsvera og leitaði mikið í félag eldri borgara á seinni árum, ann- aðhvort til að dansa eða bara spjalla. Hún hafði einnig mjög gaman af því að fá barnabörnin í heim- sókn, var alltaf búin að baka handa þeim lummur eða pönnu- kökur þegar þau komu í heim- sókn og átti það til að lauma að þeim gjöfum eða aur. Mikið þótti mér erfitt eftir að sjúkdómur hennar ágerðist að fara með hana til læknis eða í meðferðir en núna þegar ég hugsa til baka á þessari stundu þá eru þessar stundir með henni mjög fallegar og góðar. Ég er mjög þakklát að hafa haft þetta tækifæri með henni. Þakklát fyrir þessar nánu og dýrmætu stundir sem við áttum saman. Ég kveð þig í dag elsku Ella mín, við sjáumst síðar. Þín tengdadóttir, Steinþóra Þórisdóttir. Elsku Ella amma, við kveðjum þig í dag með söknuði. Þegar við hugsum til þín þá birtast okkur falleg minningabrot; jólin með þér, matarboðin í Eskihlíðinni, lummurnar sem þú bakaðir, göngutúrarnir út í Sunnubúð og strætóferðirnar með baukinn í bankann. Okkur finnst erfitt að koma orðum að því hversu mikils virði þú varst okkur og völdum við þetta ljóð til að hjálpa okkur. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku amma, það er erfitt að þurfa að kveðja þig og afa með svona stuttu millibili en við vitum að þið eruð bæði komin á góðan stað, megi góður Guð varðveita þig og gæta þín. Margrét Sóley, Benedikt Ólafur og Guðbrandur Helgi. Ella vinkona mín fæddist og ólst upp á Hjalla, litlu býli á Dal- vík. Faðir hennar sem var smiður góður byggði þar hús og ræktaði tún. Á Hjalla höfðu foreldrarnir bæði kýr og kindur og faðirinn sótti sjóinn svo nóg var að bíta og brenna fyrir fjölskylduna. Ella naut föður síns ekki lengi. Hann lést þegar hún var tæplega níu ára. Móðir hennar og móðurafi bjuggu áfram á Hjalla ásamt börnunum fjórum, Ellu og þrem- ur bræðrum. Á Hjalla ríkti hlýr og góður heimilisbragur. Enginn var þar auður í garði, nægjusemi mikil og allt nýtt sem hægt var. Ella minntist oft þessara ára og taldi sig hafa átt góða æsku. Ég kynntist Ellu í barnaskól- anum á Dalvík. Hún var mjög hlé- dræg og hafði sig lítt í frammi. Ég man að hún varð fljótt fljúgandi læs og las betur en flestir. Eftir fermingu fór Ella í vist eins og alsiða var á þessum árum. Var hún á ýmsum heimilum bæði á Dalvík og Akureyri. Um tvítugsaldur settist hún í Hússtjórnarskólann á Lauga- landi og stundaði þar nám einn vetur. Ég held að sú menntun sem Ella hlaut á Laugalandi hafi reynst henni notadrjúg. Þar eign- aðist hún líka vinkonur sem hún hitti oft, a.m.k. þegar þær voru allar í blóma lífsins. Á seinni árum fór Ella viku- lega í Stangarhyl, félagsheimili aldraðra, og tók þátt bæði í söng og dansi. Ella eignaðist soninn Kristin Jóhann sem varð líf hennar og yndi. Hún var góð og kærleiksrík móðir og mér er nær að halda að hún hafi aldrei talað til drengsins styggðaryrði eða ávítað hann nokkru sinni. Hún hefði helst viljað vera heima og hugsa um barnið sitt en slíkt var ekki um að tala. Hún var einstæð móðir og varð að vinna fyrir brauði sínu. Þegar Kristinn var á barnsaldri réð hún sig í kaupavinnu mörg sumur, til þess að hann gæti notið sumra í sveit með henni. En Ella átti hauka í horni. Hún leigði árum saman hjá rosknum einstæðum manni, Guðmundi Benediktssyni, sem reyndist þeim mæðginum einstaklega vel. Þeir Kristinn urðu mestu mátar og má segja að Guðmundur hafi verið honum góður afi. Faðir Kristins leit og til með syni sínum eins oft og aðstæður leyfðu. Kristinn Jóhann óx úr grasi, er vel menntaður og hinn besti drengur. Hann á góða konu og þrjú mannvænleg börn. Uppeld- isaðferðir Ellu hafa bersýnilega verið ágætar. Síðustu árin hafa verið erfið. Ella hefur strítt við langvinn og erfið veikindi. Kristinn og fjöl- skylda hafa staðið þétt við hlið hennar og létt henni lífsbaráttuna eftir föngum. Nú er stríðinu lokið og hún öll. Ég þakka vináttu Ellu sem hún ávallt sýndi mér og mín- um. Ingibjörg Þórarinsdóttir. Ég kynntist Elínu Sóleyju Kristinsdóttur þegar ég flutti í Eskihlíð 22 sumarið 2002 þegar eldri dóttir mín var fárra mánaða gömul. Atvikin höguðu því svo til nokkru síðar að Elín tók hana að sér um tíma eftir að ég hóf störf á nýjan leik eftir fæðingarorlof. Það var indæll tími fyrir þær báð- ar og eftir að þeim kafla lauk var ávallt vinsælt hjá barninu að fá að fara í heimsókn til Ellu, eins og hún var kölluð. Í Eskihlíð 22 voru fjölmargar fjölskyldur með ung börn og leit- uðu þau gjarnan í heimsókn til Elínar. Hún var eiginlega amman í húsinu og til hennar þótti þeim gaman að koma. Það ríkti fallegt nágrannasam- band milli heimila okkar Elínar, aðstoð við ýmislegt smálegt veitt á báða bóga. Hana var gott heim að sækja og voru afbragðsgóðar pönnukökur hennar oft á borðum. Eftir að ég flutti úr húsinu hélst vináttan og heimsóknir til Elínar urðu allnokkrar. Elín kom fyrir sjónir sem dugnaðarforkur. Hafði alið upp son sinn einsömul og komið til manns samhliða því að vinna ýmis þjónustustörf. Hún var fé- lagslynd, hafði sungið í kirkju- kórum og var seinustu árin mjög dugleg við að iðka dansæfingar eldri borgara. Elín gat verið glettin við börn- in og var iðulega ljúf í skapi. Hún var góðum gáfum gædd, talaði einstaklega fallegt mál og var greinilega sögumaður í sér og vel ritfær þótt sá hæfileiki fengi ekki mikið að njóta sín. Ég kveð í dag kjarnmikla konu og góða manneskju. Blessuð sé minning Elínar. Guðrún Harðardóttir. Elín Sóley Kristinsdóttir Okkur langar til þess að minn- ast bekkjarbróður okkar og vin- ar, Jónasar Viðars, sem nú er fallinn frá langt um aldur fram. Leiðir okkar lágu saman þegar við hófum skólagöngu í gamla Glerárskóla, þá sjö ára gömul. Þetta var fjölmennur bekkur og oftast mikið líf og fjör. Listrænir hæfileikar Jónasar komu snemma í ljós og naut hann sín best við að teikna og dunda sér. Það kom okkur því ekki á óvart að Jónas yrði þessi frábæri listamaður sem hann varð. Jónas var hæglátur og góð- ur vinur og félagi okkar allra. Við undirritaðar bekkjarsystur hans erum saman í „saumó“ og sýndi Jónas því mikinn áhuga að fá að vera með í „klúbbnum“. Hann „fundaði“ stundum með Jónas Viðar Sveinsson ✝ Jónas ViðarSveinsson fæddist á Akureyri 2. febrúar 1962. Hann lést á Land- spítalanum í Reykjavík 12. ágúst 2013. Útför Jónasar fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 23. ágúst 2013. okkur á Bláu könn- unni þegar hann kom því við og var þá mikið skrafað og hlegið. Þá var ekki síður glatt á hjalla þegar bekkurunn hittist og Jónas mikill tals- maður þess að við heldum partí og skáluðum saman í Pernod. Þegar við urðum fertugar fékk Jónas það verkefni að mála fyrir okkur myndir af því tilefni. Jónas fékk að ráða myndefninu og málaði okkur sem engla á mosa, þrjá dökkhærða og þrjá ljóshærða, enda sagðist hann sjá okkur þannig. Mikið eigum við eftir að sakna Jónasar og hlýju og fal- legu orðanna hans í okkar garð. Jónas talaði alltaf fallega um Karlottu dóttur sína, sem hann var einstaklega stoltur af – fal- legasta listaverkið hans. Við sendum henni og öllum aðstand- endum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur, blessuð sé min- nig Jónasar Viðars. Með kveðju, Björk, Gunnhildur, Ingunn, Lovísa Björk, Laufey Petrea, Steinunn. Hún Selma er látin. Lífið er svo mikið fátækara en áður fyrir svo marga. Söknuðurinn er mik- ill. Við höfðum verið nánar vin- konur í áratugi. Fyrst sá ég Selmu í gagnfræðaskóla Austur- bæjar og varð mér starsýnt á þessa glæsilegu konu, rautt sítt hárið á henni glóði í sólinni. Síðar þegar börn okkar voru orðin stálpuð hófst með okkur góður vinskapur sem entist ævina út. Það sem mér er efst í huga núna er hversu yndisleg og góð mann- eskja hún var. Hún var ótrúlega flink listakona á mörgum sviðum og allt sem hún snerti bar vott um ótrúlega smekkvísi og lék allt í höndum hennar. Heimilið var glæsilegt og prýddu fallegar myndir hennar veggina. Fyrst þegar ég sá jólakortin sem hún teiknaði trúði ég ekki í fyrstu að hún hefði málað þau. Það er langt síðan að það var og er ég auðvitað ekki hissa í dag. Eitt strik frá Selma Jónsdóttir ✝ Selma PollyJónsdóttir fæddist í Reykjavík 30. desember 1940. Hún andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 2. ágúst 2013. Útför Selmu fór fram frá Bústaða- kirkju 13. ágúst 2013. henni, þegar hún var að kenna málun gjörbreytti mynd- inni sem skjólstæð- ingar hennar unnu við. Ég var í einum þeirra hópa sem hún kenndi. Ég sagðist ekki geta málað en með hvatningu hennar og mildi gat hún tal- að mig inn á það og gekk það bara vel. Fyrir u.þ.b. 25 árum gerði hún mér stóran greiða, sem aldrei var hægt að borga til baka. Ég var í miklum vandræðum og hún aðstoðaði mig. Ég stend í þakkarskuld við hana eins lengi og ég lifi. Þannig var Selma alltaf tilbúin að gera öðrum greiða og með bros á vör. Listakonan Selma, mín kæra vin- kona er horfin mér í bili en minn- ingin um hana lifir. Ég hugsa um hana á hverjum degi og þakka forsjóninni fyrir að hafa kynnst henni. Við hjónin áttum góðan vinskap með þeim hjónum í ára- tugi. Við fórum saman til útlanda, fórum í leikhús saman og var okkur boðið í dýrindisveislur heim til þeirra og svo að sitja saman í fallegum garðinum við húsið. Ég bið guð að styrkja fjöl- skyldu hennar sem á um sárt að binda. Megi guðs englar vaka yfir þér og hafðu þökk fyrir allt. Hrafnhildur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.