Morgunblaðið - 03.09.2013, Page 38

Morgunblaðið - 03.09.2013, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013 Leikritið Eiðurinn og eitt-hvað fer nokkuðskemmtilega af stað.Verkið byrjar á hugleið- ingum um flug sem er fimlega tengt anda leikhúsgesta. Textinn er að- eins móðgandi í garð gesta en auð- vitað erum við öll viðbúin því að Guðbergur segi okkur til syndanna. Á miðju sviði stendur Erling Jó- hannesson við straubretti í jakka og á síðum nærbuxum. Hann er fulltrúi höfundarins og stælir talanda Guð- bergs alveg prýðilega. Hann kallar fram persónur verksins: tvo karla, sem leiknir eru af Sveini Ólafi Gunnarssyni og Benedikt Karli Gröndal og konu sem leikin er af Sólveigu Guðmundsdóttur. Leikararnir reyna að breyta í samræmi við lýsingu höfundarins en leikmunir eru ekki alltaf þeir sem hann vill. Þá verða persón- urnar að bjarga sér og reyna að koma til móts við kröfur höfund- arins eftir mætti. Skáldið stýrir per- sónum af nokkurri hörku og lætur meðal annars konuna hrista rassinn framan í áhorfendur þegar hún gengur út. Þegar á líður verkið koma upp hálfgerð átök við skáldið sem lyktar með því að það er bund- ið og persónurnar halda áfram án stjórnar. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvern mann persónur verksins hafa að geyma. Konan er ekki alltaf sú sama. Stundum er hún hálfgerður leiksoppur Guðbergs en stundum er hún Ragnheiður Brynjólfsdóttir biskups að því er virðist. Svipað á við um karlana. Karlpersónurnar hreyfa sig stundum eins og spýtu- eða tölvukarlar. Kannski á það að undirstrika að þeir eru ófullgerðar persónur. Þeir flytja texta sinn prýðilega. Sólveig stendur sig einn- ig með ágætum en er sama marki brennd. Hún er fyrst og fremst flytjandi texta höfundar. Öllum persónum er nokkuð mikið niðri fyrir. Þó er erfitt að tengja framvinduna í eitthvert rökrænt kerfi í huganum. Í mínum eyrum hljómaði margt eins og hver annar texti eftir Guðberg. Stóri munurinn var hins vegar sá að hér var enginn möguleiki að fá að heyra eitthvað aftur. Upplifun mín af textanum var að inni á milli komu setningaleiftur sem manni fannst snjöll. Þau gleymdust hins vegar í þeim svelg sem samtölin og einræðurnar vildu verða. Enskur texti fylgdi verkinu sem er eðlilegt þar sem verkið er sýnt á alþjóðlegri leiklistarhátíð. Mér fannst hann stundum styðja textann en jafnoft rugla mig enn frekar í ríminu sem áhorfanda. Eins og sjá má af þessari lýsingu eru ekki margir fastir punktar til að styðja sig við í Eiðnum og ein- hverju. Hér er ekki á hreinu hvort er verið að segja sögu og þá hverra. Sagan er fyrst á forræði höfund- arins en síðan taka persónurnar við. Þar sem maður er á vissan hátt í frjálsu falli án haldreipis í sögu, persónu eða aðstæðum tengist mað- ur verkinu og persónunum tak- markað. Það má næstum segja að áhorfandanum sé fengin ófullburða saga eða pæling til frekari úrvinnslu og sé þannig settur í spor eða hlut- verk höfundarins. Sviðsmyndin er nokkuð einföld en lagleg. Gamalt útvarps- og kass- ettutæki lengst til vinstri. Úr því streymdi í nokkrum tilvikum skemmtileg tónlist sem Sölvi Blön- dal er ábyrgur fyrir. Fyrir miðju er strauborð, straujárn, stólar og borð hægra megin. Aftast á sviðinu er fleki. Á hann er varpað myndum, meðal annars af steinum og einnig myndbandi sem var skemmtilega notað. Efst á flekanum var síðan enskur texti. Það er gott framtak að setja upp verk af þessu tagi á leiklistarhátíð þar sem reynt er á mörk leikhússins í mörgum skilningi. Verkið er frem- ur stutt, áttatíu mínútur og sýnt án hlés. Óhikað má mæla með því fyrir áhugamenn um leikhús vegna til- rauna þess og pælinga. Hætt er hins vegar við því að þeir sem kjósa hefðbundin verk gætu orðið dálítið langleitir á þessari sýningu. Ljósmynd/Kristófer Helgi Sigurðsson Órökrænt „Öllum persónum er nokkuð mikið niðri fyrir. Þó er erfitt að tengja framvinduna í eitthvert rökrænt kerfi í huganum,“ segir m.a. í dómi um leikritið Eiðurinn og eitthvað eftir Guðberg Bergsson sem sýnt er á Lókal. Andleg upphafning eða frjálst fall? Lókal í Tjarnarbíói Eiðurinn og eitthvað bbmnn Eiðurinn og eitthvað eftir Guðberg Bergsson. Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal. Leikmynd: Eva Vala Guðjóns- dóttir og Bergur Þór Ingólfsson. Bún- ingar: Eva Vala Guðjónsdóttir. Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson. Tónlist: Sölvi Blöndal. Hreyfimyndagerð: Una Loren- zen.Tungumál: Íslenska með enskum texta í þýðingu Þórdísar Elvu Þorvalds- dóttur. Aðlögun og leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson. Frumsýning 28. ágúst 2013 í Tjarnarbíói. SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKLIST Skoski tónlist- armaðurinn Sim- on Kempston frá Edinborg heldur tónleika í húsinu sem kennt er við heimaborg hans, Edinborgarhús- inu, á Ísafirði í kvöld kl. 20.30. Kempston mun vera mikilsvirtur lagahöfundur og hefur hlotið verðlaun fyrir list- sköpun sína. Hann þykir með ein- dæmum fingrafimur og ljóðmæltur þegar kemur að lagatextum. Frekari fróðleik um Kempston má finna á vefsíðu hans, www.si- monkempston.co.uk Frá Edinborg til Edinborgarhúss Simon Kempston Sænsk-íslenskur kvartett saxófón- leikarans Sig- urðar Flosasonar og gítarleikarans Hans Olding heldur tónleika í kvöld kl. 20.30 á Kex Hosteli. Með Sigurði og Old- ing leika Þor- grímur Jónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Fluttir verða djassstandardar, brasilísk tónlist og frumsamin lög. Olding og félagar leika á Kex Hosteli Hans Olding Japanski teikni- myndaleikstjór- inn Hayao Miya- zaki er sestur í helgan stein, 72 ára að aldri. Frá þessu var greint á kvikmyndahá- tíðinni í Fen- eyjum sem nú stendur yfir. Miyazaki er einn virtasti teikni- myndahöfundur kvikmyndasög- unnar og hlaut árið 2001 Ósk- arsverðlaunin fyrir Spirited Away. Miyazaki sest í helgan stein Hayao Miyazaki Einhver þekktasta og vinsælasta ópera allra tíma, Carmen eftir Georges Bizet, í uppfærslu Íslensku óperunnar, verður frumsýnd 19. október nk. og hófust æfingar á henni í gær. Með titilhlutverkið fara Hanna Dóra Sturludóttir og Sess- elja Kristjánsdóttir en Don José syngja þeir Kolbeinn Jón Ketilsson og Garðar Thór Cortes. Auk ann- arra einsöngvara taka þátt í sýning- unni kór Íslensku óperunnar, barna- kór og sextíu manna hljómsveit en leikstjóri er Jamie Hayes. Hljóm- sveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson. Söngvarar, leikstjóri og hljóm- sveitarstjóri tóku sér hlé frá æfingu í gær og stilltu sér upp fyrir ljós- myndara Morgunblaðsins. Á mynd- inni sjást frá efri röð til vinstri þau Viðar Gunnarsson, Kolbeinn J. Ket- ilsson, Björn Guðmundsson, Ágúst Ólafsson, Kristján Jóhannesson, Garðar Thor Cortes, Rakel Stef- ánsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Ólafur Haukur Matthíasson, Stefán Baldursson, Jamie Hayes, Helga I. Stefánsdóttir, Bjarni Thor Krist- insson, Guðmundur Óli Gunnarsson, Jean Hayes, Snorri Wium, Elín Smáradóttir, Antonia Hevesi, Þóra Einarsdóttir, Valgerður Guðnadótt- ir, Hallveig Rúnarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Sesselja Krist- jánsdóttir. Morgunblaðið/Rósa Braga Úrvalslið Hópurinn sem kemur að uppfærslu Íslensku óperunnar á Carmen. Æfingar hafnar á Carmen Þjónusta og síur fyrir allar tegundir af loftpressum ÞRÝSTILOFT FYRIR ALLAN IÐNAÐ LOFTPRESSUR – SÍUR – LOFTÞURRKARAR idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is | Smiðjuvegur 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 Gott ú rval á lager ÞÝSKAR GÆÐA PRESSUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.