Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013
Ískugga yfirvofandi fjárskaða-veðurs hlaut tónlistarvetur-inn 2012-13 fljúgandi startfyrir sannkallaða sjósprautu
beint í æð með framkomu I, Culture
Orchestra í Eldborg á fimmtudags-
kvöld í beinni útsendingu RÚV 1.
Ungmennahljómsveit þessi frá sex
löndum fyrrverandi Sovétríkjanna
auk Póllands, er á tilurð sína Adam
Mickiewicz-stofnuninni í Varsjá að
þakka, mun ekki nema tveggja ára
gömul og því varla von að næði ekki
að fylla sætin nema að ¾, jafnvel
þótt um sambærilegt framtak sé að
ræða við Bolívar-sinfóníu Dudamels
frá Venezúelu er þegar hefur hlotið
heimsathygli.
Hvort tveggja frumkvæði gengur
út á að veita hæfileikaríkum ungum
hljóðfæraleikurum tækifæri til að
koma sameiginlega fram á heims-
vísu undir leiðsögn fremstu stjórn-
enda af yngri kynslóð. Að sönnu lofs-
verð viðleitni í fyrstu heimskreppu
sögunnar sem áfram helzt gegnsýrð
af efnis- og neyzluhyggju undan-
gengins góðæris og skilur ekki sízt
yngstu kynslóð eftir á vonarvöl
markaðsafla fyrir vanrækslu
menntakerfis á undirstöðuskyldum
sínum – sérstaklega á tónlistarsvið-
inu – með skelfilegum afleiðingum
fyrir svokallað upplýst val. Því þó að
börn vel stæðra heimila geti enn not-
ið tónlistarmenntunar, þá verða fjöl-
mörg önnur engu hæfileikaminni út-
undan fyrir enga aðra sök en
fjárskort.
Því er aðeins hægt að fagna heils-
hugar slíkri viðleitni til að jafna met-
in. Og, í þessu tiltekna sambandi,
góðfúslegu láni SÍ-félaga á hljóð-
færum til austurevrópsku ungmenn-
anna eins og fram kom af tónleika-
skrá og segir sitt um fjárhags-
aðstæður þar eystra. Síðan verður
aðeins að vona að takist jafnframt að
fjölga hlustendum sem spilurum, í
ljósi þess hvað ungu fólki á Vest-
urlöndum er orðið meira kappsmál
að láta taka eftir sér – gerast „sýni-
legra“ – en að njóta listar í kyrrþey.
Fyrrnefnda hliðin kraftbirtist
óneitanlega með glæsibrag þetta
kvöld, því hvergi var að heyra að að-
eins tíu daga samæfingar í Danzig
lægju að baki tónleikaför ICO hing-
að. Tæknilega léku ungmennin nán-
ast eins og gamlar rottur í faginu;
eldsnarpt og samtaka – og það sem
meira var, af smitandi spilagleði er
reyndari fagbræður gætu öfundað
þá af. Persónulega hreifst ég ekki
sízt af klukkuhvassri hrynstöðu
strengjanna, en brass, tré og slag-
verk stóðu líka vel fyrir sínu.
Dagskráin var ósvikið eyrnayndi
frá upphafi til enda. Sinfónísk ball-
aða hins úkraínska Borisar Ljatos-
jynskíjs (1895-1968) var hér líklega
minnst þekkta verkið, en heróísk
tónfrásögn hans í anda Sjostakovitsj
bar samt öll merki þess að vera nán-
ari kynna verð í leiftrandi túlkun
Karabits og ICO. Öllu kunnari var
eldsprækur 1. píanókonsert Prokofj-
evs með funheitu einleiksframlagi
hinnar georgísku Katju Buniatsji-
vili, er kvittaði fyrir klapp hlustenda
„á fæti“ með dúndrandi aukalagi úr
ókynntri píanósónötu sama höf-
undar með hamrandi la DO-la-
sífrumi.
Sömu undirtektir hlaut lokaverk-
ið, snilldarkonsert Bartóks af bana-
beði fyrir hljómsveit (1945), er hlust-
endur geta síðar í haust (14.11.)
borið saman við túlkun SÍ og Vol-
kovs. Fáeinir staðir, t.a.m. í tré-
blæstri, smullu að vísu ekki alveg
100% saman að ýtrustu hrynkröfum,
en heildin var engu að síður bráð-
skemmtileg áheyrnar, og fjölmörg
eftirminnileg augnablik hlutu því að
drífa salinn aftur upp á fætur að
leikslokum með dunandi klappi að
verðleikum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Leikgleði „… fjölmörg eftirminnileg augnablik hlutu því að drífa salinn aft-
ur upp á fætur að leikslokum með dunandi klappi að verðleikum,“ segir rýn-
ir um leik I, Culture undir stjórn Kirills Karabits sem hér sést á æfingu.
Leiftrandi færni,
leikandi gleði
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikar bbbbn
Ljatosjynskíj: Grazyna (1955). Prokofj-
ev: Píanókonsert nr. 1. Bartók: Konsert
fyrir hljómsveit. Khatia Buniatisjvili pí-
anó; I, Culture Orchestra. Stjórnandi:
Kirill Karabits. Fimmtudaginn 29.8. kl.
19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
GLER OG SPEGLAR 54 54 300 • smiðjuvegi7 • kópavogi
handrið • skjólveggir
einangrunargler • milliveggir
• og margT Fleira
sólvarnargler
SÍðAN 19
69
allT
í gleri
alhliða
lausnir
í einangrunargleri
haFðu samband
sendum
um
allT land
allT að
80%
minna gegnumFlæði
hiTa og óþægilegra
ljósgeisla
vo
TTu
ðF
ra
ml
eið
sl
a
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 6/9 kl. 19:00 1.k Fös 20/9 kl. 19:00 9.k Fös 4/10 kl. 19:00 17.k
Lau 7/9 kl. 19:00 2.k Lau 21/9 kl. 19:00 10.k Lau 5/10 kl. 19:00 18.k
Sun 8/9 kl. 15:00 3.k Sun 22/9 kl. 13:00 11.k Fim 10/10 kl. 19:00 19.k
Fim 12/9 kl. 19:00 4.k Fim 26/9 kl. 19:00 13.k Mið 16/10 kl. 19:00 20.k
Fös 13/9 kl. 19:00 5.k Fös 27/9 kl. 19:00 14.k Mið 23/10 kl. 19:00 21.k
Lau 14/9 kl. 19:00 6.k Lau 28/9 kl. 19:00 15.k Fim 24/10 kl. 19:00 22.k
Sun 15/9 kl. 15:00 7.k Sun 29/9 kl. 13:00 aukas Fös 25/10 kl. 19:00 23.k
Fim 19/9 kl. 19:00 8.k Fim 3/10 kl. 19:00 16.k
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Rautt (Litla sviðið)
Fim 5/9 kl. 20:00 1.k Sun 15/9 kl. 20:00 4.k Sun 22/9 kl. 20:00 7.k
Sun 8/9 kl. 20:00 2.k Fös 20/9 kl. 20:00 5.k Fim 26/9 kl. 20:00 8.k
Fim 12/9 kl. 20:00 3.k Lau 21/9 kl. 20:00 6.k Fös 27/9 kl. 20:00 9.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fös 4/10 kl. 20:00 frums Lau 12/10 kl. 20:00 6.k Lau 19/10 kl. 20:00 11.k
Lau 5/10 kl. 20:00 2.k Sun 13/10 kl. 20:00 7.k Sun 20/10 kl. 20:00 12.k
Sun 6/10 kl. 20:00 3.k Mið 16/10 kl. 20:00 8.k Mið 23/10 kl. 20:00 13.k
Fim 10/10 kl. 20:00 4.k Fim 17/10 kl. 20:00 9.k Fim 24/10 kl. 20:00 14.k
Fös 11/10 kl. 20:00 5.k Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Fös 25/10 kl. 20:00 15.k
Benni Erlings, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón - sjónleik
Rautt – HHHHH „Alvöru listaverk“ – MT, Ftíminn
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 6/9 kl. 19:30 23.sýn Sun 8/9 kl. 19:30 25.sýn Mið 30/10 kl. 19:30 Aukas.
Lau 7/9 kl. 19:30 24.sýn Mið 16/10 kl. 19:30 Aukas.
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús!
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas. Sun 15/9 kl. 13:00 Aukas. Sun 15/9 kl. 16:00 Lokas.
Aðeins þessar þrjár sýningar!
Maður að mínu skapi (Stóra sviðið)
Lau 14/9 kl. 19:30 Frums. Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 7.sýn
Fim 19/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/9 kl. 19:30 5.sýn
Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 6.sýn
Nýtt íslenskt leikrit eftir Braga Ólafsson!
Harmsaga (Kassinn)
Fös 20/9 kl. 19:30 Frums. Fim 26/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Lau 21/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/9 kl. 19:30 4.sýn Sun 6/10 kl. 19:30 7.sýn
Mið 25/9 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Ofsafengin ástarsaga sótt beint í íslenskan samtíma!
Skrímslið litla systir mín (Kúlan)
Lau 14/9 kl. 12:00 Frums. Lau 21/9 kl. 14:00 4.sýn Lau 28/9 kl. 14:00 7.sýn
Lau 14/9 kl. 14:00 2.sýn Sun 22/9 kl. 12:00 5.sýn Sun 29/9 kl. 12:00 8.sýn
Lau 21/9 kl. 12:00 3.sýn Lau 28/9 kl. 12:00 6.sýn
Barnasýning ársins 2012
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 5/10 kl. 13:30 Lau 12/10 kl. 19:30
Lau 5/10 kl. 15:00 Lau 12/10 kl. 19:30
Karíus og Baktus mæta aftur í október!
Hættuför í Huliðsdal (Kúlan)
Sun 8/9 kl. 16:00 Frums. Lau 14/9 kl. 16:00 3.sýn
Lau 14/9 kl. 13:00 2.sýn Sun 15/9 kl. 13:00 4.sýn
Hugrakkir krakkar athugið - aðeins þessar sýningar!
4 sýningar á 13.900 kr.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Qanga nefnist sýning sem opnuð verður í
Norræna húsinu í dag kl. 11. Sýningin sam-
anstendur af teikningum eftir grænlenska
listamanninn Nuka K. Godtfredsen, 31 vatns-
litaverki úr teiknimyndaseríu sem hann
gerði fyrir Þjóðminjsafnið í Danmörku.
Verkin eru hluti af grafískum skáldverkum
sem fjalla um upphaf Grænlands og tilurð:
„Fyrstu skrefin“ og „Hermelín“, að því er
segir í tilkynningu en fyrir þá síðarnefndu er
Godtfredsen tilefndur til Barna- og unglinga-
bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs sem
Norræna húsið hefur umsjón með. Sérstakt
tónverk var samið fyrir sýninguna af dönsku tónlistarmönnunum Kristian
Bjerre Harting og Lill Rasted Bjørst.
Qanga Verk á sýningunni.
Grænlenskar teiknimyndir á Qanga